Lífið í janúar 01-07 2006 | Lífið í janúar 08-14 2006 | Lífið í janúar 15-21 2006 | Lífið í janúar 22-31 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í janúar 08-14 2006

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2Að gefnu...
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðan
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavél

 SAMKOMUR + Skíðasvæðið -  Smelltu HÉR til að skoða, og/eða settu inn tilkynningu sjálfur HÉR 

Laugardagur 14. janúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 14. janúar 2006  Tré á Siglufirði -- Þau eru víða falleg trén á Sigló, þó svo maður (ég) taki ekki eftir þeim svona hversdagslega, en þegar maður sér þau á vel tekinni ljósmynd, þá kemst maður ekki hjá því að taka eftir þeim.
Þessari mynd nappaði ég af heimasíðu Sveins Þorsteinsonar  www.123.is/svennisiglo/  En ég fór á netflakk og skoðaði meðal annars síðuna hans.

Laugardagur 14. janúar 2006 Þessa mynd tók Sveinn Þorsteins og sendi mér, en myndin var tekin í gærkvöld. Þetta er því ekki sólin, sem þó í fljótu bragði mætti halda , heldur tunglið og stjörnurnar.

Laugardagur 14. janúar 2006  Tvær gamlar:   Netamenn að störfum á netabryggju SR árið 1966 - Myndin til vinstri Björn Sigurðsson og á  hinni myndinni er Jóhann Stefánsson og Jón Jóhannsson netagerðarmenn

Laugardagur 14. janúar 2006
Sandra Karen Daðadóttir
er 2 ára í dag.
Hún fær innilegar afmæliskveðjur frá pabba, mömmu, Adam stóra bróa og Kamillu stóru systur.  ---  Sandra er dóttir Daða Hafþórssonar og Hönnu Maríu Bjarnadóttur.
Laugardagur 14. janúar 2006
Kristján Flóvent Haraldsson
er 54 ára í dag
 
Laugardagur 14. janúar 2006
Stefán Einarsson
er 58 ára í dag

Föstudagur 13. janúar 2006  Núverandi stjórn Kaupmannafélags Siglufjarðar, veitti manni janúarmánaðar viðurkenningu í hádeginu í dag. Þetta er í síðasta sinn á starfsári stjórnarinnar sem þessi viðurkenning er veitt af henni, ákvörðun sem tekin var á fyrsta fundi stjórnarinnar, að veita einum einstaklingi og fyrirtæki viðiðurkenningu fyrir frammistöðu sína í hverjum mánuði kjörtímabilsins. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem kaupmaður (fyrrverandi kaupmaður) fær þessa viðurkenningu. Það var Anna Lára Hertervig sem fékk viðurkenningu janúarmánaðar 2006, en allir geta verið sammála um að hún hefur verið einstakur kaupmaður og mannvinur á sínum ferli, á slíka viðurkenningu að fullu skilið- og móttökurnar í hádeginu í dag sanna að þar er sama gæskan enn fyrir hendi. ----  Anna er komin á níræðis aldur

Föstudagur 13. janúar 2006  Núverandi stjórn Kaupmannafélags Siglufjarðar, veitti fyrirtæki janúarmánaðar viðurkenningu í hádeginu í dag. Þetta er í síðasta sinn á starfsári stjórnarinnar sem þessi viðurkenning er veitt af henni, ákvörðun sem tekin var á fyrsta fundi stjórnarinnar, að veita einum einstaklingi og fyrirtæki viðiðurkenningu fyrir frammistöðu sína í hverjum mánuði kjörtímabilsins. "Fyrirtæki" janúarmánaðar varð að þessu sinni Lífið á Sigló og tóku hjónin Steingrímur og Guðný, fyrir hönd Lífið á Sigló við viðurkenningunni úr höndum formanns félagsins Freys Sigurðssonar og Elínu Þór Björnsdóttur - en án þolinmæði konu minnar Guðnýjar væri "Lífið á Sigló" ekki til

Föstudagur 13. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 13. janúar 2006  Ein gömul:   "Mikill er guðskraftur, en meiri er skúfkraftur;" sagði bóndakonan eftir að reynsla var komin á rúllupylsupressuna sem bóndi hennar færði henni eftir eina kaupstaðarferðina. En sú gamla hafði til þess tíma notað grjót til að fergja rúllupylsurnar sínar á haustin. Varðandi myndina hérna til hliðar varð mér hugsað til þessara tilvitnana, er ég tók myndina. Það er hvaðan þessir fjórir menn hugðust sækja kraftinn til að taka af höggið sem varð, þegar flutningaskip fulllestað síld frá Seyðisfirði, lagði all nokkuð harkalega að löndunarbryggju SR á Siglufirði árið 1964 - Bryggjan og löndunarkraninn sem ég var uppi á skalf og nötraði við höggið, og ég mátti þakka fyrir að mér hafði hugnast að bregða handleggjum og fótum utan um kranagrindina, jafnhliða því að ég tók myndina.

