Skemmtanir og atvinnuleysi.
(Sigurður Björgólfsson ritstjóri)
Greinin sem átti að birtast í síðasta Siglfirðing, en vék fyrir auglýsingum, hefir vakið mikið umtal hér í bænum,
þó óbirt væri, vegna árásar
"Neista" á ritstjóra þessa blaðs og Thorarensen, lækni. og hefir Neisti gert
greinina frægari en efni stóðu til í upphafi. Er bæjarbúum mál þetta kunnugt
orðið.
Það stóð mikið til fyrir ritstjóra "Neista" síðastlinri þriðjudag. Hann stóð á
gatnamótum og tilkynnti lýðnum að nú væri "Neisti" svo magnaður, að ríða
mundi "íhaldinu" í þessum bæ að fullu. Vikaliðugir kratar hlupu og hjóluðu
heim í húsin að tilkynna gleðiboðskapinn, svo kaupendurnir væru betur
undirbúnir er þeim bærist hið magnaða blað. Sjómaður einn kom þar er
ritstjóri stóð.
"Sæll vert þú Jón félagi",
segir hann.
"Sæll vinur"
sagði Jón.
"Ég heyri að þú sért orðinn hér ritstjóri og hafir skrifað stóra
skammagrein um "íhaldið" hérna".
„Já,
ég er nú heldur á því,"
sagði Jón.
"Það verður að láta fólkið vita að
íhaldsritstjórinn hérna hefir selt sannfæringuna fyrir sextíu krónur".
"Auminginn",
sagði maðurinn.
"Þér hefir þótt það lítið. Þú ert víst
ekki vanur að selja hana svo vægu verði".
Jón varð hvumsa við og stakk báðum höndum í rassvasana, rétt eins og hann
geymdi þar sem enn væri eftir ólátið af sannfæringu upp í bein og bitlinga
Alþýðusambands og ríkisstjórnar.
Má
segja að það sé sprenghættulegur staður fyrir svo arðsaman hlut, því
talsverður "vindur" er í manninum.
Það er ekki gott fyrir Jón eða aðra stórkrata að vera að brigsla öðrum um
sannfæringarverslun, því fáir munu vera hálsliðamýkri en þeir og örlátari á
sannfæringu ef bein eru í boði og er það frægt orðið með endemum.
Það er ekki til neins fyrir Jón að telja Siglfirðingum trú um að ritstjóri
Siglfirðings selji sannfæringu sína. Það trúir honum enginn. En Siglfirðingi
veitir ekki af auglýsingunum, hann er sem sé hvorki gefinn út af almannafé,
og ekki skuldar hann 300 þúsund í Útvegsbankanum og ennþá síður að fátæk
alþýða sé pressuð til að halda honum uppi með skatti af þurftarlaunum sínum.
Það er ekki rúm til þess að kvitta frekar fyrir greiðann er "Neisti" gerði
ritstjóra Siglfirðings með greininni, enda gerist þess ekki þörf.
Fer greinin hér á eftir:
Það hefir víst vakið athygli flestra, hve óvenju mikið hefir verið hér um
kaffihúsalíf, dansleiki opinbera og "klúbba" og ýmsar aðrar aurafrekar
lystisemdir fólksins. Þær eru alltaf að fjölga stofnanirnar hérna í bænum,
sem gera sér atvinnu úr dansfíkn fólksins. Það vekur einkennilegar og
margskonar hugsanir að ganga hér um göturnar stutt fyrir miðnættið (um 11 til
11,1/2) og gægjast inn á dansbúlurnar og kaffihúsin.
Fólkið rennur í þungum straumum eftir götunni. Bíó er að tæmast þetta kvöld.
Í
þetta sinn erum við stödd hérna upp hjá Ráðhústorginu þar sem í óljósri
hylling gnæfir hið "tilkomandi" ráðhús 4-5-6 hæðir með turni og öllu
tilheyrandi. Við sjáum fyrir oss rétthyrndan, sléttan funkisturninn eða þá
gulrófuturn eins og þeir tíðkast á Akureyri. En þetta hverfur fljótt.
