Laugardagur 5. nóvember 2005
Norðurlandsmót í Boccia
var haldið í Íþróttahúsinu á Siglufirði í dag -- Ég skrapp á staðinn og
tók nokkrar myndir.
Smelltu á:
og Mótslit
 |
|
Laugardagur 5. nóvember 2005 Samkvæmt
fréttum BYLGJUNNAR
í hádeginu, þá verður Skíðasvæðið í Skarðsdal opið í dag. |
|
Laugardagur 5. nóvember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Laugarvegur 12 |
|
Laugardagur
5. nóvember 2005 Frábært lesefni - Það leynast margir
ritsnillingar á Íslandi:
Stolið úr dagbók:
http://blog.central.is/hugdettur? = "Ég fór á
skemmtilegan fund í gær. Það var aðalfundur Félags húsbílaeigenda.
Fundurinn var haldinn á Akranesi svo ég fékk að fara í gegnum göngin.
Fundurinn hófst með því að formaður tilnefndi fundarstjóra.
Það tók 1 mínútu. Fundarstjóri kynnti gjaldkera sem fór yfir reikningana
og niðurstöðutölur rekstrarársins. Það tók u.þ.b. 3 mínútur. Síðan var
orðið gefið laust en enginn vildi tala svo formaður bauð til kaffis. Þá
hafði fundurinn staðið samtals í tuttugu mínútur.
Kaffið tók 45 mínútur. Þá var byrjað aftur á fundinum. Næst átti að
kjósa fólk í stjórn í stað fólks sem vildi hætta í stjórn.
Uppstillinganefnd var búin að redda nýju fólki svo aðrir komu ekki til
greina. Því var stjórnarbreytingin afgreidd með lófaklappi á 3 mínútum.
Svo var óskað eftir fjórum í ferðanefnd og fjórum í skemmtinefnd. Í
þessar nefndir hafði uppstillinganefnd engin nöfn. Síðar fattaði ég af
hverju. Það vantaði nefnilega tvo í uppstillinganefnd þar sem aðeins
einn ætlaði að sitja áfram. Enginn vildi í skemmtinefnd. Enginn vildi
heldur í ferðanefnd.
Samt tókst að fá ein hjón, aðallega af því að þau voru hneyksluð á
áhugaleysi hinna. Þá var tekið hlé í tíu mínútur til að plotta og makka.
Svo fékkst einn kall í viðbót og þá vantaði einn. Enginn vildi vera í
skemmtinefnd. Þá ákvað fundarstjóri að stjórnin skyldi bara finna fólk í
þau störf sem enn vantaði í.
Það var samþykkt með svakalegu lófaklappi. Þar klappaði langmest fólkið
sem ekki vildi vera í neinni nefnd. Þegar það var búið var mig farið að
langa í ís svo ég fór á Olíssjoppuna og keypti mér einn ol-ís í brauði
með súkkulaðimúrhúð.
Meðan ég var að mölva niður múrhúðina leitaði ég að SÓLÓ en fann ekki.
Líklega er hann kominn eitthvert í húsaskjól til lagfæringa. Kláraði
ísinn minn niðri við smábátabryggju en fór ekki út af því það var komin
rigning og ég vildi ekki blotna af því mér var illt í hálsinum. Svo fór
ég heim. ------ Í dag er mér ennþá illt í hálsinum" |
|
Laugardagur
5. nóvember 2005 Ein gömul: Þessi mynd er ekki
frá sviðsetningunni frægu á Ivo Jima , heldur hátíðleg og raunveruleg
stund hjá Skíðafélaginu þegar fyrsta mastrið við nýja skíðalyftu var
reist í Hólsdalnum árið 1977. Á myndinni eru: Sigurjón Erlendsson sem
leit á klukku sína rétt áður en hafist var handa, -- Ágúst Stefánsson og
Bjarni Þorgeirsson |
Laugardagur
5. nóvember 2005
Sigmundur Sigmundsson
er 42ja ára í dag |
Árni
Theódór Árnason
er 65 ára í dag |
|
Föstudagur
4. nóvember 2005 Skíðasvæðið í Skarðsdal Verið
var í morgun að moka leiðina upp að Skíðasvæðinu í Skarsdal,
snjótroðarinn var mættur á svæðið og undirbúningur á fullu við að opna
svæðið - Hvort það tekst í dag að ljúka við það er ekki vitað, en
væntanlega verður svæðið tilbúið á morgun. Nánar verður sagt frá því hér
á Lífinu á Sigló |
|
Föstudagur 4. nóvember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Laugarvegur 13 |
|
Föstudagur
4. nóvember 2005 Ein gömul: Ég veit hverjar þær eru,
amk. flestar, en ég hefi ekki nöfnin þeirra allra á takteinum, en ef
einhver vill vera hjálplegur, - þá sendir hann mér nöfnin og ég færi þau
inn.
