Leikskólakennarar, sendu mér þessar myndir og
texta:
Við viljum senda þér nokkrar myndir frá atburðum maímánaðar í
Leikskálum.
Elsti árgangur leikskólans (börn fædd 1999) sem er að hætta hjá okkur í
sumar fór í útskriftarferð inn að Sólgörðum dagana 20 til 21 maí
síðastliðinn. Ferðin gekk mjög vel í alla staði. Við fórum í fjöruferð í
Hagnesvík, skoðum Barðskirkju, höfðum sundlaugina út af fyrir okkur og
nutum þess að vera í skólanum.
Þau í Sólgörðum hafa verið svo frábær að lána okkur þessa aðstöðu árum
saman fyrir útskriftarhóp leikskólans og erum við þeim mjög þakklát
fyrir það, enda frábær aðstaða í alla staði.

|
Sveitaferð
Leikskálakrakka 25. maí 2005
Ekki nóg með að hún Guðrún
skólastjóri Sólgarða láni okkur skólann heldur hefur árum saman tekið á
móti öllu leikskólabörnum og foreldrum þeirra að Helgustöðum. Það hefur
verið hefð fyrir því að fara þangað í sveitaferð, skoða dýrin og njóta
sveitasælunnar.
Þau hjónin hafa tekið frábærlega á móti okkur og börnin fengið mikið út
úr þessum ferðum.
Foreldrafélagið hefur lagt til rútuna og leikskólinn nestað alla.
Föstudaginn 27. maí kl 17.30 er elsti árgangur leikskólans að
útskrifast. Þá er foreldrum elstu barna boðið að koma og vera viðstödd
útskrift barna sinna. Fulltrúar frá Rauða Krossinum og lögreglu munu
vera með okkur og væntanlega koma gagnlegum upplýsingum
|