Lífið í ágúst 1-6 2005 | Lífið í ágúst 7-13 2005 | Lífið í ágúst 14-20 2005 | Lífið í ágúst 21-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í ágúst 14-20 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Menningarstyrkir
"Rolluvísur"




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirVefmyndavélVeðrið NÚNA   
Laugardagur 20. ágúst 2005 Þessir krakka voru við leik við Suðurgötuna í morgun, þau heita Sölvi Guðnason - Björn Vilhelm og Rakel Heimisdóttir

Laugardagur 20. ágúst 2005  Margbreytilegur gróður þrífst alveg niður að flóðmörkum í sandinum í fjörunni í Hvanneyrarkrók.   Þessi mynd er ein af þeim plöntum sem ég tók myndir af, en hún var staðsett efst uppi á sandhaug neðst í fjörunni við flóðmörkin.

Sólskin

Veðrið NÚNA

Laugardagur 20. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  Aðalgata 22

Laugardagur 20. ágúst 2005  Nýtt á "Lífið á Sigló" Ég hefi að undanförnu átt í basli með að koma tengingu á upplýsingum frá Veðurstöðinni í Bakka beint út á netið, en ég hefi þurft til þessa, að gera þetta handvirkt.
En nú hefi ég með aðstoð góðs vinar bætt úr þessu, og geta nú þeir sem vilja huga að veðrinu heima á Sigló, smellt á tengilinn Veðrið NÚNA Tengil sem einnig er staðsettur  efstur á meðal annarra tengla hér efst á blaðsíðunni -og þá koma fram nýjar veðurlýsingar sem uppfærðar eru á 10 mínútna fresti --- Það ber þó að athuga, að eftir er að íslenska textann vegna upplýsingana, en það kemur síðar. 

Laugardagur 20. ágúst 2005  Á heimleið -- Óskar Berg sendi mér þessa mynd í gærkveldi, en hann smellti á þau hjónin Sturlaug Kristjánsson og Fanney Hafliðadóttur sem voru á heimleið eftir kvöldkaffi, í blíðunni um klukkan 23:30 á "vespunni" sinni.

Laugardagur 20. ágúst 2005  Sendi þér nokkrar myndir sem ég tók í gær þegar ég fór til Grímseyjar með Fokker flugvél FÍ. Flugstjórinn gerði það fyrir okkur að fljúga svona út Eyjafjörðinn svo við gætum séð "firðina okkar" úr lofti. ---   Á myndunum má sjá meðal annars.Ólafsfjörð, Hvanndali, Héðinsfjörð, og að sjálfsögðu Siglufjörð, svo og Grímsey. -- Einnig myndir teknar úr Grímsey af fjöllunum okkar, þarna má sjá Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Siglufjörð í sömu myndinni. - Þarna sá ég m.a. til framkvæmda Stefáns á Nesi í Héðinsfirði, sem glöggir geta kannski séð, rétt innan við vatnið. Tilefni ferðarinnar var að fagna endurbyggingu flugvallarins í Grímsey. --- Sendi " Lífinu á Sigló " þessar myndir svo fleiri megi njóta þeirra. ---  Kær kveðja Kristján L Möller     Grímseyjarferð

Laugardagur 20. ágúst 2005  Það hefur ekki farið framhjá neinum, sem fylgist með veðrinu á Sigló, að hér hefur verið að undförnu leiðinda rigningarsuddi og kuldi, í amk. tvær í vikur.
En í gær urðu mikil umskipti, heiðskír himinn og sólskin með hita sem nálgaðist óþægindi í húsagörðum.
En þetta var góð tilbreyting. Raunar fullyrti ég við vini mína Baldvin og Ingu sem komu heim á Siglufjörð í fyrrakvöld, að þau hefðu komið með sólina með sér. Myndin til vinstri er af þeim hjónum seinni partinn í gær, en Baldvin  var að dytta að húsi sínu sem enda nær, og Inga að undirbúa kvöldmatinn er mig bar að garði. Nokkru sunnar við sömu götu voru hjónin Jón Sigurðsson og kona hans Guðbjörg Ásgeirsdóttir í skugga frá trjágróðri og slöppuðu af, en Jón er farinn að undirbúa klæðningu á sitt hús - Þær eru orðnar smitandi þessar aðgerðir gesta okkar sem hér hafa keypt hús til að dvelja í um helgar og í frítímum sínum og eru sífellt að dytta að og fegra fasteignir sínar. En heimamenn eru  í auknum mæli farnir að huga að sínum húsum, og bæta útlit þeirra.

