|
_small.JPG) Föstudagur 30. september 2005
Andlitslyfting og viðhald. Strákagöngum hefur verið nokkuð vel
viðhaldið undan farin ár, sérstaklega þau síðustu. En járnavirkið við
gangnamunnana, það er dyraumbúnaður er farinn að sýna elli merki, það er
komnir eru fram riðblettir. Nú eru málararnir Mark Duffield og Þorgeir
Bjarnason að bæta úr því og í leiðinni stendur til að fríkka inngangana
örlítið, mála þá frísklegri litum í stað hinnar grámyglulega ómáluðu
steinsteypu. Það mun örugglega gleðja augu þeirra sem um göngin fara og
koma. Myndirnar eru teknar að austanverður, í morgun. |
|
Föstudagur 30. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 1 |
|
Föstudagur 30. september 2005
Kynningarfundur um sameiningarmál á vegum
Bæjarstjórnar fór fram í gærkveldi í Bíó
Salnum. Fjölmenni var og margir tóku til máls. Umræður voru málefnalegar
og einnig var slegið á létta strengi eins og góðum ræðumönnum er
tamið. Og Jonni vinur minn Tanni, var óvenju góður og málefnalegur. En
öllu gamni fylgir þó ætíð alvara. --- Mat mitt eftir fundinn er
það að mikill meirihluti þeirra sem tóku til máls væru jákvæðir gagnvart
sameiningunni
Myndasyrpa >
Ég mun bæta nöfnum við myndirnar á morgun, en nú er ég að fara
að sofa(00:30) |
Föstudagur
30. september 2005 Ein gömul: Þessi mynd hefur að
vísu áður komið fyrir sjónu margra. En þetta er frá þeim tímum sem þá
muna munu aldrei gleymast. Löndun og fullar þrær hjá SR á Siglufirði
1961(2)(?) |
Föstudagur
30. september 2005
Þorsteinn Björnsson
er 56 ára í dag |
Föstudagur 30. september 2005 |
|
Fimmtudagur
29. september 2005 Útsala í Versló -- Nú stendur yfir í
dag og á morgun, ÚTSALA á öllum vörum innanbúðar í Versló. Vegna þess að
verslunin lokar nú um mánaðarmótin og er hætt öllum rekstri.
Allar vörur seljast með 50% afslætti. Nú verður engin samkeppni á
matvörumarkaðinum á Siglufirði lengur. En margir hafa tjáð mér að nú
muni innkaupaferðum í Bónus á Akureyri frá Siglufirði fjölga, þar sem
munurinn á vöruverði þar og hér á Siglufirði sé það mikill að ekki þurfi
að versla nema fyrir um 20 þúsund krónur í Bónus, til að eiga í afgang
(vegna verðmismunar) fyrir bensíni og léttrar máltíðar fyrir tvo hjá
Bónus og hagnast samt á ferðinni. Ekki þori ég að fullyrða neitt um
hvort þetta sé rétt, en margar svipaðar raddir hefi ég heyrt og fengið
tölvupóst um. |
|
Fimmtudagur
29. september 2005 Frystiskipið Silver Kopenhagen
kom hér í morgun til að lesta um 500 tonn af frosinni síld sem Huginn VE
kom með hingað á dögunum úr veiðiferð á norðurslóðum. |
|
Fimmtudagur 29. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 3 |
|
Fimmtudagur
29. september 2005 Ályktun Bæjarráðs vegna þjónustuskerðingar
Símans.
Bæjarráð Siglufjarðar samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í
gær, 28. september 2005:
“Bæjarráð Siglufjarðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Símans að
leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Siglufirði og segja upp tveimur
starfsmönnum. Ljóst er að með aðgerðum þessum eru forsendur samnings, er
Siglufjarðarkaupstaður hefur nýlega gert við Símann um þjónustu,
brostnar af hálfu kaupstaðarins.
Á tímum getur Siglufjörður verið einangraður staður og gríðarlega
mikilvægt er að á staðnum séu aðilar sem geta sinnt fyrirtækjum og
einstaklingum varðandi fjarskiptamál. Siglfirðingar munu ekki sætta sig
við þá skerðingu á þjónustu og öryggi sem þessi ákvörðun hefur í för með
sér og munu bæjaryfirvöld leita allra leiða til þess að úr þessum þáttum
verði bætt.”
