Síldarverksmiðjumálið | Betri þrær ofl. | Borðeyradeilan | Sólbakkadeilan | Æsingamoldveður | Lygum hnekkt | Síldveiðin | Fleiri þrær ... | Karfaveiðarnar | SR og knattspyrna | Karfavinnslan | Karfaveiðar og ... | Aflaskýsrsla ofl. | Tóm síða | Brendu skeytin | Stjórnarbreytingar | Síldveiðin | Þorkell Clementz | Opið bréf til Kolka | Menningarbær ! | Lýsis-skaði

>>>>>>>>>>> Karfavinnslan

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Neisti, 9. september 1936

Karfa vinnslan

Nú þegar eru komnir hingað til Siglufjarðar 7 togsrafarmar af karfa og hefir verið unnið af fullum krafti í Nýju verksmiðjunni að því að hirða lifrina og vinna verðmæti úr karfanum bæði mjöl og lýsi.

Við þennan atvinnuveg hér á Siglufirði skapast atvinna meira og minna fyrir um 270 manns í landi, fyrir utan þá 150 menn sem á skipunum eru sem hingað veiða.

Um hefir samist milli verksmiðjanna og verklýðsfélaganna að jafnaðarkaup verði greitt við vinnsluna, kr, 1,55 á klukkustund fyrir karlmenn, en kr. 1,25 fyrir kvenfólk.

Unnið er inni í verksmiðjunni á þremur 8 stunda vöktum, en við útivinnu er fólkinu skipt í 6 fokka og eru 18 stúlkur og 18 karlar í hverjum flokk.

Fyrir kemur að 3 togarar landa samtímis og eru þá 3 vinnuflokkar úti í einu við lifrartökuna.

Það var eigi fyrir allöngu minnst á það hér í blaðinu hversu knýjandi nauðsyn væri á því að byggja yfir pallana þar sem unnið er að innanúrtöku svo fólkinu gæti liðið sæmilega við vinnu sína.

Nú þegar hefir verið úr þessu bætt með því að syðsti saltakúrinn hefir verið lagaður þannig, að borð hafa verið sett eftir endilöngum skúrnum til þess að vinna við.

Standa stúlkurnar öðru megin við borðin en karlar hinumegin. Á norðurhlið skúrsins hafa verið gerð göt, til þess að láta karfann inn um, og er það til stórra þæginda og vinnuléttis fyrir þá sem láta karfann upp á borðin, vegna þess að nú er gangur ekki neinn.

Í lofti hefir verið komið fyrir mörgum ljósum, svo þegar kveikt hefir verið er bjartara en um hádag, og ennfremur til þess að gera vinnustaðinn ennþá vistlegri, hefir verið komið fyrir hitaleiðslum eftir endilöngum skúrnum.

Þarna inni geta unnið unið 100 manns samtímis.

Framkvæmdarstjóri Gísli Halldórsson á þökk skilið fyrir þessar framkvæmdir sínar. Þarna er verið á réttri leið, því ábyggilegt er, að eftir því sem fólkið við verksmiðjuna hefir betri kjör, aðhlynning  öll við vinnuna betri, þeim mun meiri hagur verksmiðjanna.

Sé maður sem vinnur ánægður, afkastar miklu meira, heldur en sá sem er með ólund við verkið, og sá sem ánægður er, finnur minna til þreytu að dagsverki loknu en hinn.

Það er ekki vafi á því, að það er einlægur vilji allra Siglfirðinga að karfavinnslan geti orðið framtíðaratvinna hér, þess vegna verða allir, bæði verkafólk og aðrir að vinna saman að því að svo geti orðið.