Lífið í mars 01-11 2006 | Lífið í mars 12-18 2006 | Lífið í mars 19-25 2006 | Lífið í mars 26-31 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 12-18 2006

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurHvar eru þeir ?Mynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURAð gefnu...
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavélFærð á norðurlandiUmræðanFærð á vesturlandi

Laugardagur 18. mars 2006 Eins og fram kom hér fyrir neðan þá var ég fjarverandi í dag, ég skrapp á Blönduós og naut þar dagsins með syni mínum Valbirni og konu hans Álfhildi - Þar sem ég kom seinna til baka en ég ætlaði - þá kemur syrpan af myndum Sveins frá heimsókn Karlakórsins Þrastar, ekki fyrr en á morgun Sunnudag, auk annars efnis sem mér hefur borist í dag.

Laugardagur 18. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 18. mars 2006  Karlakórinn Þrestir kom hingað til Siglufjarðar í boði Karlakórs Siglufjarðar og heimsótti Síldarminjasafnið og þáði þar veitingar. Svo var Konsert í Siglufjarðarkirkju, þar fluttu Þrestir sitt prógramm og síðan Karlkór Siglufjarðar. Svo sungu kórarnir saman nokkur lög. Á morgun halda svo kórarnir til Akureyrar, en þar verður Kóramót haldið í Glerárkirkju, en þar munu koma saman 4 kórar. Sveinn Þorsteins --
Viðkomandi mynd er af Karlakórnum Þresti og Karlakór Siglufjarðar. Fleiri myndir koma síðar í syrpu  - en ég fór úr bænum snemma í morgun og hafði ekki tíma til að ganga frá syrpunni, ég kem til baka seinni partinn.  SK

Laugardagur 18. mars 2006  Ein gömul:  Eitthvað kom Kiwanisklúbburinn Skjöldur við sögu, þegar þessi mynd var tekin árið 1976.
Þarna er Björn Jónasson glaðhlakkur, þó svo að virðist sem hann hafi óviljugur verið dreginn í þennan föngulega kvennahóp.

Laugardagur 18. mars 2006
Helga Guðmundsdóttir
er 69 ára í dag
Laugardagur 18. mars 2006
Ásdís Gunnlaugsdóttir
er 67 ára í dag
Föstudagur 17. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 17. mars 2006 Karlakórinn Þrestir frá Hafnarfirði, elsti starfandi karlakór landsins er kominn í bæinn og heldur tónleika í kirkjunni í kvöld klukkan 20:30
Miðaverð er 1.500 krónur
Gestir tónleikanna er Karlakór Siglufjarðar.

Föstudagur 17. mars 2006  Andlitslyfting á vefsíðu SR-Vélaverkstæðs. Vefsíðan er mikið endurbætt hvað efnisval og útlit snertir, auk margra ljósmynda sem eru á síðunni, og nú einnig kynning á  SR-Byggingavörur.  --  Síðan er að vísu enn í vinnslu, en megin þemað er komið í gagnið.
Smelltu á lógóið til að skoða.

Föstudagur 17. mars 2006 Ein gömul:   Það er ekki víst að allir átti sig á því í snarheitum hvaða hús er þarna verið að byggja og annað/önnur sem verið er að rífa.