Virðingarfyllst, -- Þórir Hákonarson Skrifstofustjóri |
|
Fimmtudagur
29. september 2005 Kynningarfundur um sameiningarmál,
boðaður af hálfu Bæjarstjórnar Siglufjarðar verður í kvöld klukkan 20:00
á Bíó Café/BíóSal Þar munu
bæjarfulltrúar setja fyrir svörum auk þess sem flutt verða stutt
framsöguerindi. Þetta var auglýst í Tunnunni í gær.
Þar var einnig önnur auglýsing sem ég stoppaði við, en hún var
undirskrifuð "Vinir Siglufjarðar" Þessir "vinir" hvetja
Siglfirðinga til að segja NEI við sameiningunni. Ekki veit ég
hvort þetta eigi að skylja þannig að þeir sem hyggja á eða ætla að kjósa
með sameiningunni séu EKKI vinir Siglufjarðar. Gaman væri að fá
að vita hverjir þessir vinir eru. Er þetta stór eða lítill hópur manna.
Eru þessir vinir bæði með og án kosningaréttar í þessu máli?
----- Ég ætla ekki að hvetja menn til að greiða
atkvæði með eða á móti sameiningu hér á þessum vettvangi, ég tel betur
að menn kynni sér kosti og galla sameiningar og vegi síðan og meti út
frá því á eigin forsendum. En það sem allir ættu að vita, er að sama er
hvort sveitarstjórnin heitir Byggðastjórn Eyjafjarðarsýslu eða
Bæjarstjórn Siglufjarðar, það verða alltaf kjörnir fulltrúar á endanum
sem taka ákvarðanir, bæði vinsælar og óvinsælar - Við hin ráðum litlu
sem engu um þá hluti nema þá með okkar atkvæði á fjögurra ára fresti. --
En hvort það atkvæði nægir til að breyta einhverju það er svo
spurningin, þannig er þetta bara. |
|
Fimmtudagur
29. september 2005 Eftirfarandi uppákoma verður í
Allanum á laugardaginn: Glaðheimar kynna Grái
fiðringurinn --- Aldurinn er það sem enginn getur tekið frá manni
nema maðurinn með ljáinn, honum fylgja ýmsir kvillar (aldrinum sko) ég
greindist með einn síðasta sumar nánar tiltekið laugardaginn 19.júní þar
sem ég var ný kominn út úr Strákagöngunum. --- Vissi ekki þá hvað
var á ferðinni en veit það núna, grái fiðringurinn hafði tekið sér
bólfestu í stæltum líkama mínum. Nú rúmu ári seinna mæti ég aftur
drengurinn úr sveitinni sem fékk þann gráa á Sigló og miðla af reynslu
minni í uppistandi sem fram fer á Allanum laugardaginn 1.október og
hefst kl. 21:46 all stundvíslega. --- Miðaverði er stillt í hóf
aðeins 700.kr. --- Sum atriði gætu vakið óhug femínista og annarra
minnihluta hópa --- 10 hver gestur fær kofareykt sveitabjúgu (ósoðin) --
Stórbrotið tónlistaratrið --
Hlakka til að sjá ykkur öll kæru Siglfirðingar --- Bestu kveðjur,
Fíllinn, alltaf ferskur
--
http://blog.central.is/fillinn |
Fimmtudagur
29. september 2005 Ein gömul Bræðurnir
Þormóður Birgisson situr í skut , og Þorsteinn Birgisson rær -- sá er í
stafni er enn óþekktur
Myndin er tekin við Ríkisbryggjur ár ? 1964 ? |
Fimmtudagur
29. september 2005
Steinunn Sveinsdóttir
er 20 ára í dag |
|
Fimmtudagur
29. september 2005
Hildur Örlygsdóttir
er 10 ára í dag - Hildur og Hrafn eru börn Guðnýjar og Örlygs |
Fimmtudagur
29. september 2005
Hrafn Örlygsson
er 10 ára í dag
Hildur og Hrafn eru börn Guðnýjar og Örlygs
|
Fimmtudagur
29. september 2005
Stefán S Bjarnason
er 64 ára í dag |
Fimmtudagur
29. september 2005
Jóhannes Þórðarson
er 86 ára í dag |
|
Miðvikudagur 28. september 2005
Þessi glæsilegi bátur hefur nýlega verið lengdur um 180
sentímetra hjá JE-Vélaverkstæði, en þarna er hann nýkominn úr
húsi og á leið inn aftur eftir að hafa verið vigtaður á Hafnarvoginni
eins og lög gera ráð fyrir eftir stórvægilegar breytingar, en ýmsar
aðrar lagfæringar hafa farið fram á bátnum á verkstæðinu. Báturinn
heitir Óli Lofts EA 16 2483 og er frá Árskógsandi |
|
Miðvikudagur 28. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 5 |
|
_small.jpg) Miðvikudagur
28. september 2005 Enn rigndi þegar þessar myndir
voru teknar seinni partinn í gær. Önnur myndin sýnir eiganda íbúðarinnar
að vestanverðu í húsinu númer 13 við Lækjargötu á leið heim til sín, en
nokkuð djúpt vatn (rigningarvatn) er á leiðinni frá götunni að tröppum hússins að vestan
þar sem hann á heima. Til að komast þangað þurfti hann að keyra
bíl sínum alveg að neðstu tröppu til að komast þurrum fótum inn. Hin
myndin sýnir bæjarstarfsmenn vera að koma fyrir dælu til að reyna að
grynna á vatnsflaumnum.
