Lífið í okt 1-8 2005 | Lífið í okt 9-15 2005 | Lífið í okt 16-22 2005 | Lífið í okt 23-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í okt 1-8 2005

 

Til forsíðu
Til baka
2005-10-
Sparkvöllur




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirMyndavél-sagaVeðrið NÚNAVefmyndavélMakka-notendur  

Laugardagur 8. október 2005 Ég fór  til að kjósa rétt fyrir hádegið með kellu minni. -- Og eins og siður er meðal þjóðhöfðingja, að láta taka af sér myndir við slík tækifæri, þá fannst mer kona mín engu minni persóna en "þjóðhöfðingjarnir" svo ég notaði tækifærið og smellti af henni mynd.Við borðið sitja Sigurður Fanndal - Ámundi Gunnarsson og Júlíus Hraunberg.  Ég hafði ætlað mér í morgun að fá fólk til að svara spurningu um hvað það hefði kosið og taka mynd af því eftir að það hefði kosið, (einskonar útgönguspá) en þar sem fólk var mjög trekt til að verða við þeirri ósk minni, þá sleppti ég því -- En ég veit hvað ég og kona mín kusu, og til gamans: Þannig að eftir þeirri útgönguspá, "verður sameiningin samþykkt" á Siglufirði. Ég hafði tekið ákvörðun fyrir nokkru,- en Birkir Jónson sannfærði  konu mína, sem hafði lesið grein eftir hann.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
* - 1,9 °C *  7,6 m/s

Laugardagur 8. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 44

Laugardagur 8. október 2005 Stjórnarskipti fóru fram í Kiwanisklúbbnum Skildi í gærkvöldi 7. október. Í stjórn eru Guðmundur Skarphéðinsson forseti, aðrir stjórnarmenn eru Salmann Kristjánsson, Steinar Baldursson, Sigurður Hafliðason, Sigurður Ólafsson og Baldur J. Daníelsson Águst Stefánsson og Ragnar Guðmundsson -- BB

Laugardagur 8. október 2005 Kjörstaður fyrir Siglfirðinga var opnaður á mínútunni 10:00 í morgun og á þeim tímapunti biðu tveir eftir því að komasrt inn. --

Laugardagur 8. október 2005 Í dag verður kosið um sameiningu sveitarfélaganna á Eyjafjarðarsvæðinu -- Ég mun síðar í dag væntanlega taka einhverjar myndir tengdar kosningunum á Siglufirði. Svo er það spurningin: Hvað á ég að kjósa - og  hvað ætlar ÞÚ að kjósa?  ---  Það kemur í ljós í kjörklefanum. --
En hver sem úrslitin verða,  já eða nei - þá verð ég sami Siglfirðingurinn sem hingað til og tilheyri hvað sem öðru líður, einnig búsettur í Eyjafjarðasýslu og á Norðurlandi eystra hvað svo sem í "símaskráin stendur."

Laugardagur 8. október 2005  Enn fiska smábátarnir sem gerðir eru út héðan frá Siglufirði vel - Þessi mynd var tekin í gær er verið var að landa úr einum þeirra

Laugardagur 8. október 2005 Stúlli og Kaupmannafélagið sáu um að gera líf þeirra léttara sem versluðu í heimabyggð í gær með ljúfum tónum á Torginu.

Laugardagur 8. október 2005  Opnunarhátíð í tilefni af formlegri opnun Sparkvallarins sunnan við Barnaskólans fór fram í gær eftir hádegið. Mikið var um dýrðir og uppákomur. Kynning á vegum HM þýskalandi 2006 -- Grillaðar pylsur í boð KS og ..... Völlurinn var opnaður með því að klippa á borða og síðan hófst fótboltaleikur yngstu KS-inganna  Myndasyrpa frá athöfninni eru á Opnunarhátíð

Laugardagur 8. október 2005  Ein gömul:  Mynd af Siglufirði -1975
Laugardagur 8. október 2005
Ólöf Ásta Salmannsdóttir
er 31 ára í dag
 
Laugardagur 8. október 2005
Guðný Friðfinnsdóttir
er 73ja ára í dag
Laugardagur 8. október 2005
Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir
er 45 ára í dag
(myndin er frá því hún var 13 ára