Laugardagur 20. ágúst 2005
Viggó Pálmi Jónsson
er 48 ára í dag

Laugardagur 20. ágúst 2005
Aron Fannar Hilmarsson
er eins árs í dag.  ----  Foreldrar hans eru Sigríður Ósk dóttir Salla og Massýar og Hilmar Þór sonur Möggu Jóns og Hreiðars Jóhannssonar.

Föstudagur  19. ágúst 2005  Vinna við Bakkatorgið (hvernig lýst ykkur á nafnið?) miðar þokkalega. Þessar myndir voru teknar rétt fyrir hádegið í dag.

Fimmtudagur 18. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --    ö  Aðalgata 23

Föstudagur  19. ágúst 2005  Hún Hrönn Einarsdóttir, vinkona mín hefur unnið á Sveitahóteli í sumar, hún sendi mér þessa kveðju og mynd, jafnframt til að lofa öðrum að vita: Þessari dvöl í sveitinni er lokið og hún er kominn heim:
Þessa mynd er tekinn fyrir ofan Stóru Giljá í húnavallarsýslu.

Föstudagur  19. ágúst 2005 Nokkrar vísur mér til stuðnings -- til Tæknideildar bæjarins, hafa borist og eru þær hérna Þá hafa einnig borist ýmsar vísbendingar í óbundnu máli, sem aðallega beinast til Tæknideildar í formi ráðgjafar. Hér er ein í stuttu máli: Fyrir Austan land hafa verið gefin út veiðileyfi á hreindýr, sem viðkomandi byggðarlög hafa haft góðar tekjur af, vegna ásóknar skotveiðimanna, einnig frá auðugum útlendingum. Gefið út veiðileyfi á rollurnar hér innanfjarðar, það yrði drjúg tekjulind fyrir bæjarkassann.

Föstudagur  19. ágúst 2005  Vargfugl !  Þeir eru líklega svangir þessir, veisluborðin frá í sumar, ungarnir,  eru ekki lengur það viðráðanlegir að auðvelt sé að ná þeim og þessir fuglar og aðrir félagar þeirra, greinilega farnir að huga að einhverju öðru æti.

Myndin er tekin í rigningunni í gær.

Föstudagur  19. ágúst 2005  Ein gömul:  Slökkviliðið; dælubíllinn prófaður og yfirfarinn á góðvirðisdegi á Hafnarbryggjunni  í júní 1971
Á myndinni eru;
Guðmundur Skarphéðinsson  - Egill Stefánsson, (sennilega) og Kristinn Georgsson.

Föstudagur  19. ágúst 2005
Mariska van der Meer
er 47 ára í dag
Föstudagur  19. ágúst 2005
Helga Sv Sigurbjörnsdóttir
er 48 ára í dag
Föstudagur  19. ágúst 2005
Friðrik Friðriksson
er 73ja ára í dag
Föstudagur  19. ágúst 2005
Leó Ingi Leósson
er 28 ára í dag

Fimmtudagur 18. ágúst 2005  Aðsent: Sæll Steingrímur. Við hjá Tæknideild bæjarins gerum okkur grein fyrir þessu rollu vandamáli og erum að vinna í málinu. Svar okkar núna í bili er þó í bundnu máli og hljóðar svo.
Féið þykir fagurt.
Frjálst það leikur sér.
Verður varla magurt
Við túnfótinn hjá þér.
  -----    Kv. Einar Hrafn.   --- Gaman væri ef ég væri fær um að svara þessu ágæta ljóði að hætti hagyrðings, en ég er ekki þeim gæfum gæddur að geta það og skora því á einhvern sem það getur, að svara fyrir mig. Það eina sem ég vil koma á framfæri varðandi þetta og væntanlegum "bjargvætti mínum" að þó svo að, rollurnar fitni í túngarði mínum, þá er það haft fyrir satt að svefnleysi sé góð leið til að megrast, það er hjá þeim sem ekki nota tækifærið á nóttunni til að læðast í ísskápinn. -- Takk fyrir vísuna Einar Hrafn, vonandi verður vinna ykkar í málinu búin að skila árangri fyrir næsta sumar, en senn er liðið að lokum sumarsins í ár.

