Kvikmyndahúsin
Margt má með réttu finna að
þeim kvikmyndahúsum, sem hér starfa. "Nýja Bíó," sem einnig er kennt við
Thorarensen, virðist vera vanhirt, svo að oft blasa við augum bíógestsins,
óhreinindi og blaðarusl, er hann kemur þar inn fyrir dyr. Einnig er
óafsakanlegt að hafa þar aðeins eitt salerni opið, sérstaklega þegar tekið
er tillit til þess, að það er ekki nothæft nokkrum manni.
Á þessu þarf að ráða bót hið
fyrsta. Verða og bæjarbúar og aðkomufólk að sýna meiri þrifnað og
háttprýði, er þeir sækja kvikmyndahúsin.
"Siglufjarðarbíó" er oftast
nær þrifalegt, en sá galli er á gjöf Njarðar, að sýningarvélarnar eru
mjög lélegar og hátalarinn gjörómögulegur. Kemur þetta sérstaklega að sök
(1)
þegar söngvamyndir eru sýndar og hafa gestir hússins ekki hálf not af
myndunum fyrir þessar sakir.
Siglfirðingur 15. júní 1948
HVAÐ ER Á SEYÐI,
(dálkur um uppákomur)
Rússnesk litkvikmynd. Þessa dagana hefur
"Siglufjarðarbíó" sýnt gullfallega litkvikmynd, sem ber nafnið
"Steinblómið". Það er ekki oft nú til dags, sem fólki gefst kostur á að
sjá góðar myndir, en "Steinblómið" er ein hinna fáu undantekninga.
Mynd þessi er gerð með nýrri litartækni,
uppfundinni í Þýskalandi á stríðsárunum, svo skuggar og litir sýnast stórum
eðlilegri en áður var. - Efni myndarinnar er að vísu ekki upp á marga
fiska, en myndin er eins og fagurt ævintýri, eins og sett væri á svið ein
af þessum gömlu ævintýrasögum, er maður heyrði í æsku.
Það verður enginn svikinn af því að sjá þessa
mynd, og vonandi bætast fleiri slíkar í hóp þeirra mynda, er hér verða
sýndar.
Siglfirðingur 17. júlí 1948
HVAÐ ER Á SEYÐI
Skemmtanalífið.
"Gestur" hefir skrifað blaðinu um
skemmtanalífið í bænum. Svo sem pistill sá, er hér fer á eftir, ber með
sér, er hann ekki ánægður með allt í því tilliti. Ekki leggur blaðið dóm á
það, hve mikið er rétt í bréfi hans, en telur þó rétt að birta það, ef
kvartanirnar gætu orðið til einhverra úrbóta. Hinsvegar skal það tekið
fram, að viðkomandi aðiljum er heimilt rúm hér í dálkinum, ef þeim finnst
ástæða til einhverra athugasemda.
1) Kvikmyndahúsin.
Allir Siglfirðingar og margir utanbæjarmenn
kannast við kvikmyndahús þau, sem Siglfirðingar verða að sætta sig við.
Siglufjarðarbíó er að sumu leyti gott,
þar eru öll sæti vel númeruð, bæði uppi og niðri. Einnig er þar sæmilegt
hreinlæti, að undanteknu salerni, sem vart er hægt að segja, að sé til.
En sýningartækin eru með öllu óþolandi,
(2)
og ég er hissa, á þeirri bíræfni að bjóða fólki ennþá að horfa á myndir,
sem nokkur söngur eða hljómlist er í, því að lítið heyrist þá annað en
truflanir.
Ættu hlutaðeigendur þegar að gefa skýringu á
því, hversvegna þeir enn þann dag i dag nota þessi tæki.
Nýja Bíó hefur hinsvegar fyrsta flokks
sýningartæki, en hreinlæti og allur umgangur þar, er ófullnægjandi.
Ennfremur væri æskilegt, að sætin niðri væru betur merkt."
2 ) Dansleikir.
Dansleikirnir, sem hér eru haldnir, eru að fá
á sig eins og annað hér, sumarsvip.
Húsin eru troðfyllt, svo lengi, sem nokkur
vill komst inn og hægt er að troða honum einhversstaðar. Slíkt ástand er
vitanlega með öllu óþolandi og þyrfti lögreglan að sjá um, að ekki sé
fleirum hleypt inn á dansleikina en leyfilegt er og nóg pláss er fyrir.