Föstudagur 7. október 2005  Canon EOS 20D myndavél til sölu. Vélin er vel með farin, tæplega ársgömul. Með vélinni fylgir standard búnaður; zoom linsa 18-55 (27-80) hleðslutæki, hugbúnaður og fleira. Mjög nákvæmar upplýsingar um þessa vélina er hægt að skoða HÉR þar sem og erlend verð á nýrri vél liggja einnig fyrir. Ný kostaði vélin hér heima 169 þúsund - verðhugmynd á ofannefndri vél er 110 þúsund.
Nánari upplýsingar í síma 892-1569  --- Allar myndavélar nýkomnar á markað eru á toppverði fyrstu mánuði, síðan, fer verð þeirra lækkandi á meðan byrgðir endast, hér er eitt Íslenskt dæmi um verð: Hans Petersen

Föstudagur 7. október 2005  Nýfæddur Siglfirðingur. Þann 28.9. fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri dóttir mín og konu minnar, Iris Waitz. Sú stutta var 13 merkur og 49 sentímetrar og heilsast bæði móður og barni vel. ---  Bestu kveðjur til vina, ættingja og gamalla starfsfélaga.Smári Sigurðsson
(Sonur Sigurðar Helga Sigurðssonar hafnarvarðar)

Föstudagur 7. október 2005 AÐVÖRUN -  til Siglfirðinga -  Við margir hverjir höfum ekki gert okkur grein  fyrir því að við erum ekki alveg laus við þá hættu sem stafar af óheiðarlegu og oft á tíðum sjúku fólki, sem ánetjast hefur allskonar ólyfjan. En nú verðum við að fara að loka húsum okkar bæði daga og nætur. Sem dæmi, þá voru þrjú innbrot amk. framin í nótt við Hvanneyrarbrautina -  Lögreglan hafði strax í morgun upp á þjófinum frá í nótt, þar sem húsmóðirin í einu húsanna (fötluð kona) stóð hann að verki og hrakti á brott, hún gat lýst honum nákvæmlega, en eftir athugun þá hafði hann náð að tæma búrið öllum kökudropum frúarinnar.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* - 5,2 °C *  1,9 m/s

Föstudagur 7. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 46

Föstudagur 7. október 2005




Eldur kviknaði í morgun í húsi númer 30 við Hvanneyrarbraut. Húsráðandi sem var vakandi er hann varð eldsins var hringdi þá strax 112 - en þá mun  klukkan hafa verið 05:20. Lögregla og slökkvilið var mætt nokkrum mínútum síðar. Í mig var hringt um 10 mínútum síðar og þegar ég mætti klukkan 05:40 og tók fyrstu myndina sást lítill reykur, en slökkviliðinu tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins sem hófst í kjallara hússins, en þar var meðal annarra rafmagnstækja þvottavél. Aðeins einu sinni sá ég móta fyrir eld inni í húsinu, en það var undir lofti á efri hæðinni, að líkindum farið upp á milli þils og veggja, en eldurinn var kæfður í "fæðingu".  Þetta hús er aðeins í um 50 metra fjarlægð frá Mjóstræti 1 sem brann í síðasta mánuði, 2. september. En húsið á fjórðu myndinni er Mjóstræti 1 sem sést í frá vinstri, en Hvanneyrabrautar 30 fyrir miðju. Tvennt bjó í húsinu, og má segja að litlu hefði munað að ver færi hvað fólkið varðar.

Föstudagur 7. október 2005  Aðsent:   Í tilefni af formlegri opnun sparkvallarins í dag þá langar mig til að senda þér nokkrar myndir sem voru teknar þegar battarnir voru settir í kringum völlinn þann 13 ágúst s.l. Það var meistaraflokkur KS sem tók það verkefni að sér, undir öruggri handleiðslu Bigga Ingimars. --  Kveðja,  Jónas Birgisson
Sparkvöllur- KS

