Lífið í mars 01-11 2006 | Lífið í mars 12-18 2006 | Lífið í mars 19-25 2006 | Lífið í mars 26-31 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 26-31 2006

 

Til forsíðu
Til baka
3. flokkur KS




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurHvar eru þeir ?Mynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðanAð gefnu...
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavélFærð á norðurlandiFærð á vesturlandi

Föstudagur 31. mars 2006 Þann 29. mars síðastliðinn var Aðalfundur Systrafélags Siglufjarðarkirkju haldinn. Þar var meðal annars samþykkt að gefa kirkjunni eina miljón krónur sem fara á til viðhalds og viðgerða á kirkjunni. Þrátt fyrir óhagstætt veður á fundartíma var vel mætt og sex nýir félagar gengu í félagið.
Núverandi formaður er Brynja Stefánsdóttir

Föstudagur 31. mars 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Föstudagur 31. mars 2006 Snjóflóð á fornum slóðum. Frekar lítið snjóflóð innan við 100 metra breitt féll (sennilega í gær) á slóðum mannskæðs snjóflóðs sem féll árið 1919 og sópaði burtu húsum og mannvirkjum Evangerbræðra, þar sem stóð síldarverksmiðja með fleiru og rústir undirstaða einar eftir. Sjást þess merki enn í dag, neðan við rauða X á myndinni til hægri.
Á myndinni til vinstri má sjá hvaðan núverandi snjóflóð kom og hvar það endaði. Fyrri myndin er tekin frá Hafnarbryggju, en þar sem sólar naut ekki vel, vantar alla skugga í myndina og sést því ekki eins vel á mynd og við skoðun með sjónauka, en seinni myndin er tekin aðeins síðar og þá heiman frá mér, en þá naut sólar stutta stund og sést slóð flóðsins því betur

Föstudagur 31. mars 2006  Ein gömul:   Sigurður Ægisson, Matthías Ægisson, Óli Agnarsson, Hjalti Sveinsson og Stefán Friðriksson.

Myndin er sennilega tekin  1965

Föstudagur 31. mars 2006
Elsa Petra Björnsdóttir
er 17 ára í dag.  -- Myndin af henni sem fylgir með er af 6. flokk telpna hjá Fylkir,
þar sem hún er þjálfari. Litla systir hennar,  Inga-Lill Marianne sem æfir hjá henni, er sú með hvítu húfuna.
Bestu kveður frá Pabba  

Fimmtudagur 30. mars 2006 Kaupmannafélag Siglufjarðar tinefndi mann marsmánaðar eftir hádegið í dag. Fyrir valinu varð hinn margfaldi afreksmaður og skíðakóngurinn Magnús Eiríksson. En þrátt fyrir að hann sé kominn af léttasta skeiðinu, eins og þeir sem eru honum jafnaldra og yngri telja sjálfum sér trú um, þá er Maggi Eiríks enn á fullu á skíðunum, nú fyrir stuttu í Vasagöngunni og á dögunum á Íslandsmótinu í skíðagöngu, í báðum tilfellum gekk honum frábærlega vel. Fulltrúar Kaupmannafélagsins með honum á myndinni eru Albert Guðmundsson og Freyr Sigurðsson, báðir í stjórn Kaupmannafélagsins.

Fimmtudagur 30. mars 2006  "Vantar bílstjóra" Listakonan Guðrún Kristjánsdóttir sem dvalið hefur í Herhúsinu og unnið þar að list sinni, áætlar nú að fara suður í fyrramálið ásamt dóttur sinni sem hingað kom til að verða henni samferða heim. En málin standa þannig að þau eru óvön að keyra í snjó og hálku sem nú mun vera á þjóðveginum langleiðina suður. Þess vegna vantar þær einhvern sem á leið suður, til að keyra Honda bifreið þeirra. Þeir sem telja sig geta hjálpað mæðgunum hafi samband í síma 822-2469

Fimmtudagur 30. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Vöku
verður haldinn í fundarsal félagsins að Suðurgötu 10 sunnudaginn 9. apríl
kl. 15:00 
Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í mótun framtíðar félagsins og þiggja kaffi og meðlæti á grundvelli fortíðar.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
3. Breytingar á lögum félagsins
4. Skipulagsmál – Hvert liggur leið?
5. Þess minnst að 40 ár eru liðin frá stofnun
    Vöku 3. apríl 1966
6. Önnur mál

