Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Bíó fréttir

Úr Vikublaðinu

1953-1956

 

Bæjarpósturinn og fréttir:

Mjölnir 4. febrúar 1953

Siglufjarðarbíó hefur hafið bíósýningar að nýju.

Verður sýnt tvisvar þrisvar í viku. Húsnefnd verkalýðsfélaganna starfrækir það.

 

Mjölnir 21. júlí 1954

Um kvikmyndir og bíóhús.

Þeir  viðburðir hafa skeð, að hingað í bíóið  hafa komið ágætar kvikmyndir nú í  vor og sumar.

Má þar nefna Rauðu  mylluna, ítölsku myndirnar Vonarlandið og Lokaða glugga, og þýsku  gamanmyndina Hans og Pétur í  kvennahljómsveitinni.

Væri sannarlega óskandi, að forstöðumenn bíósins reyndu að fá hingað góðar myndir eftirleiðis. Myndir sem ofarlega  eru i minni vegna umsagna Reykjavíkurblaða eru t.d. Sviðljós Chaplins  mexíkanska myndin Glötuð æska, er hlotið hefur dóma sem frábært listaverk og leikafrek, og svo er Bæjarbíó í Hafnarfirði enn að sýna ítölsku stórmyndina Önnu, hefur sýnt hana  stöðugt í sex vikur.

Þessar þrjár og  fleiri, þó ekki séu taldar hér, eru  eftirsóknarverðar myndir, og er hér  rneð skorað á eigendur bíóhússins  hér að útvega þær til sýninga.

 

Og svo er það fyrirspurn til þeirra. 

Hversvegna hefur verið hætt að  númera sætin í salnum?

það þekkist  hvergi í reglulegum kvikmyndahúsum, að sæti séu ekki númeruð, enda  getur það verið býsna óþægilegt fyrir  sýningargesti, þegar svo er ekki.

Oft  má sjá einstök sæti auð inni í miðjum röðum, en fólk, sem sitja vill  saman á sýnigunni verður að  standa.

Þegar aðsókn er mikil, gildir  ekki fyrir fólk að vera snemma í  tíðinni að ná sér í miða, heldur hitt  að koma nógu snemma til að ná í  sæti, og sitja svo yfir þeim lon og  don, kannski hálftíma eða meir, -áður en sýning hefst.

Það eru vissulega holurekstrarsjónarmið að bjóða  fólki upp á slíkt, bara til að spara  fyrirhöfnina við að númera sætin. Sem sagt, bræður góðir, góðar  kvikmyndir og númeruð sæti niðri,  það eru næstu verkefnin.

Mjölnir 27. janúar 1955     

Salka Valka verður sýnd hér bráðlega.

Það er Eddafilm, sem sýnir myndina.

Mjölnir 16. febrúar 1955   

Bíódyrnar. Bæjarpósturinn hefur  fengið margar áskoranir um að krefjast þess kröftuglega af eigendum og  umsjónarmönnum Nýja Bíós, að þeir  láti moka betur frá dyrum hússins,  þegar sýningar eru.

Hefur á það  verið bent, að stundum þegar húsfylli sé, þá séu aðaldyr hússins því  nær lokaðar og litlu, þröngu dyrnar  því þær einu, sem um sé hægt að  ganga.

En geilin, sem í skaflinn er  mokuð sé oftast það þröng, að við  vandræðum liggi, þegar svo margt  fólk þarf að ganga þarna um.

Að  þetta er rétt, geta t.d. allir þeir  mörgu, sem í bíóinu voru s.l. sunnudagskvöld vottað. Fólk hefur spurt  hverjum beri að hafa eftirlit með  svona nokkru.

Er þeirri spurningu  hér með beint áfram til þeirra, sem  betur vita. Er það lögreglan, brunaliðsstjóri eða máski einhver annar  aðili, sem á að gæta hagsmuna fólks  í slíkum tilfellum sem þessum.

Mjölnir 19. ágúst 1955  (frétt)

Þrjár kvikmyndir, um notkun kjarnorku til friðsamlegra þarfa.  Upplýsingaþjónusta Bandaríkjanna sýnir í Nýja bíó föstudaginn 19. ágúst kl. 9 þrjár merkilegar kvikmyndir um notkun  kjarnorku til friðsamlegra þarfa.

Í fyrstu myndinni er greint frá  byggingu atómsins, lýst hvernig  keðjusprengingar fara fram, sýnt  hvað gerist er kjarnorkan leysist  úr læðingi, og er það stórfróðlegt.

Önnur myndin greinir frá hagnýtingu kjarnorkunnar í þágu  landbúnaðarins iðnaðar og tækni,  en hin þriðja segir frá hagnýtingu hennar í þágu læknisfræðinnar. Í þeirri mynd er

aðalpersónan, Íslenskur læknir í Boston, Þórður  Einarsson og flytur hann skýringartexta með öllum myndum. 

Er í síðustu myndinni lýst  hvernig hann finnur æxli í heila  manns nokkurs og notar hann  kjarnorkuvísindin ekki aðeins til  að finna æxlið, heldur einnig til  að ná því burt.

 

Efnt er til þessarar kvikmynda  sýningar í tilefni kjarnorkuráðstefnu S.Þ., sem nú er haldin í  Genf.

Aðgangur að sýningunni er öllum heimill ókeypis.

Mjölnir 28. janúar 1956

Mættum við fá meira af slíku!

Það  gerðust þau tíðindi um síðustu helgi,  að Nýja Bíó auglýsti sýningu á góðri  mynd, hvorki meira né minna en  Sviðljósum Chaplíns.

Loks kom að  því að mynd, sem búið er að sýna  í flestum bæjum og smáþorpum  landsins berst á fjörur bíósins hér  og víkur í bili frá þessum eilífu káboj sýningum, sem er daglegt  brauð á borðum þess.

Fullt hús var  á fyrstu sýningu myndarinnar, en á  tveim siðari sýningum lítil aðsókn. 

Hvað veldur? Er það vegna þess, að  enginn síþeysandi skammbyssufantur  sést þar, eða ekkert morð framið eða  engar hryllingssenur sjást þar?

En  samt, - það sýnir sig þó að til eru  nokkur hundruð manns hér í bæ,  sem vilja sjá og njóta góðra kvikmynda og vilja jafnvel greiða talsvert  hærra verð fyrir aðgang að þeim  en venjulegum sýningum, og fyrir  munn þeirra segi ég: mættum við  fá meira af slíku.

Og ég minni á  fyrst og fremst myndina Nútíminn  eftir Chaplín, þá Morfín og Konur til  sölu, frönsk og ítölsk að ég held

Og  fleiri og fleiri myndir mætti telja  upp, sem fengur væri í að sjá.

 

Eigendur Nýja Bíós mega vita það, að  þótt þeir e.t.v. græði ekki mikla  peninga á sýningu góðra mynda, þá  græða þeir vinsældir hjá allstórum  hluta bæjarbúa, sem annars situr  heima og vill ekki eyða hvorki tíma  né peningum i að horfa á hundleiðinlegar kúrekamyndir og skyldu  fantamyndir, sem ekkert erindi eiga  til íslenskra áhorfenda.

Kæru bræður!

Gefið okkur kost á að sjá annað  slagið góðar myndir. Það verður  ykkur til góðs og okkur til ánægju!