|
Ætlar ríkisstjórnin að svíkja
Siglfirðinga um lýsishersluverksmiðjuna ?
Langt er síðan farið var að tala um að reisa
lýsishersluverksmiðju á Íslandi. Úr framkvæmdum hefur litið orðið og
allt fram að því, að nýsköpunarstjórnin var mynduð, virðast þær
ríkisstjórnir, sem setið hafa ekki hafa hugsað um málið í alvörn, hvað
þá að hafist væri handa.
Nýsköpunarstjórnin hefur framkvæmdir.
Lýsishersla er ein af þeim fáu atvinnugreinum, sem hægt
er að reka með stóriðjusniði hér á landi.
Með því að herða lýsið getum við tvöfaldað eða jafnvel
þrefaldað útflutningsverðmæti síldarlýsis. og jafnvel lagt grundvöll að
stóriðnaði með því að fullvinna lýsið og flytja út smjörlíki, sápur og
fleira, sem úr því er framleitt. Slíkur iðnaður myndi veita gífurlega
atvinnu hér á landi og margfalda útflutningsverðmæti lýsisins.
Þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð í október 1944 var
það eitt af fyrstu verkum þáverandi atvinnumálaráðherra Áka Jakobssonar
að hefja undirbúning að byggingu lýsishersluverlesmiðju.
Ólafur B. Bjarnason efnafræðingur var sendur utan til að
kynna sér rekstur hersluverksmiðja og til að afla tilboða í vélar og
efni. Eftir að þeirri ferð var lokið, var skipuð byggingarnefnd
verksmiðjunnar, og aflað með lögum lántökuheimildar hjá A1þingi til
greiðslu á stofnkostnaði.
Byggingarnefndin hófst þegar handa. Byrjað var á því að
rannsaka hvar hentugast væri að byggja verksmiðjuna. Eftir ýtarlega
athugun lagði nefndin það til við þáverandi atvinnumúlaráðherra, að hún
yrði byggð á Siglufirði og féllst hann á það og er ríkisvaldið þar með
búið að binda sig um staðsetningu verksmiðjunnar.
Því næst var farið að afla véla. Lögð var áhersla á að
kaupa þær vélar, sem lengstur var afgreiðslutími á, þ.e. vélar til
vatnsefnisframleiðslu og var fest kaup á þeim í Englandi fyrir ca. 1,3
milljónir íslenskra króna en afgreiðslutíminn var 13 mánuðir.
Þessar vélar eiga að vera tilbúnar í apríl mánuði n.k.
Byggingarnefndin var önnum kafinn í starfi sínu.
Hún var búinn að útvega reyndan erlendan efnaverkfræðing
til að takast á hendur tæknilega stjórn á verksmiðjunni.
Það var meining hennar að hefja smíði verksmiðjunnar
árið 1947 og ljúka smíðinni árið 1948, svo að hægt væri að
starfrækja hana veturinn 1948 -'49. |