|
Mig vantar "bílskúr" til
kaups á Siglufirði, helst á láglendi, en "skúrinn" verður
væntanlega notaður undir lítinn vélknúinn plastbát ásamt viðkomandi
kerru -- Upplýsingar: Steingrímur í síma 892-1569 |
|
SAMKOMUR
& UPPÁKOMUR - Smelltu
HÉR
og skoðaðu
+Munið
jólakveðjurnar |
|
Laugardagur
17. desember 2005 Lionsmenn opnuðu í dag sína
hefðbundnu jólatréssölu, og fyrstu menn á vaktinni mættir (að
sjálfsögðu) þegar ég leit við.
Smelltu á myndina |
|
_small.jpg) Laugardagur
17. desember 2005 Veitingastaðurinn Pizza 67 opnaði
í dag klukkan 13:00, þarna eru glæsileg aðstaða (þar sem Rafbær var áður
til húsa í Aðalgötunni) Góð aðstaða er þarna á hlýlegum stað, til að
taka við smærri hópum ferðamanna sem og hinum almennu gestum sem leið
eiga um miðbæinn. Þarna er á boðstólnum auk hinna hefðbundnu Pizza og
skyndibita, einnig allur venjulegur matur steiktur eða soðinn eftir
óskum viðskiptavinanna, svo og auðvitað kaffi og meðlæti.
Við litum þarna inn við opnunina, "starfsmenn"´Lífið á Siglo" Ég SK og
Sveinn Þorsteinsson og fengum okkur kaffi, en við vorum meðal fyrstu
viðskiptavina. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Snjókoma * -
2,8 °C *
0,4 m/s
|
_small.jpg) |
Laugardagur
17. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 13 |
|
Laugardagur
17. desember 2005 Aðsent og....... Siglfirsk sálumessa.
Mér var bent á umfjöllun Össurar Skarphéðinssonar á Bloggsíðu sinni, um
"aðdraganda" ferðar þeirra félaga Kristjáns Möller og Össurar norður á
Siglufjörð þann 11 desember síðastliðinn, þar sem Össur flutti ræðu í
kirkjunni á Siglufirði. -- Ég er ekki trúrækinn maður og fylgist því
ekki með því sem fer fram á þeim vígstöðvum, jafnvel þó svo Össur mæti,
þannig að ég hafði ekki heyrt af þessari uppákomu fyrr. En til að
fræðast aðeins um málið þá geta menn og konur farið á
Bloggsíðu Össurar og lesið um málið. (sunnudagur 11. des) |
|
Laugardagur
17. desember 2005 Þegar
þessi mynd var tekin klukkan 16:00 í gær hafði smá skýjahulu
brugðið fyrir tunglið í lognblíðunni séð frá Hvanneyrarkrók á Siglufirði. |
|
Laugardagur
17. desember 2005 Garðaverðlaun
2005 Viðurkenning fyrir vel hirta garða á árinu 2005 var veitt í gær
á Bíó Café vegna tveggja garða. Annars vegar garðurinn við hús þeirra
hjóna Helga Antonssonar og Júlíu Hannesdóttur og hins vegar þeirra Ástu
Júlíu Kristjánsdóttur og Hálfdáns Sveinssonar. Fengu þau
fallegan áletraðan skjöld, og í stað blómvandar eins og venjulega við
þessa árlegu athöfn, þá færði garðyrkjustjórinn þeim skóflur, sem honum
fannst vel við hæfi góðra garðyrkjumanna.
 |
|
Laugardagur
17. desember 2005 Jóladagar
í Íslandsbanka á Siglufirði. Í gær föstudag var uppákoma í
Íslandsbanka, þar sem Vorboðakór eldri borgara söng fyrir gesti og
gangandi og þáði að lokum ásamt þeim sem vildu ríkulegar veitingar í
kaffistofu starfsfólks bankans
Myndasyrpa >>>
 |
|
Laugardagur 17. desember 2005 |
Laugardagur 17. desember 2005
Dóra Diego Þorkelsdóttir
er 26 ára í dag.
