Lífið í okt 1-8 2005 | Lífið í okt 9-15 2005 | Lífið í okt 16-22 2005 | Lífið í okt 23-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í okt 9-15 2005

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirMyndavél-sagaVeðrið NÚNAVefmyndavélMakka-notendur  

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
*  6,3 °C *   0,4 m/s

Laugardagur 15. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 34

Laugardagur 15. október 2005  Margar gamlar: 

Lífið á Sigló, við Höfnina árið 1976 -- Bryggjuliðið -Löndunarvinna ofl.

                                               Bryggjuliðið

Laugardagur 15. október 2005   Vildi bara senda félaga mínum afmæliskveðju og biðja þig um að birta meðfylgjandi mynd með.
Afmælisbarnið er Aron Ingi Kristinsson, sonur Rósu og Kristins Boga, hann á afmæli í dag 15 október og er 16 ára 
Kv. Vigfús Fannar Rúnarsson

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  3,1 °C *   2,2 m/s

Föstudagur 14. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 36

Föstudagur 14. október 2005 Hannes Boy  Nýr "Siglfirskur" bátur, staðsettur í Mexico. Bátur sem ber nafnið Hannes Boy - í höfuðið á Hannesi Garðarssyni.

Eigandi bátsins er Róbert Guðfinnsson, sem jafnframt heldur úti heimasíðu, þar sem nánar er sagt frá bátnum.

Föstudagur 14. október 2005 Síðasta tækifærið ? Í bili sennilega, ef eitthvað er að marka veðurspána hans Sigurðar Þ Ragnars - En hann spáir hlýnandi segir kona mín, sem alltaf horfir á veðurfregnirnar á Stöð 2, enda áskrifandi.  En þessi mynd er enginn spádómur, en hún sýnir hluta af þeim krökkum í Bakka sem voru að renna sér á snjónum seinni partinn í gær.  ---  Fimm myndir í viðbót sérðu ef þú smellir á Á snjóþotu

Föstudagur 14. október 2005 Ein gömul:  Ég held ég megi fullyrða að þessi bátur/skip, sé sá stærsti sem dreginn hefur verið á land á Siglufirði, það er upp í Dráttarbraut Siglufjarðar. Þetta skeði árið 1976 og báturinn heitir? Það sérðu HÉR

Föstudagur 14. október 2005
Við erum tvíburar og erum Ingibjörg Hulda og Ólafur Helgi Erlendsbörn við erum 2ja ára í dag.
Mamma okkar er Maddý, dóttir Rabbýar Stefáns og Bigga Björns.
Föstudagur 14. október 2005
Sævar Örn Kárason
er 15 ára í dag
Föstudagur 14. október 2005

Fimmtudagur 13. október 2005  TRÖLLABYGGÐ ---  Óformleg hugmynd að umræðu og tillögu um hugmyndaflug Siglfirðinga, Ólafsfirðinga og annarra um hugsanlegt nafn sem gefa mætti "væntanlegu" byggðarlagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. -- Tillögur hafa komið fram um að lesendur tjái sig og gefi ímyndunaraflinu lausan tauminn í sambandi við nafngiftina á  Umræðan Tröllabyggð er fyrsta nafnið sem fram hefur komið svo ég viti. Komið með fleiri hugmyndir, - svona til gamans í skammdeginu..

Fimmtudagur 13. október 2005  Frá SR-Byggingavörur:
Sérstök kynning í dag.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Sólskin
*  2,7 °C *   0,0 m/s

Fimmtudagur 13. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 35

Fimmtudagur 13. október 2005 
FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS  í Reykjavík og nágrenni er komið út -- Smellið á myndina
Fimmtudagur 13. október 2005
Heimir Már er 1 árs í dag..
kv. Arna Björk Baldursdóttir
(dóttir Balla Ben & Guðrúnar Sonju)
Fimmtudagur 13. október 2005
Fimmtudagur 13. október 2005  Ein gömul: 
Jóhann Rögnvaldsson - Einar Hermannsson með son sinn Ásmund (Mumma) og Haukur Kristjánsson.