Föstudagur 13. janúar 2006
Fimmtudagur 12. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 12. janúar 2005  Úr frétt frá Landsbjörg Í gær voru sjósett tvö ný ARUN björgunarskip í Reykjavík sem félagið festi kaup á frá breska sjóbjörgunarfélaginu RNLI. Munu þau koma í stað eldri skipa á Vopnafirði og Siglufirði. Skipin eru 18 ára gömul en voru endurbyggð fyrir um 3 árum síðan og eru því nánast eins og ný.
Nánar á síðu Landsbjargar  Ekki er á alveg á hreinu hvenær Siglufjarðarskipið kemur til heimahafnar, en áætlað er að það verði um helgina. Nú í dag standa yfir ýmsar samvirkar æfingar, meðal annars með þyrlu landhelgisgæslunnar og fleira í Reykjavík. Ég mun að sjálfsögðu mæta við komu skipsins heim, auk þess hefur mér verið lofað myndum frá afhendingunni og æfingunum.

Fimmtudagur 12. janúar 2006 Fyrrverandi verslunarhúsnæði Verslunarfélagsins og fleiri þar á undan, er nú að taka algjörum stakkaskiptum miðað við hin margvíslegu not hér áður fyrr.
Sjálfsbjörg á Siglufirði er þar nú að undirbúa innréttingar að nýju félagsheimili, en félagið hafði "makaskipti" á fyrra félagsheimili og þessu húsnæði, sem Sparisjóðurinn hafði eignast. Þarna verður almenn aðstaða fyrir félagsstarfið og einnig verður þarna innréttuð lítil íbúð til útleigu.

Fimmtudagur 12. janúar 2006Ein gömul:  
Þessi mynd þarfnast varla frekari skýringar, annarar en þá að myndin er sennilega tekin einhvern tíma á árunum 1982-1986

Fimmtudagur 12. janúar 2006
Þær mæðgurnar; Guðlaug Konráðsdóttir er 75 ára í dag og
Sigrún Agnarsdóttir
50 ára í dag

Bestu kveðjur frá fjölskyldunni.

Fimmtudagur 12. janúar 2006
Örn Friðriksson á Hlíðarvegi 35
er 47 ára í dag

Kveðja fjölsk.  (engin mynd kom með)
 
Fimmtudagur 12. janúar 2006
Einar Karlsson
er 48 ára í dag
Fimmtudagur 12. janúar 2006
Tómas Pétur Óskarsson
er 47 ára í dag
Fimmtudagur 12. janúar 2006
Aron Guðnason
(Guðna Sigtryggssonar) á afmæli í dag.
Til hamingju með 22 árin.

Afmæliskveðjur frá fjölskyldunni
Fimmtudagur 12. janúar 2006
Baldur Benónýsson

er 42ja ára í dag

Miðvikudagur 11. janúar 2006  Skýrsla RHA um sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Skýrsla Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri er nú komin inn á síðuna www.siglo.is og má sjá hana þar til hliðar undir tenglinum "Sameiningarmál" á vefnum www.siglo.is  Þetta er nokkuð fróðleg lesning, hver svo sem endirinn verður

Miðvikudagur 11. janúar 2006  Alþingismennirnir Kristján L. Möller, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Einar Már Sigurðarson komu til Siglufjarðar í morgun, þau komu meðal annars við í Síldarminjasafninu upp úr klukkan 13:00, dvöldu þar góða stund til að skoða bátahúsið undir leiðsögn Örlygs safnstjóra,  þáðu þar svo kaffi, te og meðlæti.
Frá Bátahúsinu fóru þau svo í heimsóknir til ýmissa fyrirtækja í bænum, en þau munu svo mæta á félagsfund Samfylkingarinnar á Bíó Café  kvöld klukkan 20:00

Miðvikudagur 11. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 11. janúar 2006  Nú eru jólin 2005 liðin og fyrir löngu tímabært að taka niður jólaglingrið og jólaljósin, þá má minna á;  eins og kom fram í Tunnunni fyrir jól, að Lionsklúbbur Siglufjarðar hefur boðist til að taka ljósakrossa sem verið hafa í kirkjugörðum í fóstur fyrir sanngjarnt verð. Það sem felst í því er að Lions klúbburinn sér um að taka niður krossa, geyma þá, yfirfara og setja upp að ári. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir að hafa samband við Hörð Þór Hjálmarsson á netfangið evahh@simnet.is  eða í síma 867-7497.
Veffang Lions á Siglufirði er  http://frontpage.simnet.is/siglolions/  einnig á Tenglasíða-1 efst á síðunni.

