Lífið í mars 01-11 2006 | Lífið í mars 12-18 2006 | Lífið í mars 19-25 2006 | Lífið í mars 26-31 2006

>>>>>>>>>>> Lífið í mars 19-25 2006

 

Til forsíðu
Til baka
Aldursgreining




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s: 467-1569
GagnagrunnurHvar eru þeir ?Mynda-albúmMyndamöppurTenglasíða- 1
Tenglasíða-2
123.is/sksigloMyndavél-sagaMakka-notendurSAMKOMURUmræðanAð gefnu...
HádegisveðriðVeðrið NÚNAVefmyndavélFærð á norðurlandiFærð á vesturlandi
Laugardagur 25. mars 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Laugardagur 25. mars 2006 Þrátt fyrir éljagang og skafrenning sem annað slagið skall á í gærdag og 4-5 °C frost, þá virtist það engin áhrif hafa á endurnar á "Leirunum", en þar spókuðu þær sig á bæði landföstum og fljótandi ísjökum. (ekki hafís) Sumar voru í óða og önn að snyrta sig og enn aðrar tóku lífinu með ró.

Laugardagur 25. mars 2006  Ein gömul:  Þau eru mörg kunnugleg andlitin sem sjást á þessari mynd sem tekin er í troðfullu húsi Nýja Bíós árið 1965 þegar "Útvarpið" ferðaðist um landið með spurningaþáttinn "Kaupstaðirnir keppa" þar sem snillingarnir Hlöðver Sigurðsson, Benedikt Sigurðsson og Pétur Gautur Kristjánsson kepptu fyrir Siglufjörð - Litla myndin er af smá frásögn í Morgunblaðinu, upphaf stærri greinar sem nefnist Útvarp Reykjavík frá 14. maí 1965. ef smellt er HÉR má nálgast alla greinina, hjá www.timarit.is 

Laugardagur 25. mars 2006
Sveinn Ástvaldsson
er 53ja ára í dag
Laugardagur 25. mars 2006
Óli Andrés Agnarsson
er 45 ára í dag.
Með honum á myndinni
er sonur hans Jón Einar.
Kær kveðja frá fjölskyldunni

Föstudagur 24. mars 2006 Nýjar fréttir úr "fortíðinni" Stór möguleiki til að spara vatnið, er að verða að veruleika í Bátahúsinu. - En að öllu gríni slepptu, þá eru þarna félagarnir Sveinn Þorsteins og Örlygur safnvörður að leggja "síðustu" hönd á meistara verk úr fortíðinni. Þetta er bryggjukamar eins og notaðir voru á flestum síldarbryggjum í gamla daga, þó ekki ætlaður til raunverulegra þarfa gesta safnsins, heldur til að sýna hvernig þetta var hér á fyrrihluta síðustu aldar, á bryggjum, og raunar einnig við híbýli manna

Föstudagur 24. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Föstudagur 24. mars 2006  Fyrir 60 árum - bruni á Siglufirði -- Það er lítið um fréttir frá Siglufirði um þessar mundir, svo ég gróf upp eina gamla úr Morgunblaðinu 2. apríl 1946

Föstudagur 24. mars 2006  Ein gömul:    Einar Björnsson matsveinn - Erlendur Magnússon vitavörður - Jónatan Jóhannsson sjómaður og Hannes Garðarsson sjómaður

Myndin er af þáverandi sjómönnum:
Sennilega tekin um 1950, á Ljósmyndastofu Kristfinns.

Föstudagur 24. mars 2006
Magnús Gauti
er 2ja ára í dag.
Foreldrar hans eru Guðný Erla Fanndal
og Magnús Þórðarson.
Föstudagur 24. mars 2006
Ásdís Magnúsdóttir á afmæli í dag
- aldur er annars bara hugtak
Kveðja frá vinnufélögunum í "neðra"

Fimmtudagur 23. mars 2006  Fréttatilkynning frá Samfylkingarfélögum Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. -- Samfylkingarfélögin á Siglufirði og Ólafsfirði hafa samþykkt á félagsfundum að bjóða fram undir nafni Samfylkingarinnar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum. Félögin höfnuðu boði Vinstri Hreyfingarinnar – Græns framboðs um sameiginlegt framboð þar sem þau telja ekki grundvöll fyrir slíku framboði nú þegar Framsóknarflokkurinn hefur hafnað þátttöku. Samfylkingarfélögin leggja áherslu á að framboð til komandi kosninga er opið óháðum og óflokksbundnum einstaklingum er hafa áhuga á að taka þátt í myndun nýs sveitarfélags við utanverðan Eyjafjörð á grundvelli hugsjóna jafnaðarmennsku, jafnréttis og lýðræðis.

