Bland dagsetninga, 1973 Fréttir og ljósmyndir: Steingrímur
Togarinn Hafliði kveður. -- Mikill afli.. -- Notuðu sömu tækni. -- Stálvík með spænsku... -- ... enginn póstur. -- Milöy í slipp -- Snjóflóð í Siglufirði.
=======================================Guðinn
Hafliði kveður Siglufirði 9 júní.
Þessi mynd sýnir er togarinn Hafliði frá Siglufirði lagði upp í sína síðustu ferð frá Siglufirði 9. júní sl. dreginn af dráttarbátnum Goðinn.
Togarinn hefur legið inni á Siglufirði í nær hálft annað ár, en hefur nú verið seldur til niðurrifs í "brotajárn".
Sumum Siglfirðingum mun léttir að brottför togarans, en hann hefur haldið dýrmætu plássi í höfninni þennan tíma sem hann hefur legið hér, fyrir utan allar áhyggjurnar.
Steingrímur.
Mikill afli berst til Siglufjarðar
Gömlu síldarþrær. SRN og SR30. Verið er að breyta þeim í eina stóra loðnuþró, sem taka mun um 4-5 þúsund lestir
Siglufirði 8. ágúst
Talsverð atvinna hefur verið hér að undanförnu, en
aðallega má þakka það góðum afla fyrir Norðurlandi. Hafa margir aðkomubátar losað hér, þar .sem ekki hefur verði hægt að vinna aflann í heimahöfnum bátanna vegna þess, hve mikið hefur borist þar á land. Einnig hafa Siglufjarðarbátarnir aflað mjög vel.
Þormóður rammi hf. hefur hafið undirbúning að byggingu nýs frystihúss, og er vonast til að fyrsti áfangi verði fokheldur fyrir haustið. Síldarverksmiðjur ríkisins eru m a. að breyta gömlum síldarþróm í eina stóra loðnuþró og fleira er fyrirhugað til móttöku á loðnu fyrir næstu vertíð.
--- Aðeins eitt hús er i byggingu hér nú, en unnið er að frágangi fjögurra, sem reist voru á síðasta ári.
--- Unnið er að uppsetningu véla í verksmiðju Húseininga h.f. og fleira mætt telja. - SK
Notuðu sömu tækni á Siglufirði
Siglufirði 7. nóvember.
Í SJÓNVARPINU í kvöld kom það fram í viðtali við Gunnar Hannesson ljósmyndara, varðandi sýningu á litskuggamyndum í Kjarvalsstöðum, að hann vissi ekki betur, en þetta væri i fyrsta skipti, sem slík sýning færi fram hérlendis á litskuggamyndum..
Rétt er að geta þess, að vorið 1965 var hér á Siglufirði ljósmyndasýning á vegum Æskulýðsheimilisins og þar sýndu um leið þrír áhugamenn, um 1500 litskuggamyndir stanslaust meðan sýningin stóð yfir.
Voru myndirnar sýndar í gegnum stórt matt gler en skyggnuvélin var í öðru herbergi. - Steingrímur.
ES árið 2001:
Ofannefnda aðferð
notuðu og útbjuggu
samkvæmt eigin
hugmyndum, þeir
félagar, Júlíus
Jónsson, Jóhann Örn
Matthíasson og
Steingrímur
Kristinsson við
sameiginlega
ljósmyndarsýninguna
þeirra á 1500
litskyggnum sem
þarna er getið
Stálvík með spænsku veikina
Siglufirði - 20. desember.
NÝI skuttogarinn Stálvik, smíðaður hjá samnefndri skipasmíðastöð í Garðahreppi, kom hingað til hafnar á þriðjudag með um 70 tonn eftir 5 daga veiðiferð, sem verður að teljast gott.
Togarinn fór út aftur um sjö leitið í gærkvöldi, en kom inn aftur þremur tímum seinna, og segja gárungarnir, að ástæðan sé sú, að hann hafi fengið "spænsku veikina".
Vist er, að vatnsleiðslur sprungu um borð í skipinu svo að flæddi inn í íbúðir og; eldhús.
Voru leiðslur þessar algerlega óeinangraðar og er engu líkara en skipið hafi verið smíðað fyrir suðurhöf fremur en norðurhjara veraldar.
Ljóst er, að viðgerð mun taka töluverðan tíma. - ------ Steingrímur.
7 ferðir en enginn póstur
Siglufirði 21. desember.
EFTIR alllangan óveðurskafla gerði blankalogn og blíðu í gær, sem Flugfélagið Vængir notaði sér til hins ýtrasta og flaug alls 7 ferðir hingað með alls 105 farþega, sem mun vera met á einum degi - að ótöldum miklum vörusendingum.
Það sem Siglufirðingum þykir einkennilegt, bæði við þessar ferðir og
undanfarnar ferðir á síðastliðnu ári, er, að póstþjónusta virðist ekki treysta þeim
(Flugfélaginu
Vængjum) fyrir pósti hingað. - Steingrímur.
Siglufirði 7. ágúst.
Hér sjáum við norska hvalfangarann Milöy í slipp á Siglufirði. Viðgerð á skipinu er nú lokið og hélt það út í fyrradag.
Snjóflóð
á Siglufirði
Siglufirði 19. desember.
Myndin sýnir rústir hænsnabús sem snjóflóð olli, er féll við suðurjaðar Siglufjarðarkaupstaðar og tók með sér barnaleikskóla og hænsnabú, en aðeins munaði þremur metrum, að flóðið lenti á íbúðarhúsi, þar sem búa hjón með tvö börn.
Haft er eftir hjónunum, að þau hafi í fyrstu haldið að fjallið væri að falla á húsið, svo mikill var skruðningurinn frá flóðinu.
Barnaleikskólinn stóð ónotaður, því að hann var aðeins rekinn að sumarlagi. Gjöreyðilagðist skálinn.
Þá tók flóðið með sér gamla netaverkstæðið, sem nú var notað sem hænsnabú, og gjöreyðilagði það einnig.
Í því voru um 5-600 hænsni og tókst að bjarga um 300 þeirra. Þá lenti flóðið á bílskúr með allmörgum bílum í, en vegna þess, hve skúrinn stóð lágt, lagðist flóðið yfir hann og varð þar ekkert tjón.
Flóðið er um hálfur km á lengd
og liggur á um 200 metra breiðu svæði.