|
Laugardagur 17. september 2005
Uppskeruhátíð KS er í kvöld í Bíó Salnum og dansleikur að henni
lokinni í boði KS |
|
Laugardagur 17.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tankar og Löndun |
|
Laugardagur 17. september 2005
Heljarmikið knall og fjör var í
Bíó Salnum í gærkveldi, þegar eigendur Bíó Café héldu opnunarhátíð sína
fyrir fullu húsi vina og vandamanna, eins og Friðfinnur Hauksson
komst að orði í setningarræðu sinni. Á myndinni hér til hliðar eru
eigendurnir; hjónin Hallfríður Jóhanna Hallsdóttir og Ægir Bergsson -
Elías Bjarni Ísfjörð og hjónin Sigurbjörg Elíasdóttir og Friðfinnur
Hauksson. Myndasyrpa sem ég tók á hátíðinni er hér =
. |
Laugardagur 17. september 2005
Ein gömul:
Keppni í badminton á Siglufirði í júnímánuði árið 1974 --
En hvar? --- Svarið er neðst á þessari síðu. |
Laugardagur 17. september 2005
Oddný Halla Haraldsdóttir
er 3 ára í dag
|
|
Laugardagur 17. september 2005
Birgir Björnsson bifvélavirki.
er 68 ára í dag -- Engin mynd kom með. |
Laugardagur 17. september 2005
Þórhallur Jónasson efnafræðingur
er 54 ára í dag |
|
Föstudagur 16. september 2005
Maður septembermánaðar kjörinn af Kaupmannafélagi
Siglufjarðar, fékk viðurkenningu sína í dag eftir hádegið. Fyrir valinu
að þessu sinn var Arnfinna Björnsdóttir listakona með fleiru. Myndin er
af henni með viðurkenninguna og blómvönd inni á vinnustofu sinni við
Aðalgötu 11. Með henni eru stjórnarmenn félagsins Helga
Freysdóttir - Freyr Sigurðsson og Elín Þór Björnsdóttir |
|
Föstudagur 16.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Óskarsgata 7 Primex |
|
Föstudagur 16. september 2005
7.-10. bekkir fengu góða heimsókn í vikunni. Katrín
Andersen sem bjó 8 ár í Danmörku kom með au-per stúlkuna sína, Mariu
Skeldrup Mogensen, í heimsókn í dönskutíma. Það er ekki á hverjum degi
sem við fáum ekta Dana í heimsókn og á svipuðum aldri og nemendurnir.
Katrín sagði nemendum frá þeirri reynslu sinni að búsetja sig í öðru
landi og þurfa að bjarga sér á öðru tungumáli og hvað það er nú gott að
kunna svolitla dönsku þegar maður ákveður að flytja til Danmerkur!
Nemendur spurðu Mariu spurninga á dönsku og fengu svar á “ekta dönsku”
og skildu mest allt. Þær stöllur sögðu frá ýmsu áhugaverðu frá Danmörku
og úr dönsku þjóðlífi. Þetta voru hinir ágætustu tímar og nemendur
ánægðir með tilbreytinguna. Við flytjum þeim kærar þakkir fyrir
framtakið og vonumst til að sjá þær oftar. Guðný dönskukennari |
|
Föstudagur 16. september 2005
Loksins - loksins, er hún komin í
gagnið vefmyndavélin, þó ekki sé endanlega búið að ganga frá stillingum
og vali á myndskeiðum þeim sem vefmyndavélin hefur upp á að bjóða. Þetta
verkefni hefði mér ekki verið kleift að framkvæma, hefði ég ekki notið
hvatninga, vinnu og beinna peningaframlaga frá hinum ýmsu aðilum, sem of
langur listi væri að nefna hér. En ég verð þó að nefna frumkvöðlanna sem
