Lífið í janúar 01-07 2006 | Lífið í janúar 08-14 2006 | Lífið í janúar 15-21 2006 | Lífið í janúar 22-31 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í janúar 22-31 2006

 

Til forsíðu
Til baka
Pílukastarar
Sólarpönnukökur




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2Að gefnu...
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðan
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavélFærð á norðurlandiFærð á vesturlandi

 SAMKOMUR + Skíðasvæðið -  Smelltu HÉR til að skoða, og/eða settu inn tilkynningu sjálfur HÉR 

Þriðjudagur 31. janúar 2006   Forvitnilegur vefur - með tengil að nafni "Vefsjá" á vef Ólafsfjarðar

Skoðið samantekt LEÓS á umræðunni á Ólafsfjarðarvef, fyrir kosningarnar

Þriðjudagur 31. janúar 2006  Tvær myndir af handahófi, teknar í gegn um grindverk umhverfis Leikskála --- tekið í morgun

Þriðjudagur 31. janúar 2006 Spegilmynd.  -- tekið í morgun
Þriðjudagur 31. janúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 31. janúar 2006 Enn er að aukast "fjörið " í Umræðan Skoðið og takið þátt og látið skoðanir ykkar á nafni nýja sveitarfélagsins.  -- Og hér er ein vísa sem ég fékk senda, vísa sem segir okkur margt og væri hægt að snúa einnig yfir á Ólafsfirðinga. Hvað svo sem nafnið verður þá..........:
Samrunninn hann sýnir jafnt
stjórn og kænsku slynga.
En allar stundir við erum samt
ávallt Siglfirðingar. ------------------------    M.P.

Þriðjudagur 31. janúar 2006 Þrjá "Toppandir" gæti þessi skemmtilega mynd heitið, en myndin er stolin af heimasíðu Herdísar Sigurjóndóttur  dóttir Sigurjóns og Ásdísar.
Á síðu Herdísar er mikið af skemmtilegum myndum, einnig frá Siglufirði.

Jóna Bára Hauks og Rikka Guðjóns og Herdís Jóhanns

Þriðjudagur 31. janúar 2006 Ein Gömul:
Ragnheiður Sæmundsson - Ingibjörg Eggertsdóttir - Gisela Schmidt - Ingibjörg Sigurlinnadóttir - Steingrímur Kristjánsson - Sigurður Gunnlaugsson - Gerhard Schmidt - Sigurjón Sæmundsson
Árshátíð 1965

Mánudagur 30. janúar 2006  Hvað á barnið að heita ? Það er að færast fjör í umræðuna um nafn á nýja sveitarfélagið -- Takið þátt í umræðunni og komið með álit og eða hugmyndir   Umræðan --
"Ólafsfirðingar" hafa einnig skoðanir á nafngiftinni: http://www.bvg.is/

Mánudagur 30. janúar 2006     Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 30. janúar 2006  Herhúsið var bæði uppljómað og hljómað seinni partinn í gær er ÓB kvartettinn bauð eldri borgurum til smá uppákomu með söng, kaffi og meðlæti í Herhúsinu. ÓB kvartettinn skipa þeir Birgir Ingimarsson - Elmar Árnason - Óskar Berg Elefsen og stjórnandi og undirleikari Sturlaugur Kristjánsson. Þarna eru sæti fyrir um 50 manns og einstaklega góður hljómburður.  Myndirnar sýna  kvartettinn og Vorboðakórinn, kór eldri borgara á Siglufirði. Ég tók nokkrar myndir við þetta tækifæri, sem eru hér á tenglinum > ÓB kvatrettinn 
Einnig eru margar myndir á heimasíðusíðu Svenna

Mánudagur 30. janúar 2006 Þessir fallegu krakkar voru að leika sér úti í rigningunni í gær(og logninu) þegar ég sá þau  og bað um að fá að taka af þeim mynd sem fúslega var veitt. -- Ekki er ég alveg viss um að hafa tekið rétt eftir nöfnum þeirra en ég geri mitt besta - nöfnin eru ! Diana Mirela Turca - Michele Julia Turca og Dania ?. 
Vonandi leiðréttir mig einhver ef nöfnin eru röng - og bætir við föðurnafni Daniu.