Kveðja frá okkur í Svíþjóð
Þorkell og Fanney Hauks |
Laugardagur 17. desember 2005
Ástrós Óladóttir
er 18 ára í dag.
Hún er vinstra megin á myndinni. Með henni á myndinni er Hanna Guðrún
Pétursdóttir vinkona hennar. -- Kv. Lilja Minný |
|
Föstudagur
16. desember 2005 Ég frétti af þeim Arnari Heimi og
Örlygi á Bíó Café í dag þar sem þeir voru eitthvað að "bauka" Í ljós kom
að þar var Örlygur að aðstoða garðyrkjufræðinginn okkar við að koma upp
ljósmyndasýningu; The Garden elf - listsýninguna ”Runólfur á
ferð og flugi” Sýningin verður opnuð kl. 23:00 á Bíó Café Arnar
Heimir Jónsson hefur tekið saman 31 ljósmynd sem er unnar eru sem fagurfræðileg
atferlisrannsókn á tímum hnattvæðingar. Þetta eru skemmtilegar myndir
sem vert er að skoða í skammdeginu og sannar að Arnari er margt til lista
lagt, sem viðbót við garðyrkjuna.
Sýningin er öllum opin daglega kl. 11:00 – 21:00 fram til 3.
janúar 2006. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * -
4,6 °C *
0,0 m/s
|
_small.jpg) |
Föstudagur
16. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 11 |
Föstudagur
16. desember 2005 Héðinsfjarðargöng -- Eftirtaldir
verktakar og verktakahópar hafa óskað eftir þátttöku í forvali vegna
gerðar Héðinsfjarðarganga. ---
Meðfylgjandi mynd er tekin í sumar af Má Jóhannssyni sl sumar
|
Hópur
1
Íslenskir aðalverktakar hf, Reykjavík
Marti Contractors Ltd, Sviss |
Hópur 2
Metrostav a.s., Tékkland
Háfell ehf, Reykjavík |
Hópur 3
E Pihl & Søn A.S., Danmörk
Ístak hf, Reykjavík |
|
Hópur 4
Arnarfell ehf, Akureyri |
Hópur
5
Leonhard Nilsen & Sønner As, Noregur
Héraðsverk ehf, Egilsstaðir |
Hópur 6
China Railway Shisiju Group Corporation, Kína |
|
|
Föstudagur
16. desember 2005 Fróðleg nýútkomin skýrsla um
hversu nytsamir upplýsingamiðlarnir, vefsíður sveitarfélaga og
ríkisstofnana eru í raun. Þar kemur auðvitað vefur
Siglufjarðarkaupstaðar
www.siglo.is við sögu, og þó svo
að sá vefur sé ekki sá alversti hvað upplýsingastreymi varðar, þá vantar
mikið upp á að útkoman sé viðunnandi. Lesa má skýrsluna í heild
HÉR á vef forsætisráðuneytisins.
----- Meðfylgjandi súlurit hér á síðunni sýnir það jákvæða í
grænum lit---- Siglufjörður á bls. 141 og 363
á pdf skjali.
Frétt ráðuneytisins (fróðleg) varðandi skýrsluna er að finna
HÉR Og samanburður
HÉR |
Föstudagur
16. desember 2005 Ein gömul: Löndun á síld við
Löngutöng, SR á Siglufirði 1961 |
Föstudagur
16. desember 2005
Brynjar Harðarson
er 23 ára í dag
(sonur Hödda Júll og Sillu Hauks)
kveðja frá fjölskyldunni á Sigló og einnig
frá, EBÍ |
|
Föstudagur
16. desember 2005
Óli Júlíus Björnsson
er 79 ára í dag |
Föstudagur
16. desember 2005
Tryggvi Björnsson
er 56 ára í dag |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * -
0,2 °C *
SV 4,0 m/s
|
_small.jpg) |
Fimmtudagur 15. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 9 |
|
Fimmtudagur
15. desember 2005
Lifandi tónlist - lifandi bær.
