Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Kjartan Ó Bjarnason

Úr Vikublaðinu

1949

Mjölnir 4. maí

Frétt - umfjöllun

Kvikmynd af atburðunum 30. mars

 Samkvæmt áreiðanlegum fregnum, sem blaðinu hafa borist, var  tekin kvikmynd af atburðunum  við Alþingishúsið 30. mars síðastliðinn,  að tilhlutan sakadómarans í  Reykjavík.

Er mynd þessi að  sögn gleggsti vitnisburðurinn,  sem enn hefur fengist, um hinar  skrílslegu aðfarir, sem lögreglan  og Heimdallapakkið var látið  beita friðsaman og saklausan  almenning.

Mynd þessi mun þó ekki hafa  verið sýnd nema ráðherrum  og sumum þingmönnum stjórnarflokkanna, ennfremur lögreglustjóra og fleiri útvöldum  úr liði afturhaldsins.

Er fullyrt,  að hún muni ekki koma fyrir  almenningssjónir fyrst um sinn,  að minnsta kosti ekki með samþykki og  vitund lögreglustjóra og núverandi ríkisstjórnar. Er haft eftir  lögreglustjóranum, að vissast  muni að flíka henni sem allra  minnst.

Einnig er nú upplýst, að amerískir fréttaritarar, sem staddir voru í Reykjavík um þetta  leyti, tóku kvikmyndir af óeirðunum. Hafa þær verið  sýndar á, kvikmyndahúsum í  New York. Ber Íslendingum,  sem hafa séð þær, saman um,  að einnig þær beri órækt vitni  um sök lögreglustjórans og  ríkisstjórnarinnar.

 

Mjölnir 31. ágúst 1949

Grein - umfjöllun

ATHYGLISVERÐ KVIKMYNDASÝNING

KJARTANS Ó. BJARNASONAR

Kjartan Ó. Bjarnason, ljósmyndari, hefur undanfarið sýnt  hér kvikmyndir sem hann hefur tekið.

Eru fyrst þættir af  Vestfjörðum, þar sem brugðið  er upp myndum af ýmsum þáttum atvinnulífsins þar fornum  og nýjum; farið í Æðey og varpið skoðað, og er það áreiðanlega  skemmtilegt og minnisstætt  þeim mörgu, sem aldrei hafa átt  þess kost að sjá með eigin augum hið margbreytilega fuglalíf  eyjarinnar.

 

Þá sýndi Kjartan hina margumtöluðu mynd, sem hann tók  af óeirðunum við Alþingishúsið  hinn örlagaríka dag 30. mars s.l.  Myndin hefst á því; að fólk sést  safnast saman, konur, börn og  eldri menn, - fólk á öllum aldri,  sem komið var þarna eftir boði  formanna þriggja þingflokkanna. Næst er svo sýnt, er fólkið  kemur af útifundinum við Miðbæjarbarnaskólann.

Er ekkert,  sem vekur sérstaka athygli þar  nema eitt spjald, en á því sagði  Kjartan að hefði staðið: Vér  mótmælum allir. Allt virðist  með ró og spekt þar til lögreglan  kemur út úr Alþingishúsinu og  byrjar án tafar að berja fólkið,  sem næst stóð. Á hæla, henni  kom svo hvítliðaskríllinn úr  Heimdalli og þá fyrst sést, að fólkið tekur á móti og töluverð  slagsmál verða.

Og þá sést  einnig, að kastað er nokkrum  steinum á eftir Heimdellingum  og lögregluþjónum, sem hopað  höfðu. Þegar séð varð, að gestirnir á Austurvelli kunnu ekki  sem skyldi að meta kylfubarsmíð var byrjað á að gæða þeim  á gasi.

Komst þá hreyfing á  mannskapinn og tæmdist völlurinn fljótt, en fólkið leitaði þó  fljótt aftur á Austurvöll, en þar  hélt lögreglan áfram að dreifa  bandarísku gasi yfir gesti ríkisstjórnarinnar, þ.e. þá sem í  lengstu lög vildu njóta gestrisni  hennar.

Það sem sterkast verkar á  fólk við að sjá þessa mynd, er  hið æðisgengna grimmd, sem  lýsir sér í barsmíð lögreglunnar  og hvítliðsins, meðan það stóð  uppi, og öll er myndin sönnun á  því, að það sé rétt, sem andstæðingar Atlandshafsbandalagsins  héldu fram strax á eftir atburði  þessa, sem sé að með því að  boða fólk þarna saman í þúsundatali - og beita það þessum  tökum á mestu æsingaaugnablikunum hafi átt að egna það til  stórfelldra átaka svo tilefni  gæfist á eftir til ofsókna gegn  andstæðingum bandalagsins.

Það mistókst. Reykvísk alþýða og borgarar sýndu þennan  dag, að Íslendingar eru seinþreyttir til að gera morðtilraunir hver á öðrum. Hvítliðið og sá  hluti lögreglunnar, sem í blindni  hlýddi fyrirskipun hins nasistiskra stjórnanda síns, er undantekning sem allir sannir Íslendingar fyrirlíta og forsmá.

 

Næstu daga eftir 30. mars var  svo leikinn skrípaleikur í réttarsal sakadómarans. Þangað voru  dregnir menn eftir tilvísun  Heimdellinga og eftir ljósmyndum úr Morgun.blaðinu. Ekki  hefur svo kunnugt sé, sannast  sök á nokkurn þessara manna,  og fullyrðingar afturhaldsins  um það, að um skipulagða andstöðu hafi verið að ræða, hafa  fallið um sjálfar sig, fyrir þeim  hefur engin stafur fundist.

 

Að lokum sýndi Kjartan Ó.Bjarnason mynd, sem hann  nefnir: Blessuð sértu sveitin  mín. Eru það ýmsir þættir úr  íslensku sveitalífi, aðallega vor  og sumarannir, einnig göngur  og réttir. Er þetta ansi skemmti  leg mynd, en Kjartan kvaðst  enn eiga eftir að bæta í hana.  mörgum köflum.

Húsfyllir var nærri á hverri  sýningu, á tveim þeim fyrstu  urðu margir frá að hverfa,

Ef þú smellir HÉR geturðu skoðað aðra hlið - lýsingu, (allt aðra) á efni myndar Kjartans Ó Bjarnasonar