Miðvikudagur 11. janúar 2006  Þessi mynd er af rústum Efri-Skútu, tekin árið 1973 af Örlygi Kristfinnssyni. Eftirfarandi texti (um beðið) fylgdi myndinni: Efri-Skúta. Þar bjó Ragnar A Jóhannesson frá 1938 þegar hann keypti jörðina af Agli Stefánssyni á 9.000.- krónur Þarna bjó hann talsverðu búi og um skeið var þarna vinnumaður Páll Jónsson síðar
hótel haldri á Hótel Höfn. Vestari og hærri hluti hússins var íbúðarhús og þaðan var innangengt í sambyggt fjósið. Ekki verður séð svona án mikillar leitar hvenær húsið var byggt en þeir sem gengu þarna um áður en byggingarnar voru jafnaðar við jörðu um 1980 muna að fjósið var allt steinsteypt og “nýtískulegt” fyrir 8-10 kýr og var haughús í kjallaranum. Talið er að Ragnar hafi hugsað sér stórbúskap þarna en ekkert varð úr því og hann seldi jörðina í júlí 1943 fyrir 60.000.- kr. Munurinn á kaupverði og söluverði gæti bent til þess að Ragnar hafi bætt jörðina og jafnvel byggt húsin. Ekki eru heimildir um búskap í Skútu eftir 1943 en túnin þar voru nýtt af Hólsbúinu til heyskapar í mörg ár.
(Helstu upplýsingar fengnar úr bók Sigurjóns Sigtryggssonar Frá Hvanndölum til Úlfsdala).

Miðvikudagur 11. janúar 2006 Ein gömul:  Hann var góður Bíó-ísinn hér forðum á Bíó Barnum, hvort heldur hans var neytt í Bíó, úti í sól og sumaryl eða bara inni á sjálfum barnum, og góða bragð hans er nú aðeins til í minningu þeirra sem fengu að njóta þess, allt til ársins 1999. Sigvaldi Svanur Júlíusson (sonur Júlla Árna) og móðir hans Kristrún Ástvaldsdóttir, og Heiðar Ástvaldsson
Myndin er sennilega tekin um 1992

Miðvikudagur 11. janúar 2006
Haraldur Björnsson
(Halli á allanum)
er 49 ára í dag
Til hamingju með afmælið
Kv.Fjölskyldan
 
Miðvikudagur 11. janúar 2006
Sighvatur Elefsen
er 46 ára í dag

Til hamingju; SK
Miðvikudagur 11. janúar 2006
Mikael Sigurðsson
er tveggja ára í dag og fékk af því tilefni þessa líka fínu kórónu á leikskólanum í morgun. Foreldrar hans eru Arnheiður Jónsdóttir og Sigurður Ægisson.

Þriðjudagur 10. janúar 2006  Milt og gott veður var komið í morgun eftir stormasama nótt og gærkvöld.
Mikið rigndi seinni partinn í gær, sem breyttist síðan í snjókomu með frosti niður í frost -11,7 °C
Þessi mynd var tekin klukkan 11:30 í morgun.

Þriðjudagur 10. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 10. janúar 2006 Fréttatilkynning:  Nokkrir áhugsamir aðilar hafa verið með í undirbúningi að stofna Ferðafélag hér á Siglufirði. Annaðhvort þá sér félag eða félag innan Ferðafélags Íslands. Nú höfum við kynnt okkur báða kosti og ætlum að stofna á næstu vikum 11. aðildarfélag Ferðafélags Íslands hér á Siglufirði.
Árgjald í Félagið er 4.200 kr og inn í því eru nýja ársritið og eitt gamalt ársrit ásamt ýmsum fríðindum í verslunum og þjónustu. Meiri hluti árgjaldsins rennur beint í félagið hér á Siglufirði.
Helstu kostir þess að vera innan Ferðafélags Íslands eru margir, tdm meiri stuðningur og skipulagðar ferðir hingað á vegum móðurfélagsins, meiri auglýsing fyrir þær gönguleiðir sem eru hér í kringum okkur.
Væntanlegur stofnfundur verður fljótlega og munu aðilar innan Ferðafélags Íslands mæta á hann okkur til aðstoðar. Þið sem hafið áhuga á að vera stofnfélagar eru beðnir um að senda mér tölvupóst á arnar@siglo.is  eða að hringja í mig heim í síma 5628645.  Slóðinn inn á Ferðafélag Íslands : http://fi.is/default.asp  A.