Kaupmannafélag Siglufjarðar fengu nemendur Tónskóla Siglufjarðar
til að spila og syngja í verslun SR-byggingavörur seinni partinn í gær.
Hér eru nokkrar myndir af krökkunum. >>

|
|
 Fimmtudagur
15. desember 2005 Aðsent: Sumarið
2003 rakst é þessa gömlu bíla á athafnasvæði Báss Forvitnilegt væri að
vita um uppruna þeirra og hvort þeir hafi farið í brotajárn eða hvort
eigi að gera þá upp. -- Kv. Guðmundur Albertsson
Ef einhver þekkir til sögunnar, látið mig vita; Steingrímur |
|
Fimmtudagur
15. desember 2005 Aðsent - án orða
Svona svipað er víst ekki mjög sjaldgæft í Þýskalandi, amk. hef ég
sjálfur verið vitni að ekki ólíku atviki SK |
|
_small.jpg) Fimmtudagur
15. desember 2005 Tvær gamlar: Þessar myndir
eru teknar á árshátíð starfsfólks Sjúkrahússins, að Hótel Höfn, sennilega eftir 1980 (?) Þessi
sem við borðið sitja þekkja flestir, en spurningin er: Hver er
"kvikmyndatökumaðurinn"?
Ég hefi óljósan grun, (ekki viss) og hann er örugglega "skegglaus" í dag
- ef ég þekki hann rétt. |
Fimmtudagur
15. desember 2005
Oddur Guðmundur Jóhannsson
er 51 árs í dag --- |
Fimmtudagur 15. desember 2005
Kristbjörn Leó Sævaldsson
er 7 ára í dag. Foreldrar hans eru Hanna Hrefna og
Sævaldur í Norðurtúni 3
Á meðfylgjandi mynd er hann í skógræktinni í Skarðsdal með mömmu sinni
og systur. |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 6,2 °C *
SV 10,3 m/s
|
_small.jpg) |
Miðvikudagur 14. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 5 |
Miðvikudagur
14. desember 2005 Ein gömul: Hús við
Fossveg, og Hvanneyrarbraut - breytt og horfin |
Miðvikudagur
14. desember 2005
Sigurður
R Stefánsson
er 49 ára í dag |
Miðvikudagur 14. desember 2005
Erla Hallgrímsdóttir
er 74 ára í dag |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 5,8 °C *
SV 6,7 m/s
|
_small.jpg) |
Þriðjudagur 13. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur ?c |
|
 Þriðjudagur
13. desember 2005 Aðsent:
Sælt veri fólkið. --- Sendi hér tvær myndir úr kirkjustarfinu.
Önnur er tekin laugardaginn 10. desember, en þá voru 22 ungmenni úr 9.
og 10. bekk stödd á Löngumýri, ásamt presti sínum og tveimur öðrum
guðsmönnum, til að rifja upp fermingarferðalag í Vatnaskóg haustið 2003
og 2004 og gera eitthvað fleira skemmtilegt. Hin myndin er úr
kirkjuskólatíma 11. desember, þar sem verið er að rifja upp jólasöguna.
-- Kveðja. SÆ |
|
_small.jpg) Þriðjudagur
13. desember 2005 Tvær gamlar: Þegar ég
var að leita af "einni gamalli" á vefinn í dag, þá stóðst ég ekki
freistinguna og valdi þessar tvær myndir í stað einnar. En svona var í
NÝJA BÍÓ árið 1981 - 1983 (?)