Myndin er tekin snemma á árinu 1974 og er af ?   Smelltu HÉR til að vera viss

Föstudagur 17. mars 2006  

Fimmtudagur 16. mars 2006  Auglýst eftir umsóknum í minningarsjóð Guðfinns Aðalsteinssonar.
Á aðalfundi KS
þann 22. mars n.k. er ætlunin að í fyrsta sinn verði veittur styrkur úr minningarsjóði Guðfinns Aðalsteinssonar sem stofnaður var á síðasta ári af fjölskyldu Guðfinns.
Í reglum sjóðsins segir m.a.:
"Sjóðurinn er stofnaður til minningar um Guðfinn Aðalsteinsson, stuðningsmann KS, og er stofnupphæð kr. 300.000,- veitt af fjölskyldu Guðfinns.
Sjóðnum er ætlað að styðja fjárhagslega við þá iðkendur KS sem kallaðir eru til landsliðsæfinga, valdir eru í landslið Íslands í yngri flokkum eða þurfa á annan hátt fjárhagslegan stuðning vegna knattspyrnuiðkunar sinnar. Jafnframt er sjóðnum ætlað að styðja við sérstök verkefni á vegum félagsins til uppbyggingar yngri flokka starfi og tekur stjórn KS ákvörðun um hvaða verkefni er styrkt úr sjóðnum á ári hverju.....  MEIRA

Fimmtudagur 16. mars 2006 Þriðjudaginn 7.03.2006. Fæddist nýr Siglfirðingur á fæðingardeild landspítalans Kl. .04.
Hún er dóttir Hauks Jónssonar (Nonna Geira) og Rakelar Ragnarsd.(Ragnars H Einarssonar)
Hún Vó rúmar 13 merkur og 51cm á lengd. Með henni á myndinni er móðir hennar
Fimmtudagur 16. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 16. mars 2006  Frétt frá Herhúsfélaginu Nú í byrjun mars kom listakonan Guðrún Kristjánsdóttir til Siglufjarðar til þess að vinna að list sinni. Guðrún vinnur mestmegnis málverk með olíulitum á striga, stuttmyndir og einnig umhverfisverk. Fjöll og snjór hafa verið yrkisefni hennar. Hún hefur haldið sýningar víða um heim, m.a. á Norðurlöndunum, Hollandi, Þýskalandi, Ítalíu og Spáni.
Á síðasta ári var hún með tvær sýningar í New York. Nú síðast tók hún þátt í sýningu í Orkuveitu Reykjavíkur í Gallerí 100°
Hér á Siglufirði er hún mála og klippa vídeómyndir sem hún hefur tekið á undanförnum árum.
Gestavinnustofan í gamla Herhúsinu mun vera nær fullbókuð næsta hálfa árið.

Fimmtudagur 16. mars 2006 Ein gömul:  Hún var illa útleikin gamla netastöðin eftir snjóflóðið sem kom beljandi niður um klukkan 21:00 19. desember 1973 á svæðið þar sem Stóri og Litli boli hindra nú að álíka skaði geti endurtekið sig, en mikill skaði varð og nærri lá við mannskaða þegar flóðið féll.
Myndin sýnir rústir netastöðvarinnar fyrrverandi og þáverandi hænsnahúss, sem snjóflóðið olli. Í húsinu voru um 500-600 hænsni og tókst að bjarga um 300 þeirra. Einnig tók flóðið með sér barnaleikskólann Leikskálar stóð raunar ónotaður, því að hann var aðeins rekinn að sumarlagi. Gjöreyðilagðist skálinn. Aðeins munaði um þremur metrum, að flóðið lenti á íbúðarhúsi þar sem í bjuggu hjón með tvö börn. Haft var eftir hjónunum, að þau hafi í fyrstu haldið að fjallið væri að falla á húsið, svo mikill var skruðningurinn frá flóðinu. Þá lenti flóðið á bílskúr með allmörgum bílum í, en vegna þess, hve skúrinn stóð lágt, (felldur inn í landslagið) lagðist flóðið yfir hann og varð þar ekkert tjón. Flóðið var um 200 metra breitt miðsvæðis, en náði að teygja sig niður í fjöru, ásamt braki frá Leikskálahúsinu.

