Lífið í ágúst 1-6 2005 | Lífið í ágúst 7-13 2005 | Lífið í ágúst 14-20 2005 | Lífið í ágúst 21-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í ágúst 21-31 2005

 

Til forsíðu
Til baka
FRUM-herjar
KS stelpur




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirVefmyndavélVeðrið NÚNA   

Miðvikudagur 31. ágúst 2005  Aðsent:   Grétar Rafn til AZ (Staðfest) 
Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við hollenska liðið AZ Alkmaar með möguleika á framlengingu um tvö ár. -
Grétar Rafn sem getur leikið bæði í miðjunni og í bakverði hefur vakið athygli fyrir góðan leik hjá svissneska liðinu Young Boys og AZ hefur nú gengið frá kaupunum á honum en innan við ár er síðan Grétar gekk til liðs við Young Boys frá ÍA. ---
Grétar sagði í samtali við Fótbolti.net að toppaðstæður væru hjá AZ og þetta væri stærra stökk en fólk gerði sér grein fyrir. AZ er sem stendur í toppsæti í toppsætinu í hollensku deildinni en Lois Van Gaal fyrrum þjálfari Barelona er þjálfari liðsins núna. -- Grétar Rafn verður að sjálfsögðu í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Króötum og Búlgörum í undankeppni HM á næstunni.
Grétar er sonur Guðlaugar og Steins Elmars Árnasonar)
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson --- Sjá einnig:  Viðtal við Grétar frá því fyrr í sumar.

Miðvikudagur 31. ágúst 2005 Það fer held ég ekki á milli mála, þetta eru álftir sem hafa haldið sig á Langeyrartjörn, en þar voru þær í morgun er þessar myndir voru teknar. Á flugi voru þær að flytja sig frá norðurhluta tjarnarinnar yfir á þann syðri.

12-73-0057-3

Miðvikudagur 31. ágúst 2005  Það hefur ekki verið þrautalaust fyrir Siglfirðinga í gegn um tíðina að berjast fyrir bættum samgöngum. Baráttan fyrir Héðinsfjarðargöngum er raunar léttvæg í samanburði við fyrri baráttur.
Það liðu margir áratugir frá því fyrst var farið að tala um vegasamband við "umheiminn" þar til byrjað var að vinna við Skarðsveginn, loksins er það hófst  og um áratug rúman tók síðan að vinna  verkið, í fyrstu með haka, skóflu, hjólbörum og hraustum höndum. Aage Schiöth vildi árið 1929 bora gat, fyrstu jarðgöng á Íslandi í Skarðsdal til Fljóta, en vegur yfir Siglufjarðarskarð varð fyrir valinu. Það vita það sennilega ekki allir, en margir fróðleiksmolar eru hér á vef mínum um vegagerð fyrri tíma -- Það mætti til dæmis byrja á því að lesa HÉR hafirðu áhuga.

Miðvikudagur 31. ágúst 2005  Ein gömul:  
Tveir góðir saman: Þekktur Akureyringur ásamt Hinrik Andréssyni
Myndin er tekin í marsmánuði 1973 er verið var að sjósetja lýsistank Rauðku, á vegum Olís, en Akureyringurinn stjórnaði þeirri aðgerð.

 

Miðvikudagur 31. ágúst 2005
Margret Valsdóttir
er 56 ára í dag
Miðvikudagur 31. ágúst 2005
Ásmundur Halldór Einarsson
er 31 árs í dag

Þriðjudagur 30. ágúst 2005  Þessir iðnaðarmenn eru vanir að drekka morgunkaffið sitt í Aðalbakarí, en þeir eru: Birgir Ingimarsson smiður - Hreinn Júlíus Ingvarsson nemi - Ingi Hauksson rafmagnsiðnfræðingur - Guðmundur Lárusson rafvélavirkjameistari- Sturlaugur Kristjánsson allt mögulegt - Helgi Magnússon pípulagningameistari og Ólafur Kárason byggingameistari.

