|
Sofandi bæjarstjóri
Stjórn S.R. samþykkti fyrir hálfum mánuði, að leggja
til vinnu við lagfæringu á Þormóðsgötu og Norðurgötu.
Bæjarstjóri dregur að byrja á verkinu í nærri hálfan
mánuð. - Athugun á atvinnuhorfum í bænum hefur ekki getað byrjað vegna
þess, að gögn frá bæjarstjóra hefur vantað.
Fyrir allöngu var samþykkt í bæjarstjórninni að leita
samkomulags við stjórn S.R. um, að verksmiðjurnar tækju þátt í kostnaði
við uppbyggingu Þormóðsgötu og lagfæringu á Norðurgötu, með tilliti til
þess, að aðalumferðin um þessar götur er frá verksmiðjunum. - Bauðst
bærinn til að leggja fram vélar og áhöld til framkvæmdanna, ef
verksmiðjurnar legðu til vinnuaflið.
Þessi málaleitun var síðan tekin fyrir á fundi
verksmiðjustjórnar og samþykkt að verða við henni. Gerðist þetta 6.
ágúst sl, og var bæjarstjóra tilkynnt það samstundis.
Nú skyldi margur ætla, að bæjarstjórinn hefði rokið upp
til handa og fóta og gripið tækifærið undir eins, úr því að lítið var að
gera í verksmiðjunum og látið byrja á verkinu með eins miklum mannafla
og hægt var að koma að því og fá í verksmiðjunum.
En sú varð þó ekki raunin á. Það var ekki fyrr en eftir
nærri því hálfan mánuð, eða síðastliðinn mánudag, sem hann loksins
rumskaði og lét byrja á verkinu.
Hver einasti maður, nema e.t.v. bæjarstjórinn, hlýtur að
sjá í hendi sér, að heppilegast hefði verið að hefja þetta verk meðan
lítið var að gera í verksmiðjunum.
Ef síld hefði farið að veiðast eitthvað að ráði, svo sem
allir vonuðu og vona enn að verði, hefðu verksmiðjurnar tæpast getað séð
af einum einasta manni til þessa verks.
Og ekki er ósennilegt, að verksmiðjurnar verði tregar
til að leggja í mikinn kostnað við þetta verk síðar, þegar bræðslutíma
er lokið, úr því að bæjarstjóranum er það ekki meira áhugamál en svo, að
hann sinnir því ekki á neinn hátt þegar lítið er að gera í verksmiðjunum
og vel hægt að sjá af mönnum þaðan.
Það eru því líkur til, að þessi svefnpurkuháttur
bæjarstjórans skaði bæinn um stórfé, e.t.v. tugi þúsundir króna.
Þá er rétt að geta þess, að athugun sú, sem bæjarstjóra
fól allsherjarnefnd á síðasta fundi sinum að láta fara fram á
atvinnuástandinu í bænum, og ljúka fyrir 20. þ.m., hefur ekki getað
hafist ennþá, vegna þess, að bæjarstjórinn hefur ekki tilbúin nauðsynleg
gögn og skýrslur, sem nefndin þarf að hafa til þess að geta unnið þetta
verk.
Virðist bæjarstjórinn hafa næsta lítið yfirlit yfir
fjárhag bæjarins og hinna ýmsu sjóða hans og fyrirtækja, og fylgjast
slælega með framkvæmdum.
Kveður þá rammt að sofandahættinum, þegar bæjarstjórnin
og nefndir hennar geta ekki starfað, vegna þessa, að bæjarstjórinn
fylgist svo illa með, að hann getur ekki gefið nauðsynlegustu
upplýsingar, sem bær þurfa að styðjast við í starfi sínu. |