Veruleikinn blasir við: Fjósin gömlu., skökk og skæld, og risa vaxin
hálfgróinn haugurinn suður undan. Sumar fjósbyggingarnar eru nú að hrynja í
rúst - hafa að því er sagt er, sligast af hinu sífellda, beljandi mannlega
vatnsmagni, er á þeim hefir dunið áratugum saman. Músík og söngur ríður á
hlustunum úr 4 stöðum. Píanó snillingurinn í Brúarfossi trakterar hljómborð
slaghörpunnar svo undir tekur, hljómsveitin á Bíókaffi hamast, daufur ómur
berst út af Bíó, úr hljómvélum kvikmyndahússins og norskur sálmasöngur og
organsláttur ómar innan úr Fiskerhjemmet. Úr öllu þessu verður undarlega
disharmonisk symfonía, sem minnir á útvarpsklassík.
Undir drynur, eins og
brims og fótadráttur unga fólksins á Bíókaffi og Brúarfossi. sem er að kiða
sér og aka með dýfum og fettum innan
um borðin, sem hlaðin eru venjulegum kaffihúsavistum og sígarettustúfum úr
Tóbakseinkasölu ríkisins. Við göngum lengra og berumst með straumnum. Við
mætum fjölda ungra meyja og eldri með yndislega blóðrauðar varir, sem óvart
hafa orðið í stærra lagi, og ilmandi púðurlyktin blandast saman við
forarlyktina upp úr götunni og fúlu stækjuna sunnan af sandinum.
Allar eru ungu meyjarnar með leðurtuðrur sínar, sennilega með nauðsynlegustu
áhöldum: púðri, varalit, naglalakki, augnabrúnalit og fleiri nauðsynjum. Það
er áreiðanlega ekki hörgull á innflutningi né gjaldeyri fyrir þessar
nauðsynjar.
Hjá Maju eru ungfrúrnar að láta snyrta lokka sína. - Maja á að
setja kórónuna á sköpunarverkið, og tekst það prýðilega. Nú fer að berast að
eyrum gjallandi músík úr austurátt. Hún berst frá Dettifossi, sem er ,
fjölsóttasta kaffihúsið, enda eru þar kunnáttumenn að verki, sem draga að sér
"kúnnana" eins og segullinn stálið. Besta hljómsveit bæjarins. Þarna er
Siglufjarðar "Chat noire". Vér lítum inn. Hvert sæti er þéttskipað í
báðum sölum.
Iðandi kös af kiðandi göngufólki, sem þreytir ganginn aftur og út á hlið og
kallar það dans. þarna er mikið ryk eins og annarstaðar. þar sem "dansað" er.
Rafmagnsdælan hefir ekki við að ausa út rykinu, sem óumflýjanlega berst inn
af götunni og þyrlast upp af hvíldarlausum fótadrætti hinnar "dansandi"
kasar.
Hljómsveitin leikur dúndrandi potopurri, sullað saman af ólíklegustu efnum.
En
meistaraverkið gengur í fólkið. Það hrífst með og syngur undir og sogar ofan í
móð lungun allar þær loftrænu krásir er þarna fást ókeypis. Dansinn er sá
sami og allstaðar annarstaðar, sviplaust við vanganudd og mjaðmakið. Hvert
par hefir þó sína "aðferð" eftir lundarfari og ástríðum hvers og eins. Er
þetta list?
Manni dettur ósjálfrátt í hug kvæðið um kúna og hestinn sem fóru á
dansleikinn. Sennilega hefir einhver nútíma-Esóp búið það til.
Kvæðið er svona og mætti sennilega nota það til að kiða sér eftir á
kaffihúsi:
"Klárinn dansaði kúna við" - Carioca
"aftur, fram og útá hlið" - Cariuca
"Kýrin varð skotin í klárnum strax" - Carioca
"En hvað þú hefur fallegt fax!" - Carioca
"Kýrin sigraði klársins vit" - Carioca
"með vangapúðri og varalit."-
Carioca
"Klárinn fylgdi svo kúnni heim" - Carioca
"Svo er nú sagan af þeim" - Carioca
Vér göngum út og niður á byggju. Allt er þar í eyði og tómi. Ekkert skrölt,
engin köll, engin beykishögg - ekkert líf.
Uppi í bænum streyma síðustu aurar fólksins úr tómum pyngjunum inní
danskrárnar, kaffihúsin og bíóið.
Hvað er framundan? Er nokkurt vit í þessu? Hvað fær fólkið fyrir peningana?
Hvað miklu er eytt í þetta á hverju kvöldi, eftir að áfengisverslun ríkisins
hefir verið opin allan daginn.
Eru engin takmörk fyrir því hve margir mega afla sér fjár á heimsku?
|