Einhver tæknileg mistök virðast hafa átt sér stað þegar þessi hluti
Lækjargötu var hannaður þar sem stórt niðurfall sem var á
stað um það bil sem græna doppan sýnir á myndunum, en var fjarlægt eða
fært á stað þar sem gula doppan er, en þar við hliðina er annað
niðurfall fast við malbikið, þar sem rauða doppan er á myndinni.
Einhver mistök hljóta að hafa átt sér stað við hæðarmælingarnar. - eða
þá að átt hefur að fylla upp svæðið, en ekki gefist tími til þess að
koma uppfyllingarefninu á staðinn? |
|
Miðvikudagur
28. september 2005 Ein gömul: "Beitningaskúr"
Þarna má sjá nokkra þekkta beitningagarpa frá árinu 1975, ma eru
þarna. Sigurbirna Baldursdóttir - Guðni Albert Egilsson - Kjartan
Einarsson - Árný Jóhannsdóttir - Ragnheiður Rögnvaldsdóttir -
Steingrímur Viggósson |
Miðvikudagur 28. september 2005
Pálína Gústafsdóttir
er 66 ára í dag
|
Miðvikudagur 28. september 2005
Ingvar Kr. Hreinsson
er 44 ára í dag |
|
_small.jpg) Þriðjudagur 27. september 2005
Litla prinsessan kom í heiminn 25. september og var 16 og hálf
mörk og 53 cm. Þeim mæðgum líður einstaklega vel, enda starfsfólkið á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands frábært og svo er bara svo gott að vera í
sveitinni. Líklega komum við öll heim í El Dorado á morgun. Nokkrar
myndir af fyrstu klukkutímunum eru komnar á
síðuna mína. -Þetta sagði ánægður nýorðinn
faðir, Steindór Örvar Guðmundsson um dóttir sína og konu Önn Rós
Ívarsdóttir. Svart hvíta myndin er af föðurnum nýfæddum árið
1974 |
|
Þriðjudagur 27. september 2005
Talsverð kvika hefur fylgt þessum norðan garra sem ríkt hefur hér
að undanförnu. Þessi mynd var tekin klukkan:12:45 í dag út um
svefnherbergis gluggann minn. Veðurstöðin í Bakka sést í forgrunni: |
|
Þriðjudagur 27. september 2005
Þessi mynd er tekin frammi í firði sunnan flugvallarins, en þar
rennur vatn yfir vegin, regnvatn sem ekki kemst lengur venjulega leið í
Hólsána vegna úrkomumagns, ræsin hafa ekki undan.
Þetta er svæðið sem marka mun leiðina að Héðinsfjarðargöngunum
væntanlegu |
|
Þriðjudagur 27. september 2005
Rigning og aftur rigning. Frá miðnætti til hádegis hefur úrkoman
numið yfir 20 mm. Þessi mynd sýnir skólavörð og skólakrakka á göngu
klukkan 09:25 í morgun frá efra skólahúsi til neðra skólahúss
(Barnaskólans) en í morgun voru þau í handavinnu tíma í efra húsi. Þeim
þótti ekki mikið til ausandi rigningar og slagveðurs komið, enda vel
búinn á þessari um tæplega 500 metra gönguleið.