Myndin er tekin 1976

Fimmtudagur 13. október 2005  Frá dagur.net:  Sameining sveitarfélaga - Fundinum með ráðherra lokið ----   Fundi fulltrúa Ólafsfjarðar og Siglufjarðar með félagsmálaráðherra Árna Magnússyni er lokið. Að sögn Stefaníu Traustadóttur bæjarstjóra í Ólafsfirði gekk fundurinn vel og var farið yfir stöðuna sem uppi er eftir atkvæðagreiðsluna um síðust helgi. Ráðherra og hans menn gerðu grein fyrir þeim reglum sem í gildi eru um aðkomu ráðuneytisins að þeim málum sem verið er að undirbúa í viðræðum bæjarstjórna Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Stefanía sagði að kynntar hafi verið reglur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í þessu sambandi en engin loforð verið gefin um fjármagn frá ríkinu til að liðka fyrir sameiningu sveitarfélaganna enda ekki von til þess á þessu stigi. ---  Eins og áður hefur komið fram voru fulltrúar sveitarfélaganna á fundinum bæði frá minni og meirihluta bæjarstjórnanna auk bæjarstjóranna eða þrír frá hvorum stað. Frá ráðuneytinu voru, auk ráðherra, ráðuneytisstjóri, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, starfsmaður Jöfnunarsjóðs og Róbert Ragnarsson sem var verkefnisstjóri sameiningarátaksins um síðustu helgi.

Miðvikudagur 12. október 2005 Skíðasvæðið í Skarðsdal leit ekki sem verst út séð frá Langeyrarvegi, en hvort þar er kominn möguleiki á að opna það get ég ekki skorið úr um. Sumir segja að það muni ver þokkalegt færi þarna uppi - En yfirvöld segja að þar sem búast megi við því að hitastig breytist, og þessi snjór hvarfi að mestu, þá sé vart tímabært að opna svæðið núna, en það verði örugglega gert strax og gera megi ráð fyrir áframhaldandi snjóatímabili. Það er örugglega rétt mat hjá þeim, enda er veturinn samkvæmt dagatalinu ekki kominn ennþá - þó svo að dagatalið hafa undanfarin ár ekki alveg verið sjálfu sér samkvæmt, vegna hlýnandi veðurfars á norðurslóðum.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  1,0 °C *  N 0,9 m/s

Miðvikudagur 12. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 38

Miðvikudagur 12. október 2005  Viðræður um sameiningu-
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar framundan --- 
Bæjarráð Ólafsfjarðar ákvað í gærkvöldi að óska eftir viðræðum við Siglfirðinga um sameiningu sveitarfélaganna en áður hafa Siglfirðingar komist að sömu niðurstöðu. Fram kom í fréttum Útvarpsins að fulltrúar sveitarfélaganna tveggja hitta félagsmálaráðherra í dag til að ræða aðkomu félagsmálaráðuneytisins að hugsanlegri sameiningu.

Miðvikudagur 12. október 2005 Þær virtust una sér vel álftirnar á Langeyrartjörn í gærmorgun, þar sem þær syntu í og við krapahimnu sem var á hluta tjarnarinnar, í leit af æti eins og venjulega.

Miðvikudagur 12. október 2005 Ein gömul:  Hvaða hús er þetta?  Svarið HER

Myndin er tekin 1981 -- Húsið er löngu horfið, en það var brennt af Slökkviliðinu, eða eigum við í þessu tilfelli að segja Brunaliðinu, -- í æfingarskyni eftir að ákvörðun var tekin um að fjarlægja húsið.

Miðvikudagur 12. október 2005
Steingrímur Óli Hákonarson
er 38 ára í dag
Miðvikudagur 12. október 2005
Stefán Einar Friðriksson
er 45 ára í dag

Þriðjudagur 11. október 2005  Í morgun klukkan 10:00 var opnuð formlega ný verslun á Siglufirði sem ber nafnið Eyrarbúðin. Þarna var áður til húsa Aðalbúðin ofl. En Eyrarbúðin er með allan þann varning sem Aðalbúðin (sú síðasta) var með og að auki þann varning sem áður var til sölu í versluninni Rafbær, sem voru allar algengustu rafmagnsvörur til heimilisnota. Fyrirtækin sem eiga Eyrarbúðin eru Torg ehf og Siglunes ehf Á myndinni til hægri eru Hrafnhildur Hreinsdóttir afgreiðslustúlka og Freyr Sigurðsson framkvæmdastjóri.  Hin myndin er frá heimilistækjadeildinni.

