Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíó auglýsingar Grein um bíórekstur Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði Frumvarp um bíórekstur Bíómynda fréttir Kuldi í Nýja Bíó Nýtt kvikmyndahús Siglufjarðarbíó Kvikmyndakynning Börnin og bíó Kvöld í bíó ! Bæjarpósturinn og bíó Bíó umfjöllun Bæjarpósturinn Kjartan Ó Bjarnason Björgunarafrekið Slæm umsögn M.Í.R. ofl. Nýja Bíó lagfært MÍR og bíó Bíó-fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar:  Siglufjarðarbíó

Úr Vikublaðinu

1944

31. maí 1931

NÝTT BÍÓ

Næstu daga byrjar Alþýðuhúsið bíósýningar.  Húsið hefur verið málað  og standsett, keypt í það  góð og þægileg stoppuð  sæti og salurinn stækkaður.

Framkvæmdastjóri er  ráðinn Þórhallur Björnsson, sem undanfarin ár  hefur veitt Alþýðuhúsinu  forstöðu, og getið sér við  það góðan orðstír.

Alþýðuhúsið hefur tryggt  sér góð sambönd með  útvegun mynda. Fyrsta  myndin sem sýnd verður  heitir Casablanca og vakti  feikna athygli í Reykjavík,  en Tjarnar-Bíó sýndi hana  þar sl. vetur.

Mjölnir óskar Alþýðuhúsinu til hamingju með  starfsemina. 

 

Mjölnir 8. júní 1944

Siglufjarðarbíó

Síðastliðin föstudagskvöld var  fyrsta sýningin í hinu nýja  Siglufjarðarbíó. Var þangað  boðið ýmsum trúnaðarmönnum  verkalýðsfélaganna, bæjarstjórn, fréttamönnum útvarps  og blaða og ýmsum fleiri.

Áður en sýning hófst ávarpaði Þóroddur Guðmundsson gestina og skýrði þeim frá tildrögunum að þessum kvikmyndahúsrekstri.

Það var á síðastliðnum vetri, sem  húsnefnd Alþýðuhússins ákvað  að hefja kvikmyndasýningar í  húsinu, og var þá þegar hafist  handa um breytingar á húsinu.  Var salurinn stækkaður, útbúinn eldtraustur klefi fyrir sýningarvélarnar og ýmislegt fleira  Keypt voru ágæt, stoppuð sæti  í húsið. Verkalýðsfélögin eða  húsnefnd Alþýðuhússins fyrir  þeirra hönd, sjá að öllu leyti  um rekstur Siglufjarðarbíós, og  hefur hún ráðið Þórhall Björnsson, sem undanfarið hefur verið  umsjónarmaður hússins, til þess  að veita rekstri þessum forstöðu  Þarf ekki að efa, að það starf  verði rækt með prýði.

Salur Alþýðuhússins er hlýlegur og smekklegur og fer vel  um sýningargestina. Kvikmyndatækin eru ágæt og vakti  það athygli, hve vel, (1) þau skiluðu söngnum og hljóðfæraleiknum í músík myndinni sem sýnd  var.

Siglufjarðarbíó mun fá flestar  sínar myndir frá Tjarnarbíó í  Reykjavík, en sem kunnugt er  er það Háskólinn, sem rekur  það og er þar fremur vandað  til vals á myndum en í öðrum  kvikmyndahúsum.

Það fer vel á því, að verkalýðsfélögin hefjast handa um  kvikmyndahúsrekstur, því að  kvikmyndirnar eru nú eitt af  mikilvirkustu uppeldistækjum um, til góðs eða ills eftir því  hvernig þeim er beitt. Við treystum aðstandendum Siglufjarðarbíós fyllilega til að fara með  þetta tæki og þótt hendur séu  bundnar að nokkru, því að  myndaval er takmarkað, þá er  ekki að efa að sýnd verður full  viðleitni til að reka þetta sem  menningartæki.

 

(1)  Athygli er vakin á annarri umsögn,  hér,  á tveim stöðum á sömu síðu.