Mánudagur 30. janúar 2006   Ein gömul:   Sennilega tekið árið 1952-1953

Fleiri slíkar myndir eru á www.123.is/sksiglo

Mánudagur 30. janúar 2006  Vinur minn Arnold Bjarnason (Annó Bjarna) er 75 ára í dag.
Ég þekki ekki einlægari Siglfirðing en hann og því finnst mér ástæða til að senda honum afmæliskveðju í "Lífinu á Sigló". - Hannes Baldvinsson.

Ég er þér algjörlega sammála Hannes, þetta er gæðadrengur. Til hamingju Annó, Baddý og Guðný

Mánudagur 30. janúar 2006 Mánudagur 30. janúar 2006
Sunnudagur 29. janúar 2006     Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 29. janúar 2006 Hvað skal svo "barnið" heita ? Eins og fram hefur komið í fréttum og hér á vefnum "Lífið á Sigló" sem kom með fréttina í gær  fyrst allra fjölmiðla, - það var þó ekki nema 12 mínútum á undan RÚV sem var næst með fréttina í fréttatíma klukkan 22:00.
En niðurstaðan var afgerandi, enda skynsamleg ákvörðun að mínu mati. Við erum siðmenntuð hér á Fróni og notum einfaldar kosningar til að komast að niðurstöðu en ekki morðvopn  eins og því miður tíðkast alltof víða.  --  Það verður gaman að fylgjast með þróuninni um valið um nafn á byggðarlagið nýja sem í gær var ákveðið  að stofna. Mörg nöfn hafa verið nefnd í mín eyru eins og til dæmis: Tröllabyggð - Sjávarbyggð - Norðurbyggð og raunar mörg fleiri. En nafnið sem Signý Jóhannesdóttir nefndi á seinni borgarfundinum á Siglufirði held ég að flestum muni falla í geð, en það er nafnið Tröllaborgir sem á vel við norður og suðurbæinn, þar sem Siglufjarðarsvæðið væri norðurbærinn en Ólafsfjarðarsvæðið suðurbærinn. Það ætti einnig að vera auðveldara fyrir Dalvíkinga síðar, að sameinast "okkur" ef nafnið höfðaði til stærri einingar. - Og nafnið ætti einnig að geta höfðað til ferðaþjónustunnar og vakið athygli erlendra ferðamanna.

Sunnudagur 29. janúar 2006 Í gær eftir hádegið var þessi glæsilegi bátur sjósettur. Önnur myndin er tekin stuttu eftir sjósetninguna - en hin myndin er látin fylgja svona til gamans af þeim félögum Sverri Júll og Guðna Sigtryggssyni verkstjóra hjá JE-Vélaverkstæði vera að koma böndum á bátinn áður en hann var hífaður upp og sjósettur.

Sunnudagur 29. janúar 2006  Ekki þekki ég neinn af þessum guttum -
En eflaust eru einhverjir sem gera það ot láta mig vita.
Myndin er tekin í marsmánuði 1952 --- Upplýsingar Sá sem er lengst til hægri er Indriði Jóhannsson og sá í miðið Freysteinn bróðir hans (synir Jóhanns Þorvaldssonar). Indriði er fæddur 1943 og hinn er eitthvað yngri.

Sunnudagur 29. janúar 2006
Guðlaugur Henriksen
er 70 ára í dag
Sunnudagur 29. janúar 2006
Kristinn Baldursson
er 18 ára í dag  -Hann er á myndinni með Heimi Má systurson sinn.  -- Kiddi er sonur Baldurs Ben og Guðrúnar Sonju.--  Kveðja frá fjölskyldunni.
Sunnudagur 29. janúar 2006
Gunnlaugur Stefán Vigfússon
er 51 ára í dag
Sunnudagur 29. janúar 2006
Símon Helgason
er 43ja ára í dag
Sunnudagur 29. janúar 2006
Svava Aðalsteinsdóttir
er 70 ára í dag
Sunnudagur 29. janúar 2006
Gunnhildur Róbertsdóttir
er 26 ára í dag --
dóttir Róberts Guðfinnssonar