Fimmtudagur 16. mars 2006
Jón Dýrfjörð
er 75 ár í dag  ---   Jón fagnar einnig ásamt konu sinni Erlu Eymundsdóttur 50 ára hjúskaparafmæli þeirra
Eins og allir Siglfirðingar hafa þau bæði verið virkir þátttakendur í atvinnu og félagslífi Siglfirðinga í áraáratugi  Til hamingju bæði tvö, SK

 
Fimmtudagur 16. mars 2006
Siggi Þór Ómarsson
er 15.ára í dag
(sonur Ómars og Möggu Jóns)
Kv. af Króknum
Fimmtudagur 16. mars 2006
Ástkæra móðir okkar Ása Jóns
er 55 ára í dag 
og senda englabossarnir 3 henni afmæliskveðju
Fimmtudagur 16. mars 2006
Elísabet Alla
er 3 ára í dag
Dóttir Siggu og Rúnars Marteinssonar
Fimmtudagur 16. mars 2006
Helga Fanney Salmannsdóttir
er 27.ára í dag
(dóttir Salla og Massýar)
Með henni á myndinni eru dætur hennar Sara Líf og Marsilía ---  Kv. Skaff-35

Miðvikudagur 15. mars 2006   Eftir miðjan dag í gær flaug lítil ...........

Eftir miðjan dag í gær flaug lítil flugvél yfir Siglufjörð. Flugmaður var Hörður Geirsson starfsmaður Minjasafnsins á Akureyri og ljósmyndari. Hann sendi okkur Siglfirðingum þessar myndir til skoðunar. Takið sérstaklega eftir myndinni þar sem kirkjan okkar er miðdepillinn og svona skínandi hvít. Fyrir þá sem eru fjarri staðnum; þá gerði hér svolítið snjóföl fyrir þremur dögum sem er nú óðum á förum í mildu og hlýju veðri.
Hörður Geirsson er sérstakur áhugamaður um flugsögu Íslendinga og hefur beitt sér sérstaklega fyrir leit að týndum flugvélum frá stríðsárunum. Í tengslum við það var Hörður kosinn Maður ársins á Norðurlandi 2003.
Þakkir og kveðjur til Harðar  --  ÖK & SK

Miðvikudagur 15. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 15. mars 2006  Ég mátti til með að senda þér þessar myndir af þeim Hans Ragnarsyni, Jónasi Halldórssyni, Arnari E. Ólafssyni og Ingvari Erlingssyni, allir frá SR-Vélaverkstæði, þar sem þeir eru að vinna við borholutoppa fyrir Reykjanesvirkjun. Þeir eru hér á vegum V.S.Framtak ehf. sem er með þetta verk ásamt annarri uppsetningu á vélbúnaði fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Sjálfur lærði ég vélvirkjun hjá SRV á árunum 1977 til 82 og er nú tæknifræðingur og verkstjóri hjá Framtaki.  Með kveðju, Sigurður Óli Guðmundsson (SiggiÓli)

Miðvikudagur 15. mars 2006 Ein gömul:  Togarinn Hafliði allur......
Þarna er dráttarbáturinn Goðinn að leggja af stað með Togarann Hafliða SI 2 áleiðis til Englands þar sem hann var brytjaður niður í brotajárn, ástæður förgunar var margvísleg, en aðallega þó vegna þess óhapps sem varð í höfninni á Siglufiðri........
Nánar um þann atburð HÉR  og brottförin HÉR
En það var SNJÓR sem var orsakavaldur.

Miðvikudagur 15. mars 2006
Ingvar Már Leósson
er 26 ára í dag
sonur Leós Reynirs og Sigrúnar Ingólfs
kv Fjölskylda
Miðvikudagur 15. mars 2006
Anton Páll Eyþórsson
er 34 ára í dag
kveðju frá fjölskyldunni
Miðvikudagur 15. mars 2006
Emma Magnúsdóttir
er 83 ára í dag.
Kveðja frá fjölskyldunni.
Miðvikudagur 15. mars 2006
Jón Ómar Möller
er 62ja ára í dag
Til hamingju með daginn, SK
Miðvikudagur 15. mars 2006
Birgir Snær Steindórsson
er 1.árs í dag
hann er sonur
Steindórs Birgissonar og Guðrúnar Karlsdóttur.

