Skemmtanirnar, kaffihúsin og kvikmyndahúsið.
Ég hefi verið á nokkrum
skemmtunum hér á Siglufirði og hefi haft þar afleiðandi aðstöðu til að vega
og meta gildi skemmtana.
Verður mér þá fyrst litið
til hins dæmalausa stjórnleysis undantekningarlaust á öllum dansleikjum. Það
þekkist ekki að einn sérstakur maður stjórni dansleik. Það þekkist ekki að
hafa dömufrí og ekki í eitt einasta skipti hafi ég orðið þess var að sá gamli
og góðkunni háttur væri iðkaður að Marsera.
Semsagt, gömlu og
góðkunnu og taktföstu dansarnir eru með öllu horfnir.
Ég kem þá að því atriði.
sem ég einkum og sér í lagi vil fram taka, en það er hið slælega eftirlit
lögreglunnar með ölvuðum mönnum á dansskemmtunum. Það er hart að verða að
þola það að fáeinar fyllibyttur skuli ráða því hvenær dansleiknum er slitið,
samanber á gamlárskvöld.
Í öll þau skipti, sem
nokkuð er um ölvun að ræða, eru það undantekningarlaust hinir ölvuðu menn.
sem ráða mestu á dansleiknum.
Þessir menn eru sannir
vargar í véum siðaðs þjóðfélags, sem oft og mörgum sinnum geta látið sér sæma
að spilla skemmtanafriðnum. Spilla einmitt þeim stundum. sem menn vilja lyfta
hug sínum upp yfir hversdagsleikann, yfir starfið og dægurþrasið og lifa
frjálsir, óháðir og glaðir.
Með allri virðingu fyrir
lögreglunni, verð ég að taka það fram að mér finnst alltof vægilega tekið á
þessum mönnum. Það væri engin goðgá þótt þessum ölvuðu sveinum yrði algerlega
neitað um inngöngu td. á næstu dansleiki og algerlega neitað um inngöngu ef
þeir ekki sætu á sér síðarmeir eftir að hafa tekið út fyrstu hegningu.
Bílstjórar verða að þola
það að mega aldrei taka í bílstýri eftir að hafa alvarlega orðið brotlegir
við lögin.
Hví ekki beita
sambærilegri hegningu við þá menn sem eru valdir að því að rjúfa skemmtanir.
brjóta borð stóla og glermuni og jafnvel veitu fólki áverka?
Mér virðist lögreglan
fara að þessum mönnum með of mikilli hógværð og taka því undur vægum tökum.
Það eru haldnir
dansleikir í kring um hverja helgi. Og þeir eru búnir að fá á sig allt of
mikinn hversdagsbrag og magnleysi Og dansleikirnir eru orðnir nokkurskonar
uppeldisstofnanir þeirra, sem aldrei láta sig vanta á slík samkvæmi, því
oftast vill það alltaf svo til, að það er mikið til sama fólkið.
Árið 1932 var ég ásamt
fleirum riðinn við samsöfnun muna fyrir Ungmennafélag. Við gerðum ráð fyrir
að leyfi fengist hjá viðkomandi sýslumanni, en þegar til kom var leyfi
fengist hjá viðkomandi sýslumanni, en þegar til kom , var svarið á þá leið að
ráðherra hefði bannað sér að leyfa allt slíkt, er lokkað gæti fjármuni út úr
mönnum og óþarft mætti teljast meðan kreppan stæði yfir.
Það væri ekki úr vegi að
bæjarfógetinn, sem veitir leyfi til allra dansleikja, sæi um að dregið yrði
úr fjölda þeirra og komið þannig í veg fyrir óhæfilega eyðslu hlutaðeigandi
einstaklinga.
Ég vík mér þá að
kaffihúsunum. Þau eru nú sem: stendur fimm að tölu í bænum, þegar gert er ráð
fyrir að Hótel Hvanneyri hafi músík.
Öll þessi kaffihús eru
mjög vanbúin, loftræsting td. alveg óbærileg og annar aðbúnaður þeirra, er
frá heilbrigðislegu sjónarmiði ekki forsvaranlegur og inn í þau er troðið svo
mörgu fólki að fram úr hófi keyrir.
Slík hús, með slíkum
útbúnaði mundi trauðla fá leyfi til þess að starfa í Reykjavík.
Á öllum þessum
kaffihúsum spiluðu síðastliðið sumar 10-12 menn og keppti hvert við annað og
kostaði offjár í að halda óbærilega dýra músík. Svo dýra, að það var
ómögulegt að hugsa sér það, að jafn dýr músík gæti borgað sig og annan
kostnað.
Nú er því svo varið, að
samstillt þriggja manna hljómsveit er þess fullkomlega umkomin að dómi þeirra
er vit hafa á, að spila fyrir öllum þeim fjölda samanlögðum, sem sátu
kaffihúsin til jafnaðar á hverju kvöldi innan fjögurra veggja.
Þar sem ekki er fyrir
hendi einstaklingur, sem mundi hafa bolmagn til þess að reisa svo vandað og
fullkomið kaffihús sem forsvaranlegt þætti, lægi næst að bærinn léti byggja
kaffihús, sem fullnægði með öllu kröfum tímans.
Fengju þá bæjarbúar um
leið íhlutunarrétt, um hvenær þeir vildu hafa húsið opið og hve dýrt
veitingar yrðu seldar. Einnig fengju þeir ríkari íhlutunarrétt með að
fullkomnara siðferðis og menningar yrði gætt jafnframt því, sem ráðin yrði bót
á öllum ytri umbúnaði
.
