|
SAMKOMUR +
Skíðasvæðið
- Smelltu
HÉR
til að skoða, og/eða settu inn tilkynningu sjálfur
HÉR |
|
Laugardagur 21. janúar 2006
Það er lítið rennsli í Hvanneyraránni, sem ekki er óeðlilegt á
þessum árstíma, en það hefur oft verið meiri snjór á þessum slóðum en nú
í dag |
|
Laugardagur 21. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Laugardagur 21. janúar 2006 Ein
gömul: Mér voru færðar nokkrar ljósmyndafilmur frá gamalli tíð
hér á dögunum, þar kennir margra góðra grasa, sem ekki hafa áður komið
fram opinberlega. Ekki veit ég hver þessi kona er, (ansi lík Fanney
Sigurðar) - en umhverfið er mér kunnuglegt. Grundargata 6 til vinstri,
þar fyrir aftan sést girðingin sem var utan um norðurhluta lóðar gamla
pósthússins sem einnig sést aðeins í, og svo sunnan við Aðalgötuna sést
Ytra húsið. Til hægri við það, vestan Grundargötu er Verslun Péturs
Björnssonar (Aðalgata 25) og sunnan við það Grundargata 3 og norðan við
Aðalgötuna er íbúðarhús Jóseps Blöndals fjölskyldunnar, sem síðar byggði
Aðalbúðina (nú Eyrarbúðin) á sama stað eftir að gamla húsið var rifið.
Bíltegundina eða árgerð þekki ég ekki. -- Ljósmynd: Haraldur
Sigurðsson. |
Laugardagur
21. janúar 2006
Kristrún Jónsdóttir
er 51 árs í dag |
Laugardagur 21. janúar 2006 |
|
|
Föstudagur 20 janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Föstudagur
20 janúar 2006 Áríðandi
leiðrétting Í auglýsingu í
Tunnunni láðist okkur að tímasetja þorrahlaðborðið sem verður í dag,
föstudaginn 20. janúar (bóndadaginn) en um hádegistilboð er að ræða, s.s. það hefst kl.12. Verið velkomin, og konur ATH! nú splæsið þið á
bóndann! -
Kveðja, starfsfólk Bíó Café |
|
_smal2.jpg) _smal2.jpg) Föstudagur
20 janúar 2006 Siglfirðingur ársins 2005,
var kjörinn af Siglfirðingum sem hringdu á skrifstofu
Siglufjarðarkaupstaðar í fyrrakvöld, þar sem Lionsmenn tóku við
uppástungum um tilnefningu. Þetta var sameiginlegt átak Kaupmannafélags
Siglufjarðar, bæjarstjórnar Siglufjarðar og Lionsmanna. "úrslitin" lágu
fljótlega fyrir eftir að símum var lokað í fyrrakvöld og seinni
partinn í gær, í upphafi bæjarstjórnarfundar var viðurkenningin formlega
kynnt. Fyrir valinu hafði orðið unglingurinn sem stýrir "Lífinu á
Sigló" - Það var og er vissulega ánægjuleg tilfinning en örlítið
blandin að verða slíks heiðurs aðnjótandi, þar sem ég er vanari að
fylgjast með álíka atburðum heldur en að vera þátttakandi, og ekki síður
vegna þess að ýmsir aðrir áttu skilið svona viðurkenningu, líklega
frekar en ég án þess að ég ætli að fara að nefna nein nöfn, þó svo að
tveir aðilar séu mér ofarlega í huga. En hvað um það ég vil þakka öllum
sem stofnuðu til þessara athafna og ekki síður þeim sem settu nafn mitt
á vogarskálina.
Lifið öll heil. Innilegt þakklæti. SK
Á mynd 1 er bæjarstjórinn Runólfur Birgisson að afhenda viðurkenninguna
ásamt árituðum platta, á mynd 2 eru fulltrúar kaupmanna, Lionsmanna,
bæjarstjórinn og unglingurinn; frá
vinstri,Jón Ásgeir Ásgeirsson, Lionsmeðlimur, Elín Þór Björnsdóttir
fulltrúi Kaupmannafélags, Runólfur Birgisson bæjarstjóri, Steingrímur
Kristinsson Siglfirðingur ársins 2005, Freyr Sigurðsson fulltrúi
Kaupmannasamtaka og Erlingur Sigurðsson Lionsmeðlimur.
