Kvikmyndirnar
og
börnin.
Grein
sú,
er
hér
fer
á
eftir,
og
tekin
er
upp
úr
Nýja
Dagblaðinu,
er
birt
samkvæmt
tilmælum
Barna-verndarnefndirnar
hér.
Máli
því
er
greinin
fjallar
um,
hefir
verið
lítill
gaumur
gefinn
hér
á
landi,og
að
minnsta
kosti
utan
Reykjavíkur
hefir
lítið
verið
gert
í
þá
átt,
að
banna
börnum
aðgang
að
kvikmyndasýningum,
er
haft
geta
óholl
áhrif
á
þau.
Rannsóknir
þær,
er
greinin
skýrir
frá,
hljóta
að
vekja
foreldra
og
aðstandendur
barna
til
umhugsunar
um
þetta
efni
og
væri
vel,
ef
nokkuð
yrði
framvegis
breytt
um,
frá
því
sem
verið
hefir,
um
bíóferðir
barna
hér
í
Siglufirði
og
að
Barnaverndarnefndin
ákvæði
hér
eftir
að
hvaða
myndum
börnum
væri
leyfður
aðgangur,
svo
sem
hún
hefir
rétt
til.Fyrir
nokkrum
árum
var
í
Bandaríkjum
Ameríku
skipuð
nefnd
manna
til
að
rannsaka
áhrif
kvikmynda
á
börn.
Í
nefndinni
áttu
háskólakennarar
einir
sæti.
Þessi
nefnd
hefir
nú
skilað
áliti
og
skal
hér
lauslega
frá
því
sagt.
Þetta
var
aðallega
rannsakað:
-
Hversu oft horfa börn á kvikmyndir?
-
Hvert er aðalefni myndanna?
-
Hversu mikið skilja börnin af kvikmyndunum?
-
Hversu mikið og lengi muna þau, það sem þau sjá?
-
Hvaða áhrif hafa kvikmyndirnar á skoðanir og framferði barnanna?
-
Hvaða áhrif hafa kvikmyndirnar á tilfinningalíf barnanna?
-
Hvaða áhrif hafa þær á svefn þeirra?
-
Hvernig verður börnum best kennt að meta kvikmyndir skynsamlega?
Hér
verður
lítillega
sagt
frá
niðurstöðum
nefndarinnar
í
sömu
röð
og
spurningarnar
benda
til.
Rannsókn
nefndarinnar
var
einvörðungu
bundin
við
Bandaríkin.
En
auðvitað
hafa
flestar
niðurstöðurnar
líka
almennt
gildi.
-
Drengir 5-8 ára sækja að meðaltali 24 kvikmyndasýningar á ári í Bandaríkjunum. en stúlkur á sama aldri 19 sýningar. Börn 7 - 14 ára sækja að meðaltali eina sýningu á hverri viku og 5 %. af börnunum sjá aldrei kvikmyndir.
-
Af 500 kvikmyndum, sem valdar voru af handahófi fyrir hvert áranna 1920, 1925 og 1930 var aðalefnið í 29.6 %. ástir, 27,4 % glæpamál ýmiskonar og í 15 % kynferðismál. Að dómi nefndarinnar var ekkert af þeim myndum við barnahæfi. Aftur var af 500 myndum, sem komu til athugunar 1930 aðeins ein mynd, sem var sérstaklega barnamynd, en 7 sögulegar myndir og 9 ferðamyndir. Um siðferðisleg efni lagði nefndin myndirnar undir dóm sýningargesta af ýmsum stéttum. Reyndust háskólakennarar og konur þeirra ströngust í dómum og voru 85 %. myndanna neðan við siðferðiskröfu þeirra. Aftur reyndust námamenn kröfuminnstir um siðferðið í myndunum. Þó voru 64 %, myndanna neðan við kröfur þess fjórða hluta þeirra, er strangast dæmdi.
-
Rannsóknir á skilningi og minni voru gerðar á þúsundum barna og alls athuguð 813 þúsund atriði.
Niðurstaða
þeirra
athugana
varð
sú,
að
8-9
ára
börn
skildu
að
meðalt.
um
60
%.
þeirra
atriða,
er
fullorðnir
skildu.