Þriðjudagur 10. janúar 2006  Nýtt á Umræðan   Atvinnumál ....  látið ykkar skoðun í ljós.

Þriðjudagur 10. janúar 2006 
Samfylkingarfélag Siglufjarðar
og alþingismennirnir Kristján L. Möller og Einar Már Sigurðarson boða til félagsfundar annað kvöld (miðvikudag 11. jan ) á Bíó Café kl. 20

Nánar um fundinn á síðunni SAMKOMUR

Þriðjudagur 10. janúar 2006  Frétt af síðu    dagur.net  Fiskmarkaðir --  Veruleg aukning hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar á síðast ári. Meðalverð á fiskmörkuðum hefur lækkað á undanförnum árum.
Í Fiskifréttum sem komu út síðast liðinn föstudag er birt yfirlit yfir magn og verðmæti þess afla sem seldur var á fiskmörkuðum á síðasta ári. Þar kemur fram að veruleg aukning varð á afla sem seldur var í gegnum Fiskmarkað Siglufjarðar. Í fyrra var fyrsta heila rekstrarár markaðarins og voru þá seld 2.970 tonn að söluverðmæti 331 milljónir króna en árið áður voru seld 283 tonn að verðmæti 29 milljónir......  meira á vef dagur.net  -  Myndin er af bátnum Jonni SI 86 2599

Þriðjudagur 10. janúar 2006 Ein gömul:  1980-1990 (?) 
Ég þekki aðeins Birnu H Björnsdóttir, Á myndinni með Birnu Björnsdóttir eru Fjóla Bjarnadóttir (dóttir Knúts og Önnu Snorradóttir í Hlíðarhúsum)og Selma Hauksdóttir (dóttir Hauks á Kambi og Gunnu Finna).
Þriðjudagur 10. janúar 2006
Alma Birgisdóttir
er 18 ára í dag
Kveðja Vilborg
Þriðjudagur 10. janúar 2006
Hanna Þórey Björnsdóttir
er 5 ára í dag
hún fær afmæliskveðjur frá mömmu, pabba, Birnu Hlín og Helgu Þórdísi
(hún er með henni á myndinni).
Mánudagur 9. janúar 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 9. janúar 2006 Guðmundur Albertsson sendi mér þessar myndi. Hann sagði mér einnig frá 44 myndum sem hann tók um jólin á Siglufirði og hefði sett inn á vef sinn http://siglo.myphotoalbum.com   (neðst)
(einnig tengill á "Tenglasíða-1"

Mánudagur 9. janúar 2006 Nýfæddur Siglfirðingur- Þetta er drengur sem fæddist á  Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 7 janúar klukkan 04:28 og var veginn og metinn 4480gr (18 merkur) og 55cm.
Sonur Erlu Heiðu og Þorvaldar Hans. -- Erla heiða er dóttir Sigurrósar og Sverris og Þorvaldur sonur Þorvalds Hanssonar og Ástu Þorláks

Mánudagur 9. janúar 2006 Ein gömul:  1981 (?)
Mánudagur 9. janúar 2006
Sandra Finnsdóttir
23ja ára í dag
Til hamingju með daginn Sandra.
Kveðja frá Hjalta
Mánudagur 9. janúar 2006
Hugborg Inga Harðardóttir
á afmæli í dag 9. janúar...