Föstudagur 7. október 2005  Regnbogar - Þessa mynd tók ég heiman frá svölum á húsi mínu, klukkan 18:09 í gærkvöldi. ---  Það er Siglunesið sem ber við sjóndeildarhringinn og tveir regnbogar rísa nánast beint upp í loftið, frá svölum mínum séð. Sólin skein úr vestri eins og "lög" gera ráð fyrir á þessum árstíma, þannig að að líkingum hafa þeir Siglfirðingar sem börðu þetta fyrirbrigði augum, séð í annan "enda" regnboganna.-

Föstudagur 7. október 2005 Ein gömul:   Haraldur Árnason - Björn Jónsson - Ágúst Stefánsson - Hjálmar Jóhannesson - Birgir Ólason og Þorsteinn Jóhannsson -- 1975

Föstudagur 7. október 2005
Sigurlína Káradóttir
(Sirrý) er 18 ára í dag
Föstudagur 7. október 2005
Sandra Lif Ásmundsdóttir
er 6 ára í dag
Foreldrar: Mummi og Elín
Föstudagur 7. október 2005
Ámundi Gunnarsson
er 55 ára í dag
Föstudagur 7. október 2005
María Elín Sigurbjörnsdóttir
(Ella Maja) er 35 ára í dag

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
* - 7,8 °C *  0,0 m/s

Fimmtudagur 6. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  21

Fimmtudagur 6. október 2005
SPARKVÖLLURINN Á BARNASKÓLALÓÐINNI VERÐUR FORMLEGA OPNAÐUR Á MORGUN OG AF ÞVÍ TILEFNI VERÐUR HALDIN OPNUNARHÁTÍÐ.   ----  nánar HÉR

Fimmtudagur 6. október 2005    Aðsent: - Gísli Súrsson á Bíó Café  - Í kvöld, fimmtudaginn 7. október, kl. 20.30 verður einleikurinn Gísli Súrsson sýndur í . Bíó Café. Sýning þessi hefur farið víða um land og hlotið frábæra dóma og viðtökur.  Í henni er saga Gísla rakin á auðskiljanlegan, skýran og umfram allt bráðfyndinn hátt.  Leikari og aðalhöfundur er leikarinn Elfar Logi Hannesson (yngri bróðir Tóta íþróttakennara) og bregður hann sér í hin ýmsu hlutverk í sýningunni þó Gísli sé þar að sjálfsögðu fyrirferðamstur.  Eins og fyrr sagði hefst sýningin kl. 20.30 en húsið opnar kl. 20.00.  Aðgangseyrir er kr. 1.500. ---  Siglfirðingar látið ekki þessa frábæru sýningu fram hjá ykkur fara.  Komið, hlæið og ræktið þjóðararfinn. 

Fimmtudagur 6. október 2005 Aðsent: Sæll Steingrímur, -Var að skoða umræðuna inn á þínum ágæta vef og sá m.a. þó nokkuð rætt um verslunarmál á Siglufirði í tilefni að því að Verslunarfélagið var að loka um síðustu mánaðarmót.-- Guðmundur Gauti Sveinsson skrifar 12.sept. m.a. "... og verða Siglfirðingar að sætta sig við að versla við dýrustu Samkaup úrval verslunina á landinu..."  Þetta verð ég að biðja þig að leiðrétta á vef þínum.

Sannleikurinn er sá að það er sama verð í öllum Samkaup úrval verslununum á landinu. Við erum með verslanir í Njarðvík, Hafnarfirði, Borgarnesi, Ísafirði á Eyjafjarðarsvæðinu og á Húsavík o.fl. stöðum og verðið það sama allsstaðar, hvort það er í Njarðvík eða á Siglufirði.  ----  Við höfum verið að bera okkur saman í verðum við verslanir Hagkaupa og Nóatúns og höfum verið undir þeim eða í versta falli jafnir þeim í öllum síðustu verðkönnunum.   ----  Það er því ódýrara fyrir Siglfirðinga að versla í Samkaup úrval á Siglufirði heldur en að fara í Hagkaup Skeifunni eða einhverja Nóatúnsverslunina á Reykjavíkursvæðinu.  Með fyrirfram þökk fyrir að koma þessu á framfæri fyrir mig.  --  Bestu kveðjur til allra Siglfirðinga.  Gísli Gíslason  rekstrarstjóri 891-8353