. Á þriðju myndinni er bæjarstjórnin ásamt
unglingnum með viðurkenningarnar |
Föstudagur
20 janúar 2006
Frá Jóni og Erlu -- Hafið þökk fyrir |
|
Föstudagur
20 janúar 2006 Ein gömul: Það er greinilega eitthvað
girnilegt sem þessir höfðingjar eru að rýna í þarna á borðinu. ---
Þetta eru blaðamennirnir, þeir Bjarni Jóhannsson fyrir Tímann - Stefán
Friðbjarnar fyrir Siglfirðing og Morgunblaðið - Benedikt Sigurðsson
fyrir Mjölnir og Þjóðviljann og Jóhann Þorvaldsson fyrir Einherja. Þarna
eru þeir að huga að nýopnaðri dós með niðurlagðri síld, inni á
kaffistofu Sigló-Síldar, en verksmiðjan var vígð formlega þennan dag
marsmánaðar 1962 |
Föstudagur
20 janúar 2006
Elías Bjarni Ísfjörð
er 25 ára í dag.
Til hamingju, sk |
Föstudagur 20 janúar 2006 |
|
|
Fimmtudagur 19. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
Fimmtudagur 19. janúar 2006
Ný heimasíða,
Katrín Andersen er kominn í hóp Siglfirskra vefsíðugaura. Katrín tekur
mikið af myndum og er nú byrjuð að smala úr safni sínu yfir á netið.
Slóðin er hér: >
www.123.is/snillingur -- og á
"Tenglasíða-2" |
Fimmtudagur 19. janúar 2006
Svo eru menn að kvarta yfir snjókomu hér á Íslandi og því að
þurfa að skafa nokkur snjókorn af bílum sínum á morgnanna. Ég fékk
þessa skemmtilegur syrpu senda í morgun,
SMELLTU |
|
Fimmtudagur
19. janúar 2006 "Þau eru mörg störfin sem
meðhjálparinn þarf að sinna fyrir prestinn sinn." --
En presturinn er ekki í bænum, en samt þarf að sinna þeim smæstu og þar
kemur meðhjálparinn til sögunnar, en Sigurður Ægisson prestur hefur
verið rausnarlegur í garð smáfuglananna í vetur sem fyrr og borið fyrir
þá allskonar ávexti og korn. Þarna er Þorsteinn Sveinsson aðstoðar meðhjálpari að
enda við að dreifa ávöxtunum á trén í garðinum sunnan við prestsetrið. |
Fimmtudagur
19. janúar 2006 Gamalt og fróðlegt:
Mjölnir 7. júní 1950
Bæjarpósturinn
Siglufjarðarbíó hefur nú tekið til
starfa. Alþýðuhúsið hefur verið leigt Gísla Þ. Stefánssyni,
hótelstjóra, og ætlar hann að reka það sem kvikmyndahús, a.m.k. yfir
sumarmánuðina.
Ýmsar smávegis breytingar hafa verið
gerðar á húsinu, og sett hefur verið nýtt gólf í það.
Aðgöngumiðasalan hefur verið minnkuð og þiljuð snoturlega að innan.
Þá var einnig ákveðið, að allt húsið yrði
málað, en engin málning hefur verið fáanleg, svo að af því hefur ekki
getað orðið. Siglufjarðarbíó hefur komist í góð sambönd með myndir,
svo vænta má, að það geti sýnt góðar myndir a.m.k. öðru hvoru. ------
Fleira á vefnum:
Bíósaga Siglufjarðar
(meðfylgjandi mynd er úr sýningarklefa Nýja Bíós 1982, Kristinn
Steingrímsson sýningarmaður að störfum) |
|
Fimmtudagur
19. janúar 2006 Ein gömul:
Lokadagar gömlu bygginganna á Henriksenplaninu. |
|
Fimmtudagur
19. janúar 2006
Ýtarlegar Upplýsingar um
Sameiningarmál. --- Samstarfsnefnd um sameiningu
Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar gerir tillögu um níu
fulltrúa í sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélag, en ekki sjö eins og
lagt var til í skýrslu Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri um
sameiningu sveitarfélaganna. Smelltu
HÉR til að lesa meira |
| Fimmtudagur 19. janúar 2006 |
Fimmtudagur 19. janúar 2006 |
|
|
Miðvikudagur
18. janúar 2006
Siglfirðingur
ársins 2005
Siglufjarðarkaupstaður ásamt kaupmannafélagi Siglufjarðar hafa
ákveðið að efna til símakosningar um Siglfirðing ársins 2005,
í kvöld milli klukkan
18:30 – 21:30. -- Siglfirðingar nær og fjær eru
hvattir til að nýta þetta tækifæri og kjósa þann einstakling sem þeim
finnst eiga skilinn titilinn Siglfirðingur ársins.