Kveðja frá fjölskyldunni
 
Mánudagur 9. janúar 2006
Björn Valdimarsson
er 51 ára í dag
Mánudagur 9. janúar 2006
Grétar Rafn Steinsson
er 24 ára í dag
Sunnudagur 8. janúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 8. janúar 2006 Ég ætlaði að taka einfalda mynd af ártalinu 2006 og ljósunum á Hvanneyrarskálarbrún, svona í lok jólanna, þar sem ég gerði ráð fyrir að þau mundu ekki verða fyrir hendi mikið lengur en það sem af lifði kvöldi.- 7-8 m/s vindur var og bíllinn minn hristist örlítið í "hviðunum" en myndavélin mín var fest við bílrúðuna, svo ég ákvað að stilla vélina á ISO 1600 og láta sjálfvirknina ráða. Þar sem ég gerði ráð fyrir að fá hreyfða mynd, þá tók ég nokkuð margar myndir í runu, sumar voru hreyfðar (vindurinn) og aðrar í lagi. Það sá ég er heim var komið. En þessar tvær vöktu athygli mína sérstaklega. Þær eru teknar með 30 sekúnda millibili og báðar teknar án þess að nokkuð væri hreyft nema sjálfvirkur opnarinn sem hafði opið í nákvæmlega 30 sekúndur á hvora mynd. Það er að öllum líkindum af völdum ljósbrots sem fyrirbærið á báðum myndunum sést, þó það sé ekki eins á myndunum, en furðulegt ljósbrot, eða eigum við að giska á fljúgandi furðuhlut. Ég gat ekki stillt mig um að setja þessa mynd(ir) á netið. Varið ykkur, myndin er nokkuð stór, til að betur sjáist samanburðurinn Hvítu doppurnar á himinhvolfinu eru stjörnur á dökkum himninum. -- Tekið kl. 17:35 í gær Farðu með bendilinn neðst til hægri dokaðu og smelltu til að stækka

Sunnudagur 8. janúar 2006 "Þrettánda" brenna Kiwanis brann í gær, degi seinna en ætlað var vegna veðurs deginum áður.
Frekar napurt var, -5 °C kæling og um 7-8 m/s sem orsakaði færra  fólk í gönguna og grímubúninga en vonast hafði verið til, hinsvegar var mikið fjölmenni mætt til að horfa á sjálfa brennuna og flugfeldaskotin.  Nokkrar myndir á  Þrettándinn

Sunnudagur 8. janúar 2006  Frá Siv Friðleifsdóttur:  -- Síðustu daga, 2.-7. janúar, höfum við Hákon og Þráinn, bekkjarfélagi hans, verið í sælunni á Sigló. Við erum búin að fara í skíðaferðir, göngutúra og gera fleira skemmtilegt. Sendi þér hér tengla inn á myndirnar sem ég tók, en þær og dagbókartexta má finna á síðunni minni.  ---  Siv hefur verið dugleg að heimsækja fjörðinn sinn - smellið á www.siv.is  og skoðið margar myndir og fleira SK
3.janúar - http://www.siv.is/i_mynd/myndir.lasso?id=7586  Erla og Skarphéðinn
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1315  Skíðasvæðið
4. janúar - http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1316  Gönguklúbburinn: Skarphéðinn, Siv og sr. Sigurður ---- http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1317  Sundlaugin
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1318  Líkamsræktin
5. janúar - http://www.siv.is/i_mynd/myndir.lasso?id=7600  Siglufjörður
http://www.siv.is/i_mynd/myndir.lasso?id=7601  Örlygur, Arnar og Páll
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1319  Skíðasvæðið
6. janúar - http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1320  Evanger rústir
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1321  Evanger rústir
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1322 Skíðasvæðið
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1323  Skíðasvæðið

Sunnudagur 8. janúar 2006  Ný heimasíða:  
Myndasíða Tryggva Björnssonar www.123.is/torn

Myndin er stolin frá síðunni hans, en þetta er hann og kona hans Helga.
Þessi á milli, sem þarna er að sýna sitt breiðasta bros, er sonur þeirra Kristján Björn
Sunnudagur 8. janúar 2006  Ein gömul: 

Togarar í jólafríi 1992 - Sigluvík og Stálvík (?)

Sunnudagur 8. janúar 2006  Nýfæddur Siglfirðingur:
Dóttir mín Lóa Birna og Jónþór sonur Þóris Björns og Nínu, eignuðust dóttir þann 15.desember 2005.  --- Stúlkan var 48,5 cm /13,5 merkur.
Myndin: Tinna Rut og litla hnátan
Kv. Tryggvi Björns

Sunnudagur 8. janúar 2006
Silja Sif Kristinsdóttir
er 15 ára í dag
Silja er dóttir  Ellý og Kristins
Til hamingju Amma og afi Sigló
Sunnudagur 8. janúar 2006
Hulda Guðbjörg Kristinsdóttir
er 61 árs í dag
Til hamingju, stóri bróðir og Guðný
 
Jóhann Örn Bjarnason
er 35 ára í dag
Með honum á myndinni er
dóttir hans 8 mánaða
Sunnudagur 8. janúar 2006