Bíófréttir-auglýsingar | Fyrsta talmyndirn ofl. | Bíófréttir-auglýsingar | Ósannindum hnekkt | Svar Thorarensens | Bíó - auglýsingar | Svar Kristins | Qou Vadis | Bíó-menningin | Reykingar í bíó | Ólætin við Nýja Bíó | Hljómgæði ofl. | Carnegie Hall | Skemmtanalífið | Kjartan Ó Bjarnason | Milli fjalls og fjöru | Helgi Sveins ofl.

>>>>>>>>>>> Qou Vadis

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Bíó-Saga Siglufjarðar: Hvatning

 

 24. júní 1936

Nýja-Bíó.

Quo Vadis?

Nýja Bíó hefir undanfarna daga sýnt myndina “Quo Vadis”, Aðalhlutverkið, Nero, vitfirringinn í hinu rómverska keisaradæmi, leikur karektaleikarinn Emil Jannings af mikilli snilld.

 

Fólk ætti ekki að láta ónotað tækifærið til að sjá þessa mynd, ef nokkur tök eru á, því þar fæst rétt lýsing á því villta munaðarlífi sem yfirstéttirnar lifðu og lifa enn i dag.

Myndin sýnir einnig betur en nokkuð annað þær ógnir og hörmungar sem fasismi og einræði hefir í för með sér.

Áhorfendur fyllast viðbjóði og skelfingu að horfa á alla þá grimmd, ofsóknir og pyntingar sem beitt er við kristna menn af blóðhundum Neros, en fullvíst er, að viðbjóðurinn yrði ekki minni ef bíógestum væri gefið tækifæri á að sjá þær kvalir og pyntingar sem jafnaðarmenn, kommúnistar og Gyðingar hafa orðið að þola af blóðhundum Hitlers í "þriðja ríkinu".

Myndin verður sýnd í kvöld kl, 8½.