Fréttasíður.
Fréttamyndasíðurnar innhalda tímabil
fréttaljósmynda sem ég hefi tekið þátt í að koma á framfæri, sem birt
hefur verið í hinum ýmsu blöðum og tímaritum. Þetta er gamalt
fréttaefni aðallega tengt Siglufirði og gang mála þar á tímabilinu 1961 -
1976
Fyrsta fréttaljósmyndin mín birtist í Alþýðublaðinu 29. nóvember 1961,
síðan heimablöðin, árið 1962 var ég fastráðinn fréttaljósmyndari hjá
Dagblaðinu MYND frá upphafi til loka, sem því miður var blað sem ekki
náði almennri hylli í strangri samkeppni en "MYND" lagði áherslu á
myndbirtingar og stuttan texta með viðkomandi fréttamynd, síðan
dagblaðið Tíminn, en árið 1963 var ég fastráðinn hjá Morgunblaðinu þar
til hagir mínir breyttust og ég hafði ekki lengur þann tíma aflögu sem
þurfti til að skila verkefninu eins og ég hafði kosið, en frétta
ljósmyndun "lauk" 1976.
Allar ljósmyndirnar koma fyrir á heimasíðu minni í svipuðum stærðum +/-
eins og í frumbirtingu í blöðunum. Textinn er skannaður og umbreytt í
texta með "O.C.R. hugbúnaði" þannig að textinn á að vera sá sami og í
frumbirtingu, nema núverandi stafsetning er notuð, það er ekki er notast
við bókstafinn "z" eins og venja var á þessum tíma ofl. Fram koma
textar með myndum, hvort heldur þeir eru mínir eða annarra fréttamanna
og eða blaðamanna. Viðkomandi aðila er þá getið, þegar texti þeirra
tengist myndum mínum á einn eða annan hátt. Þá er og á mörgum stöðum
ljósmyndir sem teknar voru í tilefni fréttanna, en ekki birtar í
Morgunblaðinu og eru tenglar til þeirra merktir
"Fleiri myndir"
Grein Mbl.v.birtingar.
Þetta er grein sem birt var í Morgunblaðinu 28. apríl 2000,
vegna umræðu á þeim tíma, þar sem raddir
heyrðust frá þeim "sem öllu vilja ráða" varðandi birtingu á mannamyndum
opinberlega.
Góð ráð: Þar sem Myndir
á fréttasíðunum eru ekki með svokölluðu "Thumnail" sniði, þá tekur
lengri tíma að sækja síðurnar. Ráðlagt er að sækja þann fjölda síðna
sem áætlað er að skoða í senn 3-4 síður í einu, til dæmis. Ekki eyða
tímanum á netinu við að lesa þær strax, heldur sækja fyrst ákveðin
fjölda, það er full sækja hverja síðu fyrir sig, hverja á fætur annarri.
Einnig er gott ráð að færa músbendil upp að þeim hnappi sem á að opna,
smella einu sinni með hægri músahneppi, þá fellur niður gluggi,
þar skal smella með vinstri músahnappi á "Open Link in New Window"
á kemur upp nýr skjár og fyrri skjárinn helst opinn, þannig geturðu
safnað saman eins mörgum "gluggum" og minni tölvu þinnar lofar. Svo
geturðu slökkt á nettengingunni og skoðað síðurnar í ró og næði án þess
að eyða peningum í símakostnað vegna nettengingar á meðan.
Þessi síða var yfirfærð og uppfærð
28-jan.-2011.
Allur réttur áskilinn. Síðurnar eru unnar með
Microsoft
FrontPage.
Unnið af Steingrími Kristinssyni. |