Fimmtudagur 18. ágúst 2005 Félag Eldri borgar á Siglufirði og í Fljótum.

Á milli 30-40 eldri borgarar héldu af stað í morgun áleiðis í fjögurra daga öræfaferð.

Rigning

Fimmtudagur 18. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --    ö  Aðalgata 24

Fimmtudagur 18. ágúst 2005  Aðsent:  Þessa mynd fékk ég senda í morgun frá tveim aðskildum aðilum og læt ég báða textana fylgja til gamans:
Í gær áttust við landslið Íslands og Suður Afríku á laugardalsvelli. Leiknum lauk með 4-1 sigri okkar Íslendinga. Grétar Rafn Steinsson (sonur Laugu og Elmars) var í byrjunarliði Íslands og skoraði fyrsta mark leiksins og kom þar með Íslendingum yfir 1-0.
Á myndinni má sjá Grétar ásamt Árna Heiðari eftir leik. AÞM   --- Og hinn textinn:
Hér er mynd af tveim þekktum Siglfirðingum, rétt er að geta þess að annar þeirra skoraði fyrsta markið gegn Suður-Afríku í gær þegar Ísland sigraði Suður-Afríku 4-1. Spurningin er hvor þeirra?
Kveðja, Siggi Helga.   (ljósmyndari, líklega Andri Janusson. ?)

Fimmtudagur 18. ágúst 2005 Um 30 húsbílar komu í bæinn í gær með stuttu millibili og kom sér fyrir á tjaldstæðinu við Torgið. Flestir bílarnir eru frá Svíþjóð og Noregi og tilheyra húsbílaklúbbum þar í löndum og eru á hringferð um landið. Hingað komu þeir þrátt fyrir að þurfa að aka hluta leiðarinnar til baka (Héðinsfjarðargöng eru ekki komin !) En Síldarminjasafnið, það hefur aðdráttarafl sem og fjörðurinn okkar Siglufjörður.

Fimmtudagur 18. ágúst 2005  Ég var beðinn að taka mynd af þessum fugli - og spurður í leiðinni hvort ég vissi hvaða fugl þetta væri. Þegar mig bar að garði far fuglinn all nokkuð fjarri, svo myndin er ekki eins góð og æskilegt væri til að bera kennsl á hann, en farið var að bregða birtu í gærkveldi er myndin var tekin. - Ekki svo að skilja að ég sé nokkur fugla spekingur, þar eð þekking mín á fuglum takmarkast við kríuna (þe. útlitið) Þetta er þó nokkuð líkt kollu, en grái liturinn á bakinu og undir vængjunum ruglar mig.
Vaknið þið spekingar og látið okkur vita um þetta "afbrigði"  ----  Svar: Að öllum líkindum er þetta æðarfugl og nánar til tekið bliki. Blikarnir geta tekið á sig ýmsar litamyndir bæði á fjaðrafellitíma síðsumars og þegar unglingar færast í ham fullorðins blika. Kveðja - ÖK

Fimmtudagur 18. ágúst 2005  Gógó: "Það eru 65 ár síðan ég keppti fyrst í fótbolta hér á Siglufirði" sagði þessi gamli KA-ingur þar sem hann fylgdist með leik KS og KA á Hólsvelli síðastliðinn föstudag. "Í KS-liðinu man ég vel eftir þeim Braga Magg, Jóhanni Möller, Geira Gústa, Alla King kong og Berta, sem ég held að hafi verið besti markvörður KS fyrr og síðar".
Sá sem þetta sagði heitir Ragnar Sigtryggsson, betur þekktur hér á Siglufirði og öðrum norðlenskum knattspyrnubæjum sem Gógó. Hann var 15 ára í sínum fyrsta leik hér á Sigló og segir að þá hafi verið keppt á grasvelli sunnan við Langeyrina, sem hafi verið hálfgerð mýri. Hann lék síðast með KA 1963 og var fyrsti Akureyringurinn sem lék með Íslenska landsliðinu en það var gegn Belgíu 1957. -- Þetta sagði Gógó við Örlyg Kristfinnsson, er þeir sátu saman á dögunum og fylgdust með leik KS og KA á Hólsvelli