Þriðjudagur 14. mars 2006  Að fljúga um loftin blá eins og fuglinn hefur í gegn um aldir verið draumur margra. Það er ekki á hverjum degi sem segja má að flogið sé eins og fuglinn á Siglufirði, en það gerði Jón Atli Ólafsson, sem er á ferðalagi um landið sér til ánægju og tekur flugið á viðkomustöðum. Hann var á Siglufirði í slíku flugi um klukkan 14:00 í dag.
Efrir að ég spurði hann á hvaða ferðalagi hann væri, en hann var "greinilega aðkomumaður"  kom hið óvænta í ljós. Hann var með Siglfirskt blóð í æðum og á raunar enn ættingja hér, en langafi hans var Karl Magnússon (kola Kalli). Fyrir utan að "taka flugið" þá selur Jón svona búnað sem kostar um 500 þúsund.

Þriðjudagur 14. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 14. mars 2006  Við verðum víst að bíða í nokkra daga eftir að samgönguráðherra heimsæki okkur með upplýsingar á kynningarfundi sínum  "Ísland altengt" sem vera átti á morgun, en samkomulag hefur verið um að fresta þeim kynningarfundi þar til eftir að tilboðin í Héðinsfjarðargöng verða opnuð þann 21. mars næstkomandi og blanda báðum málefnum saman í einn fund með ráðherranum, sem verður miðvikudaginn 29. mars á Bíó Café klukkan 20:00

Þriðjudagur 14. mars 2006  Það eru ekki komin jól -- þó svo vangaveltum hafi skotið upp um hvernig ásýnd við Torgið verður um næstu jól. Verða komnir mislitir flekar í æpandi litum með tilheyrandi áletrunum fyrir marga glugga á byggingum umhverfis Torgið.
Verður þetta orðinn óhugnanlegur tískufaraldur, eða mun Tækni og bygginganefnd koma í veg fyrir að slík leyfi verði leyfð oftar en nú er komið ? Margir hafa haft samband við "Lífið á Sigló" varðandi hið "æpandi" skilti Glitnis sem enginn kemst hjá að sjá nema "hörðustu fyrrverandi kommarnir, sem líta undan þegar þeir eiga leið um svæðið (eins og einn ónefndur komst að orði við mig)- Ég ætla ekki hafa allt eftir sem mér hefur borist í pósti og í eyra varðandi "hlerann", en tvö lýsingarorðið mega gjarnan fljóta. "Sjónmengun og Umhverfisslys" Öllum ber saman um að nafnið sé gott og lóðréttu ræmurnar sem límdir eru innan á gluggana einnig, en "gluggahlerinn" væri betur komið á ofarlega norðurhlið hússins, og það með jákvæð viðhorf. 
Svipað og ofanritað er á götubylgjunni.   Jákvæð viðhorf:  Tveir póstar hafa komið til mín morgun. Hér kemur annar þeirra: "Ég sá á síðunni hjá þér að “margir” hafi haft samband vegna nýja skiltisins utan á “Íslandsbankahúsinu” og tjáð óánægju sína. Ég ætla þá að vera einn til að lýsa yfir ánægju minni með þetta skilti, finnst þetta afar vel heppnað merki hjá Glitni og þetta kemur mjög vel út að mínu viti. Vil því bara lýsa yfir ánægju með þessar breytingar á útliti hússins og finnst þær mjög vel heppnaðar í alla staði. ÞH - Hitt er efnislega eins.

Þriðjudagur 14. mars 2006 Kollan sem sagt var frá í gær og virtist ekki vel heilbrigð hafði gefið upp öndina í morgun, snjóað hafði yfir hana og til viðbótar ekið yfir hana (væntanlega eftir að snjóaði  síðastliðna nótt ?) Fuglaáhugamaður kom hræinu fyrir með viðeigandi hætti með hugsanlega fuglaflensu í huga, sem þó má telja ólíklegt að hafi grandað fuglinum.