komu verkinu af stað og tóku þátt í verkefninu til loka, en það eru
Baldvin Einarsson - Róbert Guðfinnsson - Óskar Berg Elefsen - Þórir
Kristinn Þórisson - Norðurfrakt - Sparisjóðinum - Vöku - og tækniaðstoð
frá Júlíusi Hraunberg - Sigurði Stefán Sigurðarsyni Nýherja og
símastrákunum hér Agli og Jóni - Rafbæ- ofl. ofl. En nöfn allra
stuðningsaðila eru tilgreind eftir stafrófsröð neðarlega á forsíðu,
Lífið á Sigló. Ég vil færa þeim öllum innilegt þakklæti, og vona
að þeir ásamt þeim þúsundum sem vef minn heimsækja, verði ánægjuríkari
vegna þessa möguleika sem nú eru fyrir hendi: Að sjá hvernig viðrar
heima, bæði í beinni og uppgefnum tölum frá veðurstöðinni í Bakka.. Og
enn og aftur;
BESTU ÞAKKIR TIL YKKAR ALLRA. --
Meðfylgjandi mynd er frá vefmyndavélinni klukkan 19:15 í
gærkveldi -- +
 |
|
Föstudagur 16. september 2005
Eigendurnir munu halda opnunarhátíð með miklum tilburðum
gleði og hlátri í kvöld, þar verður margt girnilegt á boðstólum -
Fílapenslar - ÓB Kvartett - Helena Eyjólfs - Stúlli og Sævar - Gotti og
Víðir - svo eitthvað sé nefnt. En nýir rekstrar aðilar hafa tekið
við rekstrinum í hinu upphaflega Nýja Bíó, sem nú mun ganga undir
nafninu Bíó Café |
|
Föstudagur 16. september 2005
Frá Sparisjóðnum: 14. september 2005
- Húð og hár - Námskeið undir fyrirsögninni Húð og Hár var haldið er á
vegum Æskó á dögunum. Hver einasta stúlka í 8. 9. og 10. bekk skráðu sig
og um tuttugu strákar og varð að skipta námskeiðinu niður á fjögur
kvöld. Farið var yfir hvernig á að hugsa um húð og hár og hvernig skal
nota hinar ýmsu vörur sem í boði eru. Leiðbeinandinn á námskeiðinu var
Þórunn Alda Gylfadóttir sem er bæði förðunarfræðingur og
hárgreiðslumeistari. Í lok námskeiðsins voru allir leystir út með
Clarins húðhreinsisett sem Sparisjóðurinn gaf. -- Við fengum
nokkrar myndir frá námskeiðinu og þær er hægt að sjá
hér. ----
9. september 2005 - Óvissuferð
Sparisjóðsins - Sparisjóðurinn bauð 14-16 ára krökkum sem lögðu
sumarlaunin sín inn hjá Sparisjóðunum í óvissuferð um síðustu helgi.
Farið var af stað með 25 unglinga frá Siglufirði kl 08:30 og var fyrst
stoppað við réttina hjá Ólafsfirði þar sem farið var í stígvélakast, sem
er merkilegur leikur sem gengur út á að kasta stígvéli með tilburðum.
Þaðan var farið í byggðasafn Dalvíkur og það skoðað en þar innan dyra er
safnið um Jóhann risa. Næsti viðkomu staður var svo Pizza 67 þar sem
boðið var í pítsuhlaðborð og þaðan var svo haldið í skautahöllina og þar
fóru allir í íshokký. Eftir hokkýið var farið í ísbúð og í framhaldi af
því var farið í júdósalin þar sem Hans Rúnar, sem kenndi þeim einu
sinni, tók á móti þeim ásamt yfirþjálfara júdófélagsins. Þeir kenndu
krökkunum ýmis varnarbrögð og annað skemmtilegt og gerði þetta stormandi
lukku og þegar þessu lauk var farið í sund og síðan í hlaupakeppni á
kirkjutröppunum. Svo var komið að mat og næs á Greifanum og ís á eftir.
