| Neisti 3. apríl 1948
Tveir stjórnarmeðlimir S.R. svara Mjölni
Mjölnismenn víkja enn einu sinni af
vegi sannleikans
Út af grein, sem birtist í 10. tbl. Mjölnis, með
fyrirsögninni: “Síldveiðibannið er þáttur í hrunaðgerð um
ríkisstjórnarinnar,” viljum við undirritaðir taka fram eftirfarandi:
-
Ríkisstjórnin eða einstakir fulltrúar úr henni
höfðu engin afskipti af ákvörðun stjórnar SR um að hætta að taka
á móti síld úr Hvalfirði 6. mars s.l.
-
Þegar verksmiðjustjórnin tók ákvörðun sína,
mátti gera ráð fyrir að með svipaðri síldveiði og áður, mundi
það mikið magn síldar berast til Siglufjarðar að síldarvinnslu
yrði ekki lokið fyrr en vikuna fyrir páska.
-
Svo sem öllum Siglfirðingum er kunnugt, þurfa
fram að fara mjög umfangsmiklar viðgerðir, endurbætur og
lagfæringar á verksmiðjunum öllum og má gott heita ef tími
vinnst til þess að koma þeim í fullhæft rekstursástand áður en
síldveiði hefst um mánaðarmótin júní-júlí n.k. En að okkar áliti
er algjörlega óverjandi að halda áfram að vinna síld með tapi,
þannig að það gæti orðið til þess að ekki væri hægt í tæka tíð
og með góðum árangri að taka á móti verðmætari afla
Norðurlandssíldar. Þegar verksmiðjustjórnin tók ákvörðun
sína, var 70% af veiðiskipaflotanum hættur veiði.
-
Af þessu leiddi, að búist var við minni afla og
flutningaskipin því ófús á að liggja í Reykjavíkvik og bíða
eftir síld, nema trygging eða ákveðin greiðsla kæmi til af hálfu
S.R. Hefði það að sjálfsögðu leitt til aukinna útgjalda fyrir
S.R.
-
Það er rangt í greininni, að stjórn S.R. hafi
verið boðið £ 140-0-0 í síldarlýsi pr. tonn. Hið sanna
er, að stjórn S.R. reyndi að selja fyrir þetta verð cif., en gat
ekki. Ennfremur reyndu S.R. að selja fyrir £ 131 cif. og tókst
það heldur ekki. Er því víðs fjarri, því miður, að þetta ágæta
verð hafi nokkurn tíma staðið til boða.
-
Verksmiðjunum hefur aldrei staðið til boða £
48-0-0 í tonnið af mjöli, eins og Mjölnir fullyrðir. Hið rétta
er, að líkur eru fyrir, að takast muni að selja nokkurn slatta
af mjöli fyrir £ 47.0.0 pr. tonn, án protein uppbótar
fob. Í Holland, en það þýðir að frá þessu verði þarf að draga
flutningsgjald til Hollands, vátryggingu, geymslu í Hollandi og
útskipun þar. Hið raunverulega fob-verð hér, miðað við 65%
protein, er því um £ 40 tonnið.
-
Rætt var um að hefja vinnslu á Hvalfjarðarsíld á
Skagaströnd, meðal annars til að fá reynslu á vinnslugetu nýju
verksmiðjunnar þar. Verksmiðjustjórinn á Skagaströnd taldi þess
engan kost að hefja þar vinnslu nú.
-
Að endingu viljum við láta þess getið, að á
fundi þeim, sem verksmiðjustjórnin samþykkti að áliti Mjölnis,
þær skaðsemdaraðgerðir, að hætta móttöku Hvalfjarðarsíldar í
Reykjavík 6. mars, var mættur fulltrúi Sósíalistaflokksins
Þóroddur Guðmundsson og greiddi hann ekki atkvæði. Verður að
líta svo á, að hann hafi ekki álitið þessa ályktun stjórnar S.R,
það skaðlega, að hann teldi rétt að greiða atkvæði gegn henni.
Við höfum
mótmælt helstu rökleysum og staðleysum í áðurnefndri Mjölnisgrein og
látum það nægja. Hitt látum við svo lesendur eina um að dæma, hvort
aðrar hugleiðingar blaðsins um, að núverandi ríkisstjórn vinni að því að
skapa atvinnuleysi, hafi ekki við álíka rök að styðjast og fleipur
blaðsins, sem hér hefur verið hrakið.
Reykjavík, 16. mars 1948
Erlendur Þorsteinsson
Jón Kjartansson |