Fimmtudagur 30. mars 2006 Hellan er komin út, sá ég í rekka hjá Samkaup í fyrradag og í gær í Tunnunni.  Í Tunnunni var sagt frá góðri nýung af hálfu þeirra "Tunnu manna"
Nú getum við,- og þó sérstaklega utanbæjarfólk, einnig notið auglýsingablaðsins Tunnan á netinu:  www.tunnan.is

Fimmtudagur 30. mars 2006 ADSL,  ADSL+, ljósleiðari og hvað allt þetta nú heitir sem tæknin býður upp á en vantar á Siglufjörð og fleiri staði á landinu, og allt sem þessu fylgir var til umræðu hjá samgönguráðherra Sturlu Böðvarssyni á Bíó Café í gærkveldi.
Nokkrar myndir frá þeim sem til máls tóku >> Ísland altengt

Fimmtudagur 30. mars 2006  Ein gömul:  Til vinstri er Már Jóhannsson - Hallgrímur Jón Hafliðason og til hægri er Guðmundur Albertsson en þeir eru allir af árgangi 1951

Fimmtudagur 30. mars 2006
Þorgeir Bjarnason
er 35 ára í dag
Fimmtudagur 30. mars 2006
Patrekur Bjarni Adolfsson
er 8 ára í dag.
Foreldrar eru Adolf Árnason og Elín Birna Bjarnadóttir
 

Miðvikudagur 29. mars 2006 Ofríki trúarinnar, á sér stað á fleiri stöðum en í Ísrarael, Arabaríkjunum og Bandaríkjunum. Hér á Íslandi eru enn í gildi reglur og krafa hins kristna valds sem þegnarnir verða að hlýða, hvort heldur þeir trúa eður ei.   http://logreglan.is/displayer.asp?cat_id=65&module_id=220&element_id=7237 
Túlki svo hver sem vill   SK

Miðvikudagur 29. mars 2006 Sturla Böðvarsson með opinn almennan fund í kvöld klukkan 20:00 á Bíó Café, þar kynnir Sturla áherslur í fjarskiptamálum Íslendinga - Þá koma væntanlega einhverjar upplýsingar um væntanleg Héðinsfjarðargöng, auk fyrirspurna.  - Að sjálfsögðu eru allir velkomnir á fundinn.

Miðvikudagur 29. mars 2006 Þann 12 mars síðast liðinn komu á vefinn tvær myndir frá Ó.G af stórþorskum sem komu á land - nú sendi hann mér aftur myndir af þessum "sömu" þorskum eftir búið var að flaka þá og frysta. Hérna koma svo myndir af flökunum af öðrum af þessum fiskum þau eru rúm 7 kg hvort.
Sá sem heldur á þessum flökum er Kristín Pálsdóttir.

Miðvikudagur 29. mars 2006  Hér eru nokkrir linkar varðandi efnið með live webcam þegar sólmyrkvi verður yfir Tyrklandi um eða eftir hádegi í dag ;)  http://tug.ulak.net.tr/tug_canli4_en.html 
http://eclipse.span.ch/eclipsewebcam.htm  http://www.exploratorium.edu/eclipse/2006/index.html

Miðvikudagur 29. mars 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Miðvikudagur 29. mars 2006  "Flensan í algleymingi" á Siglufirði vikuna 13-18. mars
Fréttir úr neðra skólahúsi; 40 börn af 135 voru mætt í neðra skólahúsi einn daginn. Allir voru með flensuna. Í 5. bekk voru mættir 2 nemendur þau Hrafn og Margrét Ýr, en í bekknum þeirra eru alls 23 krakkar. GR
 

Miðvikudagur 29. mars 2006 Stelpunum í 3. flokki kvenna og þjálfara þeirra veitt viðurkenning. 3. flokkur kvenna hefur haldið hópinn frá því að þær byrjuðu að æfa fótbolta og hafa þær lengstum verið með besta liðið á Norðurlandi. Síðasta haust kepptu þær til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn og höfnuðu þær í 2. sæti. Þær léku einnig til úrslita á Íslandsmóti innanhúss og höfnuðu þær í 4. sæti. Af þessu tilefni hafa eftirtalin fyrirtæki tekið sig saman og fjárfest í útivistarpeysum handa þeim. Fyrirtækin eru Aðalbakarí, Siglósport, Videoval, Bíó Kaffi og Ó.H.K.  Smelltu á myndina til að sjá nöfn stúlknanna og stærri mynd +.

