Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Grein um bíórekstur

Úr Vikublaðinu

Mánudagur 1. mars 1943

Kvikmyndahús

eiga að vera rekin af bæjar- og sveitarfélögum.

Þegar fyrstu ófullkomnu kvikmyndirnar voru sýndar, hefur fáa órað fyrir því,  hvert stórveldi var þar í fæðingu. Nú eru kvikmyndirnar orðnar sjálfsagður þáttur  í daglegu lífi fjölda fólks í öllum menningarlöndum. Þær eru orðnar eitt af  mikilvirkustu áróðurstækjum nútímans. Á ég þar ekki aðeins við það, þegar þeim  er beitt í pólitískum tilgangi, heldur hafa kvikmyndirnar áhrif á hugi  áhorfendanna og móta viðhorf þeirra til hlutanna.

 

Það segir sig sjálft að slíkt tæki, sem kvikmyndirnar eru, getur verið tvíeggjað  vopn. Þær geta verið menningartæki, sem gefa möguleika til að útskýra torveld  viðfangsefni og auðskilin. Þær geta glætt fegurðartilfinningu manna, aukið  skilning þeirra á lífi annarra. þroskað siðferðisvitund þeirra. En þær geta líka  verið menningarfjandsamlegar, ruglað heilbrigða skynsemi, spillt smekk fólksins  og  haft niðurdrepandi áhrif á siðgæði hugmyndir þess. Alls þessa þekkjum við  dæmi.

 

Eins og við er að búast hefur kvikmyndaframleiðslu í auðvaldslöndunum lotið  því sama lögmáli og önnur framleiðsla, að tilgangurinn er sá fyrst og fremst að  græða peninga. Á þetta í fyllstum mæli við amerísku kvikmyndaframleiðsluna,  en af henni höfum við íslendingar nú nær eingöngu að segja. En þetta útilokar  þó ekki það, að myndirnar geti verið misjafnar. Það eru til snillingar á meðal  kvikmyndaframleiðendanna og það eru til myndir, sem eru listaverk. Það er því  ekki alveg sama, af hvaða endanum er tekið.

 

Það sem sagt var um framleiðslu kvikmyndanna á líka við um sýningu þeirra.  Kvikmyndahúsin eru flest rekin af einstaklingum eða auðfélögum og þá  auðvitað sem gróðafyrirtæki en ekki sem menningarstofnanir. Þessum eigendum þeirra er yfirleitt sama hvað sýnt er, aðeins að það gefi peninga í  kassann. Mest er sóst eftir ódýrustu myndunum, en þær eru að jafnaði  óvandaðastar og lélegastar.

 

Eðlilegast væri að hið opinbera og þá fyrst og fremst viðkomandi bæjar- og  sveitarfélög eigi kvikmyndahúsin og reki þau. Ætti það að tryggja betur að  menningarsjónarmiðið sé ekki sniðgengið og á hinn bóginn á gróðinn af sýning unum heima í sameiginlegum sjóði bæjarbúa, en ekki í vösum einstakra manna.  Vil ég þó leggja meiri áherslu á fyrra atriðið.

 

Hér í bæ er kvikmyndahús, sem hr. Hinrik Thorarensen á og rekur. Verður ekki  annað sagt, en að rekstur þess ber mjög hin sömu einkenni og annar  atvinnurekstur þessa manns hér í bæ. Samanburður við kvikmyndahús í öðrum  kaupstöðum hér á landi, býst ég við að yrði húsinu hérna mjög óhagstæður og  er þó ekki til mikils jafnað sumstaðar. Á þetta bæði við um myndaval og um  húsið sjálft og hvernig búið er að áhorfendum.

 

Hvað myndavalið snertir, býst ég þó við að bilið sé nú orðið ekki svo mjög  mikið, því að aðrir bíóeigendur hafa nú í seinni tíð lagst það lágt að ekki er með  góðu móti hægt að vera miklu neðar. Eiga flest kvikmyndahúsin skilið harða  gagnrýni. Þó mætti benda á margar góðar og sæmilegar myndir, sem sýndar  hafa verið annarsstaðar en ekki komið hingað. Einnig má benda á, að  annarsstaðar eru að staðaldri sýndar aukamyndir, aðallega nýjar  stríðsfréttamyndir, en hér má það heita viðburður ef sýnd er aukamynd.

 

En hvað húsið sjálft snertir þá er það langt neðan við það, sem annarsstaðar  er, má heita að það sé fullkomin ósvinna, að bjóða fólki upp á slíkt. Sæti eru  óþægileg og ótölusett. Verða þeir sem ætla að vera vissir um sæti að koma og  setjast inn 20 mín. eða jafnvel hálftíma fyrir sýningu, því að engin trygging er  fyrir því að fá sæti, þótt búið sé að kaupa miða ef ekki er strax sest. Sumir  bekkirnir eru þannig að ósjaldan hefur það komið fyrir að þeir hafa liðast sundur  á miðri sýningu og áhorfendur setið í spýtnahrúgunni á gólfinu.

 Nú í seinni tíð  hefur rottugangur ágerst svo mjög, að áhorfendur eru alls ekki óhultir fyrir því að þessar mjúku og fóthvötu skepnur smjúgi ekki á milli fóta þeirra. Það  er nú er ef til vill illa gert að amast við þeim, því að þær hafa sjálfsagt gaman af að fara  á bíó líka, en það kunna margir illa við þetta.

 Mætti bæta úr þessu með  sérstökum sýningum fyrir þessa bíógesti. Sú leið hefur þó ekki verið farin, heldur  rottunum sagt stríð á hendur. Hafa í þeim bardaga verið notuð einhver vopn,  sem leiða af sér slíkan ódaun að miklum óþægindum veldur. Hvort hér er um að ræða gashernað eða eitthvað annað er ekki kunnugt. Vera má að hér verði á breyting þegar eitrunin er farin að verka.

Ýmislegt fleira mætti upp telja af séreinkennum þessa  kvikmyndahúss, en hér skal þó staðar numið. Þó verður ekki hjá því komist að  geta þess, að mikið vantar á að taltækin séu sambærileg við það sem er  annarsstaðar.

 

Áki Jakobsson hefur nú flutt frumvarp um það á Alþingi, eftir ósk bæjarstjórnar, að  bærinn fái einkaleyfi til bíóreksturs. Fram hafa komið breytingartillögur um að  öllum bæjum og kauptúnum verði veittur þessi réttur.

 Óvíst er hvað ofan á  verður í þessu, en þetta er nauðsynjamál, sem þarf að fá afgreiðslu sem fyrst.  Reykjavíkurbær hefur nú samþykkt, að taka rekstur Gamla Bíó og Nýja Bíó í  sínar hendur ef frumvarp þetta með breytingartillögu. verður að lögum.  Eigendur kvikmyndahúsanna syðra eru alveg æfir út af þessu, sem og líka von  er, því að þá missa þeir þær gífurlegu tekjur, sem þeir hafa haft af þessum  rekstri.

 Er vonandi að Alþingi sýni þann þroska að samþykkja svona lög. Þetta er  stórkostlegt menningar- og fjárhagsatriði og það ætti fyrir löngu að vera búið að  veita bæjum og sveitarfélögum þennan rétt. Bíóhúsið hérna er til vansæmdar  fyrir bæinn og því er alveg sérstök nauðsyn að hér breytist til batnaðar.

 

Þá vitum við hvernig kommúnistarnir hugsuðu árið 1943. SK