Fimmtudagur 23. mars 2006 Allhvasst var í nótt, 22.4 m/s   kl.  1:16 og mestur snjórinn sem kom í gær fokin í skafla í húsasundum og víðar. Þá eru fjöllin að mestu snjólaus eftir fjúkið. "Það fer að koma vor bráðum aftur ef að líkum lætur."
Þessi mynd er tekin í morgun klukkan 10:50 frá Suðurgötunni

Fimmtudagur 23. mars 2006  Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Fimmtudagur 23. mars 2006  Veturinn er kominn rétt einu sinni enn. Nokkuð snjóaði í gær á Siglufirði, þess á milli hefur skafið nokkuð úr þeim dúnmjúka snjó sem féll fyrripartinn. Vindur hefur verið rysjóttur, allt frá 0,0 m/s upp í 15.6 m/s --Þæfingur var á fáförnum götum seinni partinn, sem þó tafði ekki umferðina, heldur hríðarkófið og skafrenningurinn. --  Myndin er tekin klukkan 17:00 í gær

Fimmtudagur 23. mars 2006 Ég fékk þessa mynd senda, frá síðasta degi Stálvíkur SI í Siglufjarðarhöfn sl. sumar (ágúst) Sendandinn er að leita að íbúð eða húsi sem hægt væri að leigja um páskana fyrir fjölskylduna, jafnvel stórfjölskylduna ef stærðin leyfir.
Gaman væri að heyra hvernig þetta gengur ! Ef einhver láti hann vita
Einar Thor Bjarnason, gsm 821-1143 --- einar@intellecta.is 

Fimmtudagur 23. mars 2006  Ein gömul:   Þetta þætti ekki stórt "kast" í dag, ef á annað borð síld veiddist, enda síldarnætur á seinnihluta gömlu góðu síldaráranna í samanburði við núverandi síldarnætur vart stærri en háfur fyrri tíma í samanburði. En þetta "kast" fyllti þó síldarbátinn Sigurð SI 90 - og varð að opna nótina, þar sem skipið rúmaði ekki aflann sem í nótina hafði komið.

Fimmtudagur 23. mars 2006
Þóra Björg "hetja"
er 17 ára í dag,
óskum við henni til hamingju með daginn.
Kv Mamma, Ellen Sif og Mía.
 
Fimmtudagur 23. mars 2006
Ragnheiður Rögnvaldsdóttir
er 63ja ára í dag
Til hamingju með daginn
Fimmtudagur 23. mars 2006
Ragnar Haukur Hauksson
er 30 ára í dag
Kv Fjölskyldan (með honum á myndinni
eru börnin hans María Lillý og Ragnar Óli)
Miðvikudagur 22. mars 2006    Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Miðvikudagur 22. mars 2006  Ein gömul:  Starfsmenn SR-Vélaverkstæðis árið 1977
Sverrir Elefsen - Kristinn Georgsson - Steingrímur Garðarsson og Ámundi Gunnarsson,
þarna að undirbúa flutning á "loðnupressu"
Miðvikudagur 22. mars 2006
Jóhann G Möller
starfsmaður KB banka
er 27 ára í dag -
til hamingju, pabbi og mamma
Miðvikudagur 22. mars 2006
Birgir A Sigurðsson
er 24 ára í dag hann er þarna
með nýfæddan son sinn.
Hamingju óskir með daginn frá fjölskyldunni.
Miðvikudagur 22. mars 2006
Lárey Valbjörnsdóttir
er 29 ára í dag
Til hamingju með daginn
Guðný amma og afi
Miðvikudagur 22. mars 2006
Sigurbjörn Jóhannsson
er 58 ára í dag
kveðja frá fjölskyldunni.

