Úr Vikublaðinu

1948
Mjölnir 11.
febrúar 1948
Bæjarpósturinn
Bíóið, eða hesthúsið
eins og það er kallað.
Umgengni og þrifnaður, hér í
eina bíóinu á staðnum, er nú með þeim hæti, að mest svipar til hesthúss.
Varla komandi inn í forstofuna nema á stígvélum og sæti og salur svo
ótrúlega óhreint, að enginn, sem ekki sér, getur trúað.
Væri nú ekki verkefni fyrir
hina svokölluðu heilbrigðisnefnd að fá úr þessu bætt, eða láta loka þessu
óþrifabæli, sem hvergi á sinn líka.
Mjölnir 14. apríl 1948
Bæjarpósturinn
Ánægjuleg kvöldstund.
Oft verður okkur Íslendingum það á að skapa í hugum okkar kalda og
hrjóstruga mynd af landinu okkar.
Að minnsta kosti hættir okkur
til þess, sem búum með ströndum fram, umlukt háum, hrikalegum fjöllum og
búum við erfiðar samgöngur. Fegurð landsins meitlast í hug okkar sem hin
kalda, hrjúfa en tignarlega fegurð, mikilúðleg og óhlífin.
Samt vitum við, að Ísland á
ótal staði, sem sýna gagnstæðar myndir. þar sem hin blíða, ljúfa og
tignarlega náttúra birtist í sínu yndislega skrúði, sinni óendanlegu
fegurð.
Síðastliðið. föstudagskvöld fór
ég í bíó til að sjá kvikmyndir Kjartans Ó Bjarnasonar, frá Heklugosi,
skíðalandsmóti ofl.
Það verð ég að segja, að
sjaldan hef ég orðið jafn gagntekinn af að sjá fegurð og hrikaleik
Íslenskrar náttúru eins og þetta kvöld.
Ég hefi ekki átt þess kost að
ferðast um landið mitt, en þarna fékk ég að sjá nokkra fegurstu staði
landsins, ásamt þeim stórkostlegasta leik, sem Íslensk.náttúruöfl leika, -
Heklugosið.
Kjartan Ó. Bjarnason á þakkir
skildar fyrir komuna og þá góðu landkynningu, sem hann flytur
okkur-fáförulum mönnum - sem bundnir erum við störf og skyldur þann tíma
ársins er náttúran skrýðist sínu fegursta.
Yfirleitt eru myndirnar
ljómandi vel gerðar og teknar við hin ólíklegustu tækifæri og oft erfið
skilyrði.
Það var vissulega ánægjuleg
kvöldustund.
Áhorfandi
Mjölnir 19. maí 1948
Bæjarpósturinn
Siglufjarðarbíó byrjaði
sýningar síðastliðinn sunnudag.
Eins og kunnugt er, hafa
verkalýðsfélögin, Þróttur og Brynja, rekið bíósýningar í Alþýðuhúsinu
undanfarin sumur.
Þessi rekstur hefur þó aðeins
verið að hálfu, af hendi félaganna en að hálfu af nokkrum mönnum, sem
áttu sýningarvélarnar.
Nú hefur Alþýðuhúsið keypt
vélarnar, svo þróttur og Brynja reka bíósýningarnar hér eftir að öllu
leyti ein.
Hefur blaðið fregnað, að
vélarnar hafi fengist fyrir mjög hagstætt verð.
Mjölnir 4. ágúst 1948
Bæjarpósturinn
Noregur í litum. Frú
Guðrún Brunborg hefur sýnt hér nokkrum sinnum kvikmyndina "Noregur í
litum." Rennur allur ágóði af sýningum hennar í Stúdentasjóðina
svokölluðu, en þá stofnaði hún bæði hér og í Noregi til minningar um
stúdenta, sem féllu fyrir böðulshendi nasistanna.
Frú Guðrún þykir jafnan góður
gestur hér og ætti fólk að launa henni dugnaðinn og þakka henni fyrir
komuna með því að sækja sýningar hennar.
Mjölnir 11. ágúst 1948
Bæjarpósturinn
Nýja Bíó sýnir nk.
sunnudag kl. 7 hina frægu dönsku mynd "Þess bera menn sár. Þetta er allt
önnur mynd en sú. sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum með sama nafni.
Mynd þessi fjallar um hjúskaparlífið, hin ýmsu tilbrigði þess og vandamál.
Mjölnir 29. september 1948
Bæjarpósturinn
Góð kvikmynd. - Á
morgun verður byrjað að sýna myndina, Góður gestur (The Tunnel) í
Siglufjarðarbíói. Leikur hinn heimsfrægi negrasöngvari Paul Robinson
aðalhlutverkið í myndinni, sem gerist meðal kolanámumanna í Bretlandi. Er
þessi mynd með betri kvikmyndum, sem sést hafa að undanförnu, og á skilið
að verða fjölsótt.