Það sem Þ.E. ekki þorði | Vátryggingar | Ræða Þormóðs | Deilur og yfirlýsingar | Bomban sprakk | .. út af ummælum .. | Hrakfarir Finns Jónssonar | Vinnudeila leyst | Árni Friðriksson.

>>>>>>>>>>> Það sem Þ.E. ekki þorði

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Neisti, 15. janúar 1938

Það sem Þormóður Eyjólfsson ekki þorði að lesa upp úr fundargerðabók stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins.

A fundinum í fyrrakvöld var skorað á Þ.E. að lesa upp úr bók stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins, það sem bókað var út af kosningu formanns stjórnar síldarverksmiðjanna. Þ.E. þorði ekki að verða við þessum áskorunum, en hér á eftir fara þessar bókanir:

 

F.J. gerir þá grein fyrir sínu atkvæði að hann hafi kosið Þorstein M. Jónsson, sem formann, samkvæmt samkomulagi milli þingflokka Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins, enda hafi verið samkomulag um milli þessara flokka, að báðir fulltrúar Framsóknarflokksins gerðu hið sama og hafi hann gefið kost á sér í stjórn verksmiðjanna að fengu þessu loforði.

 

Þorsteinn M. Jónsson gerir þá grein fyrir því að hann greiddi ekki atkvæði að, þar sem honum sé kunnugt um að umrætt samkomulag milli þingflokka ríkisstjórnarinnar gæti ekki komist í framkvæmd(1), þá hafi hann álitið rétt af sér að greiða ekki atkvæði.

 

Þ.E. biður bókað:

 

Ég mótmæli því að nokkuð loforð eða samkomulag hafi legið fyrir við Alþýðuflokkinn frá Framsóknarflokksins hálfu um kosningu Þorsteins M. Jónssonar í formannssæti, enda ákveðið miklu fyrr að F.J. skyldi kosinn i stjórnina, hver svo sem yrði formaður verksmiðjustjórnarinnar.

 

F.J. biður bókað að hann hafi enga ástæðu til að halda að Þ.E. hafi ekki verið kunnugt um framangreint samkomulag eins og flokksmanni hans Þ.M.J., en um hið síðara atriðið, kosningu F.J. í verksmiðjustjórnina geti Þ.E. ekki vitað neitt um, enda sé það alrangt, sem hann haldi þar fram.

 

Þ.E. tekur fram, að hann hafi ekkert vitað um það, áður en hann var kosinn í stjórnina, hve mikið kapp F.J. leggur á það að Þ.M.J. yrði formaður og enginn farið fram á það við sig á undan þingkosningu stjórnarinnar að kjósa Þ.M.J. sem formann.. -

 

Af framangreindri bókun geta Siglfirðingar sannfærst um það hvernig Þ.E. leyfir sér að halda fram bláberum ósannindum fyrir fullu húsi áheyrenda.

 

Sýnir það einnig ljóslega hvaða virðingu hann ber fyrir Siglfirskum kjósendum, að hann skuli leyfa sér slíkt.

(1)  Leturbreyting blaðsins Neista