Þriðjudagur 14. mars 2006 Ein gömul:  Sútararnir Barði Ágústsson og Ægir Jóakims

   1972
Þriðjudagur 14. mars 2006
Brynjar Karl Hákonarson
er 2ja ára í dag.
Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn,
kveðjur frá afa Sigga og ömmu Lóu.
Með honum á myndinni er systir hans Rakel Rós.
Börn Hákonar H Sigurðssonar og Öldu Pétursdóttur
Þriðjudagur 14. mars 2006
Skarphéðinn Sigurðsson
er 6 ára í dag.
Hann er sonur Sigga Sverris og Berglindar.
Kveðja frá Ásu og Dóru
Þriðjudagur 14. mars 2006
Jóhann Sv Jónsson
er 72ja ára í dag
til hamingju skólabróðir, SK
Þriðjudagur 14. mars 2006
Gunnar Guðmundsson
er 63ja ára í dag

Mánudagur 13. mars 2006  AðsentHeill og sæll Steingrímur - Bestu þakkir fyrir hjálpina. Mér var bent á að þú hefðir verið með okkur á fréttavefnum þínum og fór að gá.
Mér brá nú nokkuð við að sjá að þar var talað um Valtýr og einhverja fylgdarmenn.
Með ferðinni var ég að láta gamlan draum rætast, þ. e. að fara að vetrarlagi á skíðum í Hvanndali. Til að sá draumur yrði að veruleika varð ég að nefna þetta við rétta menn. Þessi ferð tókst frábærlega og við náðum því að fara að mestu á fjallaskíðum.
Hins vegar hefði ferðin ekki orðið löng ef ekki hefði notið við reynslu hinna tveggja ónefndu mann.
Ég ætlaði reyndar að gefa þér færi að að smella mynd af þeim en það fór sem fór. Annar samferðarmannanna var Skúli Magnússon héraðsdómari sem einnig hefur margra ára reynslu sem björgunarsveitarmaður og fjallaleiðsögumaður. Hinn heitir Haraldur Örn Ólafsson pólfari með meiru. Þess bera að geta að þeim voru í skýjunum yfir þessum norðlensku ölpum og fjölbreytileika landslagsins en fyrir utan að skíða yfir Héðinsfjarðarvatnið þá var það ógleymanlegt að skíða frá Hvanndölum niður Víkurbyrðina alveg að skýlinu. Ekki var laust við að adrenalínið flæddi um menn enda bratt og mikið hjarn. Ekki er mér kunnugt um hvort menn hafa skíðað þarna niður fyrr. Upp hefðum við ekki komist nema á alvöru broddum. Með bestu kveðju Valtýr  Myndasyrpa >>  Hvanndalaferð

Mánudagur 13. mars 2006  Það verður spennandi að fylgjast með á kynningarfundi samgönguráðherra sland altengt": Sími, sjónvarp og nettenging á háhraða til allra landsmanna! -- Kynningarfundur Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra, um Fjarskiptaáætlun til ársins 2010 verður haldinn í Bíó Café, Siglufirði, miðvikudaginn 15. mars kl. 20:00. Í áætluninni eru framsækin markmið stjórnvalda um öflugri fjarskiptanet og bætt aðgengi allra landsmanna að hvers kyns fræðslu og afþreyingarefni. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Samgönguráðuneytisins, http://www.samgonguraduneyti.is  Svo er það spurningin, "Hvenær komumst við Siglfirðingar í raunverulegt samband" ? Mætum á fundin til að hlusta og spyrja.