11-12
ára
börn
skildu
75
%
og
15-16
ára
börn
91
%
Eftir
6
vikur
mundu
yngstu
börnin
50-60
%
atriðanna,
sem
þau
höfðu
séð
og
skilið,
en
þau
elstu
allt
að
90
%.
Yfirleitt
mundu
börnin
miklu
fleiri
atriði
úr
kvikmyndunum
en
úr
því
sem
þau
höfðu
lært
í
skólanum.
Best
mundu
börnin
um
íþróttir,
glæpi
og
bardaga.
Í
öðru
lagi
var
prófuð
gagnrýni
barnanna
á
myndunum.
Fyrst
var
þekking
þeirra
prófuð
um
viss
atriði,
og
síðan
voru
þeim
sýndar
myndir,
þar
sem
rangt
var
farið
með
þessi
sömu
atriði.
Flest
litu
börnin
það
trúarinnar
augum,
sem
myndirnar
sýndu
í
þeim
efnum.
Sú
þekking,
sem
þau
höfðu
áður
og
var
rétt,
laut
þar
í
lægra
haldi.
4.
Til
að
rannsaka
áhrif
kvikmyndanna
á
framferði
barnanna
voru
valdir
til
athugunar
hópar
af
börnum,
sem
komu
á
kvikmyndasýningar
4-5
sinnum
í
viku,
og
aðrir
er
aðeins
komu
tvisvar
sinnum
í
mánuði.
það
kom
í
ljós,
að
þau
börn,
er
oft
komu
í
kvikmyndahúsin
dugðu
ver
við
námið
og
hegðuðu
sér
lakar.
Hinsvegar
voru
þau
engu
siður
vinsæl
meðal
barnanna.
jafnvel
vinsælli
en
hin.
Við
aðrar
rannsóknir
hefir
komið
í
ljós,
að
glæpahneigð
börn
eru
tíðir
gestir
á
kvikmyndahúsum.
Líklega
er
þar
bæði
um
orsök
og
afleiðing
að
ræða.
Ennfremur
var
rannsakað
hvaða
áhrif
einstakar
áhrifasýningar
höfðu
á
skoðanir
barnanna
um
viss
atriði,
td.
um
Kínverja,Þjóðverja.
stríð.
bann
við
dauðahegningu,
svertingja.
ofl.
Fyrst
voru
börnin
látin
svara
allmörgum
spurningum
um
efnið,
síðan
voru
þau
látin
koma
á
kvikmyndasýningu
-
eins
og
af
tilviljun
-
þar
sem
þessi
atriði
voru
sýnd
í
nýju
ljósi.
Daginn
eftir
voru
börnin
svo
látin
skýra
frá
skoðunum
sínum
á
þeim
að
nýju
og
kom
þá
í
ljós
að
þau
höfðu
mjög
um
skoðun
breytt.
Við
próf
eftir
2,
4,
6
og
8
mánuði
kom
það
og
fram,
að
þær
nýju
skoðanir,
er
þau
höfðu
drukkið
í
sig
með
kvikmyndunum
voru
óbreyttar,
nema
nýsterk
áhrif
hefðu
komið
til.
Og
þessi
var
niðurstaða
af
mörg
þúsund
tilraunum
Ein
einstök
sýning
getur
ráðið
um
skoðunarhátt
barna
um
einstök
atriði,
svo
að
viðvarandi
verði,
endurtekin
áhrif
margra
sýninga
gera
þann
skoðunarhátt
að
sterkri
sannfæringarvissu.
5.
og
6
Um
áhrif
kvikmynda
á
tilfinningalíf
barna
var
einkum
rannsakað,
hvernig
þær
verkuðu
á
starf
hjartans.
Ef
hægt
er
að
taka
fullkomið
mark
á
slíkum
mælingum,
hafa
þær
sýningar,
sem
einkum
sýna
ýmislega
hættu,
einkum
lífshættu,
mest
áhrif
á
börn
á
9
ára
aldursskeiði.
Með
aldrinum
minnka
áhrif
þeirra
sýninga,
af
því
börnunum
lærist
að
skilja,
að
"þetta
er
allt
tilbúningur".
Hinsvegar
eru
áhrif
af
sýningum
úr
ástalífinu
mest
um
það
bil,
er
börnin
hafa
náð
16-17
ára
aldri.
7.