Miðvikudagur 29. mars 2006 Frétt byggð á upplýsingum af fréttavef Ríkisútvarpsins, en þar er sagt frá þeim slæmu tíðindum að sjö af tíu starfsmönnum fiskimjölverksmiðju Síldarvinnslunnar á Siglufirði hafi í gær verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar taka gildi um mánaðamótin og eru flestir starfsmenn með þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Verksmiðjan á Siglufirði er ein sú afkastamesta á landinu. Mjög hefur verið dregið úr starfsemi verksmiðjunnar á undanförnum árum og flotanum beint til annarra verksmiðja af eðlilegum ástæðum, en sú litla loðnuveiði undanfarin ár hefur aðallega verið fjarri verksmiðjunni á Siglufirði. Síldarvinnslan á fimm fiskimjölverksmiðjur: Á Neskaupsstað, Seyðisfirði, Raufarhöfn, í Helguvík og á Siglufirði. Verið er að stækka verksmiðjuna á Neskaupsstað.

Miðvikudagur 29. mars 2006 Tvær gamlar:  Glæsilegt hús, stóriðja síns tíma;  Síldarverksmiðjan Grána

Miðvikudagur 29. mars 2006
Kristveig Skúladóttir
er 83ja ára í dag
Miðvikudagur 29. mars 2006
Jóhanna Vernharðsdóttir
er 72ja ára í dag

Þriðjudagur 28. mars 2006 Klárir krakkar -- Það var heldur kuldalegt að litast um í hesthúsahverfinu á Siglufirði í dag, norðan garri og hríðar bylur. En krakkarnir í hmf Glæsi létu það ekki á sig fá og héldu sínu striki ótrauð þar sem þau voru í óða önn að æfa prógrammið fyrir sýninguna Æskan og hesturinn, sem fram fer í Svaðastaðahöll á Sauðárkróki laugardaginn 1. apríl. Þarna eru á ferð 12 krakkar á aldrinum 7-15 ára en 10 þeirra auk 4 annarra hafa verið á námskeiði í vetur þar sem Hinrik Már Jónsson hefur leiðbeint þeim. Við þetta tækifæri verða frumsýndar nýjar Glæsis-peysur fyrir börn og fullorðna. ---  Það verða tvær sýningar á atriðum æfðum af börnum í hestamannafélögum á norðurlandi þennan laugardag, sú fyrri klukkan 14.00 og sú seinni kl 20.00 Við Glæsismenn viljum hvetja alla til að renna við á Króknum og sjá hvernig hestakrakkar af öllu norðurlandi bera sig til við gæðinga sína. -- Sjá nánar á www.siglo.is/glaesir  Myndir>> Klárir krakkar

Þriðjudagur 28. mars 2006 Þokkalegasta veður er á Siglufirði, og hefur minna snjóað en margir höfðu búist við samkvæmt veðurspám og ástandi vestan við okkur. En Fjöllin okkar hlífa okkur Siglfirðingum stundum þegar blæs úr vissum áttum.
Meðfylgjandi mynd var tekin klukkan 11:15 í morgun
er verið var að moka Hólaveginn

Þriðjudagur 28. mars 2006  Endur á flugi í morgun yfir lóð Síldarminjasafnsins
Þriðjudagur 28. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Þriðjudagur 28. mars 2006 Ein gömul:   Þessa höfðingja þekkja allir eldri Siglfirðingar, en þetta eru bílstjórarnir: Haraldur Albertsson - Jón Þorsteinsson og Sigurður Jóhannesson.

Það var algengt á fyrri hluta síðustu aldar, og vel fram að 1960 að vinnufélagar skryppu til ljósmyndarans til myndatöku á Siglufirði.
Þriðjudagur 28. mars 2006
Hjörtur Hjartarson
er 45 ára í dag  (engin mynd kom með)
Þriðjudagur 28. mars 2006
Mánudagur 27. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Mánudagur 27. mars 2006 Fundur í félagi eldri borgara var haldinn í gær - þar mætti Sveinn meðal annarra og tók nokkrar myndir. Kvenfélagið Von sá um frábærar veitingar á þessum fundi. Ungir nemendur tónskólans fluttu tónlist við góðar undirtektir. Starfsfólk Sparisjóðsins söng nokkur lög, en þau nefna sig Sparikórinn. Valþór og Anna sýndu dans og svo lék Sigurjón Steinsson fyrir dansi.  >>> Eldri borgarar

Mánudagur 27. mars 2006  Aðsent: Ég var að heyra frá Janne Laine Finnska listamanninum sem sem var fyrsti gestalistamaðurinn sem dvaldi í Herhúsinu í fyrra sumar. Hann er þegar búin að vinna fullt af myndverkum úr þeim myndum sem hann tók á Siglufirði. Hann ætlar að halda áfram að vinna úr þeim efnivið sem hann varð sér út um hér. Fjögur af þessum "Siglufjarðarverkum" eru þegar komin á sýningar í Finnlandi. Það er gaman fyrir Siglfirðinga að heyra af þessu. Þetta á sjálfsögðu ekki að koma neinum á óvart enda Siglufjörður heillandi staður. BB
Listamannsins var getið á Lífinu á Sigló á síðasta ári > HÉR