Mánudagur 13. mars 2006 Í sjónvarpinu í gærkveldi kom lýsing á því sem gæti hent ef Kötlugos hæfist. Þar sem um allt að 2000 manns þyrftu að yfirgefa heimili sín og sumir í þeim hópi, bændur í næsta nágrenni hefðu ef til vill ekki nema 1-2 klukkustundir til að forða sér, allt eftir hversu öflugt væntanlegt Kötlugos yrði sem vísindamenn áætla að gæti komið á morgun eða á næstu árum, það er að nokkuð öruggt að það verður ekki mjög lengi að bíða, þó svo það gæti skipt árum ekki síður en dögum. Þetta má skilja á viðtölum við vísindamenn í fjölmiðlum.
Varðandi þessa umræðu - er  ekki tímabært að stjórnvöld styrki viðkomandi bændur sem næst búa þessu hættusvæði til að kaupa lífbáta, gúmmíbjargbáta eins og bátar og skip hafa, það ætti að vera fljótlegt að setja slíka báta í kerru og forða sér á hæðstu hæðir ef ferð er ekki greið annað og hafa þar bátana tilbúna til notkunar. Ég tala ekki um ef keyptir væru fullkomnir lokaðir plastbjargbátar eins og millilandaskipin nota ? Þetta er dýrt verkefni.
En eru mannslíf ekki dýrmætara hér heima á fróni ?

Mánudagur 13. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 13. mars 2006 Það væri synd að segja að veturinn á Siglufirði hafi verið harður, þó svo umhleypingasamt hafi verið. Og máltækið á svo sannarlega vel við þetta tímabil: "Það er aldrei vont veður á Siglufirði, aðeins misjafnlega gott" -- Og veðrið nú síðustu daga hefur verið indælt, sólskin logn og blíða, ef frá er talið nokkurra tíma vindur og él seinnipartinn á laugardag fram á nóttina. Myndir sem tekin var klukkan 16:00 í gær, sýnir að enginn snjór er á láglendi - raunar enginn fyrr en langt upp í fjöllum og nægur snjór á Skíðasvæðinu í Skarðsdal, eins og sjá má hér neðar á síðunni og myndaseríu.

Mánudagur 13. mars 2006 Þessi kolla virtist vera eitthvað lasin eða óvenju róleg þar sem ég sá hana austan götunnar við Síldarminjasafnið í gær um fjögur leitið í gær.
Hún  opnaði augun aðeins til hálfs er ég nálgaðist og lokaði þeim síðan aftur.

Mánudagur 13. mars 2006  Ein gömul:  
Þessi mynd þarfnast vart neina frekari skýringa, annarra en þeirri að hún er tekin árið 1973

 

Mánudagur 13. mars 2006
Elsa Hrönn
er 10 ára í dag.  
Afmæliskveðja frá mömmu og pabba,
Agnesi og Hildu.  ( Elsa er dóttir Beggu og Ians).
 
Mánudagur 13. mars 2006
Sigurjón Pálsson
er 35 ára í dag
Til hamingju með daginn, SK
Mánudagur 13. mars 2006
Hafdís K. Ólafsson
er 64 ára í dag
til hamingju með daginn,
kær kveðja frá Júlíusi og Erlu.

Sunnudagur 12. mars 2006  Aðsent frá Ó.G.:  Þessar myndir voru teknar í gær laugardag og voru fiskarnir vigtaðir 29,5 kg og 31 kg. sá sem heldur á þessum fiskum heitir Gunnar Þór Óðinsson sem er að róa á bátnum Gunnar Jó SI 173.
Þetta er raunar ekkert einsdæmi í afla Siglufjarðarbáta upp á síðkastið, en sama dag kom Keilir SI 145  með um 10 tonn af álíka vænum fiski að landi.

Sunnudagur 12. mars 2006 Hann er einbeittur á svipinn hann krummi, sem flaug framhjá þegar ég var að taka veðurmynd dagsins í hádeginu.

