Óreglan við Nýja-Bíó
Eftir að annað bíóhús hóf
hér starfrækslu sína vonuðu margir, að Nýja Bíó, sem fyrir var, myndi nú
fara að bæta úr þeim ágöllum, er sýningargestir og aðrir töldu vera á
rekstri hússins. Það var almenn óánægja útaf
myndavali og ýmsu öðru í sambandi við þetta skemmtihús, td. vöntun á
hreinlæti og reglusemi. En þetta urðu bíógestir að þola, því að þeir höfðu
ekki í annað hús að venda, ef þeir ætluðu sér að sjá kvikmynd.
Við starfrækslu
Siglufjarðarbíó hafa orðið mikil umskipti á myndavali. Nýja-Bíó hefir bætt
myndaval sitt að miklum mun og er það að sjálfsögðu mest að þakka því, að
nú hefur það fengið keppinaut. En þótt myndavalið hafi batnað hjá Nýja-Bíó
frá því, sem áður var, þá hefur það ekki losað sig við sinn gamla,
hvimleiða fylgifisk, en hann er skeytingarleysið hjá eiganda hússins um að
þetta arðbæra fyrirtæki hans fylgi þeim reglum, sem settar eru í sambandi
við reksturinn, en í kjölfar þessarar trassamennsku dafnar svo hin mesta
óregla og ómenning, sem er eiganda hússins til
minnkunar og samborgurum hans til óþæginda og leiðinda.
Þeir, sem hafa heimsótt
bæði bíóhúsin her hafa fljótt orðið varir við þann mismun, sem þar er á,
allri reglusemi. Í Siglufjarðarbíó fær gesturinn að njóta myndarinnar í
friði og ró, sem hann á líka heimtingu á. Þar er anddyrum hússins lokað
eftir að sýning hefst og engum, hvorki unglingum eða örum, leyft að
hafast þar við á meðan á sýningu stendur.
En þeir, sem heimsækja
Nýja-Bíó að kvöldinu hafa aðra sögu að segja. Það fyrsta, sem bíógesturinn
verður þar var við, er hann kemur í anddyri hússins, að forstofan er þar að
miklu leyti upptekin af stálpuðum drengjum, sem láta allófriðlega.
Troðast
þeir með hrindingum og olnbogaskotum að klefa þeim, sem aðgöngumiðar að
sýningunni eru seldir, þrátt fyrir það þótt þeir ekki megi hafa aðgang að
kvöld sýningum, en það einkennilega skeður:
Þessir æskumenn fá afgreiðslu
eins og bíó gestirnir, þeir fá afgreitt, sælgæti og gosdrykki i stað
aðgöngumiða að sýningunni, þegar svo sýningin byrjar og bíó gestirnir eiga
að fara að njóta myndarinnar, þá berst þeim til eyrna ofsafenginn hávaði
framan úr anddyrum hússins frá viðskiptavinum sælgætis og gosdrykkja
sölunnar, en hún er höfð í fullum gangi á meðan á bíó sýningum stendur og
hverjum og einum, sem þangað kemur utan að götunni er selt það, sem hann
biður um, ef það er til.
Þessi sælgætissala er því
að miklu leyti valdandi þess, að bíógestir geta ekki fengið að njóta
myndarinnar, sem þeir eru búnir að greiða aðgang að.
Lögreglan hefur fyrir löngu
síðan kært yfir þessari sælgætissölu, til annarra en bíó gesta, en
úrskurður um það efni er ennþá ókomin. Ekki aðeins sýningargestir heldur og
allir bæjarbúar verða að krefjast þess, að sú ómenning, sem eigandi
Nýja-Bíó hefur verið að gróðursetja í sambandi við þetta fyrirtæki sitt,
verði með öllu upprætt.
Eigandi hússins verður að
koma í veg fyrir ólætin í bíó anddyrunum, með því að hætta að egna þangað
unglinga og börn með sölu á sælgæti og gosdrykkjum. Hann verður að hafa þar
dugandi dyravörð - ekki óþroskaðan ungling eða örvissa gamalmenni, heldur
mann með fulla starfskrafta.
Bjarni Jóhannsson
|