Þá fór fólkið, allir aldurshópar, í bíó. |
Þriðjudagur
13. desember 2005
Valbjörn Steingrímsson
er 52ja ára í dag |
Þriðjudagur
13. desember 2005
Fjóla Guðbjörg Traustadóttir
er 20 í dag. (Bjarnagil)
Með
henni á myndinni er Eiður Ágúst , kærastinn hennar. |
|
Mánudagur 12. desember 2005
Lifandi tónlist lifandi bær. Kaupmannafélag Siglufjarðar hefur
verið með uppákomur að undanförnu, það er með músík á Torginu á
föstudögum - Nú eru þeir að færa aðeins út kvíarnar og hafa fengið
nemendur Tónskóla Siglufjarðar til að spila í verslun SR-byggingavörur
næstkomandi miðvikudaginn (14.12) klukkan 16 - svona til að minna á að
það eru fleiri verslanir í bænum en aðeins umhverfis Torgið.- |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 7,3 °C *
SV 11,6 m/s
|
_small.jpg) |
Mánudagur 12. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 7b |
|
Mánudagur
12. desember 2005 Nýjar myndir í AUKASAFNINU Komnar eru
rúmlega 1.100 ljósmyndir teknar árið 1979 á (auka) síðu mína
www.123.is/sksiglo Þetta eru myndir frá
tíma mínum er ég var timburmaður á flutningaskipinu Hvalvík, sem að
mestu var í leigu hjá erlendum aðilum á þeim tíma. --
Fyrir vor á síðunni yfir 2.000 myndir frá veru minni sem timburmaður á
tankskipinu Haförninn |
|
Mánudagur
12. desember 2005 Ein gömul: Þessi mynd er
tekin af jólasveinunum (KS-ingum) bið dreifingu á
jólagjöfum árið1979 |
|
Mánudagur 12. desember 2005 |
Mánudagur 12. desember 2005 |
|
_small.jpg) |

Veðrið í hádeginu:
Úrkomulaust * 4,0 °C *
SV 10,7 m/s
|
_small.jpg) |
Sunnudagur 11. desember 2005 õ Veðrið í hádeginu
ñ
Veðurstöðin í Bakka.
ö
Hlíðarvegur 3c |
|
Sunnudagur 11. desember 2005
Aðsent: Jóhann Örn Guðbrandsson var að útskrifast úr
Lögregluskóla ríkisins 9.des síðastliðinn. -- Þeir voru ekki
fjarri þeirri hátíðarstund, pabbi hans og afi: Á myndinni er hann á
milli Guðbrands J. Ólafssonar, föður síns og Ólafs Jóhannssonar afa.
--- Kveðja Guðrún Sif Guðbrandsdóttir.
Ekki féll eplið fjarri eikinni. |
|
Sunnudagur 11. desember 2005
Félag eldri borgara á Siglufirði og í
Fljótum hélt sinn árlega jólafund í gær í Skálarhlíð -- Kona mín
mætti þar og tók nokkrar myndir sem eru hér á tenglinum. >
+ Fleiri myndir hjá
Sveini
Myndin hér er af Vorboðakórnum |
|
Jólakveðjur til ættingja
og vina
Allir Siglfirðingar og firðinum okkar tengdir, sem þess óska geta
fengið pláss á Lífinu á Sigló
til að senda vinum og ættingjum sem eru
fjarri, jólakveðju. Opnuð verður sérstök
JÓLAKVEÐJUSÍÐA
þann 20. desember næstkomandi, þar sem fyrir verður
komið kveðjum sem berast mér til birtingar, fram að þeim tíma og til
áramóta. Viðkomandi sendir mér mynd að eigin vali ásamt texta,
fjölskyldumynd eða annarskonar mynd sem birt verður með kveðjunni.
Þetta á einnig við Siglfirsk fyrirtæki sem vilja nota þetta tækifæri til að senda
viðskiptavinum sínum og starfsfólki jóla og áramórakveðju. ---
ÞETTA KOSTAR EKKERT. |
Sunnudagur 11. desember 2005
Ein gömul:
Hans Þorvaldsson - Ernst Kobbelt - Jóhann Andrésson og Stefnir
Guðlaugsson
Eftirtaka, ókunnur ljósmyndari. |
Sunnudagur 11. desember 2005
Sólrún Anna Ingvarsdóttir
er 6 ára í dag
Sólrún Anna er dóttir Ingvars Erlings
og Sillu Guðna |
Sunnudagur 11. desember 2005
Anna S Karlsdóttir
er 69 ára í dag
|