Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Balnd frétta Raveita Siglufjarðar Framboðslisti Bland frétta Snjóflóð

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Föstudagur 15. mars 1974

FRAMBOÐSLISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Á SIGLUFIRÐI

Fyrir nokkrum vikum fór fram skoðanakönnun í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Siglufirði,  hvort viðhaft skyldi bindandi prófkjör, leiðbeinandi skoðanakönnun eða tillögugerð frá nefnd  varðandi röðun á framboðslista flokksins við í hönd farandi bæjarstjórnarkosningar. Niðurstaðan var, að viðhöfð skyldi leiðbeinandi  skoðanakönnun.

Skoðanakönnun þessi var síðan rækilega auglýst og framkvæmd með leynilegu vali. Á milli  80-90 kjósendur tóku þátt í skoðanakönnuninni. Skoðanakönnunin var ótvíræð varðandi skipan efstu sæta listans. Og þó hún væri ekki bindandi, var farið  eftir niðurstöðum hennar í röðun í fimm efstu sæti hans, er fjölmennur, sameiginlegur fundur  sjálfstæðisfélaganna samþykkti hann endanlega sunnudaginn 3. mars s.l .

Stefán Friðbjarnarson bæjarstjóri, sem skipað hefur efsta sæti listans við undanfarnar  bæjarstjórnarkosningar, gaf ekki kost á sér til endurkjörs nú.

Framboðslisti flokksins fer hér á eftir:  [Smellið á mynd til að sjá hana stærri.]

1. Knútur Jónsson

2. Þormóður Runólfsson

3. Björn Jónasson

4. Sigurður Fanndal

5. Kjartan Bjarnason

6. Steingrímur Kristinsson

7. Margrét Árnadóttir

8. Óli J Blöndal

9. Jónína Hjartardóttir

 

1. Knútur Jónsson, framkvæmdastjóri.

2  Þormóður Runólfsson, skrifstofumaður.

3. Björn Jónasson, bankamaður.

4. Sigurður Fanndal, kaupmaður.

5. Kjartan Bjarnason, sparisjóðsstjóri.

6. Steinrímur Kristinsson, verkamaður.

7. Margrét Árnadóttir, húsmóðir.

8. Óli J. Blöndal, kaupmaður.

9. Jóninna Hjartardóttir, húsmóðir.

10. Páll G. Jónsson, byggingameistari.

11. Markús Kristinsson, verksmiðjustjóri.

12. Ólafur Þ. Þorsteinsson, yfirlæknir.

13. Ásgrímur Helgason, sjómaður.

14. Hreinn Júlíusson, byggingarmeistari.

15. Guðmundur Ó. Þorláksson, sjúkrahúsráðsmaður.

16. 16. Kristinn Georgsson, vélvirki.

17. Þórhalla Hjálmarsdóttir, húsmóðir.

18. Stefán Friðbjarnarson, bæjarstjóri