Heimild: Steingrímur Kristinsson árið 2002. (kom ekki í blaðinu !)
17. janúar 1931
mun vera sá dagur sem fyrsta talmyndin var sýnd á Siglufirði - og var það í
Nýja Bíó.
Mjög vandasamt var að sýna
þessar talmyndir svo vel færi. Búnaðurinn var þannig að með hverri spólu
sem oftast tók um 10-15 mínútur að sýna fylgdi ein stór grammafón plata um 42
sentímetrar í þvermál, á hverri plötu, var hljóðupptakan sem filmu-spólunni tilheyrði.
Síðan var það sýningarmannsins
að samræma, með handsnúningi vélanna, (vélarnar voru handsnúnar um þetta leiti,
rafmótorar komu ekki fyrr en síðar) hljóðið í samræmi við það sem á tjaldinu
sást, bæði tal og önnur hljóð.
Oft var þetta ekki auðvelt,
sérstaklega þegar og ef filmurnar höfðu slitnað í meðförum, en þá þurfti
sýningarmaðurinn að hægja á hraða vélarinnar, til að nálgast td. vara
hreyfingar þeirra sem voru að tala í myndinni, og reyndust þá
kvikmyndaleikararni hægfara í öllum í hreyfingum, á meðan samræming stóð yfir.
Eðlilegur hraði er (enn í dag) 24
rammar á sekúndu, sem fyrir ljósopið fara.
Svo kom fyrir að plöturnar höfðu
skemmst og nálin hljóp út úr rásinni og skapaði vanda sem komu mörgum
svitadropum af stað, hjá sýningarmanninum og bölvi og ragni sýningargesta, en broslegir
voru margir í frásögnum, þegar rifjað var upp
nokkrum árum síðar.
Loks kom að því að önnur tækni og
betri, kom til, þegar sett var hljóðrönd á filmuna og grammafón
plöturnar fuku. En hljóðröndin var/er enn í dag, ákveðið "munstur" sem gefur
mismunandi tíðni tóna, við það "ljóslína" er mynduð og lýsir í gegn um
tónræmuna, á "fótósellu", (ljósnema), sem gefur mismunandi spennu, sem send er
til magnara sem umbreytir í þau hljóð, sem myndunum tilheyrðu, til
hátalara.
Þessi tækni í höfuðatriðum, er
enn í dag notuð, nema margfalt fullkomnari búnaður, samsvarandi Dolby TX ofl.
ofl. Og 35mm filman sem þeir félagar Edison og Eastman (Kodak) hönnuðu
í félagi um 1890, sem er "enn í notkun", nema að í dag eru filmurnar ekki
eldfimar, eins og þær voru allt til 1955 ca. Og gata stærðin (2x4 göt á ramma)
er aðeins minni (tennur tannhjólanna eru minni í dag) til að stærri myndflötur
og meira pláss fyrir td. TX og Dolby, hljómflutning.
Edison sýndi fyrstu "lifandi"
myndirnar teknar á 35mm filmu árið 1893
SK |