"Talið
þér
þýsku",
heitir
mynd
sú
sem
Gamla-Bíó
í
Reykjavik
sýndi
á
jólunum
síðast
liðnum
og
eru
Litli
og
Stóri
aðalleikendurnir.
Myndin
er
tekin
af
þýsku
film
félagi
og
mjög
til
hennar
vandað,
enda
er
sagt
að
þetta
sé
skemmtilegasta
myndin
sem
Litli
og
Stóri
leika
í
og
er
þá
mikið
sagt,
því
þeir
eru
meðul
hinna
vinsælustu
gamanleikara
í
heimi.
Efni
myndarinnar
er
það,
að
alþjóða
flökkumannaþing
er
háð
í
Berlín
og
þar
mæta
hinir
frægu
flækingar
Litli
og
Stóri
vitanlega.
Aðal
umræðu-
og
viðfangsefni
þingsins
er
að
fá
ráðna
bót
á
hinni
miklu
og
háskalegu
umferð
á
öllum
þjóðvegum,
sem
öllum
flökkulýð
er
til
mikils
trafala.
Litli
og
Stóri
eru
eftir
þjark
nokkurt
kosnir
til
þess
að
bera
fram
umbótakröfur
stéttarinnar,
þótt
sá
ljóður
sé
á
þeirra
ráði
að
þeir
kunna.ekki
þýsku.
Síðan
fá
þeir
sér
kennara
í
málinu,
en
það
er
auðvitað
ástleitin
piparkerling
sem
ólm
vill
klófesta
Litla-karl.
Hann
lætur
samt
ekki
"plata"
sig
sá
stutti,
heldur
stinga
báðir
félagarnir
af,
lenda
síðan
hjá
öðrum
kvenmanni
-
yndislegri
stúlku
-
og
þá
er
nú
ekki
um
að
spyrja
þar
lenda
þeir
í
ýmsum
skringilegum
ævintýrum
...
Nýja-Bíó
hér
hefir
nú
fengið
myndina
og
mun
hún
verða
sýnd
bráðlega.
Mun
margan
fýsa
áð
sjá:
Spectator,
en
svo
heitir
myndin
á
frummálinu.
Miðvikudagur
14.
september
1932
Tilkynning frá Siglufjarðar-Bíó.
Þar sem ómögulegt hefir reynst, þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir, að fá börnin til að tala ekki saman og vera ekki með hávaða meðan á sýningu stendur, neyðumst vér til að hætta sölu barnaaðgöngumiða að öllum kvöldsýningum.
Á sunnudögum og fimmtudögum kl. 6 verða sýningar fyrir börn, og verða aðgöngumiðar barna aðeins seldir að þeim sýningum
Fimmtudagur
26.
febrúar
1933
Siglufjarðar-Bíó
er
nú
tekið
til
starfa
aftur
eftir
hina
löngu
hvíld
sína
vegna
bannsins.
Á
sunnudaginn
var
sýnd
mynd
er
heitir
"Presturinn
í
Vejlby".
Er
það
mikil
mynd
og
hrífandi
en
sorgleg.
Áttu
menn
von
á
að
kvöldið
yrði
þeim
til
uppbyggingar,
en
.sú
von
brást.
Sýning
myndarinnar
var
hin
hörmulegasta.
Slitnaði
myndin
oft
og
stundum
var
alger
þögn
-
þegar
heyrast
átti
tal
leikendanna.
Ekki
er
víst
að
sýningarstjórinn
eigi
sök
á
þessu
heldur
hafi
myndin
sjálf
og
plötur
henni
tilheyrandi
verið
skemmt
orðið.
En
á
því
eiga
þeir
sök,
er
fyrir
Bíóinu
ráða,
að
sýningar
byrja
ekki
á
réttum
tíma.
Þeir
sem
stundvísir
eru
og
komnir
eru
á
þeim
tíma
er
auglýst
er,
að
sýningin
skuli
byrja,
eiga
heimtingu
á
að
þurfa
ekki
að
bíða
eftir
slæpingjum
þeim
er
enga
stundvísi
þekkja.
[Nýja
Bíó
er
á
þessum
tíma
manna
á
milli
og
í
blöðum
nefnt
"Siglufjarðar-Bíó"
og
þar
með
af
eigandanum
sjálfum,
ekki
veit
ég
ástæður
þessa,
en
í
þessu
tilfelli
er
átt
við
Nýja
Bíó.
Ekki
hefi
ég
enn
komist
að
því,
í
hverskonar
banni
bíóið
hefur
verið
í,
samkvæmt
því
er
stendur
efst
í
þessari
frétt,
en
væntanlega
kemur
a
því
síðar]
-
SK
Fimmtudagur
12.
október
1933
"Iðrandi
sonur",
heitir
mynd
sem
sýnd
hefir
verið
hér
á
Bíó
undanfarið.
Mynd
þessi
er
einhver
sú
besta
sem
hér
hefir
verið
sýnd
og
er
vel
þess
verð
að
á
hana
sé
minnst
ekki
síst
þegar
þess
er
gætt,
að
jafnaðarlegast
eru
hér
á
boðstólum
nauðaómerkilegar
myndir
og
mun
það
vera
víðar
en
hér
sem
svo
er.
Mynd
þessi
er
frá
þeim
tíma
er
ófriðnum
mikla
lauk
og
sýnir
sálarstríð
manns
eins,
er
orðið
hefir
manni
að
bana
í
stríðinu.
Tekur
hann
sér
ferð
á
hendur
til
foreldra
manns
þess
er
hann
hefir
vegið,
til
þess
að
fá
fyrirgefningu
þeirra.
Fer
það
nokkuð
á
annan
veg
en
hann
ætlaðist
til
í
fyrstu,
en
þó
þannig
er
best
mátti
verða
fyrir
alla
er
að
þeim
málum
stóðu.
Myndin
er
framúrskarandi
vel
leikin.
Fyrsta
auglýsing
frá
Nýja
Bíó
í
Einherja,
15.júní
1932