Sunnudagur 12. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 12. mars 2006 Í gær laugardaginn 11. mars var opnuð ný BT. verslun í Kringlunni. Þegar opnað var um morguninn, var talið að í biðröðinni hafi þá staðið u.þ.b. 1500 manns. Verslunin var áður í suðurenda Kringlunnar sem áður nefndist Borgarkringlan, en er nú á neðri hæðinni rétt hjá Tiger og Útilíf. Staðsetningin eftir flutning verður að teljast mun betri, auk þess sem hin nýja verslun er u.þ.b. fjórfalt stærri en sú gamla. Siglfirðingurinn Leó Ingi Leósson er, og hefur um nokkurt skeið verið verslunarstjóri í BT. í Kringlunni.

Sunnudagur 12. mars 2006 Fyrst var það Útvegsbanki, svo kom Íslandsbanki sem nú sagði sitt síðasta seinni partinn í gær þegar nafn bankans "sáluga" var tekið niður og í kvöldfréttum fjölmiðla kom fram að nú heiti bankinn
Í gærkvöld um klukkan 19:00 voru svo menn að fjarlægja allar minningar um fyrra nafn, inni í bankanum á Siglufirði og væntanlega setja upp ný tákn, fyrst innandyra og síðan utandyra og á myndunum sem teknar voru í morgun sést niðurstaðan.

Sunnudagur 12. mars 2006 Skíðaparadís á Siglufirði og Bikarmót S.K.Í. í flokki 13 - 14 ára var haldið í Skarðsdal í gær, við bestu fáanlegu aðstæður á landinu, sól með köflum, léttur sunnan andvari og hiti aðeins ofan við frostmark í fjallinu. Ég skrapp í fjallið, (ekki á skíðum) fékk far með snjótroðara um svæðið og tók slatta af myndum.
Nú er svo komið að þetta skíðasvæði er farið að nálgast það að vera ekki lengur best varðveitta leyndarmálið á Íslandi, þar sem heimsóknum aðkomufólks fer sífjölgandi, en fljótt flýgur "fiskisagan." Myndasería frá heimsókn minni í gær, er hér á tenglinum > Skíðasvæðið

Sunnudagur 12. mars 2006  Námskeið í "ullarþæfingu" var haldið í Grunnskólanum í gær, leiðbeinandi var Margrét Steingrímsdóttir. -  Myndin sýnir þrjár af þeim sem mættu ásamt leiðbeinandanum. Sú litla Margrét Selma Steingrímsdóttir, sem var með ömmu sinni, sagði,"Sjáðu, þetta gerði ég"

Sunnudagur 12. mars 2006 Ábendingar hafa komið um, varðandi  Vasagönguna sem sagt var frá hér síðastliðinn föstudag, þar sem í upphafi voru nefndir tveir Siglfirðingar sem þar hefðu tekið þátt. Síðar um hádegið sama dag kom upplýsing um þann þriðja og seinnipart dagsins um þann fjórða, og í gærkveldi kom upplýsing um fimmta Siglfirðinginn. Og nú er það spurningin: "Hvar eru Siglfirðingar EKKI ?" smelltu á Vasagönguna til að sjá nöfn þeirra allra.

Sunnudagur 12. mars 2006 Ein gömul:   Þessi er frá þeim tíma er karlmenn fóru til rakara til að fá klippingu, í dag fara menn aftur á móti á hárgreiðslustofu til sömu þarfa.

Þarna er Ægir Kristjánsson rakari á stofu sinni við Aðalgötu 34 að klippa kollinn á Jóhanni Erni Matthíassyni --- Mynd frá 1965

Sunnudagur 12. mars 2006
Valdís María Stefánsdóttir
er 32ja ára í dag
Bestu afmfliskveðjur frá Seyðisfirði.
E.S. ekki var mér sagt frá hver þeirra væri Valdís !
Sunnudagur 12. mars 2006
Salmann Kristjánsson
er 58 ára í dag
Til hamingju gamli skipsfélagi, SK
Sunnudagur 12. mars 2006
Sigurður Egill Rögnvaldsson
er 43ja ára í dag

Svar: Verið er að byggja upp núverandi húsakynni Þormóðs Ramma og rífa niður húskynni Rauðku. -- Til baka