Símanúmer sem hringt skal í eru eftirfarandi: 460-5600, 460-5616,
460-5617 og 460-5621. |
|
Miðvikudagur
18. janúar 2006 Sex hæfir til að bjóða í verkið --
Vegagerðin hefur metið alla þá sex aðila sem þátt tóku í forvali vegna
Héðinsfjarðarganga hæfa til að bjóða í verkið. Birgir Guðmundsson,
svæðisstjóri Norðaustursvæðis hjá Vegagerðinni, segir að þeir muni fá
útboðsgögn send um næstu helgi og tilboð verði opnuð 14. mars
næstkomandi. -- "Sá sem fenginn verður til að vinna verkið ræður í
sjálfu sér hvenær hann byrjar en líklegt er að það verði í júlí í sumar.
Verklok eru hins vegar ákveðin 10. desember 2009," segir Birgir.
Héðinsfjarðargöng verða samtals 10,6 km að lengd en með tilkomu þeirra
verður akstursleiðin á milli byggðarlaganna 15 kílómetrar. -
Héðinsfjarðargöng - Fyrirtæki sem fá útboðsgögn:
• Íslenskir aðalverktakar hf. og Marti Contractors Ltd, Sviss - •
Metrostav a.s., Tékklandi og Háfell ehf.
• Ístak hf. - • Arnarfell ehf. - • Leonhard Nilsen & Sønner As,
Noregi og Héraðsverk ehf.
• China Railway Shisiju Group Corp., Kína - Heimild Visir.is 17-1-06
|
|
Miðvikudagur
18. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Miðvikudagur
18. janúar 2006 Borgarafundur
var haldinn á Bíó Café í gærkvöld til kynningar á sameiningarmálum
varðandi Ólafsfjörð og Siglufjörð. - Fundurinn var nokkuð fjölmennur,
fróðlegur og málefnalegur. Enginn af þeim sem til máls tóku virtist á
móti sameiningu sveitarfélaganna, heldur þvert á móti. Ein mjög
athygliverð hugmynd kom fram á fundinum að mér fannst, en það var
Jón Dýrfjörð sem kom með þá hugmynd og vinur vor Jonni tann tók undir, að við kosningar
væntanlegrar sveitastjórnar nýs byggðarkjarna, mundi öllum flokkadráttum
kastað fyrir róða, og kosið um menn en ekki flokka. Það gefur auga leið
að tildæmis á Siglufirði, gæti núverandi nafn í pólitíkinni;
"Siglufjarðarlistinn" ekki komið fram. Listi með slíku nafni mundi ekki
fá mörg atkvæði, hvorki á Siglufjarðar, né Ólafsfjarðasvæðinu.
Myndir frá fundinum eru hér >> |
|
Miðvikudagur
18. janúar 2006 Ein gömul: Húsið lengst til hægri er
fyrsta síldarbræðslan sem reist var á Íslandi, - hún var reist af
norskum manni Thormod Bakkevig árið 1911 (framkvæmdir hófust raunar
1906) - og afkastaði hún um 150 málum á sólarhring (rúmlega 1,1 tonn)
Þetta sama ár var í fyrsta sinn flutt út síldarlýsi frá Íslandi nánari
upplýsingar er að finna
HÉR
Fyrir miðri mynd má greina hús Veiðarfæraverslunar Sigurðar Fanndal - og
þar ofar húsið Eyri, sem nú er hús
Sálarrannsóknarfélagsins á Siglufirði.
Önnur mannvirki, svo sem Söltunarstöðin Bakkervig, síðar Söltunarstöð
Halldórs Guðmundssonar, (síðar fleiri) húsin og planið fremst á
myndinni, er allt horfið fyrir áratugum. Myndin er sennilega tekin um
1935 af ókunnum ljósmyndara (líklega Norskum) |
Miðvikudagur
18. janúar 2006
Theodór Sævar Eggertsson
er 66 ára í dag |
Miðvikudagur 18. janúar 2006
Sigríður Sóley
er 27.ára í dag 18.janúar.
