Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíóumsagnir, auglýsingar Ritstjóragrein um bíó Bíó Café, bjór ofl. Kvikmyndir og börnin Bíó "hús" í kirkjunni ? Bíófréttir-auglýsingar Siglufjarðarbíó Ráðhúsbíó? Óregla í Nýja Bíó Myndir - ferðalög

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Óregla við Nýja Bíó

Úr Vikublaðinu

25 janúar 1945

 

Óreglan við Nýja-Bíó

 

Eftir að annað bíóhús hóf hér  starfrækslu sína vonuðu margir,  að Nýja Bíó, sem fyrir var, myndi  nú fara að bæta úr þeim ágöllum,  er sýningargestir og aðrir töldu  vera á rekstri hússins. Það var almenn óánægja útaf myndavali og  ýmsu öðru í sambandi við þetta  skemmtihús, td. vöntun á hreinlæti og reglusemi. En þetta urðu  bíógestir að þola, því að þeir  höfðu ekki í annað hús að venda,  ef þeir ætluðu sér að sjá kvikmynd. 

Við starfrækslu Siglufjarðarbíó  hafa orðið mikil umskipti á myndavali. Nýja-Bíó hefir bætt myndaval sitt að miklum mun og er  það að sjálfsögðu mest að þakka  því, að nú hefur það fengið keppinaut. En þótt myndavalið hafi  batnað hjá Nýja-Bíó frá því, sem  áður var, þá hefur það ekki losað  sig við sinn gamla, hvimleiða fylgifisk, en hann er skeytingarleysið  hjá eiganda hússins um að þetta  arðbæra fyrirtæki hans fylgi þeim  reglum, sem settar eru í sambandi  við reksturinn, en í kjölfar þessarar trassamennsku dafnar svo hin  mesta óregla og ómenning, sem  er eiganda hússins til minnkunar  og samborgurum hans til óþæginda og leiðinda.

Þeir, sem hafa  heimsótt bæði bíóhúsin her hafa  fljótt orðið varir við þann mismun,  sem þar er á, allri reglusemi. Í  Siglufjarðarbíó fær gesturinn að  njóta myndarinnar í friði og ró,  sem hann á líka heimtingu á. Þar  er anddyrum hússins lokað eftir  að sýning hefst og engum, hvorki  unglingum eða örum, leyft að  hafast þar við á meðan á sýningu  stendur.

En þeir, sem heimsækja  Nýja-Bíó að kvöldinu hafa aðra  sögu að segja.  Það fyrsta, sem bíógesturinn  verður þar var við, er hann kemur í anddyri hússins, að forstofan er þar að miklu leyti upptekin af stálpuðum drengjum, sem  láta allófriðlega. Troðast þeir með  hrindingum og olnbogaskotum að  klefa þeim, sem aðgöngumiðar að  sýningunni eru seldir, þrátt fyrir  það þótt þeir ekki megi hafa aðgang að kvöld sýningum, en það  einkennilega skeður: Þessir æskumenn fá afgreiðslu eins og bíó gestirnir, þeir fá afgreitt, sælgæti  og gosdrykki i stað aðgöngumiða  að sýningunni, þegar svo sýningin byrjar og bíó gestirnir eiga að  fara að njóta myndarinnar, þá  berst þeim til eyrna ofsafenginn  hávaði framan úr anddyrum hússins frá viðskiptavinum sælgætis og gosdrykkja sölunnar, en hún er  höfð í fullum gangi á meðan á  bíó sýningum stendur og hverjum  og einum, sem þangað kemur utan að götunni er selt það, sem  hann biður um, ef það er til.

Þessi  sælgætissala er því að miklu leyti  valdandi þess, að bíógestir geta  ekki fengið að njóta myndarinnar,  sem þeir eru búnir að greiða aðgang að.

Lögreglan hefur fyrir löngu síðan kært yfir þessari sælgætissölu,  til annarra en bíó gesta, en úrskurður um það efni er ennþá ókomin. Ekki aðeins sýningargestir  heldur og allir bæjarbúar verða að  krefjast þess, að sú ómenning, sem  eigandi Nýja-Bíó hefur verið að  gróðursetja í sambandi við þetta  fyrirtæki sitt, verði með öllu upprætt.

Eigandi hússins verður að  koma í veg fyrir ólætin í bíó anddyrunum, með því að hætta að  egna þangað unglinga og börn  með sölu á sælgæti og gosdrykkjum. Hann verður að hafa þar dugandi dyravörð - ekki óþroskaðan  ungling eða örvissa gamalmenni,  heldur mann með fulla starfskrafta.

Bjarni Jóhannsson