Laugardagur 28. janúar 2006  sögðu bæði Siglfirðingar og Ólafsfirðingar við sameiningu.  86 % Siglfirðinga sögðu JÁ og 14 % á móti -- Alls var kjörsókn 63 % á Sigló -----     77% Ólafsfirðinga sögðu Já en 21 % nei. -- Alls komu um 70 % Ólafsfirðinga á kjörstað.
Myndin er frá kjörstað á Siglufirði í dag

Laugardagur 28. janúar 2006          Förum öll á kjörstað á laugardaginn - opið frá 10:00 til 20:00

Laugardagur 28. janúar 2006    Úrslit kosninganna  vegna sameiningar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem fram fara í dag klukkan 10:00 til 20:00 verða birt hér á vefnum, innan 10 mínútna frá því að talningu líkur. Að líkindum verður það upp úr klukkan 22:00 í kvöld.

Laugardagur 28. janúar 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 28. janúar 2006 Freyr KÓ 77 2575 hefur verið í gagngerum breytingum hjá JE-Vélaverkstæði á Siglufirði undanfarnar vikur. Báturinn var lengdur um tæpan metir og síðan byggt ofan á hann myndarlegt skjólhús. Hvað útlit snertir þá hefur það verk tekist frábærlega vel og ekki er að efa að það sem innvortis er, er ekki síðra, ef miðað er við fyrri verk, vandvirkni og reynslu sem þessir drengir á JE-Vélaverkstæði hafa. Þarna er báturinn á Hafnarvoginni í morgun, eins og lög gera ráð fyrir eftir miklar breytingar.
Eigendur bátsins er útgerðin Þrift ehf. Reykjavík - Höfn Kópavogur (KÓ)

Laugardagur 28. janúar 2006  Ein gömul:  Það var stundum ekki mikið pláss fyrir gangandi vegfarendur á götum, hvað þá aðgengi að sumum húsum á Siglufirði í marsmánuði 1952.
Þarna er olíubifreið frá "BP" - nú Olís að koma eftir ný ruddri Hverfisgötu. En þarna var aðeins "stungið í gegn" svo hægt væri að afgreiða olíu til húshitunar í götunni. En á þessum tíma var engin hitaveita á Siglufirði, eins og flestir vita.

Laugardagur 28. janúar 2006  Fanney Steinsdóttir
er 27 ára (dóttir Elmars og Laugu)
Við sendum henni kveðju í tilefni dagsins,
fjölskyldan
Laugardagur 28. janúar 2006
Sólardagurinn 28. janúar. --- Sólargeislinn okkar, Tinna Mark
er 21. árs í dag.    Hún fær kærar kveðjur frá Bjarna Mark, mömmu og pabba og öllum hinum.
(foreldrar eru Mundína og Mark Duffield).
 

Föstudagur 27. janúar 2006 Og svo var það blessuð sólin -- Hún gægðist á milli fjallatoppa og skýhnoðra og lýsti svefnherbergi mitt og svalir af björtum sólargeislum rúmlega 14:00 í dag - ekki nær þó sólin að lýsa upp "allt" byggðarlagið fyrr en á morgun 28. ef heiðskírt verður.  Því ræður Siggi stormur segja krakkarnir.

Föstudagur 27. janúar 2006  Ferðafélag Siglufjarðar --  Villtu gerast félagi ?
Stofnfundur Ferðafélags Siglufjarðar verður haldinn 16. febrúar kl. 20 í fundarsal Bátahússins. 
 

Gestir frá Ferðafélagi Íslands mæta og halda erindi um félagið.  
Fundurinn verður nánar auglýstur þegar nær dregur.

Föstudagur 27. janúar 2006  Nemendur 1.-6. bekkjar sungu sólarlög á kirkjutröppunum kl. 11.20 í dag -- Ég mætti - og krakkarnir sungu nokkur lög í tilefni af "sólarkomunni" sem lét þó ekki a sér kræla, en nýstings nepja var og skýjað.
En krakkarnir voru vel klædd og létu ekki Kára gamla ná til að bíta sig og sungu hástöfum.  Nokkrar myndir hér >> Sólarlög