Þarna eru þau á Eyrargötunni |
|
Þriðjudagur 27. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 7 |
|
Þriðjudagur
27. september 2005 Aðsent Varð að senda þér þessa
ágætu mynd sem ég náði af firðinum okkar með hjálp forritsins Google
Earth! Gott að sjá að Google eru ekki að gleyma merkilegustu stöðum
heimsins, en ég reyndi einmitt að finna staði í Danmörku sem ég
heimsótti í sumar enn ekkert fannst, staði með margfaldan íbúafjölda
Siglufjarðar. --- Kv. Óli Biddýar
Forritið er að finna á slóðinni
http://earth.google.com |
Þriðjudagur
27. september 2005 Ein gömul: Götumynd
frá Siglufirði 1976 |
Þriðjudagur
27. september 2005
Elín Gestsdóttir
er 59 ára í dag |
Þriðjudagur 27. september 2005
Jakob Örn Kárason
er 45 ára í dag |
|
Mánudagur 26. september 2005
Skólatónleikar
í Siglufjarðarkirkju fóru fram í morgun. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
lék þar undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Frekari upplýsingar neðar
Ég mætti þar með myndavélina og tók nokkrar myndir frá tónleikunum sem
sjást er smellt er á tengilinn>
 |
|
Mánudagur 26. september 2005
Wikipedia,
the free encyclopedia - Mér var bent á þennan upplýsingavef nú eftir
hádegið, þar sem nokkrar upplýsingar eru um Siglufjörð - og þar sem mér
kom á óvart: Tengill er þarna á Lífið á Sigló - undir
External links. neðst á
síðunni.
Og þeir vita að Siglufjörður er á Norðurlandi eystra, (ekki
vestra) - Eyjafjarðarsýslu |
|
Mánudagur 26. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 9 |
|
Mánudagur
26. september 2005
Lionsklúbbur Siglufjarðar Það
hefur ekki farið framhjá okkur sem hér á Siglufirði búa, að það er
mikill hugur og fjör í starfsemi Lionsklúbbsins hér. Ekki síst þar sem
félagsheimili þeirra er í hjarta bæjarins og allir sjá. Þeir hafa unnið
hörðum höndum við að gera gamla "Fanndalshúsið," félagsheimili sitt enn
glæsilegra og betra. Þeir hafa klætt suðurgafl hússins, skipt um glugga
í því og margt fleira, en flestir félagar eru þar öllum frístundum við
eitthvað nytsamlegt. Þá má minna á það að þeir söfnuðu hjá bæjarbúum
fyrir nýjum líkbíl og sjá að auki um rekstur hans - og fleira mætti
nefna - En starf þeirra hefur hlotið verðuga athygli. Ég er ekki
klúbbfélagi, en í svona litlu bæjarfélagi eins og Siglufirði kemst maður
ekki hjá því að þekkja þá marga og eiga jafnvel bæði góða kunningja þar
og vini. Það er þess vegna sem ég fór að ráfa um vefi Lionsklúbba
víðsvegar um landið, það er erfitt að meta vefina almennt en í
samanburði við klúbba af samsvarandi stærð, þá mega klúbbfélagar hér
vera ánægðir með sinn vef.
Skoðið vefinn, þar er fjöldi
ljósmynda frá félagsstarfinu, úti og inni. |
|
Mánudagur
26. september 2005 Hrönn Einarsdóttir
ætlar að framlengja ljósmyndasýningu sína í Allanum. opið verður frá
klukkan 16:00 næstu daga.
Allar myndir hennar draga svip náttúrunnar, myndin hér við hliðina er
ein af mörgum mynda hennar á sýningunni. Allir velkomnir og munið
að skrifa í gestabókina |
|
Mánudagur
26. september 2005 Frétt af
Húnahorni
-- 23. september 2005-- Stafrænn búnaður afhentur sjúkrahúsinu á
Blönduósi Í dag (23.) var formlega afhentur nýr stafrænn búnaður við
myndgreiningartæki Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi en
framköllunartækin voru orðin ónýt. Voru það nýstofnuð Hollvinasamtök
Heilbrigðisstofnunarinnar sem afhentu framkvæmdastjóra stofnunarinnar,
Valbirni Steingrímssyni tækið að viðstöddu fjölmenni.
