
Bíó-Saga Siglufjarðar:
Carnegie Hall
Úr
Vikublaðinu
14.
október 1948
"Carnegie Hall"
(frétt)
Komandi sunnudag verður sýnd
hér í Nýja Bíó stórmyndin "Carnegie Hall", sem er einhver frægasta mynd
sinnar tegundar, sem gerð hefur verið. Efni þessarar glæsilegu myndar er
fyrst og fremst hljómlist hennar, enda koma þar fram margir frægustu
tónsnillingar, sem uppi eru.
"Carnegie Hall" er mesta
tónlistarhöll Ameríku og fara þar fram helstu konsertar, sem fluttir eru
og þar starfa allir helstu tónlistarmenn Bandaríkjanna.
Í myndinni leikur New York
Symphony-hljómsveitin undir stjórn eftirtalinna snillinga:
Leopold Stokowski, Walter Damrosch og Bruno Walter. Lilly Pons syngur "Vocalise"
eftir Rachmaninoff og "Bell song" úr óperunni "Lahme" eftir Delihes.
Ruhinstein leilur "Polnaise" í A-moll eftir Chopin og "Ritual fire dance"
eftir De Falle. Gregor Piatigorsky leikur á cello með aðstoð hörpusveitar.
Í myndinni syngur Rise Stevens
My heart at thy sweet voice" og fleiri lög. Jan Pearce syngur ástarsönginn
"O Sole mio". Ensio Pinza syngur m.a. drykkjusönginn úr "Don Giovanni"
eftir Mozart.
Ennfremur leikur Jnscha Hcifctz
"Conscrto fyrir fiðlu og hljómsveit í A-dúr" eftir Tschikowski. Harry James
leikur á trompet og hljómsveit Vaughn Monroe leikur syrpu af
skemmti-lögum.
Mynd þessi er í einu orði
stórglæsileg og með sýningu hennar gefst tónlistarunnendum þessa bæjar
tækifæri til að eignast ánægjulega kvöldstund. Mynd þessi er kær
tilhreyting frá þeim reyfaramyndum, sem undanfarið hafa haft yfirtökin í
kvikmyndahúsum landsins.
Mættu fleiri slík listaverk,
sem þessi mynd er, koma fyrir sjónir bæjarbúa.
|