Þegar hér var komið við sögu voru allir orðnir saddir og þreyttir svo
haldið var heim á leið með viðkomu að Hlíðarenda í Skagafirði en þar
fengu krakkarnir að skoða hátæknifjós sem nýlega er búið að byggja og
fannst þeim það mjög merkilegt, enda er þar róbóti sem sér um að mjólka
beljurnar. Komið var til Siglufjarðar um kl 21:00 og áður en krakkarnir
héldu heim á leið var þeim færð taska að gjöf frá Sparisjóðnum og fóru
þau þreytt og ánægð heim. Smelltu
hér til að skoða myndir úr
ferðinni. |
Föstudagur 16. september 2005
Haukur Orri
er 6 ára í dag
Hann er sonur Boggu Harðar og Kidda Stúlla. |
Föstudagur 16. september 2005
Marteinn Brynjólfur Haraldsson
er 21 árs í dag |
|
Föstudagur 16. september 2005
Ein gömul:
Frækið fótboltalið Bæjarstjórnar Siglufjarðar 17. júní 1974. |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Þurrt
* Hiti 8,6 °C *
SV 6,7 m/s |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 15.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Rækjuvinnsla ÞRS |
|
Fimmtudagur 15. september 2005
Ein gömul: Þær voru ekki óvanar heyskap þessar
gömlu hetjur, sem allir voru í vinnu hjá Siglufjarðarkaupstað þegar
þessi mynd var tekin í júnímánuði 1974 |
| Fimmtudagur 15. september 2005 |
Fimmtudagur 15. september 2005 |
Miðvikudagur 14. september 2005
Unnið er nú að því við Hvanneyrarbraut að skipta um
stofnlagnir vatnsveitu, en viðkomandi lagnir eru komnar til ára sinna.
Betra er að skipta um í tíma, áður en bilunum fjölgar, og þá kannski á
versta tíma. -Gott mál |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólskin
* Hiti 5,8 °C *
NA 1,8 m/s |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 14.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata ?? |
|
Miðvikudagur 14. september 2005
Ein gömul: Á þessari mynd er Ægir Jónsson
vélsmiður að vinna við skrúfubúnað á trillunni hans Gísla Jónssonar sem
stendur hjá og fylgist með. Þá eru einnig sitjandi á bryggjukanti
Hafnarbryggjunnar, þrír áhugasamir áhorfendur. Hans Þorvaldsson - Hannes
Garðarsson og Gestur Hansson vélstjóri |
|
_small.JPG) Miðvikudagur 14. september 2005
Fanney Hauksdóttir
er 45 ára í dag. Þessar myndir eru teknar af okkur hjá Dóru Diego Dóttir
okkar, í Apríl í ár þegar hún var að útskrifast frá háskólanum i Miami
USA, sem interior design (innanhús arkitekt) Kær kveðja frá okkur í
Sweden, Þorkell Kristjánsson |
Miðvikudagur 14. september 2005
Sigurbjörg Björnsdóttir
er 39 ára í dag |
Miðvikudagur 14. september 2005
Ragnar Helgason
er 79 ára í dag |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Rigning
* Hiti 4,2 °C *
N 11,6 m/s |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 13.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata 18 |
|
Þriðjudagur 13. september 2005
LOKAHÓF KS 2005 -- KS ingarnir ætla að slá botninn í
sumarið með lokahófi í Bíó salnum (Bíó Café) næstkomandi laugardag
klukkan 20:30 Ekki er að efa að allir stuðningsmenn mæti- En allir þeir
sem þátt tóku framkvæmd Pæjumótsins eru sérstaklega hvattir til að mæta
svo og aðrir styrktaraðilar. Boðið verður upp á léttar veitingar,
viðurkenningar afhentar ofl. Aðgangur er ókeypis og á eftir verður
dansleikur í salnum Hljómsveitin Terlín leikur fyrir dansi fram á nótt.
Aðgangur ókeypis, en aldurstakmörk 18 ára |
|
Þriðjudagur 13. september 2005
Ég sendi þér meðfylgjandi mynd, sem ég tók af svölunum hjá
mér. Þ.e. í Kópavoginum, um hálf níuleytið í gærkveldi. ---
Eldrauð sólarlagsmynd, horft yfir Fossvoginn. Sem ég verð að leyfa ykkur
að njóta með mér.