Föstudagur 27. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 27. janúar 2006 Sjálfsbjörg - Sólarpönnukökur voru bakaðar og seldar í dag eins og venjulega í tilefni af "sólarkomunni" - fyrsta deginum sem sólin sést niðri í byggð á Siglufirði, það er þegar heiðskírt er. Þetta er þó hálfgert þjófstart, því "sólardagurinn" er ekki fyrr en á morgun, en þar sem vinnustaðirnir eru aðal viðskiptavinir Sjálfsbjargar um þetta leiti og helgi framundan, þá fór salan og pönnukökuátið fram í dag föstudag og var víða vel til þess tekið. Myndin hér til hliðar er af Sjálfsbjargarliðinu sem var á vakt klukkan 8 í morgun þegar ég leit þar við og fékk þær til að slappa augnablik af. Fleiri myndir eru hér á tenglinum Sólarpönnukökur  frá vinnu þeirra -- Og klukkutíma síðar......... þegar ég heimsótti tvo vinnustaði og belgdi í mig kaffi og pönnukökum ásamt fyrrverandi vinnufélögum og fleirum ! 

Föstudagur 27. janúar 2006 Þessir broshýru menn eru starfsmenn Vörumiðlunar, sem hefur afgreiðslu hjá Olísbúðinni á Siglufirði, en þetta eru Björgvin Jónsson (Sauðárkrók) og Stefán Friðriksson, sem einnig starfar hjá Olís (3ja manna maki)

Föstudagur 27. janúar 2006  Norski rækjutogarinn Remöy kom í morgun og losaði hér frosna rækju til Þormóðs Ramma Sæberg.

Olískip kom einnig í nótt með um 400 tonn af olíu

Föstudagur 27. janúar 2006 Ein gömul:   Hvað ætli margir þekki sjálfa sig á þessari mynd sem tekin er á Suðurgötunni árið 1952 ? (Suðurgata 43 í bak)
Ég tel mig þekkja stærri drengina aftan við, þá Guðjón Jónsson (?) og Val Johansen, hina krakkana þori ég ekki að spá í -- Aðsend Nöfn: Okkur langar til að bæta við nöfnum, frá vinstri Lína Erlends, svo ?, Svava Eggerts, Stína Eggerts, Rafn Erlends. Fyrir framan er Pétur Ásgeirsson. Ég þekki ekki þennan við hliðina á Val. -- Kveðja Gugga og hinar á vaktinni.

Föstudagur 27. janúar 2006
Jón Trausti Traustason
er 41 árs í dag
Föstudagur 27. janúar 2006

Fimmtudagur 26. janúar 2006 Í hvora áttina eigum við að fara ? Gætu þeir verið að hugsa þessir tveir hrafnar, en nokkuð hefur borið á mörgum hröfnum á flökti víða í byggð að undanförnu, jafnvel á götum niðri þar sem þeir hafa verið að gogga í brauðleifar sem "dottið" hefur á götur utan við sjoppur ofl.

Fimmtudagur 26. janúar 2006 Eplin falla ekki langt frá eikinni, segir máltækið. Það má með sanni segja með "eplin" sem komu frá Gunnari Guðmundssyni, umsjónarmanni Grunnskóla Siglufjarðar og margföldum skíðameistara. En samkvæmt frétt af síðu Skagafjörður.com  þá urðu feðgar Íslandsmeistarar í skíðagöngu - Sennilega hefur það ekki gerst hér á landi fyrr en á laugardaginn að feðgar yrðu Íslandsmeistarar í skíðagöngu sama daginn. -- Þessir nýkrýndu Íslandsmeistarar eru sonur og sonarsonur Gunna Guðmunds og Sóleyjar Þorkelsdóttur Siglufirði

Fimmtudagur 26. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Fimmtudagur 26. janúar 2006 Áberandi bryggjupolli -
Falleg mynd frá síðu Guðmundar Albertssonar

Pollinn er á norðaustur horni Hafnabryggjunnar á Siglufirði.