Til hamingju!
(Dóttir Halla og Helgu) |
|
Þriðjudagur
17. janúar 2006 Til þæginda
fyrir þá sem þurfa að ferðast um vetrararmánuðina norður eða suður, þá
geta þeir fylgst með vegakortum Vegagerðarinnar með því að smella á
þessa tengla, sem eru hér og verða framvegis efst á á síðu hverrar viku:
og
Fljótlegt að smella þegar það nýjasta á Lífinu á Sigló hefur verið
lesið. |
|
Þriðjudagur
17. janúar 2006 Ullarþæfingar námskeið verður haldið á
Siglufirði í febrúar ef næg þátttaka fæst.
Þeir sem hafa áhuga hafi samband Möggu Steingríms í símum 896-5351
eða 461-5263
Frekari sýnishorn á hugmyndum á síðu Huldu
systir
http://www.hulda.org/
Gimburnar -- (Magga er dóttir mín) |
|
Þriðjudagur
17. janúar 2006 Í gærkveldi og í morgun hefur snjóað
nokkuð og aðeins safnast í skafla, en engin umferðateppa er þó í bænum
sjálfum, þó svo að ófært sé landleiðina til Siglufjarðar og víða á
norðurlandi. Bæjarkarlarnir fóru snemma á ról eins og venjulega þegar
snjóar eitthvað af ráði og voru búnir að hreinsa flestar götur og gera
greiðfærar áður en flestir aðrir fóru á ról. Í gærkveldi og í nótt
var einnig allhvast í hviðum og komst vindur í allt að 27.3 m/s
klukkan 05:41 í morgun- og frost niður í -12,2
°C laust eftir miðnættið.
Séð suður Hvanneyrarbraut, um það leiti er ég fót á "rúntinn" í morgun |
|
Þriðjudagur
17. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Þriðjudagur
17. janúar 2006 Á vef Siglufjarðarkaupstaðar í gær,
kom fram að Borgarafundur verður í kvöld vegna sameiningarmála. - Mun
bæjarstjórn Siglufjarðar halda opinn borgarafund á Bíó Café kl. 20.00
þar sem kynnt verður staða mála varðandi sameiningarmál við Ólafsfjörð.
Fulltrúar úr samstarfsnefnd munu kynna stuttlega skýrslu RHA og verður
síðan opið fyrir fyrirspurnir um allt er viðkemur fyrirhuguðum
sameiningarkosningum. |
Þriðjudagur
17. janúar 2006 Ein gömul:
Tvær Siglfirskar "þjóðsagnapersónur"
Sveinbjörn Guðmundsson og Hannes Garðarsson |
Þriðjudagur
17. janúar 2006
Hann Össi bróðir á afmæli í dag og er 40 ára Með honum á
myndinni er Ólöf Kristín dóttir Guðnýar Páls en hún á einnig
afmæli í dag. Kveðja frá okkur á Sigló -- Víbekka |
Þriðjudagur
17. janúar 2006
Dóttir mín Ólöf Kristín Daníelsdóttir
er 27 ára í dag.
Hún fær kveðju frá mömmu og Hafþóri. Kveðja, Guðný Pálsdóttir. |
|
Þriðjudagur 17. janúar 2006
Lóa Kristjánsdóttir
er 50 ára í dag
Elsku Lóa innilegustu hamingjuóskir
á afmælisdaginn -- Þín fjölskylda |
Þriðjudagur 17. janúar 2006
Lárus Ólafsson, útgerðarmaður,
er 49 ára í dag.