Fimmtudagur 6. október 2005
Verkstæðið - Úra og gullsmíðastofa
Merkilegt safn sem ekki á sér neinn líka hér á landi. Safnið hefur að geyma gömlu úra og gullsmíðaverkstæðin ásamt upprunalegum verkfærum, verkstæðin og verslunin nánast eins og síðustu starfsmenn skildu við fyrir áratugum. Þarna eru smíðagripir úr gulli og silfri, mikið safn úra og klukka. Þarna eru úr, klukkur og fleiri munir sem voru til sölu þegar verslunin lokaði fyrir langa löngu. Fleira mætti telja. Safnið er í forsjá safnarans Hafdísar Ólafsson 
Nokkrar myndir frá safninu eru hér á:  Verkstæðið

Fimmtudagur 6. október 2005  Ein gömul:  Horfin hús stór og smá, alls 9 talsins og flest við Gránugötu eru horfin í dag. Einco og Sigfús Bald við Tjarnargötu, lagerhús, íbúðarhús, slökkvistöðin, íbúðarhús Gránugata 14 og híbýli Jóns Víglundar þar á bak við og síðan Bæjarskrifstofan/lögregluvarðstofa, lengst til vinstri á myndinni sem tekin er árið 1975

Fimmtudagur 6. október 2005
Hörður Heiðar Hannesson
er 74 ára í dag
Fimmtudagur 6. október 2005

Miðvikurdagur 5. október 2005 Siglfirðingurinn Salmann Héðinn Árnason keppir í herra Norðurland,næstkomandi laugardagskvöld.   Netkosning er hafin,sjáið strákana á vefnum:
    http://www.sjallinn.is/hn_05/index.htm

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
 Súld
* - 1,8 °C *  N 3,1 m/s

Miðvikudagur 5. október 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  23

Miðvikurdagur 5. október 2005  Ein gömul:  Hvað ætli þessi ungi maður heiti sem á tunnunni situr - og yfir hvaða nýbyggingu sveimar hann?

Svarið er hér
Miðvikurdagur 5. október 2005 Miðvikurdagur 5. október 2005
Þriðjudagur 4. október 2005  Flutningaskipið Sirius lestaði hér 133 tonn af loðnumjöli í morgun frá Síldarvinnslunni á Siglufirði

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
 Sólskinsglæta
* - 5,5 °C *  0,0 m/s

Þriðjudagur 4. október 2005  õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  13

Þriðjudagur 4. október 2005  Kvenfélagið Von hélt fund á Safnaðarheimilinu í gærkveldi. Þær hafa verið að vinna við í samvinnu við Kvenfélagasamband Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. -- Meðal annars hafa þær saumað dúkkur sem seldar verða fyrir næstu jól og fer allur ágóði af sölunni til að mennta ungar stúlkur í Gíenu Bissá  Verkefnið hefur fengið yfirskriftina "Ef þú menntar stúlkur, þá menntarðu heilt samfélag"

Nokkrar myndir eru hér á tenglinum  Dúkkurnar
Á myndinni hér eru: Anna Jóhanna Jóhannesdóttir - Arnfríður Björnsdóttir  - Anna Vignisdóttir - Erla Eymundsóttir - Anna Snorradóttir

Þriðjudagur 4. október 2005 Ég keyrði konu minni á kvenfélagsfund í gærkveldi - tók auðvitað myndavélina mína með eins og alltaf - Fannst þetta sérstakt sjónarhorn í rigningunni - gerði prufu, án þess að nota þrífót sem hefði verið æskilegur, en það tókst bærilega.