Það þýðir ekki að neita
því, að kaffihúsin eru þegar fyrir löngu farin að hafa verulega spillandi
áhrif. Þau eru orðin nokkurskonar uppeldisstofnanir, sem hljóta að hafa
varhugaverð áhrif á ungdóminn. Hér er því verkeini fyrir foreldra og þó
einkum kennara að láta til sín taka og heimta þær endurbætur og afskipti frá
bæjarins hálfu, sem með þarf.
Kennarar og foreldrar
hljóta að hafa orðið þess varir, að þeirra áhrif, sem miðað hafa í þá átt að
sá fræi manndóms og siðgæði í hjörtum ungdómsins, hafa dvínað og kaffihúsin
hafa átt sinn ríka þátt í því að leiða æskumanninn inn á braut nautna og
gjálífs, drykkjuskapar, tóbaksnotkunar og annarskonar nautnalífs, og
siðferðislestir hafa þróast í skjóli þeirra stofnana.
Þá er rétt að víkja
litillega að. kvikmyndahúsinu hér á Siglufirði. Eins og kunnugt er, eru
sýndar myndir á hverju kvöldi að sumarlaginu. Meiri hluti þeirra mynda sem
hér eru sýndar eru nauða ómerkilegar og hafa blátt áfram spillandi áhrif. Það
er td. ekki ósjaldan sem sýndar eru myndir sem leika snilli glæpamanna og það
liggur nærri mér að halda að kvikmyndahúsin eigi laundrjúgan þátt í því að
auka á veilur mótstöðulítilla unglinga.
Athugasemdir mínar eru í
stultu máli þessar: Ytri aðbúnaður er ekki góður, inngangseyrir er seldur við
of hátt verð og myndirnar eru lélegar.
Hér eins og annarstaðar
þarf bæjarfélagið að taka í taumuna og sjá um framkvæmdir rótækra endurbóta,
enda virðist aðstaðan til þess að koma á endurbótum vera ákjósanlega góð. Þar
sem bæjarbúar eiga stórt og myndarlegt hús sem gnæfir hæst allra húsa hér í
bæ og stendur autt mest allt árið að undanskildum örfáum skiptum.
Húsið, sem ég á hér við
er kirkjan. Mörgum finnst það kannski hrópleg misnotkun á guðshúsi að nota
það sem kvikmyndahús, en ég lít svo á að einmitt mætti gera kirkjuna að enn
voldugra og áhrifaríkara guðshúsi með því td. að sýna trúfræðilegar myndir
eins og td. myndir "Friður á jörðu" ofl. Kirkjan er of stórt og myndarlegt og
dýrt hús til þess að standa auð allt árið og storka námsfúsum févana
verkalýð.
Hér þarf ákaflega litlu
til að kosta, húsið er til og með því að taka það í sína þjónustu mundi margt
ávinnast. Ytri aðbúnað værri hægt að hafa ákjósanlega góðan.
Inngangseyririnn mundi
vera hægt að selja við lægra verði. Og með því að lækka inngangseyririnn
mundi skapast snöggt um .meiri aðsókn og almennari not og skilyrði, vara þá
um leið fyrir hendi til þess að fá fullkomnari, lærdómsríkari og göfgandi
myndir. Sennilega mundi bærinn þéna á því að taka rekstur kvikmyndahússins í
sínar hendur.
Tilhlýðilegt væri að
verja ágóðaum til stofnunar barnagarðs og ræktunar trjáa og blóma. Væri það
vel til þess fallið að ein uppeldisstofnunin gæfi af sér aðra, hægt og hægt
með frjálsu framlagi fjölmargra einstaklinga, sem skapaðist í raun og veru
þeim óafvitandi.
Vér Íslendingar þörfnumst
kvikmynda er sýna þróun í iðnaðarmenningu, íþróttamenningu,
landbúnaðarmenningu og einnig uppeldisfræðilegra og trúfræðilegra kvikmynda.
Taki ráðandi menn
bæjarfélagsins ekki þetta mál til ýtarlegrar yfirvegunar og rannsóknar, verða
bæjarbúar að taka sig saman, um háværar kröfur á hendur þeim mönnum sem
umgetnar stofnanir reka, því það erum við Siglfirðingar sem beint og óbeint
höldum þessum stofnunum uppi og höfum þar af leiðandi fullan rétt til þess að
heimta að einhverju leyti kröfur okkar uppfylltar.
Það ætti að vera okkur
Siglfirðingum metnaðarmál að skipa þessum málum svo að til fremdar mætti
þykja. Þessi umgetnu menningarmál, séu þau rækt, eiga laundrjúgan þátt í því
að móta og skerpa dómgreind manna og veitu straum lífsgleði og hamingju í
einstaklingana.
Á sumri hverju kemur
hingað fjöldi útlendinga frá ýmsum þjóðum og þessir útlendingar eiga margir
hverjir ekki aðstöðu til þess að koma á land annarstaðar en hér. Þeir verða
því að mynda sér ákveðna skoðun um menningu landsins út frá þessum eina stað
og mér leikur grunur á því, að ýmsir útlendingar skapi sér fáránlegar
skoðanir um félagslíf og menningu íslensku þjóðarinnar einmitt frá þessum
eina stað.
H. K. H.
---------------------------------------------------------
Athugasemd
Ritstjóri er ekki
greinarhöfundinum samþykkur í ýmsum atriðum, en fann þó ekki ástæðu til að
neita um upptöku greinarinnar í blaðið.