Með honum á myndinni er þjáningarbróðir hans og félagi, Reynir
Karlsson
Kær kveðja Reynir og Júlía. |
|
|
Mánudagur 16. janúar 2006
Útgerðarmaður Breka KE kaupir Sunnu SI 67 --- Magni Jóhannsson
útgerðarmaður togarans Breka KE hefur keypt rækjufrystitogarann Sunnu SI
af Þormóði ramma – Sæbergi. Hann tekur við skipinu 20. janúar
næstkomandi. Með því fylgir um 1.000 tonna karfakvóti. Ofanritaðar
upplýsingar eru frá síðu:
www.skip.is
Frekari upplýsingar
HÉR |
|
Mánudagur 16. janúar 2006
Ný vefsíða
http://www.123.is/siglo/
Síða Guðmundar Albertssonar
Meðfylgjandi mynd er ein af mörgum frábærum myndum á síðu hans, myndum sem
vonandi á eftir að fjölga. |
| Mánudagur 16. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
Mánudagur
16. janúar 2006 Ein gömul:
Anna Lára Hertervig - Erla Finnsdóttir - Jóna Guðjónsdóttir
Einhver athöfn hjá Lionessum á Sigló í maí 1992
Ljósmynd Guðný Ósk Friðriksdóttir |
Mánudagur
16. janúar 2006
Linda Björk Brynjarsdóttir
er 4 ára í dag,
hún er dóttir Brynjars Guðmundssonar (Mumma og Gódýar)
Og Matthildar Halldórsdóttur. Fjölskyldan er búset í
Vestmannaeyjum. |
|
|
Mánudagur
16. janúar 2006
Snævar Már Gestsson
er 17 ára í dag (sonur:Huldu og Gests)
Til hamingju með daginn
kv:Pabbi, mamma og Guðrún |
Mánudagur 16. janúar 2006
Dúllan okkar hún Freyja Jóhannsdóttur.
er 4 ára í dag
Með henni á myndinni er Kári bróðir hennar
Kveðjur --- Perla og Sigurvin |
|
Mánudagur
16. janúar 2006
Ari Már Þorkelsson
er 58 ára í dag |
Mánudagur
16. janúar 2006
Kristinn Konráðsson
er 66 ára í dag |
|
|
Sunnudagur 15. janúar 2006
Hádegisveðurmynd og
hús dagsins eru HÉRNA |
|
Sunnudagur
15. janúar 2006 Eins og getið
er hér um fyrir neðan, þá komu björgunarsveitaskipin Sigurvin Siglufirði
og Sveinbjörn Jónsson frá Vopnafirði til Siglufjarðar í morgun. Ég
lofaði að setja nokkrar myndir frá þeim viðburði á vef minn og eru þær á
tenglinum

Þá vil ég einnig benda á vefsíðu þeirra á Vopnafirði
www.123.is/vopni
- en þar er ýmislegt augnayndi og fróðleikur og fleira um sveitina
Vopna + myndir |
|
+1_small.jpg) Sunnudagur
15. janúar 2006 Í morgun sunnudag í birtingunni klukkan
10:40 - kom nýr og betri Sigurvin, Björgunarsveitarinnar Strákar --
Landsbjörg inn á Siglufjörð. Nokkrir smábátar tóku á móti honum þegar
hann kom inn á fjörðinn. Og nokkrum tugum metrum á eftir kom
einnig björgunarbáturinn Sveinbjörn Sveinsson, Björgunarsveitarinnar
Vopni frá Vopnafirði, en báðum sveitunum voru afhentir bátarnir fyrir
helgina. En Sveinbjörn Jónsson tók hér olíu og mannskapurinn slappaði af
yfir góðum hádegismat í landi. Myndin til vinstri er af áhöfninni á
Sigurvin ásamt formanni sveitarinnar Strákum, Sveini Björnssyni. -- en á
hinni er áhöfn björgunarbátsins Sveinbjörns Sveinssonar -- Seinna í dag
koma fleiri myndir í syrpu |
Sunnudagur
15. janúar 2006 Horft til vesturs frá Suðarnesi (?)
á haustkvöldi.
Nappað af heimasíðu Hrannar Einarsdóttur
www.123.is/hippi
|
Sunnudagur
15. janúar 2006 Ein gömul: "Sennilega"
Lionessur (?)
Guðný Friðfinnsdóttir - (?) - Steinunn Jónsdóttir - Ragnheiður
Rögnvaldsdóttir (?) -
María Lillý Ragnarsdóttir - Bára Stefánsdóttir -
Helga Freysdóttir - Hrefna
Hermannsdóttir.
Ljósmynd, Guðný: Maí 1992
|
Sunnudagur
15. janúar 2006
Þórleifur Haraldsson
er 60 ára í dag
Til hamingju félagi, SK |
Sunnudagur 15. janúar 2006 |