Fimmtudagur 18. ágúst 2005  Þriðji Flokkur Kvenna --- KS - Þór lauk með sigri KS í gær 3:2

Myndasyrpa Hér >>>>   3. flokkur kvenna
 
Fimmtudagur 18. ágúst 2005  4.flokkur karla - KS - ÞÓR lauk með sigri KS  í gær 8:2

Myndasyrpa Hér >>>>  4. flokkur karla

Fimmtudagur 18. ágúst 2005 Ein gömul: 
Horfin fjárhús, (en rollurnar leika þó enn lausum hala)
Þessi fjárhús voru staðsett ofan við Háveg, þar til snjóflóð tók húsin 14. febrúar 1971

Fimmtudagur 18. ágúst 2005
Berglind Friðriksdóttir
er 28 ára í dag
Fimmtudagur 18. ágúst 2005

Miðvikudagur 17. ágúst 2005 4.flokkur karla - KS er að fara spila við ÞÓR í dag kl. 16.00. Þeir þurfa að vinna leikinn til að komast í úrslit í Borgarnesi næstu helgi og vantar því mikla hvatningu.. Um að gera að skella sér á völlinn í góða veðrinu til að hvetja 4.flokk karla-KS og 3.flokk kvenna-KS.

P.s. 6.flokkur kvenna-KS spilar í úrslitum á Neskaupstað um næstu helgi...

Miðvikudagur 17. ágúst 2005 Þriðji Flokkur Kvenna --- KS - Þór klukkan 17:00 á hólsvelli í dag
Allir eru hvattir til að mæta og hvetja stelpurnar.---  Þær eru búnar að vinna alla leikina í sumar og eru komnar í úrslit í íslandsmótinu og ætla að klára sumarið með stæl. --- Kveðja 3 flokkur.

Ég ætla að mæta með myndavélina. SK

Miðvikudagur 17. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --    ö  Aðalgata 26

Miðvikudagur 17. ágúst 2005  Tækni- og umhverfisnefnd - 21. júlí 2005  -- Að gefnu tilefni og af  fullri ástæðu, þá var gerð eftirfarandi bókun í tækninefnd...: Nefndin leggur til að farið verði eftir reglugerðinni sem heimilar aðgerðir vegna lausagöngu fjár. ---  En mér leikur forvitni á að vita, loksins eftir að ég fékk tækifæri til að berja "nýjustu" fundargerðir bæjarins augum.  ---- Hverra áhrifa bjuggust nefndarmenn við af ofannefndri bókun ?    ---  Ég spyr í einlagni, þar sem þessar helv... rollutussur sem tilefni hefur væntanlega verið að bókuninni, eru enn og hafa verrið í allt sumar jarmandi og snuðrandi fyrir norðan og neðan svefnherbergisglugga minn. Auk þess sem nágrannar mínir hafa átt í fullu fangi daga og nætur, við að reka frá þeim gróðri og jurtum sem þeir hafa lagt mikla vinnu í að koma upp, fyrir utan eyðileggingu þessara fáu plantna sem komið hefur verið fyrir og dyttað að, af vinnuskólanum í norðurbænum í sumar.  Myndin hér við hliðina er tekin klukkan 08:30 í morgun út um svefnherbergisgluggann minn, þar sem rollur eru að gæða sér í "kálgarðinum" mínum.- og fleiri aðeins norðar

Miðvikudagur 17. ágúst 2005  Kunnug andlit: Þrennt er sameiginlegt með þessum myndum:
Myndirnar voru allar teknar sama dag í júní 1970. Allir voru þeir sem á myndunum eru að vinna við löndun úr togara þennan dag og enginn þeirra vissi af hinum lúmska myndasmið sem var í um 50 metra fjarlægð í felum til að "stela" af þeim myndum. En sumir þeirra forðuðust öllu jafna myndavélar eða snéru í þær baki.  

