bland dagsetninga. 1964 og 1965 Hafís landfastur 1965 + BORAÐ EFTIR HEITU VATNI 1964 ++ Skuttogarinn Siglfirðingur
Ljósmyndir: Steingrímur
Hafís landfastur
Föstudagur. 26. mars 1965
Ísland er land andstæðna,. Meðan Surtur gýs eldi úr sjó fyrir sunnan, læðist heimskautaísinn inn á firði og flóa norðanlands.
Ís og eldur voru, og geta enn orðið, Íslands ógæfa, en æskan, Íslands framtíð, gerir sér gleði úr hvort tveggja. Myndin sýnir unga Siglfirðinga, að leik á landföstum ís í Hvanneyrarkrók, norðan flóðgarnargarðs.
Þeirra afstaða til íssins er önnur en genginna kynslóða, ekki að ástæðulausu, en fortíðin er lærdómurinn og lífsreynslan, og æ skal vá til varnaðar.
BORAÐ EFTIR HEITU VATNI Í SKÚTUDAL
Miðvikudagur 22. júlí 1964
Beðið eftir úrskurði eða umsögn jarðfræðinga áður en frekari rannsókn fer fram.
Borað eftir heitu vatni í skútudal >>>
Skuttogarinn Siglfirðingur
Hinn nýi skuttogari Siglfirðingur SI 150, kom til heimahafnar, siglufjarðar aðfaranótt mánudags 6. júlí síðastliðinn. Skipið sjálft er nýung í skipastól íslendinga, sem fyrsti skuttogari landsmanna, búið öllum fullkomnustu leitar og veiðitækjum. Það reyndist mjög vel á heimsiglingu, mestur ganghraði um 12 sjómílur. það er 270 tonn að stærð, skipshöfnin 13 manns, allt Siglfirðingar. Það hélt til veiða aðfaranótt miðvikudags 8. júlí síðastliðinn.Fjöldi bæjarbúa skoðaði skipið á meðan það var hér í höfn. Blaðið Siglfirðingur býður hið nýja skip velkomið í skipastól Siglfirðinga og heilsar þessum nafna sínum á hafinu með orðunum: Sigl þú ætíð heill um haf, hljóttu í brautargengi: veiðisæld - og Guð sem gaf gæti þín vel og lengi
Siglfirðingur SI 150 siglir inn í heimahöfn, aðfaranótt mánudags 6. júlí 1964, eftir siglingu frá Noregi þar sem skipið var smíðað.