Neisti, 15. júlí 1936
Fleiri þrær vantar.
Í síðasta Neista var minnst á það, hversu mikil knýjandi nauðsyn væri á, að fleiri þrær kæmi við verksmiðjurnar. Þar var aðeins minnst á eina þró, sem byggja mætti sunnan við þró þá, sem Nýja verksmiðjan vinnur úr.
Sú þró ætti að geta tekið allt að því 20 þúsund mál. Vitanlegt er, að þó stórlega væri bætt úr með verkmiðjuþrærnar, sem þá yrði safnað í og saltað vel og geymt þar til minna bærist að.
Lóðarpláss fyrir þrærnar er til - og skal bent á það ef óskað er. Það getur vel verið, að mikið kosti að byggja þessar þrær, en það kostar ábyggilega mikið meira að byggja þær ekki.
Enn er eitt sem benda má á, og það allþýðingarmikið upp á vinnslu verksmiðjanna að gera, og það er að þrærnar séu yfirbyggðar.
Sé rigningarsumar kemur mikið vatn í síldina, vinnsla verður miklu erfiðari, sem munar því, að allt að því helmingi minna fer í gegn en ella.
Sama er að segja, ef miklir hitar eru og sólarsterkja, síldin grotnar og verður erfiðara að vinna hana. Eins losnar úr henni lýsi sem tapast að einhverju leiti.
Þá má nefna eitt atriði enn og ekki það veigaminnsta.
Ef framtíðarkarfavinnsla verður hér, sem verður að vinna að, að geti orðið, er nauðsynlegt að sá staður, sem fólkið vinnur á við innanúrtöku lifrarinnar sé yfirbyggður.
Helst yrði karfavinnslan að vori og hausti og er þá oft kalsaveður hér á Siglufirði, og er algjörlega óforsvaranlegt að láta fólkið standa úti við dútlvinnu, eða réttara sagt vinnu sem ekki er hægt að hita sér á þó unnið sé af kappi.
Það mun ekki langt frá, að yfirbygging mundi borga sig á einu ári, í betri vöru, meiri afköstum verksmiðjanna og meiri vinnu fólksins við karfann.
Að þessum málum mun frekar verða vikið síðar. |