Tankur á ferð | 5 skip með yfir 10 þús. | Skíðalandsmótið | Skíðamót bls 34-35 | Úrslit, landsmótsins | Halldór Matthíasson | Haukur Jóhannsson | Margrét Baldvinsdóttir | Hafsteinn Sigurðsson | Steingrímur / Rögnvaldur | Íslenskur sigur | Næsta landsmót | Sviptingar á Skarðsmóti | Óánægja á Vestfjörðum | Blanda atvika

>>>>>>>>>>> Haukur Jóhannsson

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Miðvikudagur 25 apríl: Skíðalandsmót Íslands 1973

Keppnisskapið

rigndi niður. - Sagði Haukur Jóhannsson

 

Ég er vitanlega mjög ánægður með árangurinn í sviginu, en það sama get ég ekki sagt um  stórsvigið. Ég fann mig aldrei og það var einhvernvegin eins og keppnisskapið rigndi niður.

Um  veturinn í heild get ég ekki annað en verið ánægður, ég hef unnið ,ýmist svig eða stórsvig sex  sinnum og hef því tryggt mér Íslandsbikarinn á skíðum þó Skarðsmótið sé eftir.

 

Þetta sagði Haukur Jóhannsson frá Akureyri er við ræddum við hann skömmu eftir að keppni  í svigi lauk. Haukur hefur stundað æfingar sínar af kostgæfni í vetur, meðal annars dvalið við  æfingar erlendis ásamt félaga sínum Árna Óðinssyni. Við spurðum Hauk hve miklum tíma hann  eyddi í æfingar.

 

--- Ég æfi að meðaltali fjórum sinnum í viku og þá þrjá klukkutíma í senn. Við keyrum að  jafnaði í gegnum 350 hlið á æfingu, þetta er erfitt og maður er sannarlega ekki til stórræðanna þegar heim kemur.

 

Haukur Jóhannsson frá Akureyri,

hlaut tvo Íslandsmeistaratitla.

 

Eftir  að hafa stundað vinnu frá 9-5, finnst manni sem þriggja tíma skíðaæfing sé eins og leiðinleg  vinna á stundum, en það þýðir ekki annað en að æfa vel ef árangur á að nást.

 

Hvernig hagið þið æfingum ykkar ?

Við skiptum æfingunum í þrennt ef við getum, tveir hlutarnir fara í stórsvigsbraut, tveir í  svigbraut og einum fimmta hluta æfingartímans eyðum við í frískíðuð.

Er skíðamennskan dýr íþrótt?

Fyrir hinn almenna trimmara er að vísu nokkur stofnkostnaður, en það er ekki hægt að  segja að íþróttin sé dýr. Fyrir keppnismanninn gegnir öðru máli.

Mér finnst nauðsynlegt að  eiga fern skíði, æfingaskíði fyrir svig og stórsvig og tvenn keppnisskíði fyrir þessar sömu  greinar.

Á.I.J.
Ljósm. SK