Því miður er myndin ekki skörp, en vekur þó minningar. Tekið
1975(?) |
Föstudagur
4. nóvember 2005
Guðmundur Ólafur Einarsson
er 44 ára í dag |
Föstudagur 4. nóvember 2005 |
Föstudagur
4. nóvember 2005
Sveinn Aðalbjörnsson
er 48 ára í dag |
Föstudagur
4. nóvember 2005
Steinar Baldursson
er 62ja ára í dag
|
|
Fimmtudagur
3. nóvember 2005 Aðsend beiðni: Breyttur
tími: - Bingó-Happdrætti Kvenfélags Sjúkrahússins þann 6. nóvember
næstkomandi hefst klukkan
14:00 en ekki klukkan 16:00 eins og stendur í Tunnunni |
|
Fimmtudagur 3. nóvember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Grundargata 12 |
Fimmtudagur
3. nóvember 2005 Aðalfundur
Siglfirðingafélagsins
Smelltu á myndina |
|
_small.jpg) Fimmtudagur
3. nóvember 2005 Tvær vinkonur mínar sendu mér
þessar myndir sem teknar voru í gær, án þess að þær vissu af hvor
annarri, enda á sitt hvorum stað í bænum. Katrín Sif tók myndina til
vinstri klukkan 19:52 Og Hrönn Einars hina klukkan 17:09 en --
Hvar var ég með mína vél?
Þetta fór fram hjá mér. |
|
Fimmtudagur
3. nóvember 2005 Ein gömul: Í fótbolta
1976(?) Ath: Mig langar mig að benda
á að myndin er mjög sennilega tekin 1966 - 67 og byggi ég það á þrennu.
Fyrri ástæðan er sú að á myndinni má þekkja Jóhann Skarphéðinsson í
baráttu við markmann gestaliðsins og æfði hann knattspyrnu einvörðungu
til 14-15 ára aldurs (flutti suður eins og fleiri), en hann er fæddur
1953. Í annan stað hef ég trú á að hann sé þarna á yngra ári sínu í
4.flokki og myndin því tekin 1966 og undirritaður því að spila þarna
aftar á vellinu í vörninni á eldra ári í sama flokki. Síðasta forsendan
er sú sem gleggst er fyrir alla velunnara knattspyrnu á Sigló, en hún er
sú að KS-búningarnir sem þarna eru notaðir voru löngu aflagðir 1976. Ég
er ekki frá því að leikmaðurinn sem er fjær sé Gunnar Trausti
Guðbjörnsson. -- Meira til gamans gert en að málið sé af einhverju
mikilvægi. Kær kveðja, Guðm. Stefán -- Þetta er mjög
sennilega rétt hjá Guðmundi, en þessi mynd og fleiri svipaðar voru í
filmumöppu minni frá árinu 1976 -- en hafa sennilega blandast þangað
fyrir mistök, úr safni "Halla Nonna" sem þá hefur tekið myndina. En ég
varðveiti filmusafnið hans. SK |
Fimmtudagur
3. nóvember 2005
María Sól Sigurðardóttir
er 5 ára í dag.
Hún er til vinstri og með henni er systir hennar Ásthildur.