Miðvikudagur 17. ágúst 2005
Sigurður Jónsson
er 59 ára í dag
Miðvikudagur 17. ágúst 2005
Þórir Jóhann Stefánsson
er 40 ára í dag

Þriðjudagur 16. ágúst 2005  Frá Menntamálaráðuneytinu:
Í júní síðastliðnum voru auglýstir styrkir til skráningar og miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni, í samráði við Iðnaðarráðuneytið og sem hluti af áætluninni Átak um menntun og menningu á landsbyggðinni. Alls er gert ráð fyrir þremur úthlutunum og er þetta sú þriðja í röðinni. Til ráðstöfunar voru tíu milljónir. Alls bárust 54 umsóknir og sótt var um rúmlega 80 milljónir. ---  meira

Mánudagur 15. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --    ö  Aðalgata 27

Þriðjudagur 16. ágúst 2005 Aðsent: Mynd úr Héðinsfirði nú um síðustu helgi sem sýnir framkvæmdir við gangnamunna að vestanverðu í firðinum.

Ljósmynd: Már Jóhannsson

Þriðjudagur 16. ágúst 2005 Smá óhapp við höfnina, lítill lyftari hafnaði á hliðinni, engin meiðsli urðu sem betur fór, og var lyftarinn fljótlega kominn á réttan kjöl aftur.

Aðsent: Þorsteinn Sveinsson

Þriðjudagur 16. ágúst 2005  Stoltur veiðimaður. Þessi ungi veiðimaður Gunnar Freyr Þorleifsson, (sonur Leifa Ella) er 13 ára gamall, hann fékk að fara með frænda sínum í veiðitúr í Laxá í Refasveit í gærmorgun og krækti þá í þennan væna fisk sem hann auðvitað er mjög stoltar af. Hann biður fyrir kæra kveðju suður til afa og ömmu í Reykjavík; Viðars Ottesen og Jónu.
 

Þriðjudagur 16. ágúst 2005 Ein gömul:  

Bakka guttar: Stefán Ásgrímsson - Rúnar Marteinsson(?) - Kristinn Steingrímsson og Björn Ásgrímsson  Tekið árið í aprílmánuði 1971
Þriðjudagur 16. ágúst 2005
Anna Vignisdóttir
er 70 ára í dag
Þriðjudagur 16. ágúst 2005
Þriðjudagur 16. ágúst 2005
Reynir Árnason
er 75 ára í dag

Engin mynd kom með
Þriðjudagur 16. ágúst 2005
Páll Fanndal
er 40 ára í dag
Mánudagur 15. ágúst 2005    Nýfæddur Siglfirðingur.
Þetta er stúlkubarn, hún er 4220 gr. og 52 cm. og fæddist í morgun. Foreldrar eru: Rakel Sveinsdóttir og Sævaldur Bjarnason
Amma og afi eru Berta og Sveinn.
       

Mánudagur 15. ágúst 2005  Það "nýjasta" frá Vegagerðinni um Héðinsfjarðargöng.
Hérna er hluti af framkvæmdakorti  númer 7 í nýjasta fréttablaði Vegagerðarinnar.

 

Mánudagur 15. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --  ö  Aðalgata 28

Mánudagur 15. ágúst 2005  Hans Christian Schmidt matvælaráðherra Dana kom í heimsókn á Síldarminjasafnið í gærmorgun í fylgd Íslenska sjávarútvegsráðherrans Árna Matthíassyni og fríðu föruneyti. Ráðherrann Danski kom til Íslands til að kynna sér sjávarútvegsmál. Þeir komu til Siglufjarðar og skoði sig um á Siglufirði ásamt föruneyti. Nokkrum trillukörlum, hafnarverði og fleirum var boðið til hádegisverðar  með ráðherrum og fylgdarliði í Bátahúsinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar í og eftir hádegi í gær inni í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.

Mánudagur 15. ágúst 2005  Aðsent: Þó svo að myndasyrpa sú er ég birti hér, fékk myndirnar sendar frá vini mínum Tryggva Björns, sem auðvitað er Siglfirðingur alveg frá toppi til táar - og einn af uppáhaldsleikurum mínu Clint Eastwood kemur þar við sögu, vegna kvikmyndatöku á myndinni FLAGS OUR FATHERS - Þá geri ég undantekningu frá reglunni og birti myndir sem ekki tengjast Siglufirði. Iwo Jima  Sands of Iwo Jima (1949) sem er mér ógleymaleg frá því að ég sá hetjuna mína Jhon Wayne leika í "fyrri" myndinni þegar ég var unglingur.(en margir  Siglfirðingar dást einnig af Clint)

Mánudagur 15. ágúst 2005 Ein gömul:
Snjóskriðan tók þá:
Páll Marel  Sigþórsson - Björn Ásgrímsson - Stefán Jóhannsson.

