Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Slæm umsögn

Úr Vikublaðinu

28. júní 1950

Bæjarpósturinn

 "Sjón er sögu ríkari."  Já, sjón er sögu ríkari, sögðu  margir er þeir höfðu heyrt og  séð "kvikmyndaafrek" Lofts,  þættina "Sjón er sögu ríkari,"  sem hann sýndi í Nýja Bíó  fyrir síðustu helgi.

Sagan af  þessu "kvikmyndaafreki" hefur  þó ekki verið á eina leið, því  flestir, sem séð höfðu, réðu frá  því að sækja þessa tólf krónu  og fimmtíu aura sýningu.

En  Loftur sjálfur sagði, að þetta  væri einstætt tækifæri til að  kynnast ýmsum fremstu listamönnum vorum. Og sjón varð  sögu ríkari. Flestum, ef ekki  öllum, sem sáu, þótti sér stórlega misboðið, að selja inn á  slíkt á kr. 12.50 - og í öðru  lagi þótti þeim, að listafólki  því sem þarna kom fram væri  stórlega misboðið með þeirri  ranghverfu á list þess, sem  þarna, var boðin fólki, sem góð  og gild vara.

 

Ég held að Loftur og aðrir  slíkir kvikmyndarar ættu að  hvíla sig um sinn, því íslenskt  fólk er ekki þeir bjálfar, að  það gíni við hverju því fúski  á sviði kvikmynda, - sem einhverjum dettur í hug að sýna  því, bara af því að það er  íslenskt og tilraun.

 

Íslenskir  kvikmyndatökumenn hafa sýnt  að þeir geta tekið kvikmyndir af náttúru landsins og atvinnulífi og eru þar eflaust fremstir Kjartan Ó. Bjarnason og  Óskar Gíslason, og þær myndir þykir fólki gaman að sjá og  vill fá meira af slíku.

En það  frábiður sér tilraunir Lofts og  vill heldur að hann haldi  áfram iðju sinni sem ljósmyndari, því þar nýtur hann trausts  og virðingar. Og eflaust fagnar fólk því, þegar hann hefur  náð sama stigi í kvikmyndagerð og í ljósmyndagerð, en  vill ekki borga ærna peninga  til að horfa á tilraunir hans.

Þær getur hann bara sýnt  góðvinum sínum og látið þá  gagnrýna þær.