Þær eru dætur Sigga og Silju.
|
Fimmtudagur
3. nóvember 2005
Stefanía Regína Jakobsdóttir
er 15 ára í dag
Hún er dóttir Elínar og Kobba |
Fimmtudagur
3. nóvember 2005
Sveinn V Björnsson
er 70 ára í dag |
Fimmtudagur
3. nóvember 2005
Arnar Ólafsson
er 63ja ára í dag
Einnig systir hans Sigrún >>>>>>
|
Fimmtudagur
3. nóvember 2005
Sigrún Ólafsdóttir
er 63ja ár í dag |
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005
Skíðasvæðið opnað í dag -- Gamla aðferðin notuð við
snjóframleiðslu --
Á meðan Akureyringar og Dalvíkingar eru í harðri samkeppni um það hvor
verður á undan að gangsetja snjóframleiðslutækin skjóta
Ólafsfirðingar þeim ref fyrir rass og opna sitt skíðasvæði með góðum
snjó í brekkunum sem kom bara upp á gamla mátann ofan úr skýjunum.
Skíðasvæðið verður opnað eftir nokkrar mínútur eða klukkan 14 og verður
opið til klukkan 18 í dag. ---- Þessi frétt er úr
www.dagur.net
í dag
Er ekki nægur snjór í Skarðsdal ?
|
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005
Áhugaverð skrif ungs manns, sem eru þess virði að slappa af yfir
og lesa til enda. Smelltu
HÉR -- Það er Siglfirðingur sem
skrifar - Sonur Leós R Ó og Sigrúnar.
Þú færð rós í hnappagatið frá mér Leó Ingi. |
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005 Aðsent: UNDIRSKRIFTARSÖFNUN
-- með kröfu um staðsetningu flugvallar í Reykjavík. Siglfirðingar
eru hvattir til að rita nöfn sín á blöðin sem liggja frammi í verslunum
bæjarins næstu 10 daga. ---- Textinn er:
Reykjavíkurflugvöllur er tenging landsbyggðarinnar við höfuðborgina,
stofnanir hennar og ýmsa þjónustu sem þar er veitt. Mikilvægi þessa
flugvallar kristallast m.a. í nálægð hans við stærstu og best búnu
sjúkrahús landsins. Þegar flogið er suður með bráðveikt eða slasað fólk
er fráleitt að í framtíðinni skuli lent í útjaðri höfuðborgarsvæðisins
eða enn fjær þessum sjúkrahúsum, hvað þá á Keflavíkurflugvelli, og auka
þannig verulega við þann flutningstíma sem nú er. Lífsnauðsynlegt er að
flugvélar í sjúkraflugi geti að jafnaði lent í Reykjavík. Við sem ritum
nöfn okkar hér undir gerum þá kröfu til allra sem um þetta mál fjalla,
að tryggt verði um ókomna tíð það greiða aðgengi að höfuðborginni, og
sérstaklega sjúkrahúsunum þar, sem Reykjavíkurflugvöllur veitir okkur í
dag. --- Siglfirðingar látum okkar álit í ljós og skráum
okkur öll.Framfarafélagið Snorri Pálsson |
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Laugarvegur 14 |
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005
Hellan er komin út með fjölbreyttu efni að vanda. Viðtöl við Abbý
og Valey - Finna Hauks. Ásamt fréttum úr bænum og fleiru góðgæti |
|
Miðvikudagur 2. nóvember 2005 Aðsent:
Sæll Steingrímur Á mánudagskvöldið er ég var að blogga þá datt mér smá
vísa í hug og þar sem hún tengist nú síðunni þinni , þá ákvað ég að
senda þér hana ...
|
Á vefnum má nú fugla
sjá,
Munka , toppa og þresti
Á Hvanneyri þeir sofa hjá
Arnheiði og Sigga presti |
Kv. ggs
J
www.blog.central.is/gauti
|
|
|
Miðvikudagur
2. nóvember 2005 Líkamsræktarstöðin
Siglufirði var í gær opnuð með promp og prakt klukkan 17:00.
Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur bæjarins og Sigurður Jóhannesson
fyrir hönd bæjarins opnuðu stöðina formlega með ávörpum. Tækjabúnaður
stöðvarinnar er hinn fullkomnasti og í mjög góðu ásigkomulagi, sagði mér
fagmaður, en búnaðurinn var keyptur notaður á um 4 milljónir króna. Ekki
hefi ég á hreinu hver heildarkostnaður byggingarinnar, sem er áföst
íþróttahúsinu kostar, en starfsfólkið sem er 6 manns er hið ánægðasta
með búnað og aðstöðuna í heild. Vonandi verða Siglfirðingar duglegir að
sækja Líkamsræktarstöðina, svo tilganginum verði fullnægt. Hér eru
myndir sem teknar voru í tilefni opnunarinnar.
 |
|
%20(1)_small.jpg) Miðvikudagur
2. nóvember 2005 Körfubíll Slökkviliðsins á Siglufirði,
var skoðaður og "tekin út" í gær af Sænskum sérfræðingi, sem ferðast
hefur um landið til að yfirfara og skoða þessi þarfa tæki hjá
bæjarfélögum sem eru svo heppin að eiga slíkan búnað. Búnaðurinn allur
var í fyrsta flokks ásigkomulagi, enda vanir menn sem hafa um hann séð
frá upphafi. Á myndinni eru; Svíinn, aðili frá Slökkviliði Akureyrar
Viðar Þorleifsson varðstjóri sem
hingað kom með Svíanum og svo Slökkviliðsstjórinn okkar, Ámundi Gunnarsson.
Því miður láðist mér að fá nöfn aðkomumannanna. |
|
  Miðvikudagur
2. nóvember 2005 Sending frá prestinum: Sælt
veri fólkið. Það ber helst til tíðinda að gráþrestirnir eru orðnir 3 við
prestshús. - Auk þess voru hér 2 hettusöngvarar (1 kvk + 1
kk), 1 svartþröstur (kvk) og 3 silkitoppur, auk 20-30 skógarþrasta, eins
og verið hefur undanfarnar tvær vikur eða svo. Meðfylgjandi
ljósmyndir voru teknar seinni partinn í gær. Hér er líka einn saddur og
ánægður eftir máltíðir dagsins, hvílandi á öðrum fæti. Kveðja.
SÆ |
|
Miðvikudagur
2. nóvember 2005 Ein gömul: Dýpkunarpramminn
Björninn, eign þeirra félaga Aage Johansen og Björns Þórðarsonar.
Myndin er tekin sumarið 1976 |
Miðvikudagur 2. nóvember 2005
Hilmar Þór Hreiðarsson
er 26 ára í dag
Sonur Hreiðars Jóhanns
og Möggu Jóns |
Miðvikudagur 2. nóvember 2005 |
|
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
Aðsent: Okkur langar að minna
á Evrópuboltann í kvöld, en vegna óvenjulegra aðstæðna verður boltinn
sýndur í Bíósalnum í kvöld og annaðkvöld á risaskjá. Í kvöld kl.19:30
PSV - AC MILAN og kl.22:20 REAL BETIS - CHELSEA. --- kveðja
Bíó Café. |
|
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
--
ö Snorragata ? |
|
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
JE-Vélaverkstæði -- Eins og fram kom hér á
vefnum í fyrra mánuði, þá skruppu starfsmenn JE-Vélaverkstæði til
Kaupmannahafnar ásamt mökum sínum, svona aðeina að slappa af eftir langa
og stanga törn við vinnu sína. Ég fékk sendar nokkrar myndir frá
ferðinni, sem eru hér á tenglinum
 |
|
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
Aðsent: Sæl. Í gær voru hér (við prestshús) 3
hettusöngvarar (1 kvk + 2 kk), 1 svartþröstur (kvk), 2 gráþrestir og 2
silkitoppur. Frétti af 1 silkitoppu og 1 hettusöngvara (kvk) við hús að
Laugarvegi 15, hjá Sigurjóni Jóhannssyni; silkitoppan búin að vera þar í
4-5 daga, en hettusöngvarinn var nýkominn.-- Skyldu vera flækingar
víðar? - Tók þessa mynd af gráþresti í morgun. - Kveðja. SÆ |
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
Ein gömul: Trillukarlarnir Páll Pálsson og Valtýr Jónasson 1976 |
|
Þriðjudagur 1. nóvember 2005
Svanfríður Pétursdóttir (lengst til hægri) á afmæli í dag.
Engillinn er orðin 44 ára gömul og fær hjartanlegar afmæliskveðjur frá
vinnufélögunum í neðra.
Á myndinni með henni eru hinir innheimtuenglarnir, Ella Maja og Ásdís. |