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Sólarglæta
* Hiti um 6,0 °C *  2,2 m/s

Þriðjudagur 30. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 14

Þriðjudagur 30. ágúst 2005 Nýr sparkvöllur hefur verið tekinn í notkun, sunnan við Barnaskólann. Völlurinn er með gervigrasi og snjóbræðslulögn þar undir. -
Þessir krakkar voru að æfa sig í gær og sögðu völlinn vera frábærann.  Þau heita:  Guðni Brynjólfur Ásgeirsson (Erlu og Ásgeirs) -  Sigurjón Sigtryggsson (Tryggva Sigurjóns) - Katrín Elva Ásgeirsdóttir  (Erlu og Ásgeirs) - Björn Guðnason (Guðna Sölva)

Þriðjudagur 30. ágúst 2005  Ein gömul: 
Kristján Sigtryggsson - Kristján Ásgrímsson og Jóhann Skagfjörð

1972
Þriðjudagur 30. ágúst 2005
Georg Ragnarsson
er 45 ára í dag
Þriðjudagur 30. ágúst 2005
Hans Þorvaldsson
er 72ja ára í dag

Mánudagur 29. ágúst 2005  Það hefur verið rólegt hjá trillusjómönnum að undanförnu vegna gæftaleysis og "allir" í höfn

Myndin er tekin í morgun af Bátadokkinni

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Þurrt
* Hiti um 5,3 °C *  2,2 m/s

Mánudagur 29. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 9

Mánudagur 29. ágúst 2005  Aðsent: Þessa Siglfirðinga hitti ég í fyrrahvöld austur á Skógum undir Eyjafjöllum á tónleikum með Havanabandi Tómasar R. Einarssonar. Um helgina var á Skógum tónlistarhátíðin "Jazz undir fjöllum".----   Ekki man ég nöfnin á dóttur Benedikts Sigurðssonar kennara og Péturs Þorsteinsonar hafnarvarðar en með þeim eru á myndinni hjónin Jón Sæmundur Sigurjónsson og kona hans Birgit Henriksen. Þú kannski finnur út nöfnin sem vantar.  Kv.   Guðmundur J. Albertsson

Mánudagur 29. ágúst 2005  Leitað af æti á Þormóðsreit -- Það er eins og fyrri daginn, ég verð að játa vanþekkingu mína á fuglum.
Hvað heitir fuglinn ?  Tjaldur

Mánudagur 29. ágúst 2005 Ein gömul:    Kvenfélag Sjúkrahússins við afhendingu röntgentækja til Sjúkrahúss Siglufjarðar í júnímánuði árið 1972
Svala Bjarnadóttir yfirhjúkrunarkona - Ragnheiður Sæmundsson - Jóna Einarsdóttir - Anna Snorradóttir - Hildur Svavarsdóttir - Ólafur Þ Þorsteinsson yfirlæknir og Kristine Þorsteinsson  --  Vinsamlega leiðréttið, ef nöfn eru röng að einhverju leiti

Mánudagur 29. ágúst 2005
Unnar Már Pétursson
er 40 ára í dag
Mánudagur 29. ágúst 2005
Þórhallur Daníelsson
er 64 ára í dag

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Raki
* Hiti um 4,3 °C *  0,9 m/s

Sunnudagur 28. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 11

Sunnudagur 28. ágúst 2005  Svona til að auðga fjölbreytnina og fréttaleysið, en lítil um að vera nú um þessar mundir. Þennan fugl vil ég ekki nefna, þar sem ég eins og áður hefur komið fram, ekki fróður um fugla.  --  Svar komið: Sandlóa

Ég frétti þó fyrir tilviljun að KS hefði verið að keppa í dag á Hólsvelli- hefði líklega farið á vettvang til myndatöku hefði ég vitað af því, ekki veit ég um úrslit.

Sunnudagur 28. ágúst 2005 Ein gömul:   Fjórar hnátur úr norðurbænum.
 ??? - Lilja -- Elsa og Edda
Laugardagur 27. ágúst 2005 Strákafjall komið í haustbúninginn -- tekið í morgun

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Raki
* Hiti um 5,1 °C *  0,5 m/s

Laugardagur 27. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 16

Laugardagur 27. ágúst 2005 Stór hópur Harley Davidson mótorhjólakappa 29 alls (að minnsta kosti einn Honda gæi var þó í hópnum, þessi á þríhjólinu) kom í bæinn í gærkveldi klukkan 19:00. Þetta mun vera í þriðja sinn sem þeir félagar koma til Siglufjarðar til að heimsækja félaga sína hér. Þeir borðuðu kvöldverð í Bátahúsinu og skoðuðu síðan safnið, en í dag munu heimamenn grilla fyrir hópinn. Þeir létu ekki kalsa og rigningu breyta löngu ákveðinni ferð og mættu á tilsettum tíma, enda hraustir karlar.      