Þriðjudagur 21. mars 2006 kl.15:20-16:15   Myndir frá tilboðsopnun Tilboðin opnuð

Héðinsfjarðargöng   05-035

Tilboð opnuð 21. mars 2006. Jarðgöngin verða um 3,7 km löng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og um 6,9 km löng milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar. Breidd ganganna verður 8,6 m. Heildarlengd steinsteyptra vegskála er um 430 m. Verkið nær ennfremur til lagningar um 3,3 km langra vega. ----------------
Tækin ö sem notuð voru við að opna hin góðu tilboð !!!!
-----------------------------------------------------------------------------

Helstu magntölur eru:
Gröfur jarðganga
Sprautusteypa
Steinsteypa
Gröftur á lausum jarðefnum
Forsprengingar að göngum
Fyllingar  
Verki skal að fullu lokið 10. desember 2009

**
580.000 m3
20.000 m3
4.600 m3
80.000 m3
30.000 m3
460.000 m3
**

Bjóðandi
Marti Contractors Ltd., Íslenskir aðalverktakar
Ístak hf.
Áætlaður verktakakostnaður
Arnarfell ehf.
Leonhard Nilsen & Sönner As, Héraðsverk ehf.

Metrostav a.s., Háfell ehf.
Tilboð kr
8.942.506.924
6.543.542.171
6.460.000.000
6.140.625.494
5.848.792.855
5.739.412.688

Hlutfall
138,4
101,3
100,0
95,1
90,5
88,8

Frávik þús.kr.
3.203.094
804.129
720.587
401.213
109.380
0

Arnarfell ehf. og Ístak hf. skiluðu inn frávikstilboðum.

Þriðjudagur 21. mars 2006  kl: 15:05
 Héðinsfjarðargöng: Lægsta tilboð 5,7 milljarðar
 

Tékkneska verktakafyrirtækið Metrostav og Háfell, áttu lægsta tilboð í gerð Héðinsfjarðarganga, 5,7 milljarða króna en tilboð voru opnuð á þriðja tímanum.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðar upp á 6,5 milljarð króna. Þetta er stærsta útboð sem Vegagerðin hefur boðið út til þessa. Eftir á að fara yfir útboðsgögnin og taka afstöðu til þeirra.  (frá Rúv)

Þriðjudagur 21. mars 2006 kl.14:40  Tilboðin opnuð í Héðinsfjarðargöng  samkvæmt bráðabirgðaupplýsingum þá mun lægsta tilboðið hafa komið frá Háfelli ofl. og hljóðar upp á 5,7 milljarða króna Vegagerðin hafði áætlað kostnaðinn 6,5 milljarða  en mótmælendur allt upp í 15 milljarðar.  Kínverjarnir höfðu beðið um lengri frest, en því var hafnað. Nánari upplýsingar koma síðar.

Þriðjudagur 21. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Þriðjudagur 21. mars 2006 Hjálpsemin í fyrirrúmi.
Bifreiðastjórinn á Volvobílnum stöðvaði bifreið sína við hraðahindrunina sem er við enda Suðurgötu (EKKI gangbraut) fór út úr bíl sínum og hjálpaði konu sem var í hjólastól á miðri götu, yfir götuna og alla leið inn í Úrval Samkaup, þangað sem hún var að fara. --

Þriðjudagur 21. mars 2006 Nú mega þeir fara að vara sig, þessir sem setja "vélaolíu", þessa lituðu á bíla sína og fyrirtækis til að losna við olíugjaldið. Af Lögregluefnum: Eftirlit með brotum á lögum um olíugjald. Síðan olíugjald var lagt á söluverð dísilolíu hafa öðru hvoru heyrst sögur af því að brögð séu á að einhverjir komi sér hjá greiðslu gjaldsins með því að nota vinnuvélaolíu á bifreiðar sínar. Samstarfsnefnd lögregluliðanna á Suðvesturhorninu, þ.e. Keflavíkurflugvelli, Keflavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjavík, Selfoss og á Akranesi ákvað að standa að sérstöku eftirliti vegna þessa. Leitað var eftir samstarfi við Vegagerðina en þar á bær hafa menn tæki til að taka sýni af eldsneytistönkum bifreiða. Úr varð að vegagerðarmenn og lögreglumenn héldu saman til eftirlits í liðinni viku........................ meira HÉR  --- -- Fullyrt er að með efnagreiningu olíunnar megi merkja gamlar dreggjar litaðrar olíu sem einu sinni hafi verið sett á viðkomandi tank mjög lengi, eitt skipti dugi á móti mörgum löglegum áfyllingum.

Þriðjudagur 21. mars 2006 Ein gömul:  
Landlega á Raufarhöfn, Sigurður SI 90 fyrir miðju.
Til vinstri við Sigurð er Guðbjörg ÍS 14 og til hægri er ma. Höfrungur II AK 150
Þriðjudagur 21. mars 2006
Tristan
er 9 ára í dag
Kveðja mamma (Una Dögg),
pabbi (Tryggvi) og fjölskyldan
 
Þriðjudagur 21. mars 2006
Örlygur Kristfinnsson
er 57 ára í dag
Til hamingju, SK
Þriðjudagur 21. mars 2006
Svanfríður Stefánsdóttir
er 80 ára í dag
Mánudagur 20. mars 2006  Bilaður stýrisbúnaður -- JE-Vélaverkstæðis menn að huga að bilun hjá plastbát í morgun sem hífaður var á land.