Þriðjudagur 4. október 2005  Ein til að gleðja augað. Henni Lusy minni þykir sósa góð
Þriðjudagur 4. október 2005 Ein gömul:  Horft á naglaboðhlaup 17. júní 1975
Þriðjudagur 4. október 2005 Þriðjudagur 4. október 2005

Mánudagur 3. október 2005  Flóð og fjara.  Þarna eru starfsmenn bæjarins að vinna við að koma fyrir aðgengi sjávar um ræsi til og frá tjörninni framan við Síldarminjasafnið. En fyrra ræsi skilaði ekki nægum árangri, þannig að vatnið / sjórinn endurnýjaðist nægilega ört. ---  En nú er verið að bæta úr því.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
 Rakt loft
* - 3,2 °C *  N 1,8

Mánudagur 3. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  15

Mánudagur 3. október 2005 Við innkeyrsluna í bæinn. Þessu verkinu sem við sjáum á myndinni hér til hliðar er að vísu ekki lokið, en þetta er tjörnin og endi snjóflóðavarnargarðsins sést í bakgrunn, en þar og við tjörnina verður komið fyrir bekkjum og borðum, þar sem gangandi og akandi geta staldrað við og tyllt sér og notið útsýnis þegar fólki dettur í hug að slappa af. ---  Myndin var tekin í gær fyrir hádegið.

Mánudagur 3. október 2005 Starfsmenn Siglufjarðarkaupstaðar 17. júní 1975

Eftir sigur í fótbolta. 

Mánudagur 3. október 2005  Þrír Siglfirðingar fæddir á árinu: Birgir Snær f.10.mai -foreldrar: Jóhanna og Björgvin.
Thelma Dís f.22.ágúst, foreldrar: Herdís og Sigurður.
Ágúst Freyr f.6.sept. foreldrar: Linda og Bragi.
Hulda Kristinsdóttir er amman

Mánudagur 3. október 2005
Ágúst Már Kristinsson
er 20 ára í dag
Sonur Kristins og Elínborgar

Mánudagur 3. október 2005
Arndís Sverrisdóttir
er 12 ára í dag - með henni á myndinni er litla systir hennar, Arna Sverrisdóttir foreldrar eru Sigurrós Sveinsdóttir og Sverrir Gíslason

Mánudagur 3. október 2005 
Árni Heiðar Bjarnason
er 22ja ára í dag
Mánudagur 3. október 2005
Daníel P Baldursson
er 63ja ára í dag
-- Engin mynd kom með.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
 Úrkomulaust
* - 7,9 °C *  Logn

Sunnudagur 2. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  17

Sunnudagur 2. október 2005 Grái fiðringurinn - Hann Sigurvin, Fíllinn lét gamminn geisa á Allanum í gærkveldi við góðar undirtektir. Brandararnir runnu upp úr honum og hláturköstin gullu við frá áheyrendum. það var greinilegt að hann á sér marga aðdáendur -- Skoðið bloggsíðuna hans http://blog.central.is/fillinn

Sunnudagur 2. október 2005  Slökkviliðsmenn frá Akureyri, heimsóttu kollega sína á Siglufirði seinni partinn í gær. Þessi mynd var tekin við það tækifæri.

Sunnudagur 2. október 2005 Nú eru þær orðanar fimm álftirnar á Langeyrartjörn, þessar þrjár nýkomnu sem ég tók mynd af í gær, halda sig norðan til á tjörninni en þær "gömlu" sunnan til.
Ég frétti af því að þær sem fyrir voru hefðu aldeilis ekki verið hrifnar af þessari heimsókn og hefðu mikil læti verið á tímabili í morgun á tjörninni, sem greinilega báru þess merki að þær væru ekki velkomnar á svæðið. --

Sunnudagur 2. október 2005   Ein gömul:   Svona var við norðurenda Fossvegar árið 1975 - Verið er að grafa / moka fyrir grunni hússins númer 35 við Fossveg.

Sunnudagur 2. október 2005
Sigurður Fanndal
er 63ja ára í dag 
Sunnudagur 2. október 2005
 

Laugardagur 1. október 2005  Þessi hópur var staddur í kaffistofu Olís á Siglufirði í morgun, flestir eiga það sameiginlegt að mæta þar á morgnanna til að þiggja þar kaffisopa og ræða helstu málefni byggðarlagsins og fleira. En í morgun var sérstakt hátíðlegt tilefni til mætingar. Sjálfur olíufurstinn Guðni Gestsson var kominn í heimsókn, en Guðni hefur búið erlendis undanfarna áratugi en eins og flestir eldri Siglfirðingar vita þá starfaði Guðni í áratugi hjá "Olís". Hann er enn með sama góða hjartalagið og góða skapið. Hann hefur ekkert breyst eins og sjá má á minni myndinni, en sú stærri sýnir hópinn sem mættur var í morgun: Steingrímur Kristinsson -Arngrímur Jónsson - Jón Andrjes Hinriksson - Einar Hermannsson - Kjartan Einarsson - Guðni Gestsson og Gestur Þorsteinsson. Gestur er sonur Sjafnar systur Guðna og kom með Guðna norður