Nánar um atburðinn sem átti sér 1971 >>>  HÉRNA

Mánudagur 15. ágúst 2005
Jón Björnsson
er 83ja ára í dag
Mánudagur 15. ágúst 2005
 

+

Sunnudagur 14. ágúst 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka. õ --  ö  Aðalgata 30

14. ágúst 2005
Sigurgeir Haukur
er 21 árs í dag.
14. ágúst 2005

14. ágúst 2005 Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kom víða við í heimsókn sinni til Siglufjarðar í gær, meðal annars tók hann virkan þátt í gleðinni sem ríkti hjá Síldarminjasafninu, þar sem leikarar Leikfélags Siglufjarðar fóru á kostum að venju. Gleði sem var svo smitandi að ráðherrann tók þátt í henni með því að hausskera og salta síldina, þrífa stúlkurnar eftir söltunina og taka svo þátt í dansinum á eftir. Þetta uppátæki hans bætti aldeilis á þá ánægju sem fyrir var hjá gestunum sem þarna voru mættir, það má glöggt sjá á þeim myndum sem hér fylgja >> Halldór í síld

Sunnudagur 14. ágúst 2005  Það hefur verið mikið að gera hjá félögum í hestamanafélaginu  Glæsir á Siglufirði, en þeir tóku meðal annars á móti vinum  og félögum frá Ólafsfirði, Fljótum og Hofsósi, eitthvað af öðrum flækingum slæptust með sagði einn félaginn ("og brosti !"). Það var og er mikið á dagskrá hjá þeim alla helgina, td. var sameiginlegur reiðtúr í gær, svo leikir og sprell í framhaldi af því.  Ég var vitni af sameiginlega reiðtúr þeirra í gær og tók nokkrar myndir sf því tilefni.  Þessi einmanna hestur sem þarna er á myndinni var einn og yfirgefinn innan girðingar og fylgdist með öllu hestastóðinu og knöpum úr fjarlægð. Sennilega hefði hann þegið að vera með í hópnum. En fleiri eru myndir hér: Hestamenn

Sunnudagur 14. ágúst 2005  Aðsent: Þann 11. ágúst síðastliðinn voru aðalverðlaunin í sumarleik Íslandsbanka á Siglufirði dregin út. Um þriðjungur þeirra krakka sem leggja inn sumarlaunin sín í bankann voru mætt til að smakka á góðgæti og fylgjast með Arnari Heimi Jónssyni, stjórnanda vinnuskólans draga út vinningshafann. Elísa Gylfadóttir var sú heppna og hlaut hún að launum glæsilegan Apple iPod-mini tónlistarspilara. En allir sem mættu fengu einnig 2 bíómiða að gjöf frá Íslandsbanka. Við viljum einnig taka fram að þeir krakkar sem voru í pottinum og hafa ekki fengið bíómiða geta komið í Íslandsbanka og náð í þá.
Á myndunum má sjá krakkana með bíómiðana og vinningshafann Elísu taka við verðlaununum af starfsmanni Íslandsbanka. -- Með kveðju, starfsfólk Íslandsbanka á Siglufirði

Sunnudagur 14. ágúst 2005
Þýska skútan
Mesuf. kom hér síðastliðinn föstudag og fór aftur héðan í gær um hádegisbilið.

Sunnudagur 14. ágúst 2005 --- Aðsent:  Mér áskotnaðist myndavél um daginn og sendi þér eina mynd til gamans. Hana kalla ég blátt regn. Kveðja Steini Sv.



 

Sunnudagur 14. ágúst 2005 Ein gömul: Kórfélagar í Karlakórnum Vísir:  Daníel Þórhallsson - Sigurjón Sæmundsson - Þorsteinn Hannesson - Þormóður Eyjólfsson - Halldót Kristinsson og ?

X Z