Fimmtudagur 26. janúar 2006 Ein gömul:  Þessi mynd var tekin árið 1963 þegar  Skarðsmótinu´63 var senn að ljúka. Þarna eru 2 starfsmenn mótsins á fjallsbrún þaðan sem svig og stórsvigsmenn voru ræstir. En þetta eru þeir Bjarni Þorgeirsson og Jón Gunnar Þórðarson. Sitjandi til hægri er Svanberg Þórðarson Ólafsfirði að hvíla sig ögn eftir erfiða göngu upp á brún, en engar skíðalyftur voru til taks þarna árið 1963, en Svanberg þurfti að láta ræsa sig tvisvar vegna mistaka tímatökumanna niðri. --- Nánar um þetta Skarðsmót HÉR og einnig, þegar þangað er komið smellið á tengilinn "Fjallasýn" til að átta sig nákvæmlega á því hvar myndin er tekin.  --- Fleiri myndir frá þessu móti eru einnig HÉR

Fimmtudagur 26. janúar 2006
Katla Dögg Sævaldsdóttir
er 6 ára í dag, - hún er dóttir Rakelar Sveinsdóttur og Sævalds Bjarnasonar.
Innilegar afmæliskveðjur frá ömmu og afa.
(Amma og afi eru Berta Jóhannsdóttir
og Sveinn Þorsteinsson.)
Fimmtudagur 26. janúar 2006
Guðný Róbertsdóttir
er 51 ára í dag

Miðvikudagur 25. janúar 2006  Pálshús - Mjóstræti 2.   Spes fyrir Magga Páls, en hann ætlar að koma norður um helgina, og var að spyrja hvort hann þyrfti að taka með sér skóflu til að komast inn til sín þegar hann kæmi heim.  Hann þarf þess ekki, en gatan hefur þó ekki verið mokuð, þar sem eingin hefur búið við götuna eftir að snjóaði.

Miðvikudagur 25. janúar 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 25. janúar 2006 Borgarafundur (2) með sameiningarnefndinni var haldinn í gærkveldi á Bíó Café.
Á fundinn mættu nefndarfulltrúar Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Háskólans á Akureyri, fundarstjóri var Óskar Þór Halldórsson.(Ak) Og umræðuefnið var að sjálfsögðu "sameiningarmálin" Myndir frá fundinum eru hér >>>  Borgarafundur-2

Miðvikudagur 25. janúar 2006 Ein gömul:  
Ásgrímur Sigurðsson og Haraldur Sigurðsson, þarna staddir fyrir framan "Vöru afgreiðsluna" á Hafnarbryggjunni.
Myndin er úr safni Haraldar Sig. - Sennilega tekin öðru hvoru megin við árið 1950

Miðvikudagur 25. janúar 2006
Kristján Sturlaugsson
er 34 ára í dag.
Kveðja frá fjölskyldunni. --
Kristján er sá sem heldur á drengnum
Miðvikudagur 25. janúar 2006
 
Miðvikudagur 25. janúar 2006
Guðmar Ómarsson (Tumi)
er 34 ára gamall í dag.
Kveðja frá fjölskyldunni
 
Miðvikudagur 25. janúar 2006
Arnór Elí Kristinsson
er 8 ára í dag
Arnór er sonur Kristins og Elínborgar
Til hamingju með daginn,
Amma og afi á Sigló
Miðvikudagur 25. janúar 2006
Hafliði Hörður Hafliðason
er 28 ára í dag
 með honum á myndinni er dóttir hans Rakel Birta Til hamingju! -- (Sonur Halla og Helgu)
Þriðjudagur 24. janúar 2006  Lífið við höfnina í dag

Þriðjudagur 24. janúar 2006 Siglufjörður fyrir hádegið í dag -- útsýn frá gatnamótum Hverfisgötu og Hávegs

Þriðjudagur 24. janúar 2006   Látið skoðun ykkar  í ljós um sameininguna Umræðan Fundur á Bíó Café í kvöld klukkan 20:00 -- mætum vel.

Þriðjudagur 24. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Þriðjudagur 24. janúar 2006  Ný Siglfirsk vefsíða í flokkinum 123.is  = 
Lárey Valbjörnsdóttir http://www.123.is/fletturimi

Þriðjudagur 24. janúar 2006  Ein gömul: Eftirtaka frá gamalli smámynd, sennilega ekki tekin á Siglufirði (?) og af erlendum ljósmyndara. En á myndinni má þekkja, lengst frá vinstri: Sigurður Gunnlaugsson - Gunnlaugur Sigurðsson - Gústaf Þórðarson - Þormóður Eyjólfsson stjórnandinn --- lengst til hægri: Jósep Blöndal - fjórði frá hægri Gunnlaugur (faðir Vidda Gull). Fleiri þori ég ekki að nefna, enda ekki viss. Tekið á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930

Þriðjudagur 24. janúar 2006
Ragnar Guðmundsson
er 68 ára í dag
Þriðjudagur 24. janúar 2006
Oddur Sigurðsson
er 20 ára í dag.   (Sigga Odds & Jónu Siggu)
Hann fær bestu kveðjur frá Svövu systir ,
Árna og Gauta .