Föstudagur 26. ágúst 2005 Myndasyrpan frá 13. ársþingi Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, og Siglufjarðarkaupstaðar, sem ég lofaði í gær þær eru hérna  SSNV og

Laugardagur 27. ágúst 2005 Úrhellis rigning, hefur verið síðasta sólarhring á Siglufirði eða tæpir 22 mm., (mælistaða klukkan 21:00) raunar hefur verið mikið úrhelli síðustu daga. Fólk í nálægð við uppbyggingu snjóflóðagarðana varð óttaslegið er það tók eftir því í gærkveldi að vatn var farið að leka, að því er virtist úr garðinum ofarlega. Sumir töldu jafnvel að efri hluti garðsins hefði sigið fram. Ég kom á vettvang, en erfitt var að greina þetta í gegn um rigninguna, en á myndum sem ég tók sést þetta betur, og af þeim að dæma tel ég varla ástæðu til að óttast. Í fyrsta lagi er öll vinna við garðinn unninn af samviskusemi og vel til hans vandað að öllu leiti, og það vatnsmagn sem hugsanlega hefur safnast ofan á garðinum, og er sennilega að seytla þarna í gegn að hluta og dregið með sér eitthvað af jarðveginum, það vatn getur ekki verið svo mikið að það nægi til að hreyfa garðinn sjálfan sem enn er í smíðum. Lárétta örin á myndinni sýnir um það bil efri hluta garðsins en örvarnar benda á misfelluna af völdum rigningarinnar. Aðal mannskapur verktakans er í helgarfríi, en hluti þeirra starfsmanna sem hér eru í bænum komu strax á vettvang þegar fólk tók eftir þessu, til að skoða og meta aðstæður. Vatn og það litla aurrennsli sem þarna átti sér stað komst þó ekki að næsta húsi, þar sem lítill bráðbirgðagarður var þarna fyrir, ætlaður til að taka við slíku. Fjölskyldan sem þarna býr næst, kaus þó til öryggis að flytja sig í aðra íbúð sem þau áttu aðgang að, á meðan þetta ástand varir.

Laugardagur 27. ágúst 2005  Ein gömul:  Unnið að niðurrifi Rauðku, og flutningi á tækjabúnaði hennar. -- En nú eru mannvirki Þormóðs Ramma Sæbergs hf. á þessum stað

20. september 1972

Laugardagur 27. ágúst 2005
Halldór Bogi Sigurðsson
er 33ja ára í dag

Sonur Sigga Hafliða og Kristrúnu
 
Laugardagur 27. ágúst 2005
Brynja Stefánsdóttir
er 66 ára í dag
Laugardagur 27. ágúst 2005
Halldóra Jónsdóttir
er 72ja ára í dag

Föstudagur 26. ágúst 2005  Þrettánda ársþing Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, og Siglufjarðarkaupstaðar, var haldið í dag að Kaffi Torg á Siglufirði. Þar voru til umræðu almenn félagsstörf eins og ársreikningar tillögur stjórnar og svo ýmis mál sameiginleg fyrir sveitarfélögin; samgöngumál, fjarskiptamál, raforkumál og fleira. Samgönguráðherra var þarna var mættur meðal annarra
Ég kom þar við í dag en stoppaði stutt, og tók nokkrar myndir af ýmsum þeim er fundinn sóttu - en myndirnar koma sem myndasería á vefinn morgun - Um 30 myndir.

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Rigning
* Hiti um 5 °C * N  8-9 m/s

Föstudagur 26. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 13

Föstudagur 26. ágúst 2005 
Markaðsráð Sparisjóðs Siglufjarðar skellti sér í grunnskólann í dag, nánar til tekið í neðra skólahúsið, og færði nemendum í 2. til 6. bekk reiknivélar að gjöf.