Mánudagur 20. mars 2006  Ég fékk þessa skemmtilegu seríu senda, en þar er að finna ýmsa hluta plánetu okkar Jörðinni, þar á meðal Ísland -- Flettið með örfunum neðst til vinstri á myndunum þegar upp koma.

Þetta er Power Point skjal -- sem er í lagi að opna (á mínum vef/möppu)

Mánudagur 20. mars 2006 Börnin á Leikskálum fengu heimsókn í rétt fyrir hádegið í dag, en til þeirra kom á vegum kirkjunnar "Stopp leikhópurinn" með leikþátt að nafni "Við guð vorum vinir" Um morguninn var einnig uppákoma í kirkjunni, en þar sem mikil veikindi höfðu verið á meðal barnanna var stór hópur sem ekki var talið ráðlegt að fara til kirkju í morgun, heimsótti "hópurinn" Leikskæála einnig. Ég frétti af seinni hlutanum og náði að taka nokkrar myndir sem eru hérna >>> Leikskálabörn (kroppað af handahófi)

Mánudagur 20. mars 2006 Hversu margir Siglfirðingar eru 12 ára, 50 ára eða ????? 
Svar við því færðu á grafinu hér til vinstri og HÉR
Mánudagur 20. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA
Mánudagur 20. mars 2006  Bridgemót Norðurlands Vestra var haldið á Bíó Café í gær, þar á meðal annarra  góðra manna voru margir Siglfirðingar með spil í hendi.

Ég leit þar aðeins inn og tók nokkrar myndir af köppunum.  >>> Bridgemót 19/3

Mánudagur 20. mars 2006 
Okkur þykir
leitt að tilkynna að skrifstofa Vöku verður lokuð miðvikudag 22. og fimmtudag 23. mars af óviðráðanlegum orsökum.
Starfsmenn
 

Mánudagur 20. mars 2006 Kiddi G.  Ferðalangurinn síungi hefur víða komið við og er á sífeldu flakki um heiminn, á milli þess sem hann kemur við í Olísbúðinni á Siglufirði, í góðan félagsskap hjá Jóni Andrjes og drekkur þar kaffi ásamt fleiri unglingum. Nú er Kristinn Georgsson ný kominn frá Florida í Bandaríkjunum þar sem hann var veglegur fulltrúi Siglfirðinga í 10.daga mótorhjólaferð um nágrenni Orlando. Hann var þarna ásamt 23 Íslendingum á 19 mótorhjólum. Þar á meðal var Björn Hannesson (Baldvins)

Mánudagur 20. mars 2006  Ein gömul:  Þessir garpar verða lengi í minnum hafðir, hvort heldur fyrir tónlist þeirra, þjónustulund, handverk og eða hugverk.
Sæmundur Jónsson - Bjarki Árnason og Þórður Kristinsson.

Mánudagur 20. mars 2006
Una Agnarsdóttir
er 44 ára í dag
Hún er þarna með barnabarn sitt
Óðni Mána Gunnarssyni
sem verður 1 árs 24 apríl nk.
Mánudagur 20. mars 2006
Sindri Þór Jónsson
 er 13 ára í dag,
og er því opinberlega orðin táningur;
(sonur Jóns Helga og Agnesar)
kveðja frá hyskinu
Sunnudagur 19. mars 2006   Hádegisveðurmynd og hús dagsins eru  HÉRNA

Sunnudagur 19. mars 2006  Björn Valur Gíslason skrifar frétt á síðu sína meðal annars:...........  Leitað hefur verið eftir samstarfi Vinstri grænna, Framsóknar og Samfylkingar um sameiginlegt framboð í sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Framsóknarmenn hafa nú hafnað slíku samstarfi og ákveðið að bjóða fram sinn eigin flokkslista en Samfylkingin hefur ekki enn tekið afstöðu til málsins. Vinstri græn hafa lýst yfir eindregnum vilja til samstarfs á sem víðtækustum grunni. Meirihlutar beggja sveitarfélaganna eru nú í höndum óflokksbundinna framboða. Framsóknarmenn ætla sem sagt að bjóða fram sinn eigin lista .......... 
(þessi frásögn er inni í miðri grein undir fyrirsögninni "Sameiginlegt framboð")