Mánudagur 27. mars 2006 Ein gömul:  Svona var þetta í "gamla daga" (1950-1970)

Kajakar gerðir úr gömlum bárujárnsplötum, og stórt "vandamál" í huga lögreglu þeirra tíma. -- En aldrei varð neitt slys í merkingu þess orðs, þó oft hafi fleytunum hvolft og skipverjar blotnað, þeir syntu annað hvort beint í land eða að næsta kajaka, sem dró þá til lands, því fleyta þeirra sökk eins og steinn, sumir höfðu þó flotholt á línu og voru fljótir að sækja þá þegar skipt hafði verið um föt, oft án vitundar mæðranna, fyrr en seinna sama dag.

Mánudagur 27. mars 2006  Elsku Gummi Stebbi litla dúllan okkar!
Til hamingju með 20 ára afmælið. Mætum í partíið þitt ef þú segir okkur hvenær það verður.
Gummi Stebbi er sonur Gunnars Stefáns Jónassonar (sonur Jónasar og Siggu) og Margrétar Fjólu Guðmundsdóttur (dóttir Ellu og Gumma). Þessi litli snáði er nú orðinn stór og 20 ára gamall. -- 
Siglókveðjur, Amma, afi, Jóna, Stína og fjölskyldur.              (engin mynd kom með) en smelltu HÉR

Sunnudagur 26. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 26. mars 2006 Listakonan Guðrún Kristjánsdóttir sem dvalið hefur í Herhúsinu og unnið þar að list sinni, hélt í gær kynningu á verkum sínum í Herhúsinu.
Hún útfærir meðal annars list sína á "videó" form og varpar lýsingum sínum og verkum á vegg með myndvarpa.
Guðrún er olíulistmálari. ----  Eldri frétt HÉR
Hún ver að lýsa verkum sínum fyrir gestum er mig bar að garði seinni partinn í gær.

Sunnudagur 26. mars 2006  Magnús Ólafsson, fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum í Húnavatnshreppi hinum nýja er slyngur í vísanagerð. Hann á vísur vikunnar að þessu sinni, sem vel að merkja eru fyrstu vísur ársins. ---  Fyrir skömmu var haldin árshátíð hjá Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Þar voru nokkrum einstaklingum veittar starfsaldursviðurkenningar. Einkum áttu konur í hlut, en þó var einn karlmaður í hópnum, að nafni Albert. Framkvæmdastjórinn og yfirlæknirinn veittu viðurkenningar, og kysstu allar konurnar. Þá sagði Albert "Ætlar enginn að kyssa mig?" Framkvæmdastjórinn, Valbjörn, var fljótur til og kyssti Albert við fögnuð viðstaddra. Magnús brást snarlega við og skrifaði á blað eftirfarandi vísu, sem einhver borðfélagi hans tók og flutti  (vísan til vinstri)

Undir þessu ekkert býr
engan þarf að sverta
áðan varð hann Valbjörn hýr
við að kyssa Berta

Valbjörn er alveg ágætis maður
alltaf vex við kynni
Aldrei hýr, en geysi glaður
og giftur konunni sinni.

Á næstu samkomu, þar sem nefndur Valbjörn og Magnús voru báðir, gerði Magnús bragarbót. Þá varð vísan svona: (vísan til hægri) ---  Ofanritað er á síðunni www.kristinn.is en jtj sendi mér. 
(nefndur Valbjörn er sonur minn SK)

Sunnudagur 26. mars 2006  Ein gömul:  Hvaða húsgrunn er þarna verið að fylla ?
Sá sem þarna stendur við "krabbann" er Kristinn Þorkelsson í grunni hússins sem hann var að byggja og í krananum situr Guðmundur Skarphéðinsson sem á húsgrunninn fyrir neðan, það er Hafnartún 18-19 -- árið 1977

Sunnudagur 26. mars 2006
Pálína Dagný Guðnadóttir
er 17 ára í dag
dóttir Guðna Sigtryggs
Bestu afmæliskveðjur frá fjölskyldunni
Sunnudagur 26. mars 2006
Hallfríður Pétursdóttir
er 77 ára í dag
Til hamingju með daginn, Guðný og Baddý