Neisti, 4. september 1936
Knattspyrnukeppni Síldarverksmiðja ríkisins, sem getið var hér í síðasta blaði, lauk s.l. miðvikudag með því að S.R.N. vann SR-30 með 4 gegn 2 mörkum.
Úrslit keppninnar urðu því þau, að S.R.N. fékk 4 stig, SR-30 2 og S.R.P. 0.
Knattspyrnuflokkur S.R.N. vann þar með bikarinn, sem um var keppt og hlaut til viðbótar nafnbótina "Besti knattspyrnuflokkur Síldarverkamiðja ríkisins"..
Leikurinn milli S.R.N. og SR-30 var á köflum harður og skemmtilegur, þó varð það til þess að skemma þennan úrslitaleik, að þegar 13 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik sprakk knötturinn og enginu var til vara. Var þar um að kenna óforsjálni og trassamennsku knattspyrnunefndar og má slíkt aldrei koma fyrir aftur.
Í þetta sinn var knöttur sóttur niður í bæ, en kalsaveður var og nærri óverjandi að láta knattspyrnumennina bíða heita og rennblauta á meðan, enda fóru tveir úr liði SR'30 heim og spilaði það lið með 9 mönnum, það sem eftir var af síðari hálfleik.
Sá hluti leiksins var þó bestur, skerpan, samspilið og, "upphlaupin" mest og ákveðnust.
Það verður sennilega dómur flestra, sem á leikana horfðu, að lið SR-30 sé jafnleiknast og best, jafnvel þótt það tapaði fyrir S.R.N.
En SR-30 vantar duglegan "skotmann" og liðið allt vantar meiri skerpu og herslu. Var þetta áberandi bæði í leik SR-30 við S.R.N. og S.R.P.
Báðir leikirnir voru mest af átakalitlir frá SR-30 hendi fyrr en síðustu mínúturnar í síðari hálfleik.
Það sem einkenndi aftur á móti leiki S.R.N. frá byrjun, var harðneskja og dugnaður og sama mætti segja um S.R.P. Annars eru víst allir, sem á leikina horfðu, sammála um það, að knattspyrnumennirnir hafi upp til hópa staðið sig ágætlega, þegar tekið er tillit til þess, að langflestir þeirra voru gjörsamlega óæfðir menn.
Síðastliðinn laugardag, kl. 6, afhenti svo framkvæmdarstjóri Síldarverksmiðja ríkisins, hr. Gísli Halldórsson, í viðurvist knattspyrnumanna verksmiðjanna, sigurvegurunum, S.R.N.-liðinu, bikarinn.
Við það tækifæri lét framkvæmdarstjóri þess getið, að sér væri það áhugamál að efla íþróttalíf verksmiðjumannanna á sem víðtækastan hátt, t.d. þyrfti sem allra fyrst að koma upp sundlaug fyrir verksmiðjumennina o.fl. ofl.
Þökk sé stjórn og framkvæmdastjóra fyrir það, sem gjört hefur verið og vel er það, ef meira verður að gjört. |