Nokkrar myndir voru teknar af þessu tilefni og hægt að skoða þær hér. á vef Sparisjóðsins

Föstudagur 26. ágúst 2005 Ein gömul:  Stelpurnar eru: Edda,Elsa og Valdís, en strákurinn litli er Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri (í Rvk)

Hulda systir sendi mér þessa mynd -

Föstudagur 26. ágúst 2005
Júlíus Helgi Sigurjónsson
er 34 ára í dag - (sonur Ninna og Svölu)
 

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Rigning
* Hiti um 5 °C * N 6-8 m/s

Fimmtudagur 25. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 15

Fimmtudagur 25. ágúst 2005  Sunnudaginn 28. ágúst heldur Golfklúbbur Siglufjarðar Íslandsbankamót til minningar um Hafliða Helgason og Kjartan Bjarnason. Þetta er punktamót í opnum flokki, leiknar verða 18 holur og mótið hefst kl. 10. Nándarverðlaun verða á öllum par 3 holum.
Hér fylgja með nokkrar myndir sem voru teknar af klúbbfélögum í golfi 11. janúar 2003. Kveðja, G.E.    

Fimmtudagur 25. ágúst 2005  Um helgina fór fram úrslitakeppni á Íslandsmótinu í 3.fl. kvenna. Lið KS var þar ásamt liðum Leiknis frá Fáskrúðsfirði. ÍBK og ÍA.
Lið KS var ansi nálægt því að ná Íslandsmeistaratitlinum og lék til úrslita við lið ÍA. Lengi vel var leikurinn járnum en skagastelpurnar reyndust sterkari þegar leið á og unnu nokkuð öruggan sigur. Lið KS náði þar með öðru sæti sem er frábær árangur hjá þeim.
Hérna á myndinni eru stelpurnar ásamt þjálfaranum Mark Duffield  H.Þ.H.

Fimmtudagur 25. ágúst 2005 Núna í ágúst voru haldnir árlegir danskir dagar í Stykkishólmi. Fagmannleg skipulögð og skemmtileg hátíð sem við á Siglufirði gætum eflaust lært ýmislegt af. Fjöldi fólks var mættur til að upplifa skemmtilega stemmingu og það eina sem skyggði á var veðrið sem var ekki sérstaklega skemmtilegt.
Meðal annars fengu Hólmarar Jakob Sveistrup, Júróvisíonfara þeirra Dana til að koma og troða upp.
Hann flutti m.a. "I´m talkin to you" sem hefur verið afar vinsælt hér á landi í sumar. Eins og sjá má á myndinni flykktust aðdáendurnir að þessum geðuga barnakennara frá Jótlandi. --  Frá vinstri Hanna Björnsdóttir, Jakob Sveistrup og Eyrún Þóra Sigurjónsdóttir í bakgrunni má meðal annars sjá Unni Steinson og Hauk Snorrason ljósmyndara.   H.Þ.H.

Fimmtudagur 25. ágúst 2005  Ein gömul:  Það var lambasteik með tilheyrandi, gæti Hanni kokkur verið að segja við Venna.
Á myndinni eru. Stefnir Guðlaugsson, Vernharð Karlsson og Jóhann J Halldórsson
Tekið á Hafnarbryggjunni í júnímánuði 1972

Upplýsingar og myndir af Siglfirskum afmælisbörnum eru ávalt vel þegnar -- En ábendingar hafa komið frá þeim Siglfirðingum sem fjarri hafa verið um lengri tíma og þekkja því ekki í öllum tilfellum ungmennin sem sagt er frá, óska eindregið eftir að nöfn foreldranna fylgi, svo þeir átti sig á hverra manna afmælisbörnin eru. Þessu er hér með vinsamlega komið á framfæri.

Fimmtudagur 25. ágúst 2005
Elsa Björnsdóttir
er 79 ára í dag
 
Fimmtudagur 25. ágúst 2005
Guðmundur Gauti Sveinsson
er 22ja ára í dag
Sonur Sveins og Guðný Guðmunds

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Smárigning - Hiti um 4 -5 °C  2-3 m/s

Miðvikudagur 24. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 18

Miðvikudagur 24. ágúst 2005  FRUM-herjar --- Ætli svona auglýsing væri umborin í dag, frekar en fyrir 33 árum, þegar yfirlögregluþjónninn Jóhannes Þórðarson bað góðfúslega um að hún yrði tekin niður. Ég hefði ekki munað né vitað sögu þessarar auglýsingar, hefði ég ekki lesið um hana á Blogginu hans Leós í marsmánuði síðastliðnum án þess þó þá, að muna eftir að ég ætti mynd af henni. En þessi mynd kom fram er ég var að skanna filmurnar mína í morgun og fannst upplagt að skella henni hér, en afrit af sögu hennar má finna HÉR  og á tengli á hliðarspássíu. 
Hver þessi er sem glottir inn á sjoppunni, veit ég ekki.---- Ætli að þetta sé fyrsta auglýsingin sem Biggi Inga gerði, en eins og flestir vita. þá er hann á fullu í auglýsingabransanum núna árið 2005 >>>>. ?

