Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Nýja Bíó lagfært

Úr Vikublaðinu

1953

4. febrúar 1953

Bæjarpósturinn

Viðgerð á Bíókaffi og endurbætur á  Nýja Bíó munu nú standa yfir, en húsakynni þessi skemmdust talsvert í brunanum í byrjun janúar s.l., bæði af  eld, reyk og vatni.

Bíósalurinn verður málaður, sett þar upp veggljós ofl.  endurbætt. Bæjarpósturinn vill nota  tækifærið og flytja eigendum Nýja  Bíós mjög eindregnar óskir margra  lesenda sinna og tíðra bíógesta þeirra  að endurbætt verði sætin í húsinu. 

Það eru fyrir löngu orðnar óskir  Siglfirðinga, að eitthvert samkomuhúsið hér hefði upp á forsvaranleg  sæti að bjóða. Alþýðuhúsið hefur  bestu sætin að bjóða, en að öðru  leiti hafa óskir ekki ræst.

Sætin í  Nýja Bíó eru fyrir neðan allar hellur oft vantar seturnar í sætin og er þá  stundum fyllt í skörðin með kollum stólum. Auk þessa eru sætin  hættuleg hinum viðkvæmu sokkum  kvennanna, en þær munu ærið margar, sem hafa eyðilagt sokka sína á  sætum þessum.

Þá væri ekki úr vegi,  að reynt yrði að uppræta þann "hesthús" brag, sem fólki finnst ríkja yfir  húsakynnum þessum og þá sérstaklega anddyrinu. Það er hörmulegt að  sjá útganginn á öllu þarna, veggir  rispaðir og krotaðir, hurðir skornar  og tálgað úr dyrakörmum, - sorglegur vottur um skort á umgengnismenningu og þá ekki síður skort á  eftirliti og umsjón með húsinu.

Eftirlitsleysið þarna býður skemmdarvörgunum heim. Anddyrið er oft illa  upplýst, stundum algert myrkur í  ganginum inn á salernin og þarna er  því ákjósanlegur staður fyrir ærslafengna unglinga að safnast saman. 

Ef dyravörslu væri þannig háttað  að dyravörðurinn flytti sig að útidyrum eftir að sýning hæfist og  fylgdist þaðan með umferð inn í  húsið, væri engin hætta á spjöllum  og eyðileggingu.

Á þetta er minnst  hér af því, að fólk hefur mikið talað  um, að það óskaði eftir betri umgengni á þessum stað, og að það liði  önn fyrir útlit húsakynnanna eins  og þau hafa oft verið.

Þegar nú  hefur verið málað og gert við og  húsið prýtt. Ættu allir að sýna þann  sjálfsagða menningarvott, að spilla  ekki því, sem bætt hefur verið.

 

Mjölnir 8. febrúar 1953

Bæjarpósturinn

Nýja Bíó hóf sýningar að nýju s.l.  laugardagskvöld. Var bæjarstjórn,  fréttamönnum ofl. boðið á sýningu  þessa.

Engin orð voru um þennan  atburð höfð af eigendum hússins,  en sjón látin vera sögu ríkari.

Húsið  hefur tekið talsverðum stakkaskiptum, verið málað laglega, komið fyrir  veggljósum bæði í sal og á svölum og  við aðgöngumiðagatið hefur verið  sett grind til að sýningargestir þurfi  ekki að ryðjast að gatinu hver um  annan þveran, heldur fari í röð. -. 

Sætin í salnum eru þau sömu, hafa  bara verið lagfærð og bekkirnir lakkaðir. Tilheyrandi yfirvöld munu hafa  krafist þess, að sætin væru fest í gólfið.

Til að byrja með var þetta  framkvæmt þannig, að bekkirnir  voru kræktir saman og í gólfið til  endanna. Þetta var ekki talið fullnægjandi og verða sætin nú skrúfuð  niður í gólfið.

Um leið og Mjölnir þakkar fyrir  bíóið vill hann óska þess, að takast  megi samstarf með bíógestum og eigendum hússins um sómasamlega umgengni og menningarbrag þarna í  framtíðinni.

Frásögn af brunanum, sem nefndur er hér að ofan, er: HÉR