Tankur á ferð | 5 skip með yfir 10 þús. | Skíðalandsmótið | Skíðamót bls 34-35 | Úrslit, landsmótsins | Halldór Matthíasson | Haukur Jóhannsson | Margrét Baldvinsdóttir | Hafsteinn Sigurðsson | Steingrímur / Rögnvaldur | Íslenskur sigur | Næsta landsmót | Sviptingar á Skarðsmóti | Óánægja á Vestfjörðum | Blanda atvika

>>>>>>>>>>> Hafsteinn Sigurðsson

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Miðvikudagur 25 apríl: Skíðalandsmót Íslands 1973

Nauðsynlegt að fylgjast með - að mati Hafsteins Sigurðssonar

Hafsteinn Sigurðsson frá Ísafirði, hefur ásamt Árna Óðinssyni og Hauki Jóhannssyni frá Akureyri verið í nokkrum sérflokki íslenskra skíðamanna í vetur. Þessir þrír hafa sigrað í  alpagreinum á punktamótum vetrarins, engir aðrir hafa náð gullinu. Hafsteinn sigraði í  stórsviginu á landsmótinu og spurðum við hann hvernig hann hefði hagað æfingum sínum í  vetur.

- Ég hef æft heima eins og ég hef framast getað, en auk þess eyddi ég janúarmánuði við  æfingar í Austurríki. Ég var einn Íslendinga þarna og það er jú alltaf hálfleiðinlegt að vera einn  að flækjast, en það bjargaði miklu að ég fékk tækifæri til að æfa með pólskum hóp í nokkurn  tíma. Það er allt annað að æfa þarna en hér heima, þar eru harðari brautir og þar af leiðandi  erfiðari og maður lærir meira.

Þá spurðum við Hafstein hvort harm væri hlynntur því að senda íslenska skíðamenn til keppni og æfinga erlendis.

- Það er alveg bráðnauðsynlegt, ef það er ekki gert náum við aldrei neinum árangri, við  stöðnum. Að mínu mati stefnir Skíðasamband Íslands ekki nógu hátt, það er í flestum tilfellum  einstaklingunum að þakka og á þeirra kostnað, ef einhver rífur sig upp og fer út fyrir pollinn til  keppni eða æfinga.     Á.I.J.

 

Hafsteinn Sigurðsson hlaut eina gull Ísfirðinga á mótinu.