Miðvikudagur 24. ágúst 2005 Ein gömul:  Hvað ætli umræðuefnið hafi verið?

Arngrímur Jónsson fv. skipstjóri og Sigurður Sigurðsson hafnarvörður, en sennileg báðir skipstjórar þegar myndin var tekin af þeim óvörum í júnímánuði árið 1972

Miðvikudagur 24. ágúst 2005
Birgitta Pálsdóttir er 52ja ára í dag
Hún er þarna með Joachim dótturson sinn

Þriðjudagur 23. ágúst 2005
Til umhugsunar fyrir okkur Eyfirðinga eftir snjólétta vetur sem alltaf fjölgar. -- Ég var að slappa af fyrir framan sjónvarpið nú eftir hádegið á meðan tölva mín var að skanna myndaseríu (24 myndir) frá gömlu filmunum mínum sem ég vinn að daglega. ---- Ég kom inn á Eurosport rásina og sá þar nokkuð athyglivert til umhugsunar. Þeir eru nú víða í Evrópu farnir að stökkva á gervigras stökkbrautum yfir 120 metra vegalengd, eins og væri þakin snjó. Væri ekki einfaldara, tildæmis í Hlíðarfjalli að leggja gervigrasbrautir sem nota má bæði sumar og vetur, í stað þess að búa til gervisnjó ?   --   Hér eru þrjár myndir teknar áðan frá keppni á gervigrasbraut. Kappi lagður af stað kominn og niður á jafnsléttu eftir að hafa stokkið 104 metra Stökkpallurinn í baksýn.

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Sólskin - Hiti um 10-11 °C - Gola

Þriðjudagur 23. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 17

Þriðjudagur 23. ágúst 2005 Öryggi vegfarenda aukið á Siglufjarðarvegi. Vegagerðin hefur sett upp ný vegrið við veginn undir Skriðum, og það án þess að hinir hefðbundnu mótmælendur segi orð við því að peningum sé "sóað í Siglfirðinga", það væri betra að setja peningana í hið almenna þjóðvegakerfi, svo sem útiloka einbreiðar brýr, miðlæg gatnamót hér og þar og svo framvegis. En hvað sem þeirri umræðu líður, þá viljum við Siglfirðingar fyrir hönd ALLRA vegfarenda þakka Vegagerðinni, fyrir þetta framtak sem skapar mikið öryggi á þessum vegakafla, ekki síst með tilliti til snjóflóða sem eiga til með að lenda þarna. Einnig hefur Vegagerðin verið að vinna við lagfæringar á vegriðum og fleiru eru á Siglufjarðarvegi.  Myndin er tekin í morgun.

Þriðjudagur 23. ágúst 2005 Eigendur að Húsinu Hvanneyrarbraut 66b hafa eytt mörgum helgum, stundum löngum helgum í að dytta að húsi sínu, nú hafa þeir fengið sér til trausts og halds Siglfirska iðnaðarmenn, enn senn líður að síðasta áfanga þessa árs utandyra. en verkið hefur gengið mjög vel til þessa og húsið breytt aðeins um útlit til hins betra auk þess að verða hlýrra innandyra á köldum vetrardögum, en húshlutinn sem unnið hefur verið við hefur verið einangraður mjög vel fyrir kulda og vindi. Myndin er tekin klukkan 11:25 í morgun

Þriðjudagur 23. ágúst 2005 Á miðri myndinni, á stóra steininum má sjá daufar útlínur af rjúpum, málaðar á steininn. Sagan hermir að fyrir nokkrum árum hafi málari / prakkari málað mjög greinilega nokkrar rjúpur á steininn sem er nærri Pétursbrekku (veginum) í Skarðsdal, og í framhaldi af því hafi margar rjúpnaskyttur látið blekkjast og skotið á steininn. Ekki veit ég um öruggar heimildir fyrir þessu né hver málarinn var. En gaman væri ef einhver listfenginn (eða málarinn sjálfur) tæki sig til og frískaði upp á "rjúpurnar" með pensli sínum svo þetta sæist greinilega frá veginum.   Ljósmynd: Óskar Berg