Laugardagur 1. október 2005  Bátarnir búnir undir veturinn. Farið er að hífa smábátana á land og gera þá klára fyrir veturinn. Þessi mynd sem tekin var í morgun þegar einn bátanna var hífaður á land. skýrir sig raunar sjálf og þarf því varla að orðlengja það frekar.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
 Sólskin
* - 1,2 °C *  S 1,3 m/s

Laugardagur 1. október 2005õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Norðurtún  19

Laugardagur 1. október 2005  Kleinur á 500 kall pokinn - 2 poka takk sagði kona mín og rétti þessum unga manni út 10. bekk þúsund kall, en nemendur bekkjarins eru að safna í ferðasjóð eða eitthvað gott ! Ég gleymdi að spyrja.
Nemendurnir baka (steikja) þetta sjálfir með aðstoð foreldra ofl.
Drengurinn heitir Hafþór Stefánsson og er þarna staddur í forstofunni hjá mér.

Laugardagur 1. október 2005  Betra seint en aldrei Loksins sér maður það á "svörtu og hvítu" að Siglufjörður tilheyrir Norðurlandi eystra en ekki vestra.
Hvenær ætli ritstjóri Símaskrárinnar og fleiri ráðamenn átti sig á þessari staðreynd? 
Þessi mynd er hluti af korti á bæklingi sem kom inn um bréfalúgu mína, útgefnum af Félagsmálaráðuneytinu og Sambandi Íslenskra sveitarfélaga í tengslum við sameiningar ferlið og kosninguna 8. október nk.

Laugardagur 1. október 2005 Vefmyndavélin vinsæl.  Samkvæmt innri teljara síðunnar Lífið á Sigló, þá fer heimsóknum á "vefmyndavélina" sífelt fjölgandi. Flestir þeirra sem Lífið á Sigló heimsækja opna vefmyndavélina, eru þó mislengi þar inni og sumir koma oftar en einu sinni á dag. Þá fer erlendum skoðunum fjölgandi. Það sama má segja um veðurstöðina. ---  Meðfylgjandi mynd er frá vélinni klukkan 08:10, í morgun. ---
 

Laugardagur 1. október 2005  Sorgleg staðreynd. Þessi mynd sýnir tómar hillur í Versló eftir útsöluna síðustu tvo daga mánaðarins, en verslunin er búin að loka og hætt rekstri. Sorgleg staðreynd sem sannar átakanlega að lítið fyrirtæki sem þarf að kaupa vörur af heildsölunum á allt að 30% hærra verði en verslunin hinumegin á horninu í skjóli stærðar sinnar á landsvísu og getur krafist sérstaks afsláttaverðs, og gerir litla kaupmanninum á horninu ókleift að keppt á jafnræðis grundvelli um hilli viðskiptavina. Ég leit inn í verslunina skömmu fyrir lokun í gær og kom að nær tómum hillum. "Útsalan" hafði gengið vonum framar sagði verslunarstjórinn dapur í bragði, en allt var selt með 50% afslætti.

Laugardagur 1. október 2005  Ein gömul:  Frumleg fleyta -- Hattur ofan gömlu mjölsíló, hirtur úr brotajárnshaug. Tekið árið 1964

Laugardagur 1. október 2005
Sigríður Ósk Salmannsdóttir
er  24 ára í dag
 
Laugardagur 1. október 2005
Pálína Pálsdóttir
er 46 ára í dag
Laugardagur 1. október 2005
Pétur Garðarsson
er 64 ára í dag
Ágúst Stefánsson en hann er þarna að sveima hangandi í kranabómu, yfir húsi Haralds Árnasonar, sem var í byggingu árið 1975
Til baka