Þriðjudagur 11. október 2005 Maður októbermánaðar, var kjörinn í morgun af Kaupmannafélagi Siglufjarðar, fyrir valinu að þessu sinni var Valey Jónasdóttir kennari, fyrir áratuga kennslu að baki, félagsstörf og listhneigð sína og sköpun.
Á myndinni sem tekin var á heimili Valeyjar í morgun, eru Valey Jónasdóttir - Freyr Sigurðsson og Helga Freysdóttir fulltrúar Kaupmannafélagsins

Þriðjudagur 11. október 2005  Fyrirtæki októbermánaðar, var kjörið í morgun af Kaupmannafélagi Siglufjarðar, fyrir valinu að þessu sinni var Bókhaldsskrifstofa Steinars Baldurssonar, sem starfað hefur á Siglufirði í yfir 30 ár undir forsvari Steinars Baldurssonar. Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu viðurkenningarinnar á Skrifstofu Steinars í morgun. Á myndinni eru Freyr Sigurðsson formaður Kaupmannasamtakanna - Helga Freysdóttir stjórnarmaður Kaupmannafélagsins -  Steinar Baldursson forstjóri og Elín Þór Björnsdóttir stjórnarmaður Kaupmannafélagsins

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  -0,9 °C *  N 7,2 m/s

Þriðjudagur 11. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 37

Þriðjudagur 11. október 2005  Forsvarsmenn Siglufjarðar og Ólafsfjaðrar íhuga að taka upp viðræður um sameiningu sveitarfélaganna. Bæjarráð Siglufjarðar ræddi hugsanlega sameiningu í gær og bæjarráð Ólafsfjarðar mun gera það síðdegis í dag.   ---  Kosið var um sameiningu allra sveitarfélaganna á Eyjajaðarsvæðinu á laugardaginn. Sú tillaga var kolfelld, aðeins Siglfirðingar og Ólafsfirðingar samþykktu sameiningu. Bæjarráð Siglufjaðrar ræddi stöðu mála í gær og þar var ákveðið að ræða við Ólafsfirðinga um hugsanlega sameiningu, en ekkert var bókað á fundinum. Bæjarstjórn Ólafsfjaðrar kemur saman til fundar síðdegis í dag , og strax á eftir verður haldinn fundur í bæjarráði, þar sem sameiningarmál verða rædd. Ekki er ólíklegt að í framhaldinu verði sett á laggirnar sérstök sameiningarnefnd. ----  Ólafur Kárason formaður bæjarráðs Siglufjarðar segir rökrétt að Siglfirðingar og Ólafsfirðingar ræði saman og kanni til hlítar kosti og galla þess að sameina þessi nágrannasveitarfélög. ----  Eins og fram kom í Útvarpsfréttum hefur Vegagerðin nú auglýst eftir þátttöku fyrirtækja í forvali um gerð jarðganga milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð. Með tilkomu þeirra gana styttist vegalengdin milli staðanna verulega. ---  Jöfnunarsjóður sveitafélaga hefur til ráðstöfunar tvo og hálfan milljarð króna til að styrkja sveitarstjórnarstigið. Ekki er ólíklegt að Siglfirðingar og Ólafsfirðingar líti til Jöfnunarsjóðs í tengslum við hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna.

Þriðjudagur 11. október 2005  Er vetur konungur kominn?  -- Þessi mynd ver tekin á Siglufirði fyrir hádegið í gær --
Aðalgatan fyrir miðri mynd, kirkjutröppurnar til vinstri í forgrunni.

Þriðjudagur 11. október 2005 Aðsend kveðja frá New York --- Góðan daginn Steingrímur. -  Ég gat ekki staðist þessa freistingu og varð að senda þér þessa mynd af dóttir minni Birnu Guðnýu (6 ára) sem er á leið í skólann með heimatilbúna Íslenska fjallkonu til að sýna skólafélögum sínum hér í New York...--  Kveðja Laufey Anna...----  Laufey er dóttir Birnu Baldurs og Guðna.

Þriðjudagur 11. október 2005  Ein gömul:  Þeir eru að líkindum ekki margir af yngri kynslóðinni sem átta sig strax á því hvar þessi mynd er tekin. - Og til að lofa þeim sem ekki vilja gefa sér tíma til að velta vöngum eða vita það alls ekki, þá er svarið  HÉR

Þriðjudagur 11. október 2005
Stefán Þór Haraldsson
er 72ja ára í dag
Þriðjudagur 11. október 2005
Jóhann Sveinsson
er 36 ára í dag
 

Mánudagur 10. október 2005  Auglýst eftir þátttakendum í forvali vegna Héðinsfjarðarganga.
Vegagerðin hefur nú auglýst eftir þátttakendum í forvali vegna Héðinsfjarðarganga. Auglýsingu má sjá í framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar en skila skal forvalsgögnum í síðasta lagi þriðjudaginn 13. desember n.k.
Nánar um þetta má sjá á heimasíðu Vegagerðar, http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/pages/vg1_frfr267.html

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Snjókoma
*  -0,9 °C *  N 9,8 m/s

Mánudagur 10. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 39

Mánudagur 10. október 2005 Jarðskjálfti !  Ég vaknaði klukkan 08:00  í morgun, hlustaði á veðurgnýinn og snéri mér á hina hliðina. Ég var í hálfgerður svefnmóki klukkan   08:12 þegar ég hrökk upp við heljarins högg, og mér fannst eitthvað haf lent á húsi  mínu, rauk á fætur og leit út um alla glugga en sá ekkert. Var farinn að halda að mig hefði dreymt þetta. Þar til ég var kominn niður í bæ stuttu síðar og mér var sagt að þetta hefði verið jarðskjálfti upp í 3,9. Ég hefi upplifað nokkra og á undan þeim komu drunur úr fjarlægð sem þögnuðu svo eftir að skjálftinn reið yfir, en þær drunur nú missti ég af, þá sennilega sofandi -- Nánar HÉR

Mánudagur 10. október 2005  Eigum við ekki að grípa gæsina ? Mjög athyglisverðar greinar um næstu skref í sameingarmálum. Önnur greinin skrifuð af Guðjóni Óla Kárasonar og hin Af Birni Vali, sem hefur verið áhrifamikill í sveitarstjórnarmálum í Ólafsfirði. Ég tel að þessi umræða eigi erindi við fleiri og er viss um að  Siglfirðingar vilja vita af henni Hér eru tenglar til umræðunnar Guðjón   Björn

Mánudagur 10. október 2005  Höfnin í gær --

Allir bátarnir í höfn, við Ingvarsbryggju og í bátadokkinni.

Mánudagur 10. október 2005  Ein gömul:  Höfnin 1975
Mánudagur 10. október 2005
Jón Helgi Ingimarsson
er 44 ára í dag
Mánudagur 10. október 2005
Jónína Guðný
er 2 ára í dag hún er dóttir Dóru
(Sverris Jóns ) og Rabba (Sigga Hilmars)

Sunnudagur 9. október 2005  Rangar upplýsingar / Óþægileg nótt var hjá þeim bifreiðastjóra sem seint í gærkveldi ætlaði að bregða sér til Dalvíkur (á vel útbúnum bíl sínum) sá á skilti við veginn að Lágheiði væri fær, það sama var sagt í símsvara Vegagerðar svo lagt var á heiðina, en hann festi bifreið sína og sá ekki fyrr en of seint (í náttmyrkrinu) að vegurinn væri ófær. Það sama skeði með þann næsta sem ætlaði yfir Lágheiðina mörgum klukkustundum seinna, en gat komið þeim fyrrnefnda til aðstoðar, sem og báðir snéru við eftir það og fóru lengri leiðina.  --   Vegfarendur ættu ekki að treysta algjörlega því sem símsvarar segja né upplýsinga skiltum Vegagerðarinnar. -- Það eru jú menn sem stjórna þessu ekki satt - og öll erum við mannleg og gerum mistök - en óþægilegar tafir geta orðið á uppfærslum og breytingum upplýsinga.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
* - 0,3 °C *  9,4 m/s

Sunnudagur 9. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 42

Sunnudagur 9. október 2005  Frá RÚV: Tillaga um sameiningu níu sveitarfélaga við Eyjafjörð var kolfelld í kosningum í dag. Sterkust var andstaðan í Grýtubakkahreppi, en þar sögðu aðeins tveir íbúar já, en 99,05% íbúanna sögðu nei. Tillagan var einnig felld með afgerandi hætti í Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit, Hörgárbyggð, Arnarneshreppi og Dalvíkurbyggð. Mest kom þó á óvart, að Akureyringar felldu tillöguna með afgerandi hætti. Þar var að vísu ekki nema 22% kjörsókn, sem er sú minnsta kjörsókn sem menn muna á þeim bæ. 54 % sögðu nei, en 42% já. Það voru aðeins Siglfirðingar og Ólafsfirðingar, sem samþykktu tillöguna. Það dugir hins vegar ekki til að aftur verði kosið eftir sex vikur í þeim sveitarfélögum sem felldu, þannig að sameiningartillagan er dauð.  Því miður, segi ég SK -

Sunnudagur 9. október 2005  Tekjujöfnunarframlögum úthlutað ---  Siglufjörður, Ólafsfjörður og Grímsey fá ekkert. ---  Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt tillögu að áætlun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2005 og hefur félagsmálaráðherra staðfest tillögu nefndarinnar. Tekjujöfnunarframlög eru greidd þeim sveitarfélögum sem fullnýta tekjustofna sína en búa við það að meðaltal tekna á íbúa er lægra en 97% af meðaltali tekna íbúa í öllum sveitarfélögum. Komu ¾ hlutar framlagsins til greiðslu 6. október sl. en fjórðungur framlaganna verður greiddur út í árslok á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaganna. Mörg sveitarfélaganna í Eyjafirði fá tekjujöfnunarframlög en upphæð þeirra sýnir nokkuð vel hvernig íbúar einstakra sveitarfélaga standa tekjulega og þá sveitarfélögin í framhaldi af því. Áætlanir fyrir sveitarfélögin í Eyjafirði eru eftirfarandi:

Akureyri 192,3 milljónir
Eyjafjarðarsveit 45,5 millj.
Dalvíkurbyggð 39,8 millj.
Svalbarðsstrandarhreppur 10,9 millj.

Hörgárbyggð 9,3 millj.
Grýtubakkahreppur 3,3 millj.
Arnarneshreppur 0,5 millj.

Samkvæmt þessu eru tekjujöfnunarframlög á íbúa hæst í Eyjafjarðarsveit. Siglufjörður, Ólafsfjörður og Grímsey fá hins vegar ekkert sem bendir til þess að tekjur á íbúa þar séu hærri en 97% af meðaltali í landinu. Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar geta farið inn á vef félagmálaráðuneytisins og skoðað þessar tölur í samhengi við íbúafjölda.

Sunnudagur 9. október 2005 Skipstjórarnir Sverrir Björnsson og Ólafur Gunnarsson, voru við bátahöfnina síðast liðinn föstudag, sennilega að spjalla um fiskveiðar og hið ljúfa líf sjómennskunnar ! Þeir litu aðeins upp og brostu til ljósmyndarans.

Sunnudagur 9. október 2005  Ein gömul:     Sennilega er þessi farmur sá breiðasti sem farið hefur verið með um Strákagöng, þegar Gestur Halldórs fór með á bíl sínum túrbínuna frá Siglufjarðarhöfn í nýju Skeiðsfossvirkjunina árið 1975-- Þarna er hann á leið út úr göngunum að vestanverðu. 

Sunnudagur 9. október 2005
Guðmundur Davíðsson
er 63ja ára í dag
Sunnudagur 9. október 2005
Björg Friðriksdóttir
er 67 ára í dag
Sunnudagur 9. október 2005
Anton Jóhannsson
er 75 ára í dag
Sunnudagur 9. október 2005
Haraldur Árnason
er 76 ára i dag

Svar við mynd frá : Föstudagur 14. október 2005  Þetta er Póstbáturinn Drangur --  frá Akureyri, sem hélt uppi flutningum á eyjafjarðarhöfnum og til fleiri staða.   Til baka

Svar við mynd frá Miðvikudagur 12. október 2005 Myndin er af íbúðarhúsinu Hvanneyrarbraut 68 -  Fjögurra íbúða hús, sem Óskar Halldórsson byggði einhvern tíma fyrir 1930 og var þá notað sem verbúð vegna söltunarstöðvar, frystihúss og annars reksturs sem var í Bakka á þeim tíma  Til baka

Svar við mynd frá Þriðjudagur 11. október 2005 Myndin er tekin árið 1975, þegar verið var að brjóta niður, meðal annars fjósið á Hóli og fleira þar sem íþróttasvæðið á Hóli er nú. Verkið var allt unnið í sjálfboðavinnu á vegum Íþróttafélaganna og fleiri. --- Notaður var meðal annars krani sem sveiflaði kúlu til að brjóta niður veggina, sem voru úr þykkri steinsteypu.  Til baka