Þriðjudagur 23. ágúst 2005  Margar gamlar í syrpu: Árgangur ´55 í blóma lífsins  Ekki man ég hvað leikritið hét, eða útá hvað það gekk, en myndasyrpa sú sem hér fylgir segir þó eitthvað. Þar má sjá marga efnilega leikara, þó svo þeir hafi kosið (sennilega allir) að leika á öðrum vettvangi en á sviði þar sem seldur er aðgangur.  Viðbót: --
Sæll Steingrímur. Datt í hug að senda þér smá leiðréttingu og viðbótarupplýsingar. 
Leikritið sem árgangur 1955 sýndi um vorið 1972 hét Æðikollurinn og þar vann Ingi Hauks rafvirki sannkallaðan leiksigur og fór vægast sagt á kostum. Leikritið er mikill farsi þar sem allir hlutir gerast fyrir tóman misskilning og mikið gengur á allan tímann. Á myndinni eru Þórhallur Ben, Fríða Birna, leikstjórinn Jónas Tryggva, Ingi Hauks, Kittý Jóns og sá sem þetta sendir á endanum. Ég man eftir því að á frumsýningunni hafði okkur láðist að hella upp á könnuna fyrir leikstjórann en það var víst hefð fyrir því og var hann ekki ánægður með það. - Kveðja Leó.

Skoðið fleiri =   Árgangur 55 á... 

Þriðjudagur 23. ágúst 2005

Mánudagur 22. ágúst 2005 Kaupmannafélagið og maður ágústmánaðar.
Maður ágústmánaðar  var að þessu sinni kjörinn Sturlaugur Kristjánsson, fyrir framlag sitt til tónlistarinnar á Siglufirði. Sturlaug sjálfan þarf vart að kynna, því vart heyrast tónar á Siglufirði án þess að Stúlli sé einhversstaðar nálægt. Á myndinni eru Helga Freysdóttir stjórnarmaður í Kaupmannafélaginu, Sturlaugur Kristjánsson og Freyr Sigurðsson formaður Kaupmannafélags Siglufjarðar

Mánudagur 22. ágúst 2005 Kaupmannafélagið og fyrirtæki ágústmánaðar
Fyrirtæki ágústmánaðar var að þessu sinni  kjörið Norðurfrakt, flutningsfyrirtæki sem hefur ört vaxið síðustu 12-16 mánuði, sennilega örar en nokkuð annað fyrirtæki á Siglufirði. En Norðurfrakt annast alla flutninga sem tengdir eru neti Flytjanda, til og frá Siglufirði. Á myndinni sem tekin er á skrifstofu Norðurfrakt eru; stjórnarmaður í Kaupmannafélagi Siglufjarðar Helga Freysdóttir, skrifstofustjóri Norðurfrakt Elín Hreggviðsdóttir og maki hennar forstjórinn Ásmundur Einarsson, svo formaður Kaupmannafélags Siglufjarðar, Freyr Sigurðsson

Mánudagur 22. ágúst 2005  

Þessar tvær myndir voru teknar um klukka 16:30 í gær - og þarfnast ekki frekari skýringa

Veðrið NÚNA

Í hádeginu:
Sólskin - Hiti um 12 °C - Logn

Mánudagur 22. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 19

Mánudagur 22. ágúst 2005  Hauskúpa í Skarðsdal. Nýuppfærð ? -- Það væri ekki óeðlilegt ef þetta er "sú sama" og Ragnar Páll málaði fyrir áratugum, en hann hefur áður uppfært hana.

Óskar Berg Elefsen sendi mér þessa mynd, sem hann tók í gær.
Mánudagur 22. ágúst 2005  Kollur í Fjörunni í gær og höfðu það gott,  - það vor einher leyndardómur yfir þeim þær gáfu mér  sérkennilegt auga.

Mánudagur 22. ágúst 2005 Félagar úr Félagi eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum, kom úr öræfaferð upp úr klukkan 19:00 í gærkveldi Á myndunum sem hér fylgja og kona mín Guðný Ósk tók, er ekki að efa að mannskapurinn hefur verið í góðum gír alla leiðina - og aldrei sett í bakkgírinn.   Eldri borgarar Gist var á Hótel Gullfoss Brattholti í góðu yfirlæti, og þaðan farið í ýmsar áttir, auk þess sem ýmislegt var skoðað á Suðurleiðinni

Mánudagur 22. ágúst 2005  Nokkrar myndir frá Guðmundi Albertssyni sem hann tók á Menningarnótt í Reykjavík síðastliðinn lagardag.
Tríó Guðmundar Ingólfssonar, Frum, lék fyrir gesti í Hellusundi og Flístríóið spilaði fyrir vegfarendur á Laugaveginum, ofl.   Menningarnótt-2   Siglfirðingar og............
 
