MÍR-BÍÓ !
"MÍR-Bíó" fór fyrst að sýna kvikmyndir á Siglufirði, árið 1950. Það var
þegar deild félagsins "Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna"
var stofnuð á Siglufirði (13. júlí 1950).
Fyrst var sýnt í Siglufjarðarbíó, en fluttist síðan í Nýja Bíó, - og var þar
um tíma með vikulegar sýningar. Þar voru auðvitað eingöngu Rússneskar
kvikmyndir á boðstólnum, þó einstöku sinnum Austurþýskar.
Þegar klúbburinn hér á Siglufirði eignaðist sýningarvél, rak Kristján
Sigtryggson trésmiður, þetta
MÍR-Bíó í Sjómannaheimilinu við Suðurgötu og Kommahöllinni við Suðurgötu
10, til skiptis.
Notuð var ein 35mm. rússnesk sýningarvél, sem gefin hafði verið
af "rússnesku þjóðinni".
Aðsókn á þessar sýningar, stóð engan vegin undir kostnaði, enda að líkindum
greitt af "sendiráðinu". Mjölnir, meir að segja kvartar yfir lélegri aðsókn,
jafnframt því hann dásamar þessar myndir í hástert.
Skoðið þá umsögn: HÉR |