Með kv. úr borginni -- Jón Óðinn Reynisson |
|
Þriðjudagur 13. september 2005
Ein gömul: Þessi mynd varð útundan, þegar ég setti
syrpu Leikfélagsins inn í gær. Þetta er allur hópurinn sem stóð að
leikritinu.
 |
Þriðjudagur 13. september 2005
Kjartan Sölvi Einarsson
er 72ja ára í dag |
Þriðjudagur 13. september 2005
Guðgeir Eyjólfsson sýslumaður
er 50 ára í dag |
_small.JPG) |

Í hádeginu:
Sólskin
* Hiti 7,4 °C *
S 0,4 m/s |
_small.JPG) |
Mánudagur 12.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata -16 |
Mánudagur
12. september 2005 Haustblær yfir Siglufirði --
Myndin er tekin í gær klukka 15:00 þá 3,3 °C hiti -
logn og súld |
|
Mánudagur 12. september 2005
Vinnufélagi minn hjá VÍS, Friðrik Ólafsson,
skrapp til Héðinsfjarðar í ágúst síðastliðnum. Lánaði ég honum myndavél
og bað hann festa á filmu þennan umtalaða fjörð. Hér eru nokkrar mynda
hans. -

Þessi staka er sett saman úr sex myndum. - Með kveðju Guðmundur
J. Albertsson ---- Þetta er fjörðurinn margumtalaði,
Héðinsfjörður sem ALLIR fá nú bráðlega tækifæri til að skoða. Af
myndunum sem fylgja, má ætla að Héðinsfjörður sé nærri því sama
náttúruperlan og fjörðurinn okkar Siglufjörður SK |
|
 Mánudagur
12. september 2005 Lionsmenn voru eins og margir í
viðhaldshugleiðingum á félagsheimili sínu.
Þessar myndir tók Júlíus Hraunberg þegar þeir voru að skipta um glugga
hjá sér síðastliðinn laugardag -- (fyrri og seinnipart dagsins) |
Mánudagur
12. september 2005 Ein gömul
syrpa:
Leikfélag Siglufjarðar á fjölunum í apríl lok 1974

Ekki man ég hvað leikritið heitir, einhver segir mér frá því. og
ekki þekki ég heldur alla leikarana. Það væri ekki verra ef einhver
segði mér nöfnin svo ég geti bætt þeim við. |
Mánudagur
12. september 2005
Sturlaugur Kristjánsson
er 52ja ára í dag |
Mánudagur 12. september 2005
Þórhildur Sölvadóttir
er 10 ára í dag
|
_small.jpg) |

Í hádeginu:
Súld
* Hiti 3,3 °C *
N 3,1 m/s |
_small.jpg) |
Sunnudagur 11.september 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Tjarnargata -??? |
|
_small.JPG) Sunnudagur
11. september 2005 Síld eða ufsi - varla loðna?
Vestan við Strákagöng, allt framundan Skriðum og yfir um kílómetra
til vesturs, kraumaði sjórinn skammt frá landi af vaðandi fiski seinni
partinn í gær, margir stórir flekkir allir á iði, greinilega vaðandi
fiskur. Þetta minnti mig ansi mikið á vaðandi síld eins og ég sá síðast
inni á Siglujarðarhöfn í vor. -
Myndina til hægri tók Sveinn Þorsteinsson |
|
Sunnudagur
11. september 2005 Þótt fáir séu hrifnir af þessari tegund
"ránfugla", þá er því ekki að neita að tignarlegir eru þeir á flugi.
Hvað hann heitir nákvæmlega vil ég ekki fullyrða, en mér er sagt
Silfurmávur.
Myndina tók ég í gær. |
|
_small.jpg) Sunnudagur
11. september 2005 Víða er tekið til hendinni þessa
dagana, annars vegar er hér unnið að viðgerð á þakinu á húsi við
Túngötu 11, sem einnig er verið að klæða að utan- og hinsvegar er verið
að mála húsið Þormóðsgata 26 -- En báðar myndirnar voru teknar í gær |
|
Sunnudagur
11. september 2005 Ein gömul: Það
snjóaði mikið í febrúarmánuði árið 1974. Háspennulínur frá Skeiðsfoss
til Siglufjarðar, margslitnuðu og létu undan þunga ísingar sem á vírana
festi, braut niður staura og gerði meiri usla.. Á þessari mynd sést
suður eftir háspennulínunni í Fljótum, allstaðar á milli staura lafir
línan niðri.
Nánar um þennan atburð má finna
HÉR |
Sunnudagur
11. september 2005
Þröstur Ingólfsson
er 45 ára í dag |
Sunnudagur
11. september 2005
Gottskálk Rögnvaldsson
er 78 ára í dag |