Sunnudagur 19. mars 2006 Þessa mynd sendi Sveinn Þorsteinsson mér í morgun, ásamt texta:  Mynd af samæfingu allra kóranna, á kóramóti á Akureyri í gær. Þetta eru Karlakór Siglufjarðar, Karlakórinn Drífandi, Karlakórinn Þrestir og Karlakór Akureyrar - Geysir.
Eins og sjá má að þá ber ekki mikið á Siglfirðingunum í þessum stóra hóp. Það var reyndar haft á orði þegar við sungum með Karlakórnum Þresti hér heima á föstudagskvöld að það mætti kalla Karlakórinn okkar " Þrastaunga " því við værum svo fáir.

Sunnudagur 19. mars 2006 Frystiskipið Ice Star losaði í gærmorgun við Óskarsbryggju um  230 -240 tonn af frosinni rækju til Rækjuverksmiðju Þormóðs ramma Sæbergs hf.

 

Sunnudagur 19. mars 2006  Starfsfólk Heilsugæslunnar ásamt gestum hélt einskonar "grímu-flipp" eins og Hrönn nefndi það fylgdi þessari mynd sem hún sendi mér.
En starfsfólkið sem er með eindæmum kátt og félagslynt var að skemmta sér eins og þeim einum er lagið í Þormóðsbúð í fyrra kvöld.

Sunnudagur 19. mars 2006 Siglfirðingar hafa löngum verið iðnir við að heilsa upp á Skagfirðinga, sérstaklega þó um "Sæluvikuna" - Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru hafnar æfingar á leikritinu "Með vífið í lúkunum" eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen. Leikritið gerist í London og fjallar um John Smith sem er ósköp venjulegur maður nema hvað hann er giftur tveimur konum og einn daginn lendir hann í óhappi sem veldur því að hugsanlegt er að upp um hann komist. Spinnast þá upp ótrúlegustu lygar og flækjur sem gera leikritið að eldfjörugum og bráðskemmtilegum flækjufarsa. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson og eins og venjulega verður frumsýning í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl 2006

Sunnudagur 19. mars 2006 Hindisvík - Ég varð að viðurkenna fáfræði mína í landafræði, en hefði ég verið spurður að því fyrir daginn í gær hvar á landinu Hindisvík væri, þá hefði ég "staðið á gati"

Ég minnist þess ekki að hafa nokkru sinni heyrt á þetta nafn minnst fyrr en í gær en Valbjörn sonur minn og Alla kona hans fóru með mig og konu mína þangað vestur. Þó svo að hálf nepjulegt veður væri og súld, þá leyndi það sér ekki að þarna er mikil fegurð þó hrjóstrugt væri og að virtist eyðibýli. -  Þó ekki alveg, því í fjörunni sjálfri í víkinni voru fleiri hundruð selir í makindum sem horfðu forvitnum augum á ferðalangana, sumir forðuðu  sér þó í sjóinn við komu okkar en aðrir ekki. Hindisvík er við Húnaflóa, norður af Hvammstanga. 
Fleiri myndir frá þessari ferð (og fleiri) er að finna á síðu Valbjarnar - HÉR

Sunnudagur 19. mars 2006    Myndir Sveins frá heimsókn Karlakórsins Þrestir til Siglufjarðar

>>>  Karlakórinn 17/3

Sunnudagur 19. mars 2006  Ein gömul:   Jón Kr Jónsson  (Nonni Línu), en í "fljótu bragði" mætti halda hinn vera Árna Johnsen vegna þess sem hangir á gítar endanum, en þar sem það er ekki lundafótur heldur lítill "trölli" þá hallast ég að því að þetta sé vinur minn Stefán Friðriksson, fallegt liðað hár árið 1977 !

Sunnudagur 19. mars 2006
Haukur Þór Leósson
er 24 ára í dag.
Fjölskylda hans sendir honum bestu kveðjur og hamingjuóskir í tilefni dagsins.
 
Sunnudagur 19. mars 2006
Svava Baldvinsdóttir
er 77 ára í dag
bestu kveðjur frá fjölskyldunni
með henni á myndinni er
barnabarnið hennar Vigga, dóttir Dadda.
 
Sunnudagur 19. mars 2006
Ómar Geirsson
er 50 ára í dag
Til hamingju félagi, SK