Eldsvoði.
Húsið "Haugasund" brann til kaldra kola í gærmorgun.
Í gærmorgun, um sjöleitið, varð vart elds í húsinu "Haugasund" (Suðurgata 2) hér í bænum. Eldurinn kom upp með þeim hætti, að annar eigandi hússins, Gunnar Bíldal, sem bjó í vesturenda þess, Hafði verið að hita asfalt (stálbik) á olíuvél, til að gera að gólfi í húsinu. Hafði hann gengið frá vélinni og niður á náðhús, en þegar hann kom upp aftur stóð allt herbergið í björtu báli, og var eldurinn þegar svo magnaður, að við ekkert varð ráðið.
Slökkvilið var þegar til kvatt, en þegar það hafði komið brunaslöngum fyrir, logaði húsið allt innan Veður var blækyrrt, og var því auðvelt verk fyrir slökkviliðið að verja næstu hús. Kjötbúðina og kaupfélagið, enda sakaði þau ekkert. Húsið brann að mestu á tæpri klukkustund. Það féll þó aldrei með öllu, og hangir austurendi þess uppi enn. Slökkviliðið gekk mjög vasklega að verki, eins og svo oft áður, og tókst því að slökkva eldinn að fullu á rúmum klukkutíma.
"Haugasund" var all stórt tveggja hæða hús og stóð þar sem mætast Aðalgata og Suðurgata, á horninu vestan við Lækjargötu. Það var byggt fyrir þá Magnús Þórðarson og Guðbrand Samúelsson veturinn 1919, úr timbri og járnklætt. Núverandi eigendur þess voru þeir H. Thorarensen læknir og Gunnar Bíldal kaupmaður. Bjuggu þeir báðir í húsinu, Bíldal niðri í vesturendanum, en Thorarensen uppi í austurendanum.
Úr íbúð Bíldals bjargaðist eitthvað lítils háttar af innanstokksmunum, en Thorarensen, sem var nýfluttur í húsið og bjó þar einn uppi í austurendanum, bjargaðist slippur og mátti varla tæpara standa.
Tvær sölubúðir voru í húsinu og höfðu eigendurnir þar verslanir, hvor í sínum enda. Úr þeim bjargaðist sama og ekkert.
Húsið var vátryggt í Brunabótafélagi Íslands, vörur Thorarensen munu og hafa verið vátryggðar, en innanstokksmunir ekki. - Húsmunir Bíldals og búðarvarningur mun og hafa verið óvátryggt. Bíða þeir því báðir all-tilfinnanlegt tjón. |