Lesa meira
Valbjörn er Siglfirðingur. |
|
Mánudagur
26. september 2005 Ein gömul: Ætli að þetta
hafi verið í síðasta sinn, sem saltfarmur var losaður í lausu formi á
bíl á bryggju hér á Siglufirði?
Ekki vil ég neitt um það fullyrða, en það er orðið langt síðan og er
sennilega horfin tíð.
Myndin er tekin í nóvember 1974 |
Mánudagur
26. september 2005
Guðbrandur Elí Skarphéðinsson
er 5 ára í dag
Foreldrar hans eru Guðrún Sif Guðbrandsdóttir og Skarphéðinn Fannar
Jónsson |
Mánudagur
26. september 2005
Anna Sigurbjörg Gilsdóttir
er 50 ára í dag
|
|
 Sunnudagur 25. september 2005
Þetta er eins og að horfa bara út um gluggann hjá sér niður í bæ.
Önnur tölvanna er "glugginn" (GSM myndir).
Svo er líka fylgst með fyrir ofan hvað tímanum líður.
Með kveðju, Kalli Lilliendahl. ----
Þarna á Kalli við að önnur tölvan er með mynd frá vefmyndavélinni hjá
www.sksiglo.is
-- heiman frá sér. |
|
Sunnudagur 25. september 2005
Það var þessum krökkum að þakka að ég losnaði úr smá prísund í
morgun er ég fór á morgunrúntinn. Bíllinn minn er enn á sumardekkjunum
(bjartsýnn) og ég ætlaði bílnum of mikið er ég var að snúa við suður á enda
Norðurtúns. Bíllinn rann út af malbikinu og út í grasið. Engin hætta var
þó á ferðum, en þessir krakkar hér á myndinni sýndu krafta sína, sem
dugðu til að losa bílinn. Um 15 - 20 sentímetra snjólag er í byggð, og
ekki gott að vera á sumardekkjum á ótroðnum götum eins og ég gerði á
götu í Norðurtúni í morgun. --- Takk fyrir krakkar |
|
Sunnudagur 25. september 2005
Starfsmenn KB Banka nutu hér helgarinnar við að skoða og funda í
Bátahúsinu og fengur sér síðan veislumat og fleira á Bíó Café um
kvöldið. --- Þar sem þetta var einkasamkoma, og mér ekki boðið að
taka þar myndir, þá þótti mér ekki tilhlýðilegt að ryðjast þangað inn,
ef til vill í óþökk. Þannig að engar myndir eru frá þessari heimsókn. En
ég frétti af því að starfsmennirnir hafi notið heimsóknarinnar þrátt
fyrir að vetur konungur hafi látið á sér kræla um þessa helgi. Alls munu
gestir sem heimsóttu Siglufjörð þessa helgi, aðallega þrír hópar,
verið vel á þriðja hundrað manns. |
|
Sunnudagur 25. september 2005õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö .Norðurtún 11 |
|
Sunnudagur
25. september 2005 Fréttatilkynning -
Skólatónleikar - Næstkomandi
mánudag, 26.september, klukkan 11:10 verða skólatónleikar í
Siglufjarðarkirkju. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar kemur í heimsókn og flytur söguna „Stúlkan í
Turninum“ eftir Jónas Hallgrímsson við tónlist eftir Snorra Sigfús
Birgisson sem verður sögumaður á tónleikunum. Hingað kemur 13 manna
hljómsveit auk sögumanns og stjórnanda. -- Eins og gefur að skilja
er talsverður kostnaður við tónleika sem þessa. Hljómsveitin hefur
fengið styrki úr Menningarborgarsjóði, Minningarsjóð Margrétar
Björgvinsdóttur og Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA. Sparisjóður
Siglufjarðar stendur þó undir mestum hluta kostnaðarins með myndarlegum
styrkjum, auk þess sem Siglufjarðarkirkja leggur til húsnæðið
endurgjaldslaust. - - Pétur Garðarsson |
|
Sunnudagur
25. september 2005 Ein gömul: "Síðasta steypan" -
þegar þakveggir ofan á frystigeymslu Þormóðs Ramma hf. var steypt árið
1974 |
Sunnudagur
25. september 2005
María Petra Björnsdóttir
er 14 ára í dag
María er dóttir
Marisku og Björns Valdimarssonar
|
Sunnudagur 25. september 2005
|