Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Balnd frétta Raveita Siglufjarðar Framboðslisti Bland frétta Snjóflóð

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Júlí - Október: Bland frétta 1974

Ljósmyndir og fréttir: Steingrímur

 

Bílvelta, Mbl.25.júlí --- Nýtt frystihús, Mbl.26. júlí --- Tjón í strákagöngum, 32.ágúst --- Dagný, Mbl.14. ágúst --- Húseiningar Mbl.15. október ---  Skeiðsfoss Mbl.16.október

Bílvelta á Siglufirði

 

 

 

 

 

 

 

 

ÞAÐ óhapp vildi til á Siglufirði fyrir helgi, að vörubifreið valt á hliðina, þegar verið var að losa af  henni byggingarefni. Var bíllinn að sturta, þegar annað framhjólið sökk skyndilega í jarðveginn  og bíllinn steyptist á hliðina. Bifreiðarstjórinn, sem stóð við bílinn og var að losa um efnið, slapp  naumlega.                                                   Ljósmynd Steingrímur.

Nýtt frystihús á Siglufirði

 

 

UM ÞESSAR mundir er unnið kappsamlega að fyrsta áfanga nýs frystihúss, sem Þormóður  rammi hf reisir á Siglufirði. Verkið gengur samkvæmt áætlun. Myndin sýnir byggingarframkvæmdirnar, og má í því sambandi geta þess, að kraninn á myndinni er nýlega kominn til  Siglufjarðar. Er hann mjög fullkominn. Krani sf er eigandi hans.  Steingrímur.

Dagný með fullfermi

Siglufirði 13. ágúst. SKUTTOGARINN Dagný kom til Siglufjarðar í dag með fullfermi af  ágætum fiski af Halamiðum, 170 tonn. Veiðiferðin tók 8-9 daga. Aflinn fer til vinnslu í  frystihúsunum hér á staðnum. Steingrímur.

Varð  fyrir  tugþúsunda  tjóni  í  Strákagöngum

Siglufirði, 22. ágúst. ---  JARÐGÖNGIN við Siglufjörð, Strákagöng, hafa ætíð frá því þau voru  opnuð með viðhöfn af þáverandi samgöngumálaráðherra, Ingólfi Jónssyni, 10. nóvember. 1967, verið  ómetanleg samgöngubót fyrir Siglfirðinga, en svo virðist, að þeim hjá Vegagerðinni hafi fundist  nóg komið að göngin væru opnuð með viðhöfn, því viðhaldi þeirra og hreinsun hefur verið mjög  ábótavant, ef undan eru skildar helmingi of dýrar hurðir fyrir gangamunnana, sem settar voru í  október 1971. Þessar hurðir hafa angrað mjög þá, sem um göngin hafa þurft að fara, jafnt á  sumrum og þó aðallega vetrum. En hæð dyraumbúnaðar er mjög takmörkuð eða aðeins 380 sm  þótt hæð ganganna sjálfra sé um 480 sm. Í fyrstu voru hurðirnar margsinnis teiknaðar eða  teikningar leiðréttar vegna mistaka teiknistofu vegamála og að auki rangt hannaðar, þar sem  vitað var, að hurðarbúnaður útilokáði ákveðna vöruflutninga, aðallega tunnuflutninga, sem stundaðir hafa verið á undanförnum árum. Óeðlilega  oft hafa þessar hurðir, sem opnaðar eru með rafbúnaði, bilað og hafa bílar oft lokast inni þess  vegna og bílstjórar þurft að ganga nokkurra km leið til að tilkynna bilun, oft i misjöfnum veðrum.  Einnig hafa stórir bílar oft rekið sig upp í dyrabúnaðinn, ekki þó alltaf fyrir það, að bílarnir hafi  verið of háir heldur vegna þess, að mold og grjót þekur steypt gólf ganganna og á vetrum  klaki.

Nú i dag rakst enn einn bíllinn, eða tengivagn bíls, upp i. Að þessu sinni varð bilstjórinn fyrir  tugþúsunda tjóni. Þessi bílstjóri er úr Reykjavik. Hafði hann tekið að sér flutninga á tunnum i  stórum stíl frá Tunnuverksmiðju ríkisins til Suðurlands og útbúið vagn sinn samkvæmt því. Hann  sagðist hafa leitað sér upplýsinga hjá vegamálaskrifstofu í Reykjavik um hæð ganganna. Fyrstu  tölurnar, sem hann fékk, voru 320 sm., en þar sem hann hafði heyrt, að þau væru hærri, en vissi ekki fyrir vist, hafði hann tal af  öðrum aðila hjá skrifstofunni, sem gaf honum upp 4 metra, en fékk síðan staðfestingu á 3,80 m  og útbjó hann vagna sína samkvæmt því. Hann ók norður og mjög varlega í gegnum göngin á  leiðinni hingað. Hann varð var við, að aðeins nagaði í eitt horn á tengivagni, en kom ekki að  sök og slapp í gegn. Þegar kom að munnanum Siglufjarðarmegin slapp bíllinn sæmilega í gegn  án þess að koma við, en sennilega hefur tengivagninn farið upp á einhverja drulluhæðina, sem í  göngunum er, því að hann rakst upp i öryggisbita, sem er til varnar hurðunum, og  stórskemmdist vagninn.

Einmuna veðurblíða og þurrkatíð hefur verið á Norðurlandi í sumar og einu drullu- og  bleytublettirnir eru inni í Strákagöngum, og bílar verða ein drullueðja við að keyra gegnum þau. -  Steingrímur.

Þessi mynd var tekin er reist hafði verið á Siglufirði fyrsta húsið, sem  húsa-verksmiðjan Húseiningar, hefur framleitt. Er það hásið, sem hinn nýi  bæjarstjóri Siglfirðinga ætlar að búa í við Fossveg. Húsið kostar 2.4 milljónir kr.  Það er teiknað af Hafliða Helgasyni og er um 109 fermetrar. Hafsteinn Ólafsson gerði  vinnuteikningarnar og Ingólfur Arnarson raflagnir. Verksmiðja Húseininga er svo  vel vélum búin, að hún getur smíðað eitt hús á dag miðað við 30-35 manna  starfslið. Framkvæmdastjóri Húseininga er Knútur Jónsson. Húseiningar er  hlutafélag með um 100 eigendum, sem allir eru búsettir á Siglufirði.     Steingrímur.

 

 

 

 

 

 

Um þessar mundir er unnið af fullum krafti við stækkun Skeiðsfossvirkjunar í Fljótum. Er myndin tekin af grunni nýja stöðvarhússins. Hefur verkinu miðað mjög vel vegna góðrar tíðar og standa vonir til þess að hægt verði að vinna fram eftir haustinu, segir fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði.