Lífið í okt 1-8 2005 | Lífið í okt 9-15 2005 | Lífið í okt 16-22 2005 | Lífið í okt 23-31 2005

>>>>>>>>>>> Lífið í okt 16-22 2005

 

Til forsíðu
Til baka
Salka Valka
Bossía




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Siglfirski fréttavefurinn  Lífið á Sigló- s. 892-1569 - h.s:467-1569
GagnagrunnurMynda-albúmMyndamöppurÁ döfinniTenglasíðaAð gefnu...
Umræðan
Að senda myndirMyndavél-sagaVeðrið NÚNAVefmyndavélMakka-notendur  

Laugardagur 22. október 2005  Sæll gamli vin. Sonur Bósa bróðir,
Guðmundur S Guðmundsson varð 39 ára þann 19/10/05
Það er haldið uppá það í kvöld -- Tryggvi

Laugardagur 22. október 2005  -- Engin veðurmynd kom á vefinn í dag - En ég þurfti að bregða mér "bæjarleið"

Laugardagur 22. október 2005 Ein gömul:  Hangandi í kranabómu vegna vinnu við að klæða kirkjuturninn árið 1976.
Í vinnustólnum eru Friðrik Hannesson - man ekki nafnið - og Jón Dýrfjörð sem veifar hjálmi sínum. En JE Vélaverkstæði  sá um verkið.

Laugardagur 22. október 2005
Hanna Sigga Ásgeirsdóttir
er 23ja ára í dag.  ----  Á myndinni er hún með vinkonu sinni sem hún býr með á Ítalíu, þar sem hún stundar nám í grafískri hönnun. Hanna Sigga er dóttir Erlu Gull og Ásgeirs Sölva, Hanna Sigga er sú með græna sjalið

Laugardagur 22. október 2005
Helgi Antonsson
er 75 ára í dag
Laugardagur 22. október 2005

Föstudagur 21. október 2005 Aðsent: ÁFRAM STELPUR ---  Höldum saman upp á kvennafrídaginn mánudaginn 24. október næstkomandi. --  Hittumst við kirkjuna kl. 14.30  --- Gaman væri ef einhverjar kæmu með kröfuspjöld eins og í denn.--- Svo höldum við áfram niður tröppurnar og marserum að Bíó Café (samkvæmt auglýsingu frá þeim). --  Mætum saman og fáum allar með okkur. ---
Baráttukveðjur - Áhugafólk um jafnréttisbaráttu :) 
Karlar, ungir sem gamlir: Styðjum stelpurnar, við getum ekki án þeirra verið. SK

Föstudagur 21. október 2005 Tjáið ykkur á Umræðan -- En vinsamlega skrifið undir réttu nafni, eins og nær allir gera og verið málefnaleg og sleppið sleggjudómum. Verum heiðarleg og látum skoðanir okkar í ljós.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  2,0 °C *   2,7 m/s

 Föstudagur 21. október 2005õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 26

Föstudagur 21. október 2005  Norðan kaldi á oss blés. Þessi mynd var tekin stuttu eftir hádegið í gær, en þá sást í nokkrar mínútur í heiðskíran depil í norð norð austri á milli skýjahnoðranna sem voru á fleygi ferð um himinhvolfið, rétt eins og sólin væri á norðurhveli, og að brjótast í gegn.

Föstudagur 21. október 2005  En hvað við erum heppin, að sumir skuli ekki hafa áhuga á að flytja til Siglufjarðar, fólk sem hatar Siglufjörð og raunar allt það sem það ekki þekkir, og dæmir og ruglar um "hluti"   -   Fólk sem dæmir umhverfi sitt samkvæmt hatri á sjálfum sér og því sem því er ekki þóknanlegt. Á vefnum www.barnaland.is - vef sem samkvæmt nafni ætti að vera, hefði maður haldið, ímynd barngæsku og jákvæðri umfjöllun henni tengt. -  Það er sko aldeilis ekki ef lesið er margt af þeim óhróðri, orðaflaumi og heimsku sem er að finna  HÉR Það er á vefnum sem ber titilinn Mbl.is - Barnaland. Ég hvet fólk til að lesa það sem þar stendur skrifað, óhróður um Siglufjörð og raunar má finna þar andúð á flestu sem er utan hins svokallaða stór Reykjavíkursvæðis. --  Skrítið hvað ein sakleysisleg og vinaleg spurning getur framkallað mikið hatur.

Föstudagur 21. október 2005  Ein gömul: 
Þessa kappa þekkja allir ! Siglfirðingar- En þetta eru Alfreð Hallgrímsson og Hrafnkell Hall - Þarna að vinnu við uppbyggingu neðri virkjun við Skeiðsfoss árið 1976

Föstudagur 21. október 2005  Móðir mín Hulda Hannesdóttir ( Hannesar Sölvasonar og Olgu Magnúsdóttur Fossvegi 27 ) er 73ja ára í dag
Ég sendi hér mynd af henni og tengdadóttur hennar og nöfnu Huldu Sigurðardóttur sem tekin var í sumar, þegar foreldrar mínir voru í heimsókn á landinu, en þau hafa verið búsett í Varberg, Svíþjóð síðan 1970.
Tilhamingju með daginn -- Kveðja. Hannes Valsson

Föstudagur 21. október 2005
Milena Medic
er 17 ára í dag

Milena vinnur hjá
Samkaup/Úrval á Sigló
Föstudagur 21. október 2005

 

Fimmtudagur 20. október 2005 Frá vef  Siglufjarðarkaupstaðar 20. október 2005
Uppskeruhátíð Ferðaþjónustunnar á Norðurlandi
Ferðamálasamtök Norðurlands eystra og vestra, Ferðaþjónustuklasinn/ Vaxey og Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi bjóða til Uppskeruhátíðar ferðaþjónustunnar þann 10. nóvember. Þangað eru boðnir allir sem starfa að ferðamálum á Norðurlandi.  ---   Markmiðið með hátíðinni er að efla samkennd og samvinnu á milli ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og að ferðaþjónustuaðilar kynnist því sem að önnur svæði hafa upp á að bjóða.
Að þessu sinni eru Þingeyingar gestgjafar en áætlað er að þessi hátíð verði haldin árlega og þá á mismunandi svæðum á Norðurlandi. Hafa ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsýslu lagt sitt af mörkum til að gera hátíðina sem glæsilegasta.  -----  Dagskráin hefst á Húsavík og í framhaldinu verður farið í hringferð um nágrennið með ýmsum skemmtilegum uppákomum á leiðinni. Um kvöldið verður svo dagskrá sem kætir bæði líkama og sál.
Allar nánari upplýsingar og skráning eru á www.nordurland.is

Fimmtudagur 20. október 2005  Snerpa: Þessi hópur kemur saman tvisvar í viku Íþróttahúsinu á Sigufirði til að spila Bossía.

Lilja Guðmundsdóttir heldur á myndavélinni fyrir Guðný Ósk, í morgun

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Smáél
*  1,4 °C *   7,6 m/s

 Fimmtudagur 20. október 2005õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 28

Fimmtudagur 20. október 2005 Frá Ólafsfirði:  Bæjarráð - 19. október 2005
1713. fundur bæjarráðs Ólafsfjarðar, sem jafnframt var sameiginlegur fundur með bæjarráði Siglufjarðar, var haldinn á bæjarskrifstofunni miðvikudaginn 19. október 2005 og hófst kl. 18.00. -- 
Mættir: Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, Rögnvaldur Ingólfsson og Ásgeir Logi Ásgeirsson.
Frá Siglufirði mættu Ólafur Kárason, Egill Rögnvaldsson, Haukur Ómarsson og Skarphéðinn Guðmundsson.
Einnig sátu fundinn Stefanía Traustadóttir, Runólfur Birgisson og Kristinn Hreinsson.  Fundarefni var Sameining  Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og hagsmunir, . -- Jóna Vilhelmína bauð fundamenn velkomna.

Fimmtudagur 20. október 2005  Ein gömul: 
Kjartan Stefánsson og Þórsteinn Ragnarsson 1968 (?)
Fimmtudagur 20. október 2005 
Þau eiga afmæli í dag.
Gunna Finna yngri 21 árs. og pabbi hennar Finni Hauks 48 ára
 
Fimmtudagur 20. október 2005
Friðrik Hannesson
er 58 ára í dag
Fimmtudagur 20. október 2005
Sigurður Steingrímsson
er 54 ára í dag

Miðvikudagur 19. október 2005 Oft hefi ég orðið hissa á málflutningi manna þegar minnst hefur verið á Héðinsfjarðargöng, en eftir lestur "greinar"  farandverkamannsins Guðmundar Karls Jónssonar - þá átti ég vart orð yfir þeim málflutningi sem hann setur fram, málflutningi sem að mínu mati samanstendur af hreinu rugli og fávisku, vægt til orða tekið, enda hvarflar ekki að mér að eyða tíma mínum í að svara frekar. - Hann lítur alls ekki út fyrir að vera með lága greindarvísitölu, en það er auðvitað ekki á mínu færi að meta það. En til að sem flestir viti af og geti metið með sjálfum sér hvort hér er á ferðinni eitthvert undrabarn á ritvellinum eða hvort þarna er bara um óvenjulegt rugl að ræða. Smellið HÉR  og metið sjálf ritsmíðina.  -- Frá Bæjarins Besta

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Þokusuddi
*  4,3 °C *   6,0 m/s

Miðvikudagur 19. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 30

Miðvikudagur 19. október 2005  Frétt úr Morgunblaðinu 17. október: Bíll valt á Kjalvegi --   Tvær japanskar konur sem hér eru á ferðalagi sluppu með skrámur eftir að bíll þeirra valt á Kjalvegi um klukkan 17.30 í dag. Lögreglan á Blönduósi segir að svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bílnum á ójöfnum vegi. Bíllinn valt um 8 kílómetrum sunnan við Áfangafell og var mikil þoka á svæðinu auk þess sem þar er símasambandslaust, að sögn lögreglu. Það varð konunum til happs að rjúpnaveiðimenn sem höfðu þurft að hætta veiðum vegna þokunnar, óku fram á þær.  -- Lögregla segir að bíllinn sem konurnar voru á hafi gereyðilagst við veltuna, en um var að ræða bílaleigubíl.   --- 
-------------------------------------------------
Við vorum í gær staddir á Kjalvegi í Rjúpnahugleiðingum ---  þegar við ókum fram á þessar Japönsku konur sem voru á leið "suður Kjöl til að skoða Geysi" ---  Blessaðir Túristarnir fá góða tilsögn og leiðsögn þegar þeir fá sér bíl á leigu um miðjan október á Íslandi. Þær lögðu upp frá Akureyri um hádegisbilið.  - Kveðja Birgir Hauksson. --  með í för voru Valdi Gosa, Haldór Bogi og Óli H. Henriksen --- Es. lítið af rjúpu. (mynd: Birgir Hauksson)

Miðvikudagur 19. október 2005  Erindi á síðu Umræðan Tengt fréttinni um Japönsku konurnar / bílaleigu

Miðvikudagur 19. október 2005  Ein gömul:   Þarna er örugglega verið að ræða um fótbolta: Arnar Ólafsson og Tómas Hallgrímsson fyrir utan verslun Gests Fanndal, baka til er Kristján Hauksson að koma út frá Gesti - og enn aftar er Björn Magnússon bifreiðastjóri og fleiri að vinna við hitaveitulögn.

Miðvikudagur 19. október 2005
Guðbjörg Jóhannsdóttir
er 53ja ára í dag
Miðvikudagur 19. október 2005
Oddný H Jóhannsdóttir
er 49 ára í dag

Þriðjudagur 18. október 2005  Nýlega frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur Sölku Völku eftir. Halldór Laxness í nýrri leikgerð eftir Hrafnhildi Hagalín.  ---  Sýningin hefur fengið frábæra dóma hjá gagnrýnendum sem og áhorfendum:  
“Theodór Júlíusson og Guðrún Ásmundsdóttir gengu inní hjarta manns í einfaldleika sínum í hlutverkum Eyjólfs blinda og Steinunnar gömlu,,” “Í heild fannst mér þetta metnaðarfull, hugmyndarík sýning og unnin af alúð,,”
 
María Kristjánsdóttir/MBL   ---   Nánar um þessa sýningu er að finna HÉR

Þriðjudagur 18. október 2005 Þessi fallegi bátur Brimill SH 31 7474 Stykkishólmi, var sjósettur fyrir hádegið, eftir að hafa verið lengdur um 2 metra og sett utan á hann síðustokkar, sem eykur bæði burðargetu og stöðuleika.  ---   Verkið var unnið hjá JE-Vélaverkstæði, en þar á bæ ætla nú starfsmenn að taka sér smá pásu á morgun og næstu daga og skreppa með sína heittelskuðu maka til Kaupmannahafnar.

Þriðjudagur 18. október 2005 Eins og áður hefur komið fram var þakið á húsinu við Aðalgötu 15 rifið vegna breytinga - en nú er verið að reisa þakið að nýju með einingum sem smíðaðar voru hjá Berg hf. Verkið gengur vel, sem búast má við þar sem röskir menn ganga til verka.

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  5,1 °C *   0,4 m/s

Þriðjudagur 18. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 31

Þriðjudagur 18. október 2005  Til Mexico  Undanfarna daga hafa starfsmenn Þormóðs Ramma Sæber hf. verið að vinna við að koma fyrir í gámum allskonar búnaði til frystingar ofl. sem aflagt hefur verið hér og á Ólafsfirði hjá fyrirtækinu vegna breytinga. Gámarnir verða síðan fluttir til Mexico þar sem áður nefndur búnaður hefur verið seldur til og þar þjóna nýjum eigendum.  Myndin var tekin í gær.

Þriðjudagur 18. október 2005  Ein gömul:  Mér sýnist þetta vera Kristján Hauksson og örugglega Þórleifur Haraldsson.
En spurningin er Hvar, og hvað eru þeir að bauka þarna uppi á þaki, árið 1976?
Svarið er HÉR

Þriðjudagur 18. október 2005 
Magnús Jónsson er 32 ára í dag.
Með honum á myndinni er Hulda konan hans og börnin þeirra þrjú. Kristófer 11 ára, Sigrún Kara 6 ára og Grímur Guðmann 2 ára.
Hann fær baráttu kveðjur í ellinni frá fjölskyldu og vinum.

Þriðjudagur 18. október 2005
Sigríður Elefsen
er 16 ára í dag
Þriðjudagur 18. október 2005
Brynjar Elefsen
er 26 ára í dag
 

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust
*  5,4 °C *   0,4 m/s

Mánudagur 17. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 32

Mánudagur 17. október 2005 Þessa fallegu mynd sendi mér Hrönn Einarsdóttir - en hún tók myndina síðastliðið laugardagskvöld.

Mánudagur 17. október 2005 Ein gömul:  Frá uppsetningu véla og búnaðar í  Neðri virkjun Skeiðsfoss árið 1976

Skarphéðinn Guðmundsson byggingameistari - Jón Dýrfjörð vélsmíðameistari - kranastjórinn Steingrímur - einn óþekktur og Sigurbjörn Jóhannsson rafvirki.

Mánudagur 17. október 2005
Guðni Brynjólfur Ásgeirsson
er 12 ára í dag
Mánudagur 17. október 2005
Anna María Björnsdóttir
er 32ja ára í dag
 
Mánudagur 17. október 2005
Erla Eymundsdóttir
er 71 árs í dag
 
Mánudagur 17. október 2005
Ólafur Jóhannsson
er 78 ára í dag

Sunnudagur 16. október 2005 Undanfarið - allt að fyrir mánuði höfðu menn tekið eftir því að ein og yfirgefin rolla hafi haldið til í klettabeltinu fyrir ofan og norðan austari enda Strákaganga. Og í morgun var staðsetning hennar slík að menn töldu fyrir víst að hún væri þar í sjálfheldu. -- Vaskir menn, í fylgd lögreglu og fjáreiganda gerðu sig klára til að reyna að bjarga rollunni - og eða skjóta hana, á staðnum ef það tækist ekki. En þegar hópurinn var tilbúinn til aðgerða, hafði rollan farið á annað svæði norðar í klettabeltinu og fylgdist greinilega vel með atferli manna. Eftir smá stund rauk hún aftur af stað og hélt lengra upp og fór létt með- en mannfólkið fylgdist með smá stund og ákváðu síðan að björgunaraðgerðum væri lokið að sinni.  (myndirnar eru teknar klukkan 14:10> í dag)

Vefmyndavél  Veðrið NÚNA

Veðrið í hádeginu:
Rigning
*  4,9 °C *   4,9 m/s

Sunnudagur 16. október 2005 õ Veðrið í hádeginu ñ Veðurstöðin í Bakka.  --    ö  .Laugarvegur 33

Sunnudagur 16. október 2005  Ekki veit ég hvað þeir heita þessir drengir - En þeir voru við leik við Langeyrartjörn og voru fúsir til að brosa framan í myndavélina mína seinni partinn í gær.

Sunnudagur 16. október 2005 Og þessir drengir við Hverfisgötu syðri, voru einnig fúsir til að brosa framan við myndavélina.

Sunnudagur 16. október 2005 Ein gömul:  Á myndinni eru
Ari Már Þorkelsson - Jón Sæmundsson og Guðbrandur Jónsson.  --
En hvaða hús er verið að byggja þarna árið 1976?

Svarið er HÉR

Sunnudagur 16. október 2005
Systkinin Erna Rósmundsdóttir og
Hilmar Rósmundsson
eru 80 ára í dag
Sunnudagur 16. október 2005
Sunnudagur 16. október 2005
Eggert Ólafsson
er 63ja ára í dag
Sunnudagur 16. október 2005
 
Svarið við mynd frá Þriðjudagur 18. október 2005  
er:
Vinna við að reisa Húseiningahús við Fossveg
(ég er ekki viss um númerið, en Byggingafélagið Berg sá um að reisa húsið)

---  Til baka
Svarið við mynd frá Sunnudagur 16. október 2005  
er:
Hvanneyrarbraut 33 ------  Til baka