Mánudagur 22. ágúst 2005 Ein gömul: 
Sigurður Konráðsson og Haukur Freysteinsson um borð í Dröfn SI -
En þennan bát smíðuðu þeir árið 1971
Mánudagur 22. ágúst 2005
Hulda Stefánsdóttir  
er 89 ára í dag
Hulda er fyrir miðju á myndinni, ég held ég eigi enga betri
Mánudagur 22. ágúst 2005
Mánudagur 22. ágúst 2005
Hákon Jóhannes Antonsson
er 64 ára í dag 
Mánudagur 22. ágúst 2005
Ágústa Margrét Jónasdóttir
er 66 ára í dag
Sunnudagur 21. ágúst 2005  3. flokkur kvenna KS er komin í úrslit á Íslandsmótinu í fótbolta og spila í Keflavík um helgina. Allir stuðningsmenn KS ættu að koma og hvetja stelpurnar sínar því það er ekki oft sem þetta gerist að þær komist í úrslit og hver veit nema þær verði Íslandsmeistarar? ----  Hérna er tengill með leikjum um helgina
Kveðja 3. flokkur kvenna KS

Veðrið NÚNA

Laugardagur 20. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 22

Sunnudagur 21. ágúst 2005 Menningarnótt án Siglfirðinga væri bara tabúúúú.--
Sendi þér smá brot af því besta. Kv.Tryggvi

Á myndunni eru: Hjónin Guðrún Björnsdóttir og Helgi Magnússon -- Guðrún Helga Kristjánsdóttir og karlinn hennar Tryggvi Björnsson -- Arnar Ólafsson og kona hans Guðrún Árnadóttir   Menningarnótt-1 Tekið 20. ágúst.

Sunnudagur 21. ágúst 2005
"Mennirnir á bak við myndavélina" Er óhætt að segja um þessa þremenninga. En þessi mynd var tekin heima hjá Baldvin og Ingu við Suðurgötu á Siglufirði í gær, í tilefni af því að Þórir Kr. Þórisson kom með vefmyndavélina margumtöluðu í bæinn og afhenti mér hana formlega  með tilheyrandi glensi og alvöru, kampavíni og fleiru góðgæti í boði Baldvins og Ingu. En Þórir hefur séð um alla tæknilegu hlið verksins til þessa og fleira. Ekki má gleyma Baldvin sem tók þátt í að velja og þrýsta á seljendur varðandi búnaðinn í heild, sem er nokkuð flókinn. Myndirnar eru af Baldvin Einarssyni, mér SK og Þóri, og auðvitað var slegið á létta strengi í leiðinni, en það er ég sem þarna er undir "hjálminum", - en Baldvin setti hann á hausinn á mér og Inga kona hans tók myndirnar. Nú er loks verður farið í sjálfa vinnuna við uppsetninguna. Óskar Berg ætlar að smíða mastrið og fleiri góðir menn koma síðar að verkinu. Verkið verður unnið skipulega og í rólegheitum, en það verður ekki mjög langt í að þeir sem heimsækja Lífið á Sigló geti skoða lifandi myndir frá Siglufirði eins og  frá ýmsum sjónarhornum. - eins og Veðrið NÚNA

Sunnudagur 21. ágúst 2005  Sigurbjörg ÓF 1 var hér seinni partinn í gær, greinilega ný máluð, fallegt skip.

Sunnudagur 21. ágúst 2005  Ein gömul:  Hver er maðurinn og hvar er hann ?

Ég veit það -- en pælið í því.

Svarið er alveg neðst á síðunni
Sunnudagur 21. ágúst 2005
Ásta Rós Reynisdóttir
er 19 ára í dag
Sunnudagur 21. ágúst 2005
Þeir  eiga afmæli í dag
Jón Rúnar Gíslason 20 ára
Stefán Haukur Arnarson 7 ára
Sá yngri stendur á stól (blái)

XX

 

 

 

Um borð í Hafliða SI 2, maðurinn er Magnús Guðjónsson