Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar:  Kvöld í bíó

Úr Vikublaðinu

18. febrúar 1948

Bæjarpósturinn

Kvöld í bíó.

Allflestir hafa  gaman af að fara í bíó, og hjá  mörgum er það einasta skemmtunin, sem þeir eiga kost á.

Við  Siglfirðingar getum tekið undir  með konunni, sem sagði, að  hún gæti setið bíó, þó að hún  sæi enga myndina. Því að þar  væri svo dásamlega gott að vera 

Það var nú ekki hér á Sigló, sem  þetta var sagt um bíóið, ekki  aldeilis. Við, sem höfum komið  í bíó td. á Akureyri, Reykjavík  eða Akranesi, þar sem nýtísku  kvikmyndahús eru rekin og  saman fer góð umgengni, þægileg sæti og prúð framkoma, bæði  hjá starfsfólki og sýningargestum, förum með kvíða og viðbjóði inn í þetta óvistlega bíó  hér.

Og víst er það, að ekki  verða allar bíóferðir til ánægjuauka. Ef einhverjir efast um  orð mín skulu þeir fara í bíó og  reyna viðskiptin.

Og hér kemur stutt lýsing á  einu "kvöldi í bíó". Dragonwyck  er allgóð mynd, ég brá mér þess vegna, ásamt manni mínum, til  þess að sjá hana síðastliðið  mánudagskvöld.

Eitt af því  fyrsta, sem athygli vekur þegar  inn í "forsalinn" kemur er dyravörðurinn. Hann er hvorki stór  né sterklegur né líklegur til þess  að standa af sér mikinn troðning og ólæti uppivöðsluseggja,  heldur er þar unglingspiltur,  líklegast rétt kominn yfir það  aldurstakmark að mega vera úti  á síðkvöldum og sækja kvikmyndasýningar nema í "fylgd með foreldrum".

Hér vísar enginn til sætis. Þið kynnuð nú að  segja, að slíkt sé óþarfi og er  það kannski, en þá þarf bara  að merkja sætin greinilega. Það  tók okkur dálitla stund að  finna sætin okkar. Sumstaðar  hafði verið krassað yfir númerin og á örum stöðum voru  þau horfin með öllu.

Þegar við  höfðum fundið sætin, kom í ljós,  að setuna vantaði í annað  þeirra, en við nánari athugun  kom hún í ljós á gólfinu! Hin  setan datt líka úr þegar sætið  var hreyft.

Klukkan. var alveg að  verða 9- og búið að hringja, en  samt stóð margt af unglingum  út með veggjum og fram við  dyr- og þegar ljósin voru slökkt  og sýning hófst, þá byrjaði eitt  heljarmikið kapphlaup og hrindingar við að komast í sætin- og  tók það dágóða stund. Nú  skyldi maður ætla, að friður  væri komin á, en það var nú  ekki aldeilis, nú fyrst byrjaði  skröltið og skrattagangurinn. 

Manngarmur, sem hélt sig vera  enskan, stóð upp framarlega í  áhorfendabekkjum og tók að  ávarpa mannskapinn: "Ladies  and gentlemen etc." -Má vera,  að hann hafi verið innfæddur,  við eigum nóg af slíkum rónum,  þó að svo væri ekki.

Brátt yfirgnæfði hávaðinn fram við dyrnar allt annað. Þar stóð allstór  hópur í háværum samræðum.

Köll og blástur, skellir í stólsetum ráp um dyrnar og tómar  flöskur eru látnar velta um  gólfið. Nokkrar ungar stúlkur  hlógu eins og vitfirringar og  hættu ekki fyrr en fleiri voru  farnir að horfa á þær en myndina. Mér verður á að spyrja,  hvaða erindi á svona fólk í bíó?  Væri því ekki sæmra að fíflast  í einrúmi?

 

Í hléinu reykti hver, sem honum sýndist í sæti sínu, jafnvel  kvenfólkið var ekki undanskilið.

 

Er nokkuð undarlegt þó að aðkomufólk, sem gistir Siglufjörð  og kynnist bíómenningu okkar,  segi að hér búi aumasti skríll  þessa lands?

Og er nokkur  hissa á því, þó að sæmilega siðað fólk kinoki sér við að sækja  þennan skemmtistað, sem svo  mjög hefur orðið frægur fyrir  eindæma ómenningu í margskonar myndum, allt frá sóðaskap upp í skrílslæti.

Á veturna  er ekki í annað hús að venda,  ef menn vilja sækja bíó, því að  bíó Alþýðuhússins starfar, sem  kunnugt er aðeins yfir sumarmánuðina. Þar er ólíkt friðvænlegra, þó að margt mætti betur  fara, en ég verð því fegnust,  þegar það hefur starf sitt á ný.

4. febrúar 1948.

Bíógestur.