Mánudagur 23. janúar 2006  Ég var að fá ábendingu um þessa frétt utan af landi:  Íslandsbanki styrktaraðili Pæjumótsins 2006 Nú um áramótin var skrifað undir samstarfssamning Íslandsbanka og Knattspyrnufélags Siglufjarðar um aðkomu bankans að Pæjumótinu á Siglufirði sem ...............  Þeir sem hafa áhuga á að lesa meira smelli HÉR

Mánudagur 23. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 23. janúar 2006  Fyrsti fundur í Félagi eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum var haldinn í gær. Þar var til umfjöllunar: Almenn fundarstörf - tillögur um nýja stjórn - Önnur mál - Runólfur Birgisson mætti á fundinn og sagði frá stöðu mála varðandi sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar - Danshópur kom í heimsókn - Skálarhlíðarkórinn söng undir stjórn Sigurjóns Steinssonar og ekki má gleyma kaffinu og öllu meðlætinu sem ávalt fylgir.  Kona mín mætti þar galvösk með myndavélina sína og tók myndir, sem koma í ljós ef smellt er á tengilinn >> Eldri borgarar

Mánudagur 23. janúar 2006  Ein gömul: 

Haraldur Sigurðsson (Halli á Eyri) og Jónas Björnsson
Úr safni H.S. -
Mánudagur 23. janúar 2006
Róbert Alexander
er 2ja ára í dag.
Móðir hans er Herdís Ólöf Pálsdóttir.
Kveðja frá ömmu og afa á Sigló
Mánudagur 23. janúar 2006

Sunnudagur 22. janúar 2006  Aðsent: - Sæll Steingrímur, --  Ég var á þorrablóti í gærkvöldi í Breiðfirðingabúð en það var á vegum Breiðfirðingafélagsins, og tók Guðjón sonur minn meðfylgjandi mynd af hljómsveitinni Miðaldamönnum frá Siglufirði sem spiluðu fyrir dansi frá 22:00 til 03:00  -- kær kveðja Júlli Jóns.

ES. myndin er tekin á "farsíma" ---  Tengill á Breiðfirðingasíðuna

Sunnudagur 22. janúar 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 22. janúar 2006 Pílukastmót var í Allanum-Sportbar í gærdag og fram á kvöld. Góð þátttaka var, fólk á öllum aldri og báðum kynjum. -- Ég leit þar aðeins inn í gærdag og við verðlauna afhendinguna um kvöldið.
Úrslit og myndir eru á tenglinum >  Pílukast

Sunnudagur 22. janúar 2006 Nægur snjór og mikið fjör á skíðasvæðinu í Skarðsdal var í gær sagði Hrönn Einars, sem sendi mér þessar myndir sem hún tók þar í gær.

Sunnudagur 22. janúar 2006  Ein gömul:  Sundlaug Siglufjarðar, var byggð í NORÐURBÆNUM á sínum tíma, þar sem staðsetningin á þeim tíma þótti heppilegri en í nánd við gömlu sundlaugina sem var í SUÐURBÆNUM,-  og enginn í suðurbænum fór í fýlu. Og þá er það stóra spurningin: Verður Siglufjarðarsvæðið í framtíðinni kallaður NORÐURBÆRINN og Ólafsfjarðarsvæðið SUÐURBÆRINN ?

Sunnudagur 22. janúar 2006
Snævar Jón Andrjesson
er 21 árs í dag
Til hamingju -- SK
Sunnudagur 22. janúar 2006
Halldóra Hermannsdóttir
er 10 ára í dag dóttir Hermanns Einarssonar og Sigríðar Ingvarsdóttur.
Kveðja frá pabba afa og ömmu
og fjölsk.Hávegi 4

Siglufjörður