Af
því
að
þess
þótti
enginn
kostur,
að
rannsaka
áhrif
kvikmyndanna
á
heilbrigði
barna,
var
sá
kostur
tekinn
að
rannsaka
áhrifin
sem
þær
hefðu
á
svefn
þeirra.
Það
var
gert
með
því
að
telja
hreyfingar
barnanna
í
svefni
(með
svefn
mæli:
hypnograf).
Þær
mælingar
sýndu,
að
hreyfingar
drengjanna
voru
26
%.
meiri
í
svefni
eftir
að
þeir
höfðu
horft
á
sýningar
en
endranær,
en
stúlknanna
aðeins
14
%
meiri.
Áhrifin
eru
svipuð
og
af
því
að
færa
háttatímann
frá
kl.
9
til
kl.
12.
8.
Um
það
hvernig
hægt
væri
að
gera
börnin
kvikmyndunum
vaxin,
svo
að
þær
verði
þeim
ekki
hefndargjöf,
þau
valdi
þeim,
að
þær
mali
þau
ekki
í
mjöl
og
duft,
hafa
verið
ýmsar
skoðanir.
Tvær
koma
þó
helst
til
greina.
a.
Almenn
fræðsla
um
kvikmyndir.
b.
Nákvæmt
val
kvikmynda
eftir
þroska
barnanna
og
við
hæfi
þeirra
á
allan
hátt.
Hið
fyrra
er
í
raun
réttri
miðað
við
það,
að
kvikmyndirnar
séu
barnseðlinu
fjandsamlegar,
en
barnið
geti
þó
ef
til
vill
lært
að
taka
þær
í
þjónustu
sína
líkt
og
Sæmundur
kölska.
Hið
síðara
er
hinsvegar
við
það
miðað,
að
kvikmyndirnar
megi
taka
í
þjónustu
uppeldisins,
og
það
virðist
því
meiri
ástæða
til
þess;
sem
þær
eru
mikilvirkari
í
þeim
efnum.
A.
|
SK: Skrifað 2002.
Að
mínu
mati,
er
eitt
athyglivert,
raunar
ámælisvert,
varðandi
þessa
rannsókn
og
umfjöllun
.
Það
er
hvergi
minnst
á
þátt
foreldra,
það
er
að
segja
SKYLDUR
foreldra
og
skóla,
hvað
uppeldi
barna
varðar,
gagnvart
kvikmyndum,
heldur
er
ábyrgðinni
varpað
á
þá
sem
framleiða
og
þeirra sem sýna
kvikmyndir
(svo
er
það
í
raun,
enn
í
dag).
Kvikmyndir
eru
framleiddar
til
að
veita
afþreyingu
og
fræðslu.
Það
er
staðreynd,
að
ef
engir
áhorfendur
koma
til
að
sjá
viðkomandi
kvikmyndir,
þá
bera
þær
sig
ekki
fjárhagslega
og
enginn
getur
staðið
undir
slíku
lengi.
Þess
vegna
eru
kvikmyndir
eins
og
fólkið,
almenningur,
vill
hafa
þær
.
Ekki
eins
og
einhverjir,
oftast
sjálfskipaðir
siðapostular
telja að kvikmyndir
eigi
að
vera.
Siðapostularnir
vilja
fá
að
skoða
hverja
mynd
til
að
meta
hvort
viðkomandi
myndir
séu
"sýningarhæfar"
með
tilliti
til
þroska
fjöldans,
og
vilja
helst
banna
stóran
hluta
þeirra.
Þeir
halda,
að þeir
hinir
"útvöldu
siðapostular"
þoli
slíkar
myndir
frekar
en
almúginn.
Eða
vilja
þeir
bara
fórna
sinni
"guðdómlegu"
geðheilsu
fyrir
almúgann?
Mitt
mat
er
að
foreldrar
og
skólar
eigi
að
gera
börnum
grein
fyrir
því
hvað
kvikmyndir
í
raun
séu,
tilgangur
þeirra
og
eðli.
Mínir
foreldrar
gerðu
það,
ég
gerði
það
við
mín
börn
og
sú
hefð
fór
til
barnabarna
og
raunar
er
einnig
komið
að
barnabarnabörnum.
Þetta
hefur
dugað
til
þessa
-
og
ætti
að
duga
öðrum
fjölskyldum
einnig. |